Morgunblaðið - 08.01.1997, Side 27
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 8. JANÚAR 1997 27
AÐSEIMDAR GREINAR
Skagfirskar
virkjanir
MARGT bendir nú
til þess að framhald
verði á byggingu og
rekstri orkufrekra
iðjuvera á íslandi.
Þær umbætur, sem
orðið hafa í íslensku
efnahagslífi undan-
farin ár, gera fjár-
festingu hér ákjós-
anlega og starfs- og
rekstrarumhverfið
stöðugt og traust.
Með raunhæfari
hætti og af meiri
nákvæmni getum
við því skipulagt
fram í tímann. Sú
vinna á sér stað á
vegum Orkustofn-
unar með forathugunum og
grunnrannsóknum og svo á veg-
um Landsvirkjunar þegar kemur
að verkhönnun og framkvæmda-
þáttum.
ákvarðanir séu
teknar í sátt við
landeigendur og þá
sem afnotarétt hafa
svo sem aðila í
ferðaþjónustu.
Þó má benda á
margt við slíkar
framkvæmdir sem
hefði jákvæð áhrif á
ferðaþjónustu. Lög
um umhverfismat
tryggja það að var-
lega sé farið og ekki
sé spillt verðmætum
í umhverfinu, s.s.
minjum og menjum,
sérstæðu dýralífi,
náttúruperlum svo
eitthvað sé nefnt.
Að öllum þeim þáttum þarf vand-
lega að hyggja. Fyrirsjáanleg eru
líka jákvæð umhverfisáhrif. Þótt
uppistöðulón yrðu hlutfallslega
lítil myndu þau þó geta hindrað
Hjálmar
Jónsson
Hagstæðir virkjunar-
kostir í Skagafirði
Sumir hagstæðustu kostirnir
fyrir raforkuframleiðslu eru í
Skagafirði og er hagstæðasta
smávirkjunin líkast til Villinga-
nesvirkjun. Hún myndi styrkja
dreifikerfi raforkunnar um landið,
staðsett rétt við byggðalínuna.
Fyrir henni er lagaheimild og
verkhönnun er lokið. Með litlum
fyrirvara er hægt að taka þennan
kost og jafnvel gætu Rafmagns-
veitur ríkisins valið þennan kost
svo hagstæður sem hann er. Meiri
líkur eru þó á að stærri kostur
verði valinn vegna meiri orkuþarf-
ar á næstu árum. Að athuguðum
öllum þáttum hef ég trú á að
skagfirskur virkjunarkostur verði
fyrr fyrir valinu en áætlanir hafa
gert ráð fyrir. Veigamikil rök
mæla með því út frá hagsmunum
þjóðarinnar í heild og ekki síður
fyrir hérað og landsfjórðung.
Virkjunin yrði á tiltölulega ör-
uggu svæði gagnvart jarðhrær-
ingum, eldgosum og flóðum.
Umhverfisröskun yrði lítil, minni
en flestir aðrir virkjunarkostir
leiddu af sér. Hár lindarvatnsþátt-
ur skagfirsku vatnanna sem
tryggir stöðugt rennsli minnkar
þörfina fyrir stór uppistöðulón.
Umhverfisáhrif
Að sjálfsögðu er svo stór fram-
kvæmd sem hér um ræðir ekki
laus við neikvæðar hliðar. Slíkum
umsvifum hlýtur að fylgja nokk-
urt rask. Gæta þarf þess að
Sumir hagstæðustu
kostirnir fyrir raforku-
framleiðslu eru í Skaga-
firði, segir Hjálmar
Jónsson, og er hag-
stæðasta smávirkjun-
in líkast til Villinga-
nesvirkjun.
vorflóðin, sem spilla vegum, flæða
yfir varplönd fugla og valda ýmsu
óhagræði í héraðinu. Stærstu
virkjanakostirnir myndu leiða til
þess að aur skildist út svo að
Héraðsvötnin yrðu nánast tær.
Það myndi aftur stórbæta lífsskil-
yrði vatnafiska.
Þjóðhagslegt
mikilvægi
Framkvæmdin er á svæði sem
er utan hins fyrirsjáanlega
þenslusvæðis í landinu og myndi
því auka jafnvægi milli lands-
hluta. Þessi þáttur er mikilvægur
þjóðarhag. Þensluáhrif af fram-
kvæmdum við orku- og stóriðju-
ver verða miklu meiri og valda
óheppilegri röskun og umróti í
þjóðfélaginu ef allt á sér stað
nánast í einum landshluta. Fleira
er röskun en umhverfisröskun.
Fólksflutningar til höfuðborgar-
innar og nærsveita hennar hafa
verið eindregnir alllengi og getur
stefnt í ennþá meiri tilflutninga
en hingað til. Af þeim ástæðum
var tekin ákvörðun um það á síð-
ustu stigum fjárlagagerðar fyrir
nýbyrjað ár að draga úr opinber-
um framkvæmdum á suðvestur-
horni landsins til þess að skapa
svigrúm fyrir stóriðjufram-
kvæmdir og gæta jafnvægis.
Miklu meira þarf þó til að koma.
Upphaf
nýrrar sóknar
Virkjunarframkvæmdir einar
og sér yrðu vissulega aðeins tíma-
bundin lyftistöng fyrir atvinnulíf-
ið í Skagafirði og á Norðurlandi.
En þær gætu þó verið mikilvæg
viðspyrna og gætu fætt af sér
nýjar hugmyndir og möguleika til
atvinnusköpunar. Engin ein fram-
kvæmd leysir allan vanda. Margir
samverkandi þættir bæta lífsskil-
yrði í landinu. Hin afleiddu áhrif
af virkjun í Skagafirði, margföld-
unaráhrifin í þjónustugreinum og
iðnaði, gætu orðið sá vendipunkt-
ur sem til þarf svo að landshlutinn
verði eftirsóknarverðari fyrir
staðsetningu nýs smáiðnaðar og
ýmislegrar þjónustustarfsemi.
Jafnvægi byggðar í landinu -
nauðsyn umræðu
Breytingar í hinni höfuðauðlind
íslendinga, fiskimiðunum einkum
vegna minnkandi fiskvinnslu í
landi, veldur röskun og við henni
þarf að bregðast. Fækki fólki enn
og áfram á landsbyggðinni vegna
minnkandi atvinnu og meiri ein-
hæfni dregst þjónustan einnig
saman. Þá er hætt við ennþá ör-
ari fólksstraumi frá landsbyggð
til höfuðborgarsvæðisins en hing-
að til, hvorugum og engum til
hagsbóta. Verði hins vegar gætt
jafnvægis eru vaxandi líkur á
aukinni hagsæld allra lands-
manna. Vona ég að umræða um
þessi brýnu hagsmunamál eigi sér
stað á næstu mánuðum og misser-
um á hlutlægan, málefnalegan
hátt og að fólk fylgist með fram-
vindunni og myndi sér skoðanir
að yfirveguðu ráði.
Höfundur er þingmaður
Sjálfstæðisflokksins á
Norðurlandi vestra.
12. MARS árið 1916
var stórt skref stigið í
mannréttindabaráttu á
íslandi.
Þann dag var Al-
þýðuflokkur íslands
stofnaður af fulltrúum
fimm verkalýðsfélaga í
Reykjavík og tveggja
úr Hafnarfirði. Mark-
mið hins nýja afls voru
háleit en ijarlæg. Fá-
tækt skyldi útrýmt og
allir þegnar íslenska
ríkisins skyldu hafa
jafnan rétt til að þroska
kosti sína og leita far-
sældar og hamingju.
Afleiðingar verkalýðs-
baráttunnar, sem holdgervast í
stofnun ASÍ og Alþýðuflokks, hafa
skilað okkur því velferðarríki sem
við þekkjum í dag. Saga verkaiýðs-
baráttunnar er mörkuð átökum um
menn og málefni og ógæfa hreyf-
ingarinnar er tíður klofningur henn-
ar. Alþýðubandalagið er barn þessa
klofnings og stendur dyggan vörð
um hinar háleitu hugsjónir vinstri
stefnunnar ásamt Alþýðuflokki og
Þjóðvaka.
Hinar háleitu hugsjónir um frelsi,
jafnrétti og bræðralag hafa fleytt
íslandi frá því að vera frumstætt
og vanþróað ríki, þar sem alþýðan
svalt og lítil forréttindastétt makaði
krókinn, yfir í það að vera velferðar-
þjóðfélag fjöldans. Verkefni vinstri
manna nútimans er að standa vörð
um það sem áunnist hefur, ásamt
því að færa þjóðfélagið nær því að
vera réttlátt lýðræðisríki þar sem
manngildið er ofar verðgildinu.
Valddreifing, framsýni og umburð-
arlyndi gagnvart minnihlutahópum
eru þau atriði sem tengja jafnaðar-
menn allra tíma saman ásamt viður-
kenning á þeirri staðreynd að fram-
tíðin er ekki kjöt og fiskur heldur
þekking.
Skoðun margra á því hvernig
hugsjónum jafnaðarstefnunnar
verður best borgið í framtíðinni er
að það sé innan breiðfylkingar sam-
einaðra vinstrimanna.
Gott gengi Reykjavík-
urlistans og náið sam-
starf vinstri manna
annarstaðar í sveitar-
stjórnum kristalla
réttmæti þeirrar skoð-
unar.
Kall grasrótarinnar
og krafa er á samfylk-
ingu fyrir næstu kosn-
ingar. Tími sundrung-
ar og smákóngaveldis
á vinstri kantinum er
liðinn. Sundurþykkja
einstaklinga réttlætir
ekki sundrungu vinstri
manna. Málefnaleg
samstaða er til staðar
í öllum veigameiri málum og
markmiðin eru skýr, spurningin
snýst um leiðir og þær finnum við.
Hagsmunum heildarinnar er best
borgið í samfylkingu vinstri manna.
Stórt skref á átt til samfylkingar
verður stigið laugardaginn 18. janú-
Hugsj ónum j afnaðar-
mennsku er best borgið,
segir Björgvin G. Sig-
urðsson, innan samein-
aðrar vinstri fylkingar.
ar. Þá mun ungt fólk úr stjórn-
arandstöðuflokkunum, ásamt fjölda
óflokksbundins félagshyggjufólks,
stofna hreyfingu sem hefur það að
markmiði að stuðla að samfylkingu
félagshyggjuaflanna. Hreyfingin
verður opin og lýðræðisleg fjölda-
hreyfing og ættu allir sem lífga
vilja glæður kröfunnar um frelsi,
jafnrétti og bræðralag að láta sjá
sig á stofnfundinum og taka þátt
í þessum tímamótum íslenskrar
vinstri hreyfingar.
Höfundur er háskólanemi.
Krafa gras-
rótarinnar
Björgvin G.
Sigurðsson
Haustvörurnar streyma inn
Brandtex vörur
Dragtir, kjólar,
blússur og pils.
Ódýr náttfatnaður
Nýbýlavegi 12, sími 554 4433
WICANDERS
GUMMIKORK
í metravís
• Besta undirlagið fyrir trégólf
og linoleum er hljóðdrepandi,
eykur teygjanleika gólfsins.
• Stenst hjólastólaprófanir.
• Fyrir þreytta fætur.
GUMMIKORK róor gólfin niður!
Í rúllum - þykktir 2.00 og 3.2 mm.
PP
&CO
Þ>. ÞORGRÍMSSON & CO
ARMULA 29 • PÓSTHÓLF 8360 • 128 REYKJAVÍK
SIMI553 8640 568 6100
BÍLATORG FUNAHÖFÐA 1 S. 587-7777
Satnrn SE Twin Cam nrg. '94,
hvítur, sjtílfsk., ek. 24 þiís. km.
Verð 1.450.000. Skipti ath.
MMC Galant GLSi irg. '92,
gronsans., sjiilfsk., topplúga, rafn. í
rúðum, samUsingar, ilfelgur, ek. 93
þús. km. Verð 1.190.000. Skipti.
Range Rover 3900Í Vouge irg. '90,
dökkgrtenn, ickureintiik, sjilftk., rafin.
í níotim, fjarstýrðnr saviiéesingar,
cndiirryðvininn, nyrrgmmro.fi., ek.
105 þtís. kvt.
Verð 2.200.000. Skiptiath.
Nissan Ratrol GR SLX 2800
dtscl ttirho irg. '95, hvítur, rafm. í
rúðum, samhesing, 32" ilfclgur, ek.
31 þtís. km.
Verð 3.450.000. Skipti.
Toyota 4Runner 3000 V-6 irg.
‘88, hvítur gullmoli, ilfelgm; ek.
llOþm. km. en I þús. km. i vél.
Upptekhin hji iimboiinu.
Verð 1.250.000. Skipti.
Dodge Ram 350 Van irg. ‘89,
vínrnuðm; V-8 318 vél, 4x4, 35"
dckk, krómfelgm; glæsilega
innréttaðm; ek. nðeins 48 þús. km.
Verð 2.490.000. Skipti.
Arnþór Grétarsson
.... sölumaöur
GLEÐILEGT NÝTT ÁR • ÞÖKKUM VIÐSKIPTIN A LIÐNU ARI
■ - • - -v . .
_ ____________
. V ....
umtgm
Toyoui Carina E GLi 2000 úrg.
‘94 og '93, gullsans., sjilftk.,
samhcsingat; rafm. írúðum, ek. 29
þtís. Verð 1.580.000. Skipti.
Hyundai Elantrn 1800 GT nrg. Honda Acconl EXi 2000i drg.
‘94 og ‘95 sjilfsk., gr.cnti, smnkesing, '92, silfiirgrir, topplúgn, rafm. í
rafm. íniðum, ek. 36 þús. km. ritðiim, samkesing, ilfelgm; ek. 67
Verð 1.160.000. Skipti. þús. km. Verð 1.260.000. Skipti.
Mazdti 323 4WD irg. ‘92,
grisatts., ilfelgm; ek. 75 þiis. km.
Verð 1.050.000. Skipti.
BMW 520 M 24V Touring TW., Nissan Simny STW 1600i SLX
svortur.árg. ‘96, gtillmoli, 16“ alfclgnt; 4WD irg. ‘94, grigrættn, ttpph.,
urndrimg, rnfm. htíðum, viðarinnr., ah bac álfclgm; samUsing, rafm. íríðum.
o.fl„ ek. 29þtís. km. Vcri 3.650.000. Skipu. ,260.000. Skipti.