Morgunblaðið - 20.12.1996, Page 55
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 20. DESEMBER 1996 55
AÐSENDAR GREINAR
að breytingunni." Og þetta: „Ef um
óverulegan ágalla á fundarboði eða
fundi að öðru leyti hefur verið að
ræða er eiganda ekki rétt, þrátt
fyrir ákvæði 1. og 2. mgr. að synja
um greiðslu ef ákvörðun hefur verið
um brýna framkvæmd, t.d. nauð-
synlegt viðhald, eða ef augljóst er
að vera hans á fundi, málflutningur
og atkvæðagreiðsla gegn fram-
kvæmd hefði engu breytt um niður-
stöðuna og ákvörðunina, svo sem
að yfirgnæfandi meirihluti eigenda
hefur verið á fundinum og greitt
atkvæði með.“ Og þessi klausa
fylgdi. „Með húsi í lögum þessum
er átt við byggingu sem varanlega
er skeytt við land og stendur sjálf-
stæð og aðgreind frá öðrum húsum
eða skilur sig þannig frá þeim þótt
sambyggð eða samtengd séu að
eðlilegt og haganlegt sé að fara
með hana samkvæmt lögum þessum
sem sjálfstætt hús.“
Nú er ég orðinn svo ruglaður að
mér er ómögulegt að gera mér grein
fyrir hvað hús er. Hús er hús ef
það er varanlega skeytt við land.
Þetta gæti átt við illa byggt hlaðið
steinhús sem hrynur ef reynt er að
hreyfa það. Það er hús. Óðru máli
gegnir um sterkbyggð timburhús.
Þau er hægt að flytja í heilu lagi
og eru þá ekki hús samkvæmt þess-
um lögum, heldur sennilega tjald.
Tja héma. Ég gekk og gekk til að
reyna að hrista þetta af mér, en
hrökk við þegar einhver hrópaði:
„Sæll gamli.“ Eg leit í kringum mig
og sá hann Jón gamla Jónsson
standa þarna og spóka sig í góða
veðrinu. „Sæll, vinur," sagði ég.
Við tókum tal saman og ræddum
landsins gagn og nauðsynjar. Þegar
svo hafði gengið góða stund sagði
Jón. „Sérðu nýja húsið mitt?“ Eg
leit niður eftir götunni og sá hvert
kofaskriflið eftir annað, svo langt
sem augað eygði og mér virtist
þessi samfellda röð hrörlegra bygg-
inga beygja óslitin fyrir homið og
inn í næstu hliðargötu. Svo renndi
ég augunum þvert yfir götuna. Þar
gaf að líta. Ég stóð andspænis ein-
hverri þeirri glæsilegustu villu sem
ég hef augum litið. Öll í tipp topp
standi, nýmáluð og fín. Jón sá hvert
ég horfði og sagði stoltur. „Þetta
er húsið mitt.“ Mér til skelfingar,
- enda var ég nýbúinn að lesa lög-
in - sá ég að húsið hans Jóns
tengdist þessari endalausu röð
kofaskrifla með einhvers konar
skúrbyggingu. Og Jón hélt áfram.
„Ég fékk þetta hús á fínu verði
enda er nágrennið ekki til að hrópa
húrra fyrir.“ „En góði maður!“
sagði ég. IHefurðu ekki lesið lög-
in?“ „Hvaða lög?“ sagði hann. „Nú,
lögin um fjöleignarhús, það vill svo
til að ég er með þau í vasanum,"
sagði ég. „Enda var ég að pæla í
þeim rétt áðan.“ „Lát heyra,“ sagði
Jón. Ég opnaði plaggið og las: 3. gr.
„Þótt sambyggð eða samtengd
hús teljist tvö sjálfstæð hús eða
fleiri skv. 1. mgr. þá gilda ákvæði
laganna eftir því, sem við getur
átt um þau atriði og málefni sem
sameiginleg eru, svo sem lóð ef hún
er sameiginleg að öllu leyti eða
nokkru og um útlit og heildarsvip."
Og áfram 6. gr. „Þótt fjöleignarhús
samanstandi af einingum eða hlut-
um, sem eru sjálfstæðar eða að-
greindar að einhverju leyti og hvort
sem þau standa á einni lóð eða fleir-
um er allt ytra byrði hússins alls
staðar, þak, útveggir og gaflar, í
sameign allra eigenda þess.“ Jón
skildi bersýnilega strax hvað ég var
að fara. Fína húsið hans var ekki
hús samkvæmt þessum lögum. Það
var aðeins partur af gríðarstóru
fjöleignarhúsi. Hann blánaði og
stundi: „Ertu að segja mér að 3.
gr. tákni að eigendur þessarar
lengju verði að koma sínum kofum
í sama ástand og mitt hús er í, eða
á ég að koma mínu í ástand þeirra?"
„Ekki bara það,“ sagði ég, „heldur
samkvæmt 6. gr. ber þér að taka
fullan þátt í kostnaði við að koma
veggjum og þaki þeirra húsa í sama
ástand og er á þínu húsi.“ Hann
fölnaði og hneig niður. Ég stum-
raði yfír honum, en það sást ekki
lífsmark. Hann hafði bersýnilega
fengið hjartaáfall. Ég snaraðist inn
í næstu búð og hringdi í Neyðarl-
ínuna og bað um sjúkrabíl. Svo fór
ég út til hans. Það leið löng stund
og enginn kom. Þá birtist búðar-
stúlkan í dyrunum og sagði: „Þeir
á Neyðarlínunni voru að hringja
og segjast ekki ná neinu sambandi
við sjúkrabílana. Það er eitthvert
vesen í símanum hjá þeim þarna á
Neyðarlínunni. Þeir töldu líka að
eftir svona langan tíma hlyti karl-
inn að vera dauður og ætla að senda
líkbílinn."
Höfundur er kennari við
Tækniskóla íslands.
kirsuberjatréð
vesturgötu 4
darbie
ilmvatn
Ilmur fyrir ungar stúlkur
Utsölustaðir:
Snyrtivöruverslanir, apótek
og Leikbær
- kjarni málsins!
anðunnh skaúcpijm
^Bitfur- otj gullsknitgripir
með ís/enskum nnttúrusteinum,
petlum og ðemöntum
ÍÁRA"
'SÍUSMlO>)>
Skólavörðustíg 10 S: 561 1300
J
Stórfróðleg bók
UM 3 AKUREYRINGA,
LÍFSHLAUP ÞEIRRA,
ÆVINTÝRI OG SORGIR
Hér segir af hinum nafntogaða skipstjóra og
útgerðarmanni Vilhelm Þorsteinssyni,
togaralífinu, frækilegu björgunarafreki og
baráttunni fyrir lífi ÚA. Þjóðsaganapersónan
Ingimar Eyda! gengur fram á sviðið, Sjallaárin
lifna við, kennaraárin tíunduð og vonbrigðum
stjómmálamanns er lýst.
Gunnar Ragnars er þriðji maðurinn. Hann talar
af fullri hreinskilni um líf forstjórans,
Slippstöðvarárin, ÚA og Mecklenburger,
vinnuþrældóm og veikindi.
..Það þarf mikinn kjark til þess að tala af svo
mikilli hreinskilni sem Gunnar Ragnars gerir í
þessari bók. Með því stuðlar hann að því á afar
virðingarverðan hátt, að sjúkdómar og
þjáningar, sem lengi hefur verið farið með sem
feimnismál, njóta meiri skilnings en hingað til.
Þeir sem hafa tilhneigingu til að leyna
sjúkdómi sínum eða aðstandenda sinna af ótta
við fordæmingu eða skilningsleysi umhverfis
sín, öðlast aukið sjálfstraust við það, að sjá
einstakling, sem gegnt hefur mikilvægum
trúnaðarstörfum í atvinnulífi og stjómmálum,
tala með þeim hætti, sem Gunnar Ragnars
gerir."
Víkverji, Morgunblaðinu 19. nóv. 1996.
BÓKAÚTGÁFAN HÓLAR
KitchenAid
KM 90: Verð kr. 29.830 stgr. m/hakkavél.
Aðrar gerðir kosta frá kr. 26.885 stgr.
KitchenAid heimilisvélin fæst í 5 gerðum og mörgum litum.
Hún er landsþekkt fyrir að vera lágvær, níðsterk og endast
kynslóðir. Fjöldi aukahluta er fáanlegur.
ÍSLENSK HANDBÓK FYLGIR.
KitchenAid - mest selda heimilisvélin á íslandi í 50 ár!
2 REYKJAVÍKURSVÆÐI: Byggt og búið, Kringlunni, Húsasmiðjan, Skútuvogi, Rafvörur hf„ Ármúla 5, H.G.
y Guðjónsson, Suðurveri, Rafbúðin, Álfaskeiði 31, Hafnarf., Miðvangur, Hafnarfirði, Pfaff, Grensásvegi 13.
“ VESTURLAND: Rafþj. Sigurdórs, Akranesi, Kf. Borgfirðinga, Borgarnesi, Blómsturvellir, Hellissandi, Versl.
^ Hamrar, Grundarfirði, Versl. E. Stefánssonar, Búðardal. VESTFIRÐIR: Kf. Króksfjarðar, Króksf., Skandi,
^ Tálknafirði, Kf. Dýrfirðinga, Þingeyri, Laufið, Bolungarvík, Húsagagnaloftið, ísafirði, Straumur, ísafirði, Kf.
m Steingrímsfjarðar, Hólmavík. NORÐURLAND: Kf. Hrútfirðinga, Borðeyri, Kf. V-Húnvetninga, Hvammstanga, Kf.
Húnvetninga, Blönduósi, Kf. Skagfirðinga, Sauðárkróki, KEA, Akureyri og útibú, Kf. Þingeyinga, Húsavík, Kf.
W Langnesinga, Þórshöfn, Versl. Sel, Skútustöðum. AUSTURLAND: Kf. Vopnfirðinga, Vopnafirði, Kf. Héraðsbúa,
CQ Seyðisfirði, Kf. Héraðsbúa, Egilsstöðum, Rafalda, Neskaupstað, Kf. Héraðsbúa, Reyðarfirði, Kf. Fáskrúðsfjarðar,
J Fáskrúðsfirði, Kf. A-Skaftafellinga, Djúpavogi, Kf. A-Skaftfellinga, Höfn. SUÐURLAND: Kf. Rangæinga, Hvolsvelli,
™ Kf. Rangæinga, Rauðalæk, Versl. Mosfell, Hellu, Reynistaður, Vestmannaeyjum, Kf. Árnesinga, Selfossi, Kf.
J Árnesinga, Vík. SUÐURNES: Rafborg, Grindavík, Samkaup, Keflavík, Stapafell, Keflavík.
KitchenAid - kóróna eldhússins!
Einar
Farestveit & Co. hf.
Borgartúni 28 ‘B' 562 2901 og 562 2900
llmurinn
hennar
BORSALINO
- kjarni málsins!