Morgunblaðið - 08.01.1997, Page 10
10 MIÐVIKUDAGUR 8. JANÚAR 1997
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Framkvæmdastjóri Neytendasamtakanna um skýrslu um framfærslukostnað heimilanna
Kennir kerfinu um
hátt matvöruverð
JÓHANNES Gunnarsson, fram-
kvæmdastjóri Neytendasamtak-
anna, segir að skýrsla nefndar, sem
kannaði framfærslukostnað heimil-
anna að frumkvæði forsætisráð-
herra, staðfesti yfírlýsingar sam-
takanna til fjölda ára um að mat-
vælakostnaður heimila væri óheyri-
lega hár. Lýsti hann yfir vonbrigð-
um með að nefndin hafí ekki gert
tillögur um lækkun framfærslu-
kostnaðar eins og henni hafi borið
að gera.
Jóhannes segir að ekki sé gerð
tilraun til að skilgreina hvað orsaki
hátt matvælaverð sem staðfest
væri í skýrslunni. „Við teljum okkur
á hinn bóginn vita að það er hið
snarruglaða landbúnaðarkerfi sem
kallar á allt of hátt matvælaverð.
Við söknum þess að nefndin skuli
ekki reyna að gera tillögur um
hvernig hægt er að draga úr mat-
væiakostnaði," sagði hann.
Framkvæmdastjórinn segir
löngu tímabært að endurskoða
landbúnaðarkerfið frá grunni. „Það
hlýtur að vera eitthvað meira en
lítið að því kerfi sem gerir það að
verkum að íslenskir neytendur
þurfa að greiða heimsins hæsta
verð fyrir landbúnaðarvörur á sama
tíma og 40% bænda eru samkvæmt
könnun Félagsvísindastofnunar
undir hungurmörkum. Menn verða
að endurskoða þetta kerfi sem er
andsnúið bæði kaupendum og fram-
leiðendum landbúnaðarvara," sagði
Jóhannes.
Vill óhefta samkeppni
Varðandi verðmun á matvöru inn-
anlands segist Jóhannes geta tekið
undir það mat nefndarinnar, að
samkeppni hafi haft góð áhrif til
lækkunar framfærslukostnaðar
heimilanna. Af þeim ástæðum
kveðst hann sakna þess að nefndin
stígi skrefið til fulls og hvetji til
óheftrar samkeppni í sölu erlendra
landbúnaðarvara.
Jóhannes viðurkennir að örðugt
sé að koma á fullkominni sam-
keppni í minni byggðarlögum. Segir
hann að í þeim tilvikum sé það
skylda stjórnvalda að örva sam-
keppni sem mest, einkum með
reglulegum verðkönnunum.
*
Framkvæmdastjóri Bændasamtaka Islands
Hagstæður samanburður
fyrir íslenskar búvörur
SIGURGEIR Þorgeirsson, fram-
kvæmdastjóri Bændasamtakanna,
segir samanburð á verði matvöru í
Evrópu og á íslandi hagstæðan fyr-
ir íslenskar búvörur. Telur hann
sundurliðun á samanburðinum stað-
festa annars svegar að verðlag
ýmissa búvara, s.s. kjötvara, mjólk-
urvara og feitmetis, sé lægra en
annarra matvara á Islandi og hins
vegar að verðlag búvara á Islandi
sé sambærilegt því sem þekktist á
Norðurlöndum.
Sigurgeir sagði í samtali við
Morgunblaðið að könnunin væri
athyglisverð fyrir þær sakir að hún
gæfi hugmynd um stöðu íslands
borið saman við lönd Evrópusam-
bandsins. „Rétt er að benda á að í
meðaltali ESB vega Miðjarðarhafs-
ríkin þungt við að lækka verð á
búvörum, þær eru yfirleitt dýrari í
norrænum ríkjum,“ sagði hann.
Sem dæmi um þetta bendir hann
á að kjöt er 44% yfir meðaltali ESB
hér á landi. Sambærilegar tölur
fyrir önnur ríki Norðurlanda eru á
bilinu 30-41%. Að sama skapi er
verðlag smjörs, olíuvara og feitmet-
is annað lægst á Norðurlöndunum.
í Danmörku er verðlag þessarar
matvöru 13% yfir meðaltali, á ís-
landi 23%, í Noregi 28%, Svíþjóð
34% og í Finnlandi 73% yfir meðal-
talinu.
Sigurgeir segir ennfremur að
samanburður á verðlagi ólíkra teg-
unda matvara á íslandi sé einnig
íslenskum búvörum hagstæður.
Verðlag búvara væri á bilinu
23-44% yfir meðaltali ESB en ann-
arra matvara 64%.
Verðlag á matvöruflokkum í einstökum ríkjum
samanborið við meðaltal 15 ríkja ESB, 1994
ESB15 = 100
Sviss
ísland
Noregur
Finnland
Svíþjóð
Danmörk
Austurrfki
Holland
Frakkland
Lúxemborg
Þýskaland
Ítalía
Belgía 96
írland 83
Spánn 80
Bretland
Portúgal
Grikkland
Pólland
ESB15 = 100
ísland
Danmörk
Noregur
Finnland
Sviss
Svíþjóð
Austurrfki
Portúgal
Grikkland
Þýskaland
Frakkland
Lúxemborg
Ítafía HIÉB
Spánn
Halland
Belgía
írlandMBM
Pólland 75
Bretland 73
Verðlag á matar- og drykkjarvörum á Islandi
1994, samanborið við meðaltal 15 ríkja ESB
VORUFLOKKAR
ESB 15 = 100
Afengir drykkir
Drykkjarvörur í helld
Óáfengir drykkir
Aðrar matvörur
Matur, drykkjarv.& tóbak: í HEILD
Kjöt ;£ §
Matvörurur í heild
Ávextir, grænmeti, kartöflur
Mjólk, ostar, egg
Tóbak 'mm
Olíur og feitmeti
Brauð og kornvörur
Fiskur 80
Sundurliðun á verðlagi á mat og drykk
Norðurlönd með
hæsta verðlagið
Framfærslukostnaður lágur á Selfossi
„Staðfestir hagkvæmni
í rekstri bæjarfélagsins“
STAÐFEST var í gær í skýrslu
nefndar sem kannaði framfærslu-
kostnað heimilanna að verðlag mat-
og drykkjarvara og tóbaks væri
48% yfir meðaltali í 15 löndum
Evrópusambandsins. Sundurliðun á
þessum lið í verðsamanburðinum
leiðir í ljós að drykkjarvörur, eink-
um áfengir drykkir, vega þungt og
hækka meðaltal Islands verulega.
Fiskur er eina matvörutegundin
sem er undir meðaltali ESB.
Áfengir drykkir eru 188% yfir
meðaltalinu en næst koma Noreg-
ur, sem einnig var borinn saman
við lönd Evrópusambandsins, 125%
yfir meðaltali og Finnland, 106%
yfir meðaltalinu. Aðrar drykkjar-
vörur eru 136% yfír meðaltali hér
á landi og óáfengir drykkir 65%.
Kjötvörur eru 44% yfir meðal-
tali, mjólk, ostar og egg 35%, olíur
og feiti. þ.á m. smjör, 23%, ávext-
ir, grænmeti og kartöflur 35% en
önnur matvara 64%. Fiskur er á
hinn bóginn 20% ódýrari en að jafn-
aði í Evrópu.
Hærra verð í
Sviss og Noregi
Af þeim löndum sem tekin eru
með í samanburðinum er verðlag
aðeins hærra í Sviss og í Noregi. I
skýrslunni er bent á að margar
kannanir sem gerðar hafa verið á
verðmismun í Evrópu staðfesti að
Norðurlöndin skeri sig nokkuð úr
hvað varðar hátt verðlag. Segir að
ýmsar kenningar hafí verið settar
fram til skýringar á háu verðlagi
en að hluta til mætti leita hennar
í háum lífskjörum.
Nefndarmenn lögðu áherslu á
það við kynningu skýrslunnar að
verðlag á Islandi væri í góðu sam-
ræmi við verðlag í löndum þar sem
landsframleiðsla væri álíka mikil
og hér á landi.
Að sögn Björns R. Guðmunds-
sonar, formanns nefndarinnar, er
verðsamanburðurinn mjög traust
heimild en hann hafi verið unninn
af Hagstofu Evrópusambandsins,
Eurostat.
SELFOSS var það sveitarfélag sem
kom best út úr samanburði á rekstri
fasteigna sem birtur var í skýrslu
nefndar sem kannaði framfærslu-
kostnað heimilanna. Reyndust opin-
ber gjöld þar lægst í þeim tíu sveit-
arfélögum sem til skoðunar voru.
Húshitunarkostnaður var næstlægst-
ur en rafmagnskostnaður í meðallagi.
Karl Björnsson, bæjarstjóri Sel-
fosskaupstaðar, segir þessa niður-
stöðu góðar fréttir í byijun 50 ára
afmælisárs sveitarfélagsins og
minnir á, að á dögunum hafí Selfoss
einnig fengið hæstu einkunn í athug-
ÞORSTEINN Pálsson sjávarútvegs-
ráðherra og John Petersen, sjáv-
arútvegsráðherra Færeyja, luku í
gær tveggja daga löngum fundi í
Reykjavík um gagnkvæmar veiðar
í lögsögu landanna. Niðurstaðan
varð sú að litlar breytingar verða
gerðar frá samningi síðasta árs.
Ráðherrarnir leggja til við stjórnir
sínar að botnfískveiðiheimildir Fær-
eyinga í íslenzku lögsögunni verði
óbreyttar á þessu ári, eða 5.000 lest-
ir samtals. Eina breytingin á há-
marksafla í einstökum tegundum
innan þessa aflamarks er 200 tonna
hækkun á hámarksafla í keilu.
Gagnkvæmar veiðiheimildir
sömu og í fyrra
Þá leggja ráðherrarnir til að
gagnkvæmar veiðiheimildir land-
un Vísbendingar á rekstri sveitarfé-
laga. „Þessar fréttir staðfesta hag-
kvæmni í rekstri sveitarfélagsins.
Við höfum reynt að vanda til allrar
áætlunargerðar og notum áætlanir
sem alvöru stjórntæki,“ sagði Karl
í samtali við Morgunblaðið.
Framkvæmt
fyrir eigið fé
Bæjarstjórinn segir að í gegnum
árin hafí verið reynt að framkvæma
mest fyrir eigið fé og stilla lántökum
í hóf. Þannig tækist að minnka fjár-
magnskostnað sem aftur gerði það
anna í uppsjávartegundum verði
óbreyttar milli ára. Islendingar fái
að veiða kolmunna, 2.000 lestir af
síld, annarri en úr norsk-íslenzka
síldarstofninum (sem sérstakur
samningur er um) og 1.000 lestir
af makríl í færeysku lögsögunni.
Þá fái Færeyingar að veiða kol-
munna og 30.000 lestir af loðnu í
íslenzku Iögsögunni. Færeyingum
verði heimilt að frysta allan loðnu-
aflann á vorvertíð en óheimilt verði
að frysta hann um borð eða landa
annars staðar en á íslandi, nema
til bræðslu.
í fréttatilkynningu frá sjávarút-
vegsráðuneytinu segir að ríkisstjórn
íslands muni fjalla um niðurstöðu
fundar ráðherranna og gengið verði
frá samningi milli landanna af hálfu
íslands í framhaldi af því.
að verkum að rekstrarafgangur yrði
meiri.
Með þessum aðgerðum hefur m.a.
tekist að halda gjöldum í lágmarki
og segir Karl að skýra megi lágt
vatnsgjald með hagkvæmum rekstri
vatnsveitunnar.
Aðspurður segir bæjarstjórinn vel-
gengni bæjarins endurspeglast í stöð-
ugum uppgangi bæjarfélagsins og
fólksfjölgun. „Árið 1940 bjuggu hér
200 manns en íbúar eru nú rúmlega
4.200 talsins. Fólksfjölgun er stöðug
en á síðustu tíu árum hefur Ijölgunin
numið 1,6% á ári,“ sagði Karl.
Menningarborgir
Evrópu
Samstarf
samþykkt
BORGARRÁÐ hefur samþykkt
samstarfssamning menningar-
borga Evrópu árið 2000.
Samningurinn var undirrit-
aður í Kaupmannahöfn 15. des-
ember sl. og undirritaði Guðrún
Ágústsdóttir forseti borgar-
stjórnar, samninginn fyrir hönd
Reykjavíkurborgar með fyrir-
vara um samþykki borgarráðs.
Vinna ruglaði
brunaboða
BRUNABOÐI á Landspítalan-
um fór í gang í gærmorgun og
fór slökkvilið, lögregla og
sjúkrabíll á staðinn.
í Ijós kom að vinna iðnaðar-
manna hafði villt um fyrir
brunaboðanum því enginn var
eldurinn. Björgunarliðið gat því
snúið til annarra starfa.
Viðræður við Færeyinga
Veiðiheimildir að
mestu óbreyttar