Morgunblaðið - 20.12.1996, Side 16
16 FÖSTUDAGUR 20. DESEMBER 1996
VIÐSKIPTI
MORGUNBLAÐIÐ
Ríkisbankamir og greiðsluerfiðleikar einstaklinga og lögaðila
Leystu til sín 500 fast-
eignir á síðustu sex árum
ANDRI Hrólfsson, markaðsstjóri Visa, Hilmar Sigurðssson, fram-
kvæmdastjóri Sjónvarpsmarkaðsins og Einar S. Einarsson, forstjóri
Visa, við undirritun samningsins um léttgreiðslur Visa.
Visa býður upp á
nýtt greiðsluform
RIKISBANKARNIR hafa leyst til
sín tæpar 500 íbúðir á síðustu sex
árum eða frá árinu 1991 til 1996
vegna gjaldþrota einstaklinga og
lögaðila. Landsbanki íslands hefur
leyst til sín 309 íbúðir á þessu ára-
bili og Búnaðarbanki íslands 189
íbúðir. Af þessum sökum á Lands-
banki íslands nú 76 íbúðir óseldar
og Búnaðarbankinn 39 íbúðir.
Þetta kemur fram í skriflegu
svari viðskiptaráðherra við fyrir-
spurn Ingibjargar Sigmundsdótt-
ur, Alþýðubandalagi, um fasteign-
ir sem ríkisbankarnir hafi leyst til
sín vegna gjaldþrota einstaklinga
og lögaðila.
Fram kemur að í upphafi árs
1991 átti Landsbankinn 28 íbúðir
og Búnaðarbankinn 19 íbúðir sem
þeir höfðu leyst til sín á uppboðum
eða við fijálsa samninga við við-
skiptamenn sína. Fram kemur að
gjaldþrotaskiptameðferð liggur
ekki alltaf að baki eignayfirtök-
unni heldur getur hún verið liður
í skuldauppgjöri viðskiptamanna
við bankann sem ekki hefur leitt
til gjaldþrotaskipta.
188 eignir sem teljast
atvinnuhúsnæði
I fyrirspurninni er einnig spurt
um hve margar fasteignir teljist
atvinnuhúsnæði af þeim fasteign-
um sem ríkisbankarnir hafi yfir-
tekið. í svarinu kemur fram að á
síðastliðnum fimm árum frá 1992-
1996 hafa bankarnir leyst til sín
188 eignir sem teljast atvinnuhús-
næði, Landsbankinn 139 eignir og
Búnaðarbankinn 49 eignir. í eigu
Landsbankans nú eru 38 eignir
sem teljast atvinnuhúsnæði og eru
óseldar og í eigu Búnaðarbankans
eru 12 eignir.
VISA ísland kynnir um þessar
mundir nýjan greiðslumáta á
sviði greiðslumiðlunar sem ber
markaðsheitið „Léttgreiðslur".
Um er að ræða eins konar milli-
stig milli boðgreiðslna fyrir
reglubundnar greiðslur vegna
fastagjalda heimila og rað-
greiðslna til greiðsludreifingar
vegna stærri innkaupa, en þau
greiðslukerfi hefur fyrirtækið
boðið í rétt 10 ár að því er fram
kemur í fréttatilkynningu frá
Visa Island.
Með þessum nýja greiðslumáta
sem ýtt er úr vör í samstarfi við
Sjónvarpsmarkaðinn ehf., gefst
korthöfum kostur á að skipta upp
eða dreifa greiðslum vegna
smærri innkaupa á jafnar mán-
aðarlegar afborganir án vaxta.
Ekki hefur verið heimilt að selja
eða kaupa vörur á boðgreiðslum
heldur einungis á raðgreiðslum.
BRETAR hafa leyft 44 alþjóðlegum
símafélögum að keppa við innlenda
aðila og segja að langlínumarkaður
þeirra verði gefmn fijáls 12 mánuð-
um fyrr en í öðrum Evrópulöndum.
Bandaríski fjarskiptarisinn
AT&T, Eurotunnel, sem rekur Erm-
ársundsgöngin, og Global One
bandalag Deutsche Telekom,
France Telecom og Sprint eru með-
al þeirra sem er fijálst að keppa
við brezku fjarskiptafyrirtækin
British Telecommunications (BT)
og Mercury. Hömlur á fjarskiptum
í öðrum Evrópulöndum verða ekki
afnumdar fyrr en 1998, en fjöldi
nýrra keppinauta, aðallega frá
Bandaríkjunum, mun geta boðið
fyrsta flokks fjarskiptaþjónustu
milli Bretlands og annarra ríkja
heims frá 1. janúar 1997.
Ódýrari og betri þjónusta
„Bretar hafa sýnt heiminum
fram á að afnám hafta lækkar verð
og bætir þjónustu," sagði Ian Tayl-
or vísinda- og tækniráðherra í yfir-
lýsingu.
Hið nýja greiðsluform er sniðið
að ákveðnum markaðsþörfum og
fyrirbyggja visst frávik frá regl-
um sem viðgengist hafa, sem sé
það að verið sé að skipta úttekt-
um á margar sölunótur.
I fréttatilkynningunni kemur
fram að með léttgreiðslum Visa
opnast söluaðilum jafnt sem kort-
höfum ný og þægilegri leið til
greiðslujöfnunar smærri upp-
hæða með rafrænum, ódýrum og
fyrirhafnarlitlum hætti. Mánað-
arlegar greiðslur skulu vera á
biiinu kr. 1.000-5.000 og upphæð
eftirstöðva ekki hærri en kr.
30.000. Söluaðila er skylt að leita
heimildar fyrir fyrstu greiðslu,
sem gerð skal með kortinu sjálfu,
en eftir það ábyrgist Visa hveija
einstaka greiðslu sem berst um
greiðslurásina, sé kortið í góðu
gjldi þegar skuldfærsla á sér
stað.
„Símgjöld hafa í heild lækkað
um 40% síðan 1984 og ég býst við
að þessi nýju leyfi muni þrýsta nið-
ur verði á samtölum milli landa,“
sagði Taylor, sem vill opnari fjar-
skiptamarkað til að laða að erlendar
fjárfestingar.
Þar með hefur verið stigið
stærsta skrefið í þá átt að opna
hinn alþjóðlega fjarskiptamarkað,
sem BT metur á rétt innan við 2,0
milljarða punda eða 3,33 milljarða
dollara. Um leyfi sóttu 46 fyrir-
tæki í júlí og þar af voru 44 sam-
þykkt.
Hingað til hafa alþjóðlegir keppi-
nautar BT og Mercury — sem er í
eigu annars stærsta fjarskiptafyrir-
tækisins í Bretlandi, Cable & Wire-
less — orðið að taka símastrengi á
leigu hjá tveimur brezkum fyrir-
tækjum.
Breytingin kann einnig að draga
úr mótspyrnu bandaríska fjarskipt-
arisans AT&T gegn 20 milljarða
dollara samruna BT og bandaríska
fjarskiptafyrirtækisins MCI Com-
munications.
Flugleiðir
Gengið
frá sölu
flugvélar
FLUGLEIÐIR hafa gengið frá
söiu á einni af Boeing 757-200
flugvélum sínum. Ákveðið var
að selja vélina í haust og hafa
samningaumleitanir um söluna
staðið yfír undanfarnar vikur.
Samningurinn kveður á um það
að Flugleiðir endurleigi vélina
næstu fimm árin.
f frétt frá Flugleiðum kemur
fram að það er fjármálafyrir-
tækið Nomura, Babcock &
Brown í Bandaríkjunum sem
keypti þotuna. Söluhagnaður
nemur 425 milljónum króna og
batnar eiginíjárstaða Flugleiða
sem því nemur.
Þetta er þriðja flugvélin sem
Flugleiðir selja og endurleigja
með þessum hætti á síðustu
þremur árum.
Verðbólga
innan við 1 %
VÍSITALA byggingarkostnað-
ar í desember reyndist vera
218,0 stig samkyæmt útreikn-
ingi Hagstofu íslands. Þessi
vísitala gildir fyrir janúarmán-
uð. Vísitalan hækkaði um 0,1%
frá fyrra mánuði. Síðustu þijá
mánuði hefur vístalan hækkað
um 0,2% sem jafngildir 0,9%
hækkun á heilu ári Hækkunin
nemur hins vegar 6,1% ef litið
er til hækkunarinnar síðustu
tólf mánuði og að meðaltali var
vísitalan 4,9% hærri á árinu
1996 en hún var á árinu 1995.
Hagstofan hefur einnig
reiknað út launavísitölu miðað
við meðallaun í nóvember. Vísi-
talan sem gildir er 148,2 stig
sem er óbreytt frá fyrra mán-
uði. Samsvarandi launavísitala
sem gildir við útreikning
greiðslumarks fasteignaveðl-
ána er 3.239 stig í janúar næst-
komandi.
Leiga fyrir íbúðar- og at-
vinnuhúsnæði sem samkvæmt
samningum fylgir vísitölu hús-
næðiskostnaðar eða breyting-
um meðallauna hækkar um
0,3% frá og með næstu mánað-
armótum og helst þannig næstu
þijá mánuði, þ.e. til loka mars-
mánaðar.
Fólk
Nýr aðstoðar-
dagskrár-
stjón á Stöð 3
• Þóra Gunnarsdóttir hefur
verið ráðin aðstoðardagskrár-
stjóri Stöðvar 3. Þóra var
starfsmaður
íslenska út-
varpsfélagsins
hf. frá stofnun
þess árið 1986
þar til fyrir
skemmstu. Á
þessum 10
árum hefur
Þóra haft með
höndum marg-
vísleg verkefni á dagskrársviði.
Þóra tók þátt í dagskrárgerð
stöðvarinnar, var aðstoðardag-
skrárstjóri og staðgengill dag-
skrárstjóra um skeið, og nú síð-
ast deildarstjóri erlendrar dag-
skrárdeildar Stöðvar 2. Einnig
vann Þóra að ýmsum sérverk-
efnum og tók þátt í mótun og
hönnun dagskrárstefnu Sýnar.
Þóra hefur þegar hafið störf
á Stöð 3 og unnið að stefnumót-
un og víðtækri endurskipulagn-
ingu, sem nýlega hefur farið
fram í kjölfar þess að íslensk
margmiðlun hf. tók við rekstri
Stöðvar 3.
BARNASTIGUR
BRUM’S 0-14 SÍÐAN 1955
SKÓLAVÖRÐUSTÍG 8 SÍMI 552 1461
Skv. 2. mgr. 86. gr. laga nr. 60/1994
um vátryggingastarfsemi er vakin athygli
á tiikynningu frá Vátryggingaeftirlitinu
í Lögbirtingablaði 20. nóvember sl.
(Lögbirtingablað nr. 127/1996),
þar sem óskað er skriflegra athugasemda
vátryggingartaka og vátryggðra,
vegna beiðna Vátryggingafélags íslands hf.
og Líftryggingafélags fslands hf. um yfirfærslu
vátryggingarstofna og samruna VÍS vátryggingar hf.
og Vátryggingafélags íslands hf.
og VÍS líftryggingar hf. og
Líftryggingaféiags íslands hf.
Frestur lil að skila athugasemdum
til Vátryggingaeftirlitsins er til 8. janúar 1997.
Reykjavík, 19. desember 1996
Vátryggingafélag íslands hf.
Líftryggingafélag íslands hf.
Tugir símafélaga fá
að starfa íBretlandi
London. Reuter.