Morgunblaðið - 08.01.1997, Qupperneq 21
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 8. JANÚAR 1997 21
LISTIR
Morgunblaðið/Golli
ÚR SÝNINGU Hafnarfjarðarleikhússins á Birtingi.
Birtingur á leið til útlanda
Jón Leifs
aftur í Berlín
Deutsch-Skandinavische Jugend-Phil-
harmonic flutti tvö verk eftir Jón Leifs
á tónleikum í Berlín á mánudag. Hjálmar
Sveinsson, fréttaritari Morgunblaðsins,
Boðið á tvær stórar
leiklistarhátíðir
HAFNARFJARÐARLEIKHÚS-
INU Hermóði og Háðvör hefur
verið boðið að sýna Birting eftir
Voltaire á tveimur stórum leik-
listarhátíðum síðar á árinu. Onn-
ur er í Þrándheimi og er haldin
í tilefni þúsund ára byggðar en
hin hátíðin, LIFE í Vilníus, er
öllu þekktari en Þjóðleikhúsið
fór meðal annars með sýningu
þangað á liðnu ári.
Að sögn Gunnars Helgasonar,
sem leikur titilhlutverkið í sýn-
ingunni, hafa fleiri hátiðir beðið
um upplýsingar um hana og má
því segja að hún sé í skoðun víðs-
vegar um Evrópu og í tveimur
heimsálfum öðrum. „Er það vel
við hæfi því í verkinu ferðast
Birtingur um hálfan hnöttinn í
leit sinni að hamingju og eðlilegu
fólki!"
Gunnar segir að sitthvað fleira
hafi drifið á daga leikhópsins að
undanförnu en um síðustu helgi
varð leikstjórinn, Hilmar Jóns-
son, að stökkva inn í hlutverk
Höllu Margrétar Jóhannesdóttur
sem eignaðist heilbrigðan 14
marka son 4. janúar síðastliðinn.
Heilsast móður og barni vel en
Halla Margrét hyggst, að sögn
Gunnars, koma aftur til starfa
sem allra fyrst.
Birtingur var frumsýndur í
Hafnarfjarðarleikhúsinu í októ-
ber síðastliðnum og eru sýningar
áætlaðar út janúar hér á landi.
*
Serbneskt „Op“
MÓTMÆLENDUR úr röðum
stjórnarandstöðunnar í
Belgrad, sem hafa mótmælt á
götum úti í sjö vikur, hafa grip-
ið til ýmissa ráða í baráttunni.
Tóku námsmenn í röðum þeirra
upp á því að mála verk í anda
„Opsins“, eftir norska málarann
Edward Munch, til að tákna líð-
an sína.
var viðstaddur og upplifði lófatak og
húrrahróp áhorfenda.
ÁRIÐ 1941 stjórnaði
Jón Leifs tónleikum í
Berlín þar sem flutt
var verk eftir hann
sjálfan. Þeir sem hafa
séð kvikmyndina „Tár
úr steini“ vita hvernig
fór um sjóferð þá.
Áhorfendur hristu
hausinn, stöppuðu og
púuðu og þegar
stjórnandinn sneri sér
við, til að hneigja sig
í virðingarskyni fyrir
öllu fólkinu, var varla
sála eftir í salnum.
Það var því ekki alveg
laust við að þeir sem
þekktu þessa sögu, og voru stadd-
ir í hinni frægu Fílharmóníu Berl-
ínar, síðastliðið þrettándakvöld
jóla, væru dálítið kvíðnir fyrir
hönd þessa mikilvirka en mis-
skilda tónskálds. Þarna átti að
frumflytja tvö verk eftir Jón Leifs
á þýskri grund: Elegíu op. 53 og
Heklu op. 52. Hvað skyldi gerast
nú, rúmum 50 árum síðar? Ætli
áhorfendur haldist í salnum í
þetta skipti?
Hljómsveitin sem flutti verkin
er kölluð „Deutsch-Skandinav-
ische Jugend-Philharmonic“ og er
skipuð ungum hljóðfæraleikurum
frá Þýskalandi og Skandinavíu.
Hún var stofnuð í Berlín fyrir rösk-
um 15 árum og hér kemur hún
saman á hveiju ári til að æfa sam-
an eitthvert lag eða syngja kvæði.
Eins og gefur að skilja er end-
urnýjun hljómsveitarmeðlima hröð
í slíkri ungliðasveit en stjórnandi
frá upphafi hefur verið Þjóðveijinn
Andreas Peer-Káhler. Og það skal
strax tekið fram að hann og allir
hljóðfæraleikarar stóðu sig með
prýði. Verkin eftir Jón Leifs voru
flutt fyrir hlé en eftir hlé var spil-
uð Sinfónía númer 4 eftir Gustaf
Mahler.
Söguleg stund
Það er alveg óhætt að kalla það
sögulega stund þegar tónlist Jóns
Leifs hljómaði nú aftur í Berlín.
Elegían liðast ljúft um salinn;
hljóðlát, falleg, fljótandi. Bíófólk
kannast við hana úr áðurnefndri
kvikmynd en Jón mun
hafa samið hana í
minningu um móður
sína árið 1961. Síð-
ustu hljómarnir eru
ofurlágir en ætla
samt aldrei að deyja
út. Svo kemur þögn,
algjör þögn í nokkrar
sekúndur áður en
Hekla gýs með svo
miklum látum að þak-
ið ætlar að rifna af
húsinu. Jörðin brestur
með ærandi drunum,
gijótflugi, sprenging-
um og vellandi
hrauni. Allt ætlar um
koll að keyra, já, krafturinn er
svo ógurlegur að maðurinn og öll
hans verk verða að engu. Og það
er ekkert gefið eftir og engin
hvíld fyrr en gosinu lýkur jafn
snöggt og það hófst. Ég taldi eina
fjórtán slagverksleikara sem léku
á trommur af öllum stærðum og
gerðum, börðu með hömrum á
járn, lömdu saman tréklumpum.
Þvílíkur djöflagangur hefur víst
aldrei heyrst í þessu heimsfræga
húsi. Þegar allt var yfirstaðið var
svolítil þögn og áhorfendur horfðu
hver á annan og svo hófst mikið
lófatak og húrrahróp. Stjórnand-
inn var klappaður fjórum sinnum
upp og hann hneigði sig jafn oft
fyrir rétt að segja fullu húsi af
fólki. Ég viðurkenni fúslega að
mér fannst ósköp gott að heyra
fágaða miðevrópska tónlist eftir
hlé. Eftir að hafa hlýtt á Heklu
finnur maður léttleika, einfald-
leika, fjölbreytileika, ljúfsárt
tónaflæði og gjöfula náttúruna í
sinfóníu Mahlers.
Eftir tónleikana hitti ég Andre-
as Peer-Káhler að máli. Hann var
að vonum kampakátur og sagði
að nú loksins hefðu Berlínarbúar
bætt fyrir framkomu sína gagn-
vart Jóni Leifs og veitt honum
uppreisn æru. „En reyndar flutt-
um við ekki fallegasta verk Jóns
í kvöld,“ bætti hann við, „það er
Requiem sem mér finnst vera eitt
fallegasta verk gjörvallra tónbók-
menntanna. Ég vil láta spila það
yfir mér þegar ég dey.“
Jón Leifs
Tökum Opus-Allt og
annan hugbúnað uppí
SÖLUSTAÐIR
Bókabúð Grindavíkur
Bókaversl. Sigurbjörns Brynjólfssonar. Egilsstöðum
Bókabúðin Mjódd
Bókabúðin Suðurströnd
Verslunin Sjávarborg. Stykkishólmi
Bókabúð Böðvars. Halnarfirði
Bókaskemman, Akianesi
Bókabúðin Hlemmi
Bókabúð Árbæjar
ÚTSALAN ER HAFIN
10-60% afsláttur
Úlpur, skíðagallar, útigaUar,
íþróttagallar, íþróttaskór o.fL
Opið laugardag kl. 10-16. Nóatúni 17, SÍmi 511 3555
Hhummel'T
SPORTBÚÐIN