Morgunblaðið - 21.12.1996, Side 41
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 21. DESEMBER 1996 41 1
AÐSENDAR GREINAR
Einkavæðing
ÁTVRer
hagkvæm
FYRIR nokkrum
dögum birtist grein eft-
ir forstjóra ÁTVR þar
sem fjallað var um
einkarekstur í smásölu
áfengis. Skoðanir for-
stjórans verður að meta
í ljósi þeirrar staðreynd-
ar að hann hefur veru-
legra hagsmuna að
gæta af því að viðhalda
því einokunarformi sem
nú er fyrir hendi.
Gamalkunnug
rökleysa
Rauði þráðurinn í
málflutningi forstjórans
hefur verið endurtekinn
af öllum ríkisforstjór-
um, í flestum löndum heims, þegar
komið hefur að einkavæðingu stofn-
ana þeirra. Aftur og aftur er því
haldið fram að ríkisvaldið sinni við-
komandi þjónustu betur og á hag-
kvæmari hátt en einkaaðilar.
Á árum áður starfrækti hið opin-
bera til dæmis bæði bifreiðaeinkasölu
og viðtækjaeinkasölu með þeim rök-
um að slíkt væri hagkvæmt fyrir
þjóðina. Í dag myndu fáir taka undir
þau rök.
Hagkvæmni ÁTVR?
Forstjórinn fullyrðir að á meðan
ÁTVR hafí séð alfarið um innflutning
áfengis hafi nægt að leggja 10,5%
ofan á „svokallað kostnaðarverð
vöru“ til þess að greiða allan rekstr-
arkostnað ÁTVR af heildsölu og
rekstri 24 verslana í landinu og jafn-
framt til að greiða „eðlilegan" arð.
Forstjóri ÁTVR gerir
sig sekan um talnaleik-
fimi, að mati Jónasar
Fr. Jónssonar, og
gleymir ýmsum kostn-
aði sem verðurtilí
verzlun.
Forstjórinn útfærir hins vegar
ekki hvað sé hið „svokallaða kostn-
aðarverð vöru“ og „eðlilegur arður“.
Forstjórinn nefnir heldur ekki ýmsán
kostnað sem verður til í verslun og
einkaaðilar þurfa að borga en ríkis-
fyrirtæki láta ríkið sjá um. Þó að
ríkið sjái um þennan kostnað, þá
þýðir það ekki að hann sé ekki til.
Talnaleikfimi forstjórans -
gögn úr fjármálaráðuneytinu
Þegar metin er álagning skiptir
auðvitað mestu máli hvort hún er
lögð á fyrir eða eftir áfengisskatt,
en skattlagningin er stærsti hluti
áfengisverðsins. í reikningsdæmum
sem undirritaður hefur undir höndum
frá fjármálaráðuneytinu kemur fram
að sé álagningin lögð á fyrir skatt
sé hún 40-55% af kostnaðarverði en
eftir skatt verður hún 5-22%. í sama
reikningsdæmi kemur fram að álagn-
ing ÁTVR var áður fyrr reiknuð
áður en ígildi áfengis-
skatts (sem þá var hluti
af álagningu ÁTVR)
var reiknað inn í áfeng-
isverðið, en hins vegar
er hún í dag reiknuð
eftir að skatturinn hefur
verið lagður á. Álagning
ÁTVR fyrir frelsi í inn-
flutningi og heildsölu
var því a.m.k. á bilinu
40-55% fyrir skatt og
því langt í frá þeim
10,5% sem forstjórinn
nefnir.
Rekstur í eðlilegu
umhverfí
í greininni eru heldur
ekki nefndir ýmsir
kostnaðarliðir sem menn í rekstri
þurfa að búa við, lifi þeir ekki í vemd-
uðu umhverfi í skjóli ríkisins.
Þannig þarf ÁTVR hvorki að
borga tekju- og eignarskatt né sér-
stakan skatt á skrifstofu- og verslun-
arhúsnæði. Þetta þýðir m.v. áætlað-
an hagnað ÁTVR, skv. fjárlögum,
og eignum félagsins, að það sé að
spara sér um 800 milljónir króna og
þann kostnað er ríkissjóður að taka
á sig.
ÁTVR nýtur einnig ótakmarkaðr-
ar ábyrgðar ríkisins sem leiðir til
betri aðgangs að lánsfjármagni, þó
svo að slíkt sé engin trygging þess
að lánsfénu sé betur varið en hjá
einkaaðilum.
Þessu til viðbótar má geta að
einkafyrirtæki þurfa yfirleitt að hafa
fyrir því að greiða stofnkostnað. Þau
njóta ekki þeirrar blessunar að skatt-
borgarar landsins setji upp fyrirtæk-
ið fyrir þau.
Einkarekstur er hagkvæmari
Að síðustu biður forstjórinn um
rök fyrir breytingum en þau virðast
hafa farið framhjá honum til þessa.
Nokkur dæmi skulu nefnd.
Fyrir það fyrsta hefur það al-
mennt sýnt sig að einkarekstur er
hagkvæmari en opinber. Rekstur
áfengisverslunar er ekkert frábrugð-
inn öðrum verslunarrekstri. í öðru
lagi er það ekki hlutverk hins opin-
bera að standa í verslunarrekstri,
fremur en t.d. rekstri veitingahúsa.
Fjármunum hins opinbera er betur
varið í annað. í þriðja lagi verður
að telja, einkum með hliðsjón af því
sem á undan er rakið, að núverandi
kerfi feli ekki í sér neina sérstaka
hagkvæmni, þrátt fyrir talnaleikfím-
ina. í fjórða lagi er full ástæða til
þess að bæta þjónustuna, koma sölu
á þessum vamingi út úr fyrirkomu-
lagi haftaáranna og til samræmis við
það sem almennt tíðkast í Vestur-
Evrópu.
I fímmta lagi mun samkeppni á
þessu sviði verða heilbrigðari, en
þess má geta að nú þegar hefur
ÁTVR í tvígang brotið samkeppn-
islög og fyrir liggur a.m.k. ein önnur
kæra hjá samkeppnisyfírvöldum
vegna viðskiptahátta fyrirtækisins.
Höfundur er
aðstoðarframkvæmdastjóri
Verslunarráðs íslands.
Jónas Fr.
Jónsson
áPr
recision
movements
nákvæmni
RAYMOND WEIL
GENEVE
Danskt
eðalkonfekt
eftirjólamatinn...
Á sérstöku tilboði í verslunum:
\
!
I
j
f
'f
1
j.
t
(
Óður
til íslenskra sjómanna...
Við eigum samleið er diskur með lögum sem
SigfúsHalldórsson hefur samið og tileinkað sérstaklega
íslenskum sjómönnum. Ómissandi fyrir unnendur
íslenskrar tónlistar.