Morgunblaðið - 08.01.1997, Blaðsíða 16
16 MIÐVIKUDAGUR 8. JANÚAR 1997
MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI
Krossanes-
bréf nær
fjórfölduð-
ust í verði
HLUTABRÉF í Krossanesi hf. á
Akureyri hækkuðu mest í verði á
hlutabréfamarkaðnum á árinu 1996
af öllum félögum. Verð bréfanna
tæplega fjórfaldaðist frá því þau
komu á Opna tilboðsmarkaðinn þann
19. júlí sl. fram til áramóta.
Nemur markaðsvirði Krossaness
nú um 1.159 milljónum eða um 1
milljarði hærra, en það verð sem
Akureyrarbær fékk fyrir verksmiðj-
una í desember árið 1995.
Á meðfylgjandi töflu má sjá
hvernig verðþróun á hlutabréfum 55
félaga varð á síðasta ári á hluta-
bréfamarkaðnum. Mörg félög komu
á markaðinn seint á síðasta ári þann-
ig að í sumum tilvikum er um tiltölu-
lega stutt tímabil að ræða.
Þá vekur það sérstaka athygli að
einungis eitt hlutafélag á listanum
skilaði neikvæðri ávöxtun á árinu
1996.
Hlutabréfavelta þrefaldaðist
Velta á hlutabréfamarkaði ríflega
þrefaldaðist á árinu 1996 frá árinu
á undan og varð um 24,6 milljarðar,
en var tæplega 7,2 milljarðar árið
1995. Sala bréfa í almennum mark-
aðsútboðum rúmlega fjórfaldaðist
og fór úr 2,4 milljörðum í 9,7 millj-
arða. Viðskipti á eftirmarkaði þre-
földuðust og fóru úr 4,8 milljörðum
í 14,9 milljarða króna, samkvæmt
upplýsingum Verðbréfaþings. Inni í
þessum tölum eru ekki ýmis stór
viðskipti sem urðu með hlutabréf á
árinu án milligöngu þingaðila, þ.e.
banka og verðbréfafyrirtækja. Þar
má nefna sölu á hlutabréfum lífeyr-
issjóða og Akureyrarbæjar í Útgerð-
arfélagi Akureyringa.
Ávöxtun hlutabréfa 1996
31 .des.1995 Leiðrétt gengi* 31 .des.1996 Gengi Ávöxtun
1. Krossanes 2,20 8,30 277%
2. Hraðfrystihús Eskifjarðar 2,32 8,50 266%
3. Síldarvinnslan 3,48 11,80 239%
4. Borgey 1,10 3,50 218%
5. Tæknival 2,10 6,55 212%
6. Marel 4,55 13,75 202%
7. Vinnslustöðin 1,03 3,00 191%
8. Skinnaiðnaður 2,90 8,25 184%
9. Haraldur Böðvarsson 2,19 6,00 174%
10. Hraðfrvstistöð Þórshafnar 1,25 3,25 160%
11. íslenskar sjávarafurðir 2,15 5,00 131%
12. íslenski fjársjóðurinn 0,94 1,93 105%
13. OLIS ‘ 14. Pharmaco 15. Plastprent 2,65 r on 5,24 17 dQ 98% 97%
3,25 6,37 96%
16. Búlandstindur 1,20 2,35 96%
17. Kælismiðjan Frost 1,30 2,50 92%
18. Skagstrendingur 3,25 6,20 91%
19. Tryggingamiðstöðin 20. SR-Miól 5,36 10,20 90%
2,10 3,97 89%
21. Hampiðjan 2,87 5,24 82%
22. Tangi 1,20 2,10 75%
23. Fiskiðjusamlag Húsavíkur 1,25 2,14 71%
24. Skeljungur 25. Sjóvá-Almennar 3,40 5,75 69%
6,73 11,40 69%
26. Loðnuvinnslan 1,75 2,95 69%
27. Grandi 2,25 3,79 68%
28. Þormóður rammi 2,92 4,80 65%
30. Útgerðarfélaq Akurevrinqa 3,09 5,00 62%
31. Þróunarfélag íslands 1,04 1,65 59%
32. SÍF 1,99 3,15 58%
33. Auðlind 1,36 2,08 53%
34. Vaki 3,00 4,50 50%
35. Olíufélaaið 5.64 8,35 48%
36. Almennfhlutabréfasjóðurinn 1,17 1,73 48%
37. Eimskip 5,00 7,32 46%
38. íslenski hlutabréfasjóðurinn 1,31 1,89 44%
39. Lyfjaverslun (slands 40. Hlutabréfasjóður Norðurlands 2,35 3,38 44%
1,52 ...2,17 43%
41. Sláturfélag Suðurlands 1,70 2,40 41%
42. tignarnaidsteiagio AipyouoanKinn i,ib 1,65 40%
43. Hlutabrefasjoðurinn 1,89 2,64 40%
44. íslandsbanki 1,33 1,83 38%
45. Flugleiðir 2,23 3,06 37%
46. Jarðboranir 2,52 3,45 37%
47. Sæplast 4,04 5,50 36%
48. Kaupfélag Eyfirðinga 2,10 2,80 33%
49. Árnes 1,10 1,45 32%
50. Samvinnusjóður íslands 1,28 1,50 17%
51. Sameinaðir Verktakar 6,26 7,30 17%
52. Nýherji 1,99 2,24 13%
53. Básafell 3,77 4,17 11%
54. Bakki 1,54 1,70 10%
55. Ármannsfell 1,10 1,00 -9%
| • Tekið er tillit til arðs og útgáfu jöfnunarhlutabréfa Heimild: KAUPÞING hf.
Sjóvá-Almennar
bjóða viðskipta-
lánatryggingu
SJÓVÁ-ALMENNAR tryggingar hf.
hafa hafið sölu á svonefndri við-
skiptalánatryggingu fyrir útflytjend-
ur. Þessi trygging gerir þeim kleift
að tryggja sig gegn hugsanlegu tapi
af völdum greiðsluþrots viðskipta-
vina erlendis, að því er segir í frétt.
Á þennan hátt eiga útfiytjendur að
geta treyst því að viðskiptakröfur
fáist greiddar enda þótt um lánsvið-
skipti hafi verið að ræða.
Til að tryggingin öðlist gildi þurfa
útflytjendur að fá samþykki vátrygg-
ingafélagsins fyrir viðskiptavinum
erlendis, en félagið ákveður jafn-
framt hámarks vátryggingarfjárhæð
fyrir einstaka aðila. Þessum hámörk-
um má síðan breyta eftir þörfum.
Sjóvá-Almennar hafa undirbúið
viðskiptalánatrygginguna í samstarfi
við Gerling Nordic Kreditt forsikring
í Osló, sem er í eigu Gerling-Konzern
Speziale Kreditversicherungs-AG í
Köln. Gerling-Konzern hefur haslað
sér völl á þessu sviði í Evrópu og
Bandaríkjunum. Námu iðgjöld í þess-
um vátryggingum 33 milljörðum á
árinu 1995. Með samstarfi við Gerl-
ing fá Sjóvá-Almennar aðgang að
sérfræðiþekkingu og gagnabönkum
um allan heim.
Koma í stað bankaábyrgða
Kristján Björgvinsson hjá Sjóvá-
Almennum segir að viðskiptalána-
tryggingar hafi verið í boði hér á
iandi, en einungis frá erlendum vá-
tryggingafélögum í gegnum vá-
tryggingamiðlara. Þessi þjónusta
færist nú inn í landið því félagið sé
frumtryggjandi, en ekki milliliður.
Kristján segir að líkja megi þessum
vátryggingum að hluta til við útflutn-
ingsábyrgðir banka og þær geti kom-
ið í stað ábyrgða. Hins vegar séu
bankaábyrgðir allt að tvöfalt eða
þrefalt dýrari en viðskiptalánatrygg-
ingar, en vissulega sé talsverður
munur á þessari þjónustu. „Útflytj-
endur hafa verið að færa sig frá
bankaábyrgðum yfír í tryggingar í
gegnum erlenda aðila,“ sagði hann.
Benetton hættir
VERSLUNIN Benetton mun hætta
starfsemi þegar útsölum lýkur og
vörubirgðir hafa verið seldar, en
húsnæðið sem verslunin hefur leigt
á Laugavegi 97 hefur verið selt.
Að sögn Margeirs Margeirsson-
ar, eiganda Benetton verslunarinn-
ar, þá rennur leigusamningurinn
út í byrjun maí. „Til þess að fara
í annað húsnæði þyrftum við að
fjárfesta í nýjum innréttingum og
miklum breytingum. Þar sem við
höfum orðið vör við að íslendingar
vilja frekar kaupa sömu vöru á svip-
uðu verði erlendis en hér á landi
sjáum við fram á að uppsetning á
nýrri búð borgar sig ekki og höfum
því ákveðið að hætta með verslun-
ina eftir útsöluna sem nú stendur
yfír.“
Hugbúnaðarfyrirtækin Hugur hf. og íslensk forritaþróun hf. sameinast
Verður stærsta hugbún-
aðarfyrirtæki landsins
Morgunblaðið/Golli.
GUNNAR Ingimundarson og Hálfdan Karlsson brostu breitt í gær
eftir að starfsmönnum hafði verið tilkynnt um sameininguna.
HUGBUNAÐARFYRIRTÆKIN
Hugur hf. og ísiensk forritaþróun
(ÍF) hf. verða sameinuð í eitt fyrir-
tæki á næstunni. Fyrirtækið verður
væntanlega stærsta hugbúnaðarfyr-
irtæki landsins og er stefnt að því
að velta þess nemi um hálfum millj-
arði króna á þessu ári. Hinu nýja
fyrirtæki hefur enn ekki verið gefið
nafn en ákveðið hefur verið að Gunn-
ar Ingimundarson, núverandi fram-
kvæmdastjóri Hugar, verði fram-
kvæmdastjóri þess.
Fulltrúar eigenda fyrirtækjanna
hafa átt í viðræðum um sameiningu
eftir að breski hugbúnaðarrisinn
CODA Group plc. keypti Windows
hugbúnaðarhluta ÍF. Samkomulag
náðist í upphafí vikunnar og verður
það lagt fyrir hluthafafundi fyrir-
tækjanna innan skamms.
Tilgangurinn með sameiningunni
er að skapa stórt fyrirtæki á sviði
hugbúnaðar hérlendis sem geti full-
nægt þörfum flestra fyrirtækja en
um leið sinnt öflugri þróunarvinnu
að sögn Gunnars Ingimundarsonar,
framkvæmdastjóra Hugar og Hálf-
dans Karlssonar, framkvæmdastjóra
ÍF. „Kaup CODA Group á Windows
hugbúnaðarhluta íslenskrar forrita-
þróunar hf. eru mikil viðurkenning
fyrir íslenskan hugbúnaðariðnað.
Þegar þau kaup voru orðin að veru-
leika þurfti fyrirtækið að móta nýja
framtíðarsýn. Niðurstaðan varð sú
að ganga í eina sæng með Hug hf.
og skapa þannig stærsta hugbúnað-
arfyrirtæki landsins. íslenski mark-
aðurinn er lítill og með því að stækka
eininguna stuðlum við að aukinni
hagkvæmni, sem kemur fyrirtækj-
unum báðum og viðskiptavinum
þeirra til góða,“ sögðu þeir í sam-
tali við Morgunblaðið í gær.
60störf
Samanlögð velta fyrirtækjanna
tveggja nam um 425 milljónum á
nýliðnu ári, velta Hugar um 300
milljónum króna en ÍF um 125 millj-
ónum. Nú vinna um 40 manns hjá
Hug en um 20 hjá IF og fá þeir all-
ir vinnu hjá hinu sameinaða fyrirtæki.
íslensk forritaþróun var stofnuð
árið 1983 og Hugur árið 1986 og
eru fyrirtækin því með elstu hugbún-
aðarfyrirtækjunum hérlendis. Bæði
fyrirtækin sérhæfa sig í sölu á við-
skiptahugbúnaði og tengdri þjónustu
og þjóna nú samtals tvö þúsund við-
skiptavinum um land allt. ÍF er með
viðskiptahugbúnaðinn ÓpusAllt en
Hugur er með Concorde búnaðinn
og tímaskráningarkerfin Útvörð og
Bakvörð.
Hálfdan til Bandaríkjanna
Ekki hefur fengist uppgefið
hvernig eignarhlutdeild í nýja fyrir-
tækinu verður háttað. Hugur er að
meirihluta til í eigu starfsmanna en
fyrirtækin Nýhetji og Tæknival eiga
einnig hlut ý fyrirtækinu.
Eigendur íslenskrar forritaþróun-
ar eru þremenningarnir Vilhjálmur
Þorsteinsson, Hálfdan Karlsson og
Örn Karlsson. Þeir hafa allir starfað
hjá ÍF en munu á næstunni hefja
störf hjá CODA Group. Vilhjálmur
og Örn munu starfa hjá CÓDA á
íslandi við þróun og stjórnun en
Hálfdan mun hefja störf sem aðstoð-
arforstjóri hjá CODA í Bandaríkjun-
um. Þremenningarnir munu því ekki
starfa hjá hinu sameinaða fyrirtæki
en þeir verða allir hluthafar og munu
koma að stefnumótun þess.
Stóraukið þróunarstarf
Gunnar segir að hann telji það
mikinn styrk fyrir hið sameinaða
fyrirtæki að hafa þremenningana
með enda muni mikil þróunarvinna
eiga sér stað innan þess. „OpusAUt
viðskiptakerfið verður t.d. þróað
áfram innan nýja fyrirtækisins og
þeir, sem því verki sinntu, munu
halda því áfram. Bæði fyrirtækin
hafa verið að gera góða hluti í út-
flutningi og nýtt og stærra fyrirtæki
mun leggja mikla áherslu á þann
þátt. Markmiðin eru þau að veita
viðskiptavinum betri þjónustu, auka
þróunarstarf og auka útflutning."
Fyrst um sinn verður fyrirtækið á
tveimur stöðum, í Reykjavík og Kópa-
vogi, en síðar á árinu er fyrirhugað
að sameina starfsemina í eigin hús-
næði við Illíðarsmára í Kópavogi.
gjjlpi mest seldu -J ~ U i fóiksbíla- £ llflr tegundirnar árið 1996 Fjöidi % Sí Br. frá fyrraári %
1. Toyota 1.559 19,4 +13,3
2. Volkswaqen 1.004 12,5 +27,6
3. Nissan 762 9,5 -13,6
4. Mitsubishi 615 7,7 +86,4
5. Hvundai 573 7,1 +1,2
6. Subaru 536 6,7 +84,8
7. Suzuki 502 6,2 +119,2
8. Opel 458 5,7 +32,4
9. Ford 359 4,5 +160,1
10. Renault 311 3,9 +20,1
11. Honda 186 2,3 +77,1
12. Volvo 160 2,0 -35,0
13. Skoda 138 1,7 -2,1
14. Masda 119 1,5 +5,3
15. Lada 94 1,2 -32,9
Aðrar teg. 662 8,2 +33,2
Samtals 8.038 100,0 +24,7
Rangar tölur
um sölu Suzuki
MEINLEG villa slæddist inn í töflu
á viðskiptasíðu í gær yfír 15 mest
seldu nýju fólksbílana á síðasta ári.
Þar var ranglega greint frá því að
selst hefðu 302 Suzuki-fólksbílar.
Hið rétta er að alls seldust 502 bílar
af þeirri gerð á árinu 1996. Þá var
að sama skapi rangt að markaðshlut-
deild Suzuki hefði verið 3,8%, en
rétt tala er 6,2%. Beðist er velvirðing-
ar á þessum mistökum.
12,7% Frakka
án atvinnu
París. Reuter.
ATVINNULEYSI í Frakklandi jókst
í 12,7/% í nóvember og hefur aldrei
verið meira. Dregið hafði úr atvinnu-
leysi í október, en hagfræðingar telja
að það eigi enn eftir að aukast.
Frökkum án atvinnu fjölgaði um
20.700 í nóvember, en hafði fækkað
um 12.000 í október. Alls eru 3,12
milljónir Frakka án atvinnu.