Morgunblaðið - 20.12.1996, Page 49
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 20. DESEMBER 1996 49
MINNINGAR
Mig langar að minnast Jóns Sig-
björnssonar með fáeinum orðum.
Eg kynntist honum fyrir tæpum 43
árum þegar ég byijaði að starfa á
Viðgerðarstofu Útvarpsins. Jón
hafði þá verið hjá Útvarpinu í 11
ár. Hann byrjaði sitt starf á Viðgerð-
arstofu Útvarpsins sem þá var við
Ægisgötu, en þaðan fór hann að
vinna í Landsímahúsinu við Austur-
völl þar sem Útvarpið var þá til
húsa. Jón fór að vinna við upptökur
og útsendingu á útvarpsefni, sem
varð hans starf æ síðan.
Haustið 1959 var Útvarpið flutt
í hús Hafrannsóknastofnunar við
Skúlagötu. Um sama leyti var Við-
gerðarstofan lögð niður og ég fór
þá að vinna við upptökur og útsend-
ingu á Skúlagötunni. Árið 1966
varð Jón deildarstjóri Tæknideildar
og þá varð ég staðgengill hans.
Samstarf okkar Jóns varð mjög
náið eftir það.
Jón var mikið snyrtimenni og vildi
hafa reglu á hlutunum, hann var
sanngjarn og góður yfirmaður.
Tæknideildinni var vel stjórnað í
hans tíð. Aldrei á öllum þessum
árum sem við störfuðum saman bar
skugga á okkar samstarf.
Jón hafði gaman af ferðalögum
og fór hann margar upptökuferðir
um lanöið. Mörg sumur fóru þeir
félagar, Jón og Stefán Jónsson
fréttamaður, um landið og gerðu
marga ómetanlega þætti um mann-
lífið í landinu. Þessir þættir eru
flestir til í segulbandasafni Útvarps-
ins og eiga þeir eftir að vera góð
heimild frá þessum tíma.
Jón var kvæntur Vigdísi Sverris-
dóttur, frá Hvammi í Norðurárdal.
Voru þau hjón mjög samrýnd og
sérstaklega gestrisin og góð heim
að sækja. Var með okkur góður vin-
skapur.
Starfsmenn Tæknideildar Út-
varpsins senda Vigdísi og fjölskyld-
unni allri sínar innilegustu samúð-
arkveðjur með þökk fyrir góð kynni.
Magnús Hjálmarsson.
Vinur okkar Jón Sigbjörnsson
fyrrverandi deildarstjóri tæknideild-
ar Ríkisútvarpsins er látinn. Þegar
við kveðjum góðan vin koma upp í
hugann minningarnar um allar góðu
stundirnar sem við áttum saman.
Jón var glaðsinna og naut sín vel í
góðra vina hópi. Hann kunni frá
mörgu að segja og oft voru þetta
spaugilegar frásagnir frá þekktum
atburðum og þekktum mönnum. Jón
var gestrisirin og hafði gaman af
að fá fólk í heimsókn. Sem deildar-
stjóra tæknideildar var Jóni umhug-
að um að samhugur ríkti í tækni-
deildinni og lagði hann sitt af mörk-
um til að svo mætti verða. Ófá voru
matarboðin sem tæknimenn ásamt
eiginkonum sínum þáðu hjá þeim
hjónum Jóni og Dísu og þar var
alltaf glatt á hjalla. Einnig stóð Jón
fyrir því að tæknimenn og konur
þeirra færu í ferðalög. Þetta voru
alltaf tveggja daga ferðir og margar
voru skemmtilegar uppákomurnar.
Jón hafði mjög gaman af ferða-
lögum og oft fórum við saman í
ferðir fyrir útvarpið hér á árum
áður. Alis staðar þekkti hann til og
hvar sem við komum brást það aldr-
ei að Jón þekkti einhvern á staðn-
um. Hann var sérlega góður ferða-
félagi.
Oftlega í gegnum árin dvöldum
við hjónin, ásamt Ragnheiði og
Magnúsi, í sumarbústað í Munaðar-
nesi með Jóni og Dísu. Þar áttum
við saman góðar og ánægjulegar
stundir sem gott er að minnast.
Elsku Dísa, við samhryggjumst
þér, börnunum þínum og fjölskyld-
um þeirra og biðjum guð að styrkja
ykkur öll.
Hörður og Guðríður.
VÖNDUÐ OG FALLEG ,
SKRIFSTOFUHUSGOGN
Á FRÁBÆRU VERÐI
Skúffuskáput a hjólum
17x45x63 kt.1t.500
Skrifborð 160x80x75 kt.10.900,-
Hornborð 80x80x75 kt.8.950,-
Skrifbotð 120x80x75 kt. 9.500,-
■=E
oo
CJD
Vélritunarborð á hjólutn
105x40x69 kt. 5.950,-
46.850
Hirzlan
Auðbrekku 19 200 Kópavogur
Sími 564 5040 • Fax 564 5041
wLn ^ M Blað allra landsmanna! ...blabib