Morgunblaðið - 20.12.1996, Qupperneq 6
6 FÖSTUDAGUR 20. DESEMBER 1996
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Aðstoðarframkvæmdastjóri Columbia
Staðfesting samninga
var ánægjulegt skref
íslenzka sjónvarpið
Heildar-
kröfur 224
milljónir
FUNDUR kröfuhafa íslenzka sjón-
varpsins hf., eiganda Stöðvar 3, verð-
ur haldinn í dag og frumvarp til
nauðasamninga lagt fram til sam-
þykktar. Að sögn Steinunnar Guð-
bjartsdóttur, tilsjónarmanns fyrir-
tækisins, nema lýstar samningskröf-
ur rúmlega 224 milijónum króna.
Gert ráð fyrir að um 80
milljónir verði greiddar
í frumvarpi til nauðasamninga er
gert ráð fyrir að kröfuhafar fái greitt
35% af kröfum sínum, en lægsta
greiðsla verði 50.000 krónur. Því
má gera ráð fyrir að um 80 milljón-
ir króna verði greiddar upp í kröfurn-
ar.
Fáist samþykki tilskilins fjölda
kröfuhafa fyrir nauðarsamningum
verður leitað eftir staðfestingu Hér-
aðsdóms á niðurstöðu fundarins.
EKKI er hægt að heíja lokaundirbún-
ing að fjármögnun væntanlegs álvers
Columbia Ventures Corporation hér
á landi fyrr en hafnarsamningur
hefur verið staðfestur milli fyrirtæ.k-
isins og íslenskra stjórvalda.
Samningar milli Columbia, Lands-
virkjunar og iðnaðarráðuneytis um
raforku, lóð og fjármögnun voru
staðfestir í London á þriðjudag og
að sögn James F. Hensel, aðstoðar-
framkvæmdastjóra Columbia, er
búist við að hægt verði að staðfesta
hafnarsamninginn 7. janúar en nokk-
ur atriði séu þar ófrágengin.
„Ég hef sagt áður að ákvörðun
um að byggja álver á íslandi er í
raun löng ferð þar sem taka þarf
mörg smá skref áður en áfangastað
er náð. Staðfesting samninganna var
ánægjulegt skref en þegar hafn-
Hafnar samning-
þarf svo
fjármögnun
geti hafist
arsamningurinn verður staðfestur
munum við einbeita okkur að fjár-
mögnuninni," sagði Hensel..
Hann sagði að unnið væri að und-
irbúningi fjármögnunarsamninganna
en ekki væri hægt að stíga öll nauð-
synleg skref í þá átt fyrr en allir
samningar við íslendinga lægju fyrir.
Sanngjarnir samningar
Hensel sagðist telja að þeir samn-
ingar, sem þegar hafa verið staðfest-
ir milli Columbia og Islendinga væru
sanngjarnir viðskiptasamningar og
gæfu samningsaðilum tækifæri til
standa að framkvæmd sem væri öll-
um í hag.
„Við hjá Colúmbia erum þeirrar
skoðunar að samningar þurfi að vera
í allra þágu; annars séu þeir ekki
þess virði að þeir séu gerðir. Við
teljum að þessir samningar séu í
beggja þágu og byggi því traustan
grundvöll undir álver á íslandi,“
sagði Hensel.
Hann sagðist ekki sjá neina sér-
staka erfiðleika fyrir varðandi fjár-
mögnun álversframkvæmdanna en
það mál myndi þó skýrast nánar í
næsta mánuði. Því stæði enn sú
áætlun að fjármögnunarsamningar
lægju fyrir í mars.
Fundað
með Dönum
um lögsögu-
mörk
EMBÆTTISMENN frá íslandi,
Danmörku, Færeyjum og
Grænlandi héldu á þriðjudag
áfram í Kaupmannahöfn við-
ræðum um afmörkun hafsvæð-
anna milli íslands og Græn-
lands annars vegar og íslands
og Færeyja hins vegar.
í tilkynningu frá utanríkis-
ráðuneytinu segir að viðræður
hafi verið jákvæðar og gagnleg-
ar og þeim verði haldið áfram
í byijun næsta árs.
Samkvæmt upplýsingum
Morgunblaðsins hefur vinna
embættismanna fram til þessa
einkum beinzt að því að meta
stöðu málsins og sjá hvaða leið-
ir eru færar til lausnar í deil-
unni. Upplýsingum hefur verið
safnað um lagalega stöðu ríkj-
anna og er nú komið að því að
lagt verði mat á þær upplýs-
ingar, sem fyrir liggja.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Hundur í Jósefínu
ÞAÐ var hundur í henni Jós- fangadagur rennur brátt upp landsins hundar, en Jósefínu
efínu í gær þ ví henni fannst og þá mun J ósefína fá sinn finnst Iifrarpylsa það bezta
dálítið langttil jóla. En að- uppáhaldsmat eins og aðrir semhúnfær.
Þingnefnd afgreiðir lífeyrisfrumvarp
Pétur Blöndal
skilar séráliti
Þrír skrifa undir með fyrirvara
PÉTUR Blöndal, Sjálfstæðisflokki,
skrifar ekki undir breytingartillögur
meirihluta efnahags- og viðskipta-
nefndar við frumvarp um lífeyris-
réttindi starfsmanna ríkisins, held-
ur skilar hann sérstökum breyting-
artillögum við frumvarpið. Einar
Oddur Kristjánsson, Sjálfstæðis-
flokki, skrifar undir álit meirihlut-
ans með fyrirvara og sagðist í sam-
tali við Morgunblaðið styðja breyt-
ingartillögur Péturs Blöndals.
í tillögum Péturs er m.a. gert
ráð fyrir að stjórn Lífeyrissjóðs
starfsmanna ríkisins láti árlega
fara fram tryggingafræðilega at-
hugun á fjárhag sjóðsins. Trygg-
ingafræðingur skuli meta hver ið-
gjaldsprósenta launagreiðanda
þurfi að vera fyrir hvora deild
sjóðsins um sig og iðgjaldsprósent-
an verði að lágmarki 6% af ið-
gjaldsstofni deildarinnar. Þó skuli
hún hækkuð ef þörf krefur þannig
að hrein eign deildarinnar til
greiðslu lífeyris ásamt núvirði
væntanlegra iðgjalda til deildar-
innar séu á hverjum tíma jafnhá
núvirði væntanlegs lífeyris. Þá vill
Pétur að tryggingafræðingur meti
áfallna skuldbindingu sjóðsins um-
fram uppreiknaða eign hans vegna
sjóðfélaga sem höfðu áunnið sér
rétt við gildistöku laganna og geri
tillögur til stjórnar um skiptingu
skuldbindingarinnar á launagreið-
endur eftir ákveðnum reglum.
Vilja að ASÍ-félagar hjá ríki
fái sama rétt
Ágúst Einarsson og Jón Baldvin
Hannibalsson, þingmenn Þing-
flokks jafnaðarmanna, skrifa undir
álit meirihlutans með fyrirvara um
að stjórnvöldum beri að sjá svo um
að starfsmenn ríkisins sem eru inn-
an ASÍ fái sömu lífeyrisréttindi og
öðrum ríkisstarfsmönnum eru
tryggð með frumvarpinu. Aðrir
stjórnarþingmenn sem og stjórnar-
andstæðingar í nefndinni skrifa
undir meirihlutaálitið án fyrirvara.
7 teknir með
fíkniefni
Breytingar á frumvarpi ríkisstjórnar um lífeyrisrétt opinberra starfsmanna
Andstaða samtaka
vinnumarkaðar óbreytt
Forseti ASÍ segir að tryggja þurfi
öllum landsmönnum sama rétt
LÖGREGLAN handtók 7 manns í
íbúð við Hverfisgötu í fyrrinótt. í
íbúðinni fundust fíkniefni og tæki
til neyslu þeirra.
Sjömenningarnir voru fluttir í
fangageymslur og tók fíkniefnalög-
reglan við rannsókn málsins í gær-
morgun.
ANDSTAÐA Alþýðusambands ís-
lands og Vinnuveitendasambands
íslands við frumvarp ríkisstjórnar-
innar um lífeyrisréttindi starfs-
manna ríkisins eru óbreytt þrátt
fyrir þær breytingar sem efna-
hags- og viðskiptanefnd Alþingis
hefur gert á frumvarpinu.
„Eftir sem áður er gert ráð fyr-
ir fullri ríkisábyrgð," segir Þórar-
inn V. Þórarinsson, framkvæmda-
stjóri VSÍ. „Við beindum því mjög
ákveðið til þingnefndarinnar og
fulltrúa stjórnarflokkanna að sett
yrði að minnsta kosti þak á iðgjal-
dagreiðslur ríkisins, þar sem allir
sem að þessu koma virðast vera
svo sannfærðir um að iðgjaldið
muni ekki hækka heldur frekar
lækka, en okkar áhyggjur eru á
hinn veginn. Við teljum óeðlilegt
og óviðunandi að ríkissjóður taki
á sig áratuga langa ábyrgð á því
að raunvextir fari aldrei niður fyr-
ir 3,5%, að lífslíkur aukist ekki,
að örorka verði ekki meiri en 50%
af því sem gerist í Danmörku, að
ríkisstarfsmenn geri ekki annað
tveggja að hefja töku lífeyris við
65 ára aldur og haldi áfram starfi
eða fresti töku lífeyris fram til 70
ára aldurs,“ segir hann.
„Við höfum líka af því mjög
þungar áhyggjur að það muni hafa
áhrif á kröfur opinberra starfs-
manna í komandi kjarasamningum
að ráðstöfunartekjur þeirra verða
skertar að meðaltali um 1,6% með
þessari gjörð,“ segir Þórarinn.
„Þarf að tryggja öllum
landsmönnum þennan rétt“
Grétar Þorsteinsson, forseti ASÍ,
segir að samtökin muni ganga eftir
því við stjómvöld í tengslum við
kjaraviðræðumar að launafólki á
almennum vinnumarkaði verði
tryggður sami réttur og frumvarpið
tryggir opinberum starfsmönnum.
„Við völdum ekki þann kostinn
að fara að velta fyrir okkur ein-
stökum greinum frumvarpsins
heldur frumvarpinu í heild sinni
eins og kemur fram í okkar um-
sögn um frumvarpið. Sú afstaða
er einfaldlega óbreytt,“ segir Grét-
ar.
„Við lítum svo á að stjórnvöld
séu með þessari væntanlegu lög-
gjöf að móta hér stefnu í lífeyris-
málum til framtíðar og teljum að
gefi augaleið að það þýði að það
þurfi að tryggja öllum landsmönn-
um þennan rétt,“ segir hann.
„Við trúum því ekki fyrr en við
sjáum löggjöfina afgreidda að
þetta eigi ekki að ná til félags-
manna okkar sem starfa hjá ríkinu
og í annan stað gerum við þá kröfu
til stjórnvalda að þau tryggi okkar
fólki á almennum markaði þennan
rétt líka,“ segir Grétar.