Morgunblaðið - 20.12.1996, Qupperneq 70
70 FÖSTUDAGUR 20. DESEMBER 1996
MORGUNBLAÐIÐ
JÓLAMYND 1996
foblN WÍLLÍAMSLi
FRUMSÝNING: JÓLAMYND 1996
HANN 'V
ELDIST
FJÓRUM
SINNUM
HRADAR EN
VENJULECT
FÓLK..
Komdu og sjáðu
Robin Williams
fara á kostum
H sem stærsti 6.
bekkingur í heimi.
Ótrúlegt grín og
gaman í frábærri
mynd fyrir alla fjöl-
skylduna.
Aðalhlutverk: Robin
Williams, Diane
Lane og Bill Cosby.
Leikstjóri: Francis
Ford Coppola.
HANN ER
LANÚ-
STÆRSTUR í
BEKKNUM.
Dragonheart er frábær ævintýramynd fyrir alla fjölskylduna
um baráttu góðs og ills. Spenna, grín og tæknibrellur.
Dragonheart er ekta jólamyncL
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11.10. B. i. 12 ára
GOSI £
Talsett á íslensku.
Leikstjórn: Ágúst Guðmundsson.
FRUMSÝND ANNAN í JÓLUM
Einnig sýnd í Nýja Bíói Keflavík
HAMSUN 0/,
Mynd um rithöfundinn Knut Hamsun.
Max Von Sydow Ghita Nörby
FRUMSÝND ANNAN í JÓLUM
Nýársmyndin: SLEEPERS ^52
Brad Pitt, Robert Deniro, Dustin Hoffman,
Jason Patric og Kevin Bacon.
FRUMSÝND 1. JANÚAR.
KLIKKAÐI PROFESSORINN
DREKAHJARTA
Dennis
Quaid
STJORNUFANGARINN
Stjörnufangarinn er frábær ítölsk
kvikmynd eftir Óskarsverð-
launaleikstjórann Giuseppe
Tornatore (Cinema Paradiso).
Þetta er mynd sem hvarvetna
hefur hlotið frábæra dóma
Sýnd kl. 4.45, 6.50,
9 og 11.15.
BRIMBROT
★ ★★ÁSBylgjan ★★★ ÁÞ Dagsljós
„Brimbrot er ómissandi" ★★★’/2 GB DV
„Heldur manni hugföngnum"
★ ★★1/2SVMBL
HASKOLABIO - GOTT BIO
.
r—r
HASKOLABIO
SÍMI552 2140
Háskólabíó
HELGARMYNDIR SJONVARPSSTOÐVANNA
Vatn og brauð
í forrétt
NÁNAST eintóm brauðmylsna fellur
nú - eins og um síðustu helgi - af
yfirdekkuðum jólahlaðborðum sjón-
varpsstöðvanna. Enn er ekki vitað
hvort ijúpur, hamborgarhryggir og
kalkúnar leynast undir dúknum.
Nokkrar vonir eru þó bundnar við
hangiket og laufabrauð og að malt
og appelsín leysi að minnsta kosti
vatnið af. Þangað til verður að narta
í forrétti eins og:______________
Föstudagur
Sjónvarpið ►22.55 Velska sjón-
.varpsmyndin Branwen (1995) erfor-
vitnilegen mérókunn: Stormasöm
sambúð hjóna í stormasömu landi -
Norður-írlandi. Leikstjóri er Ceri
Sherlock.
Stöð2 ►13.00 og ►0.40Hinauð-
ugu Harthjón, leikin af Robert Wagn-
er og Stefanie Powers, voru heimilis-
vinir sjónvarpsáhorfenda fyrir all-
mörgum árum í sakamálasyrpunni
Hart To Hart. Þetta tilþrifalitla létt-
meti er nú endurvakið eins og svo
margt annað af því taginu í Hart á
móti hörðu (Hart To Hart Returns,
1993), undir stjórn gamalreynds leik-
stjóra, Peters Hunt. Engar umsagnir
liggja fyrir.
Stöð 2 ^21.05 Bókaútgefandi einn
kemst að því að nýja kærastan hans
er í rauninni norn í gamanmyndinni
Töfrar (Bell, BookAnd Candle, 1958).
Úrvalsleikararnir James Stewart, Kim
Novak, Jack Lemmon, Ernie Kovacs
og ekki síst Hermione Gingold gera
-sitt besta - og það er reyndar býsna
gott - í dálítið stirðri og sviðsbund-
inni mynd Richards Quine. ★ ★ Vt
Stöð 2 ^23 .00 Úrvalsleikarar af
annarri kynslóð eru til staðar í Ná-
grannaerjum (NextDoor, 1994), -
James Woods og Randy Quaid í hlut-
verkum granna sem eru fjarri því að
vera góðir. Ég hef ekki séð þessa
blöndu af glensi og þjóðfélagshroll-
vekju, Maltin segir hana fremur
bragðvonda, en Martin og Potter gefa
þó ★ ★ ★ (af fimm). Leikstjóri er
Tony Bill.
Stöð 3 ► 21.05 - Sjá umíjöllun í
ramma.
Stöð 3 ►22.35 Tveggja hluta sjón-
varpsmynd - seinni hlutinn Sýndur
annað kvöld - byggð á bók rithöfund-
arins James A. Michener um tildrögin
að stofnun 28. fylkis Bandaríkjanna,
Texas (JamesÁ. Michener's Texas,
1994), er sögð barmafull af rómantík,
pólitík og hasar. En þótt hún hafí
kostað 12 milljónir dollara og skarti
ágætum leikhópi er hún bara söguleg
sápuópera, segja Martin og Potter og
gefa ★ ★ Vi. Leikstjóri er Richard
Lang.
Stöð 3 ►0 .05 Uns morð oss að-
skilur (TillMurder Do UsPart, 1992)
er ein af þessum sannsögulegu amer-
ísku sakamálamyndum, gerðum fyrir
sjónvarp, um ástarsamband sem leiðir
til morðs. Meredith Baxter fer vel með
hlutverk eiginkonu sem tryllist þegar
maðurinn fer frá henni til annarrar
konu. Miðlungsafþreying. ★ ★
Sýn ►21.00 Bandaríski leikstjórinn
Dick Richards þótti hinn efnilegasti
við upphaf áttunda áratugarins fyrir
Farewell My Lovely eftir einkaspæj-
arasögu Raymonds Chandlers og
vestrann Nautgripir hf. (The
Culpepper Cattle Co., 1972), þroska-
sögu ungs pilts sem dreymir um að
verða kúreki þegar hann er orðinn
stór. Richards hefur að mestu horfið
en þessi fína mynd stendur fyrir sínu,
full af litríkum karakterum, leiknum
af Luke Askew, Bo Hopkins og Ge-
offrey Lewis m.a., auk Garys Grimes
í hlutverki piltsins. ★ ★ ★
Sýn ►22.30 Annar og nýrri vestri
sem skoðar kúrekalífið í óhefðbundnu
ljósi er Littla Jo (The Ballad Of Little
Jo, 1994), eins konar jafnréttisvestri
um unga konu sem fer í gervi karl-
manns til að öðlast jafna stöðu. Suzy
Amis er glúrin í titilhlutverkinu og sá
gamli góði Bo Hopkins er einnig til
staðar á ný. Maggie Greenwald leik-
stjóri slær nokkrar frískar keilur með
þessari mynd. ★ ★ Vi
Laugardagur
Sjónvarpið ^21.45 Hormónatröllið
Arnold Schwartzenegger reynir mest
á heilasellumar í fyrsta leikstjórnar-
verkefni sínu - Jól í sviðsljósi
(Christmas In Connecticut, 1992).
Þetta kvað vera sykursætur rómans,
þar sem Dyan Cannon leikur sjón-
varpskokk og Kris Kristofferson
hversdagshetju sem fella hugi saman.
Martin og Potter gefa ★ ★ (af fimm)
og Maltin segir myndina í meðallagi.
Sjónvarpsendurgerð samnefndrar
myndarfrá 1945.
Sjónvarpið ►23.25 Þriðji hluti
vestrans Ný svaðilför (Return To
Lonesome Dove, 1993), sem hófst um
síðustu helgi.
Stöð 2 ►21.20 Breska gamanmynd-
in Jack og Sarah (Jack And Sarah,
1995) ertil skiptis heldur vemmileg
og heldur skemmtileg lýsing á sam-
bandi lögfræðingsuppa, sem syrgir
látna eiginkonu og barnsmóður, við
barnfóstruna sem kemur til liðs við
hann. Richard E. Grant er slappur sem
Jack en Samantha Mathis skárri sem
Sarah. Áttavillt handrit. Leikstjóri Tim
Sullivan. ★ ★
Stöð 2 ►23.15 Sjaldséður finnskur
hrafn á dagskrá Stöðvar 2 er Bóhem-
líf (La Vie De Boheme, 1992), þar sem
enn frægasti leikari Finna, Matti heit-
inn Pellonpaa, er einn af þremur utan-
garðsmönnum í París. Og einn fræg-
asti leikstjóri Finna, Aki Kaurismaki
leikstýrir hér - því miður - einni til-
gerðarlegustu og leiðinlegustu mynd
sinni. ★l/2
Stöð 2 ► 1.00 Ágætir ungir leikarar
- Josh Charles, Jason Gedrick, Steph-
en Baldwin - fara vel með hlutverk
vina frá Detroit í afdrifaríku hasss-
mygli yfir landamæri Kanada í Yfir
brúna (The Bridge, öðru nafni Cross-
EVRÓPUSYN A AMERIKU
Kryddlegin hjörtu
I sérflokki þessa helgina
er sýning
Stöðvar 3 ► 21 .05 á Allt lagt undir (Atl-
antic City, 1980), föstudagskvöldið, á bestu
myndinni sem franski leikstjórinn Louis
heitinn Malle gerði í Bandaríkjunum. Malle,
sem í upphafi ferils síns var talinn til frönsku
nýbylgjunnar og gerði fínar myndir af fjöl-
breyttu tagi í heimalandi sínu á 6. og 7.
áratugnum, var einn af fáum slíkum sem
tókst að sameina listrænt gildi og alþýðu-
hylli. Trúlega gerði hann sínar bestu mynd-
ir á 8. áratugnum - Hvísl hjartans (1971),
umdeilda mynd um ástir sonar og móður,
og Lacombe, Lucien (1974), um samskipti
Frakka við Þjóðveija í heimsstyijöldinni síð-
ari - fyrir utan snilldarverkið Au Revoir,
Les Enfants (1987). Fyrsta mynd hans í
Bandaríkjunum var Pretty Baby (1978),
falleg en fókuslaus lýsing á barnavændi.
Atlantic City, hins vegar, er framúrskarandi
næmleg athugun á manneskjum og mannfé-
lagi á krossgötum í spilaborginni Atlantic City. Burt Lancaster Sýnir
snilldarleik sem svindlari á síðasta snúning og Susan Sarandon er líka
eftirminnileg sem ung kona með stóra drauma. Úrvalsmynd, spenn-
andi og hjartnæm til skiptis. ★ ► ★ Vi
LOUIS Malle við
leiksljórn á Atl-
antic City.