Morgunblaðið - 08.01.1997, Qupperneq 28
28 MIÐVIKUDAGUR 8. JANÚAR 1S97
MORGUNBLAÐIÐ
STOFNAÐ 1913
ÚTGEFANDI: Árvakur hf., Reykjavík.
FRAMKVÆMDASTJÓRI: Hallgrímur B. Geirsson.
RITSTJÓRAR: Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
LÍFSKJÖR Á
ÍSLANDIOG í ESB
SKÝRSLA, sem nefnd á vegum forsætisráðherra hefur
tekið saman, um mun á verðlagi á íslandi og í ríkjum
Evrópusambandsins er mikilvægt innlegg í þá umræðu,
sem fram hefur farið undanfarin misseri um lífskjör á
íslandi í samanburði við nágrannalöndin.
Skýrslan sýnir í fyrsta lagi fram á að almennt verðlag
hér á landi er 13% hærra en að meðaltali í ríkjum ESB.
Hins vegar er ekki allt dýrara á íslandi en í öðrum Evrópu-
ríkjum; húsnæðis- og eldsneytiskostnaður er t.a.m. lægri
hér, en verð matar, drykkjar og tóbaks mun hærra en í
ESB-ríkjum. Þótt þar muni mest um hátt verð áfengra
drykkja er ljóst að enn er matvöruverð hærra á Islandi en
í nágrannaríkjunum. Að vísu hefur það lækkað talsvert á
undanförnum árum og hugsanlegt er að munurinn á mat-
vöruverði á íslandi og í ESB sé orðinn minni en fram
kemur í skýrslunni, en tölur í henni eru miðaðar við árið
1994.
Niðurstöður nefndarinnar beina athygli manna að þeim
þáttum, þar sem íslendingar þurfa að gera betur, þótt
nefnd forsætisráðherra geri engar tillögur til úrbóta. Frek-
ari umbætur í landbúnaðarkerfinu, aukin samkeppni og
áframhaldandi stöðugleiki í efnahagslífinu eru forsendur
þess að lækka megi verðlag enn frekar en orðið hefur
undanfarin ár.
Loks má ekki gleyma því að verðlagssamanburður seg-
ir engan veginn alla söguna um mun á lífskjörum á ís-
landi og í Evrópusambandinu. Aðeins i fátækustu ríkjum
ESB er landsframleiðsla á vinnustund minni en á íslandi.
Eingöngu í Portúgal og Grikklandi er greitt lægra tíma-
kaup. íslendingar hafa því miklu meira fyrir kaupmætti
sínum en aðrar Evrópuþjóðir. Þetta er mál, sem brýnt er
að taka á í komandi kjarasamningum.
TRY GGIN G AVERND
LÁNTAKENDA
ARNI SIGFÚSSON, oddviti sjálfstæðismanna í borgar-
stjórn, hefur varpað fram athyglisverðri hugmynd
um tryggingavernd fyrir lántakendur við tekjutap vegna
veikinda, slysa eða atvinnuleysis. Árni kynnti málið nú i
upphafi árs í grein hér í blaðinu og bendir m.a. á, að hjá
brezkum veðlánastofnunum og bönkum fái lántakandi
tryggingu um leið og hann tekur lán. Tryggingin greiðir
afborganir og vexti af láninu við tekjutap í fyrrgreindum
tilvikum. Þetta er ekki aðeins mikilvæg vörn fyrir lántak-
andann heldur einnig lánveitandann og á því að geta stuðl-
að að hagstæðari vaxtakjörum.
Árni Sigfússon bendir á, að lánveitandi geti gert samn-
ing við tryggingarfélag um, að allir lántakendur falli sjálf-
krafa undir tryggingaverndina og þetta gæti t.d. Hús-
næðisstofnun gert. Vegna fjölda lántakenda verði kostnað-
ur við tryggingaverndina lágur. Þetta er vafalaust rétt
og er vel hægt að hugsa sér, að bankar og aðrar lánastofn-
anir bjóði slíka tryggingavernd út til að fá sem hagstæð-
ust kjör.
íslenzk heimili hafa safnað miklum skuldum undanfarin
misseri og er það því augljóslega mikið hagsmunamál
þeirra að eiga kost á slíkri tryggingavernd. í grein Árna
kemur fram, að á tveimur árum hafi 2500 heimili leitað
eftir sérstakri greiðsluerfiðleikaaðstoð hjá Húsnæðisstofn-
un. Þar af hafi 72% heimilanna lent í fjárhagserfiðleikum
vegna veikinda, slysa, atvinnumissis eða lækkandi tekna.
Tryggingavernd hefði breytt miklu bæði fyrir lántakanda
og lánveitanda í þessum tilvikum.
Viðbrögð við hugmynd Árna eru jákvæð af hálfu ís-
lenzkra lánastofnana. Forstjóri Húsnæðisstofnunar, Sig-
urður Guðmundsson, segir að sér lítist vel á hana og bend-
ir m.a. á, að norski Húsbankinn hafi farið inn á þessa
braut fyrir sjö árum og reynslan hafi verið mjög góð.
Guðmundur Hauksson, sparisjóðsstjóri SPRON, segir það
enga spurningu, að bankaþjónusta og tryggingar eigi
mikla samleið.
Hér er um mikið sameiginlegt hagsmunamál lántakenda
og lánastofnana að ræða og full ástæða til að hrinda
hugmyndinni um tryggingaverndina í framkvæmd hið
fyrsta.
ÞRÓUN EVRÓPU'
íslendinga
hugsa lengra
ISLENDINGAR verða að leggja
meiri áherzlu á að huga að
því hvernig þeir fá hagsmun-
um sínum borgið þegar Efna-
hags- og myntbandalag Evrópu,
EMU, verður að veruleika. Sama
gildir um þátttöku íslands í sam-
starfi Evrópuríkja á sviði lögreglu-
og dómsmála, sem EES-samning-
urinn nær ekki til. Þetta er mat
Jean-Claudes Piris, yfirmanns lög-
fræðideildar ráðherraráðs Evrópu-
sambandsins, ESB, en hann var
staddur hér á landi yfir hátíðarnar,
og átti m.a. fund með Halldór Ás-
grímssyni utanríkisráðherra.
Piris er tengdur íslandi, þar sem
eiginkona hans, Margrét Þórodds-
dóttir, er íslenzk. Dvelja þau hjónin
oft á hátíðum hér á landi.
Auk þess að gegna stöðu æðsta
yfirmanns lögfræðideildar (legal
service) ráðherraráðsins er Piris
jafnframt sérlegur lögfræðiráðu-
nautur ESB-ráðherranna sem og
ríkjaráðstefnunnar, sem nú stendur
yfir.
Hann hlaut m.a. frægð fyrir þátt
sinn í að leysa þá kreppu sem ESB
lenti í eftir að Danir höfðu árið
1992 hafnað því í þjóðaratkvæða-
greiðslu að staðfesta Maastricht-
sáttmálann. Lögformlega gat sátt-
málinn ekki tekið gildi nema allar
aðildarþjóðir ESB staðfestu hann,
og gat því „danska neiið“ sett hann
í uppnám. Danir settu fram kröfur
um lagalega bindandi undanþágur
frá vissum ákvæðum sáttmálans.
Á leiðtogafundi ESB í Edinborg
í desember 1992 tókst að ná sam-
komulagi um fyrirvara Dana, sem
síðan varð til þess að í nýrri þjóðar-
atkvæðagreiðslu (í maí 1993) féll-
ust Danir á að staðfesta sáttmál-
ann. í umijöllun fjölmiðla um Edin-
borgarfundinn var Piris eignað
megnið af heiðrinum að því að þetta
samkomulag náðist, einkum með
því að beita nýrri túlkun
á nálægðarreglunni svo-
kölluðu (subsidiarity),
sem þótti bera snilli hans
sem lögfræðings og
samningamanns glöggt
vitni.
Að öilu jöfnu fara störf Piris
annars ekki hátt í fjölmiðlum. Sem
yfirmaður lögfræðideildar ráð-
herraráðsins hafði hann umsjón
með samningaviðræðunum á ríkja-
ráðstefnu ESB 1991-1992, sem
lauk með undirritun Maastricht-
sáttmálans. Sama gildir um ríkja-
ráðstefnuna sem nú stendur yfir
og ætlunin er að ljúka á leiðtoga-
fundi ESB í Amsterdam í júní á
þessu ári.
Ríkjaráðstefnan
Ríkjaráðstefnu-viðræðurnar fara
fram á vikulegum fundum sérskip-
aðs hóps fulltrúa allra aðildarríkj-
anna (sem flestir eru sendiherrar
að tign) auk fulltrúa frá fram-
kvæmdastjórn ESB og Evrópuþing-
inu.
Flestir þessir menn eru þeir sömu
og sátu í hugleiðingarhópnum
svokallaða, sem undir stjórn Carlos-
ar Westendorp, þáverandi Evrópu-
málaráðherra Spánar, undirbjó
ríkjaráðstefnuna. Auk hinnar stöð-
ugu meðhöndlunar hjá þessum hópi
eru málefni ríkjaráðstefnunnar
rædd á mánaðarlegum fundum ut-
anríkisráðherra ESB-ríkja. Lög-
fræðideild ráðherraráðsins heldur
utan um þessar samningaviðræður
og getur Piris því sem yfirmaður
hennar haft töluverð áhrif á gang
þeirra.
Staða
viðræðnanna
Á leiðtogafundi ESB í Dublin í
desember sl. var m.a. lögð fram
skýrsla viðræðuhópsins um stöðu
mála á ríkjaráðstefnunni. Þau mál-
efni, þar sem viðræðunum hefur
miðað lengst, eru þau mál sem falla
undir „þriðju stoð“ ESB, sem snerta
dómsmál, lögreglusam-
starf o.þ.h., en að sögn
Piris nú þegar náðst sam-
staða um texta þessa
kafla, sem þjóna mun sem
grunnurinn að niðurstöðu
ríkj aráðstefnunnar,
endurbættum grundvallarsáttmála
ESB.
Piris segir að þriggja stoða upp-
byggingu Evrópusambandsins, sem
komið var á fót með Maastricht-
sáttmálanum, verði viðhaldið við
endurskoðun sáttmálans nú.
Fyrsta stoðin er kjaminn í sam-
starfí ESB-ríkjanna, og felur í sér
Jean-Claude Piris er yfi:
ráðherraráðs Evrópuss
meiru. Hann segir íslei
betur sinn gang í Evrój
tilliti til hvaða breyti
myntbandalag Evróp
Auðunn Arnórsso
dvaldist hér á lar
BYGGING ráðherraráðs E\
efnahagssamvinnu og sameiginleg-
ar stefnur sambandsins; önnur stoð-
in snýst um utanríkisstefnu og ör-
yggismál. Piris segir ljóst vera nú,
að nokkur atriði sem fram að þessu
heyrðu undir þriðju stoðina munu
flytjast i þá fyrstu. Er þar m.a. um
að ræða sameiginlegar reglur ESB
um öryggi einstaklingsins
, lögreglusamstarf gegn skipulagðri
glæpastarfsemi o.fl.
Schengen
sameinaður
grundvallar-
sáttmála ESB
Ovenjulegur starfsferill I
FYRIR meira en aldarfjórðungi
fór ung íslenzk kona, nýútskrifuð
úr viðskiptafræði frá Háskól-
anum, til starfa hjá Efnahags- og
framfarastofnuninni, OECD, í
París. Upp frá því átti hún allan
sinn starfsferil erlendis, en sá
starfsferill á sér fáar hliðstæður
meðal Islendinga.
Þessi kona heitir Margrét Þór-
oddsdóttir. Hún fæddist á Harð-
bak á Melrakkasléttu, ólst upp í
Reykjavík hjá foreldrum sínum,
Kristínu Guðmundsdóttur og
Þóroddi Th. Sigurðssyni, fv.
vatnsveitustjóra. Hún gekk í MR,
þaðan sem hún útskrifaðist úr
stærðfræðideild árið 1966. Sam-
hliða viðskiptafræðináminu við
Háskólann vann hún hjá Efna-
hagsstofnuninni, sem nú er Þjóð-
hagsstofnun. Þangað komu sum-
arið 1970 menn frá OECD, til að
afla gagna fyrir Islandskaflann í
ársskýrslu OECD, sem á þeim
tíma náði aðeins til landa V-Evr-
ópu auk Bandarikjanna, Kanada,
Japans, Ástralíu og Nýja-Sjá-
lands.
„Þeir gátu tekið einn aðstoðar-
mann í þjálfun í eitt ár. Mér var
því boðið að koma til aðalstöðv-
anna í Paris og að árinu liðnu
fékk ég þar fast starf,“ tjáði Mar-
grét blaðamanni, sem tókst að
hitta hana er hún dvaldi hér á
landi yfir hátíðarnar ásamt eigin-
manni sínum, Jean-CIaude Piris,
og dóttur þeirra Anne-Sophie.
Næstu átta árin vann hún sig
upp metorðastigann innan stofn-
unarinnar. Hún var í hópi þeirra
starfsmanna OECD, sem störfuðu
hjá Alþjóðaorkumálastofnuninni,
IEA, frá stofnun hennar, en hún
er ein af undirstofnunum OECD.
Alþjóðleg orkumál urðu því sér-
svið Margrétar.
„Þegar hér var komið sögu
varð ekki lengra komizt án frek-
ari menntunar," segir Margrét.
Hún ákvað að fara í MBA-nám
til London, sem hún lauk árið
1980. Þá var hún ráðin til að
gegna stjórnunarstöðu hjá Evr-
ópuhöfuðstöðvum ESSO (Exxon).
Hjá þessu risafyrirtæki, sem hef-
ur fleiri en 160.000 starfsmenn,
starfaði Margrét I fimm ár, 1980-
1985. Hún tilheyrði alþjóða-
starfsliðinu, var ráðin í London
til aðalstöðvanna í París, en vann
við rekstrarendurskoðun víða um
lönd. Hún var ekki búin að vera
þar lengur en i þrjá mánuði þeg-
ar hún var farin að stjórna stór-
um endurskoðunarverkefnum,
orðin það sem kallað er ,,/ead
auditor>t.
Fljótlega eftir það eignaðist
Margrét sitt fyrsta barn, Mark,
með fyrri eiginmanni sínum,
Nýsjálendingnum Paul Dymock,
sem vann á þessum tíma sem hag-
*
I stjórnun
hjá OECI
MARGRÉT Þóroddsdót!
Jean-Claude Pii
fræðingur hjá OECD i París. Eft-
ir barnsburðarleyfið fór hún aft-
ur til starfa hjá Esso. Þar stjórn-
aði hún endurskoðun verkefna
af stærðargráðu sem íslenzkir