Morgunblaðið - 08.01.1997, Page 39
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 8. JANÚAR 1997 39
MINNINGAR
*
i.
i
I
I
I
I
!
I
i
I
I
I
i
i
I
1
I
+ Lára Júlía Sig-
urðardóttir
fæddist í Syðri-
Hraundal í Álfta-
neshreppi 11. júlí
1905. Hún lést á
Dvalarheimili aldr-
aðra í Borgarnesi
30. des. síðastlið-
inn. Foreldrar
hennar voru Sig-
urður Bjarnason og
Þórdís Þórðardótt-
ir. Lára átti tvo
hálfbræður sam-
mæðra, Zophonías
og Elías. Lára gift-
ist 1941 Hans Meyvantssyni, f.
23.1. 1913, d. 16.2. 1987. Björn
þeirra eru: 1) Sigríður Halla,
f. 16.11. 1935, gift Guðmundi
Jónssyni og eiga þau fjögur
börn. 2) Ástríður, f. 3.8. 1942,
fráskilin og á þrjú börn. 3)
Halldór Ingi, f. 24.12. 1945,
kvæntur Sigríði Gunnarsdóttur
og^eiga þau þrjú börn.
Útför Láru fer fram frá
Borgarneskirkju í dag og hefst
athöfnin klukkan 14.30.
Látin er í Borgarnesi tengdamóð-
ir mín, Lára Sigurðardóttir, á nítug-
asta og öðru aldursári. Liðin eru
rúm þijátíu ár síðan Reykjavíkur-
stelpan kom og rændi einkasyninum
til borgarinnar. Ekki er ég nú viss
um að henni hafi Iitist alltof vel á
þetta en okkur átti eftir að verða
vel til vina.
Lára mundi tímana tvenna eins
og segja má um alla af þessari
kynslóð. Hún var fædd 1905 og
ólst því upp við hefðbundinn búskap
í einu fijósamasta héraði þessa
lands, Borgarfirðinum. Hún elskaði
sveitina og dýrin og eftir að minnið
tók að svíkja var alltaf hægt að
kalla fram ánægjubros með því einu
að nefna orðið „Grímsstaðir". Það
var hennar himnaríki, hún mundi
nöfn allra hesta og kýr og kindur
gat hún líka nefnt. Hún talaði oft
um gamla fólkið og henni þótti
ákaflega vænt um fósturforeldra
sína, sem hún nefndi jafnan Sigríði
mömmu og Hallgrím pabba, en þau
Hallgrímur Níelsson og Sigríður
Helgadóttir tóku hana í fóstur á
fyrsta ári.
Þar til fyrir nokkrum árum var
Lára ótrúlega minnug, bæði á fólk
og verklag, og sé ég mikið eftir því
að hafa ekki reynt að skrá eitthvað
af því en svona hleypur tíminn frá
okkur og allt í einu er það of seint.
Lára var alltaf mjög eldhrædd því
hún varð ung fyrir þeirri reynslu
að heimili hennar brann og var það
henni ógleymanlegt. Hún kunni vís-
ur við öll hugsanleg tækifæri og
gleymdi aldrei því sem hún lærði í
æsku. Einnig hafði hún gaman af
að lesa og eftir að sjónin tók að
bila var hennar uppáhaldsiðja að
hlusta á hljóðbækur og gat hún
gleymt sér algjörlega tímunum
saman við það.
Lára kynntist manni sínum,
Hans Meyvantssyni á Grímsstöð-
um, þar sem hann var vinnumaður
og þau bjuggu þar ásamt börnum
sínum til ársins 1957, fyrst sem
vinnuhjú en síðar sem leiguliðar.
Þá bjuggu þau stuttan
tíma á Borg á Mýrum
en þar varð hún aftur
fyrir þeirri sáru
reynslu að húsið brann
og hjartahlýir svei-
tungar, þau Óskar og
Ragnhildur á Tungu-
læk, skutu skjólshúsi
yfir þau þar til hús-
næði fékkst í Borgar-
nesi. Síðar byggðu þau
sér hús á Kjartansgöt-
unni og bjuggu þar í
tuttugu og fimm ár.
Þau voru vinamörg og
fengu oft gesti. Þau
voru bæði miklir náttúruunnendur
og ferðuðust mikið um ísland,
bæði með Litla ferðafélaginu og á
eigin vegum. Hans lést skyndilega
1987 og með honum hvarf henni
öll lífslöngun og síðan hefur hún
aðeins beðið eftir að fylgja honum.
En hún vissi að það yrði ekki strax
því hana dreymdi draum, sem hún
túlkaði þannig að hún myndi lifa
mann sinn í tíu ár og gekk það
eftir.
Nú er komið að kveðjustund og
kaflaskilum. Síðustu árin voru Láru
minni erfið, þrátt fyrir frábæra
umönnun á Dvalarheimilinu í Borg-
arnesi, og vildi ég óska að ég hefði
eitthvað getað gert til að létta henni
ellina. Ég hef lært mikið af sam-
skiptum mínum við hana en verst
þykir mér að hún skyldi þurfa að
þjást til að kenna mér. En svona
er lífið, því verður víst að taka eins
og það er. Nú er hennar þjáningum
lokið og ég samgleðst henni að vera
komin til hans þar sem hún vildi
svo gjarnan vera.
Guð blessi minningu hennar.
Sigríður Gunnarsdóttir.
t
Elskulegur faðir minn, sambýlismaður,
sonur, bróðir, mágur og frændi,
SIGURJÓN JÚNÍUSSON,
Brekkustíg 12,
Sandgerði,
sem lést á heimili sinu 1. janúar sl.,
verður jarðsunginn frá Hvalsneskirkju
föstudaginn 10. janúar kl. 14.00.
Fyrir hönd aðstandenda,
Stefán Henning Sigurjónsson, Bára Magnúsdóttir,
Júníus Guðnason, Regína Ragnarsdóttir,
Ragnar Geir Júníusson, Andrea Karlsdóttir,
Tryggvi Rúnar Júniusson, Sigrún Lína Ingólfsdóttir,
Anna María Júníusdóttir, Birgir Möller
og systkinabörn.
t
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
fósturfaðir, tengdafaðir og afi,
BJÖRN GUNNAR JÓNSSON
bóndi,
Laxamýri,
Suður-Þingeyjarsýslu,
sem lést á Sjúkrahúsi Húsavíkur þann
1. janúar sl., verður jarðsunginn frá
Húsavíkurkirkju laugardaginn 11. janúar
kl. 14.00.
Kristjóna Þórðardóttir,
Jón Helgi Björnsson,
Halla Bergþóra Björnsdóttir,
Sveinbjörg Björnsdóttir, Helgi Hróðmarsson
Elín Margrét Hallgrímsdóttir, Kjartan Helgason
og barnabörn.
t
Ástkær móðir mín, tengdamóðir og
amma,
ANDREAG. INGIBJÖRG
SIGURÐARDÓTTIR,
áðurtil heimilis
i Hátúni 10B,
Reykjavík
lést á Droplaugarstöðum föstudaginn
3. janúar.
Jarðarförin fer fram frá Selfosskirkju
laugardaginn 11. janúar kl. 13.30.
Valborg S. Árnadóttir, Garðar Garðarsson,
Ingibjörg Garðarsdóttir, Sigurður Hallgrímsson,
Guörún Asta Garðarsdóttir, Hafsteinn Guðmundsson,
Garðar Garðarsson,
Eydis Helga Garðarsdóttir.
t
Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir, amma og langamma,
INGIBJÖRG K. MAGNÚSDÓTTIR,
áður Aflagranda 40,
sem lést á Hrafnistu 6. janúar, verður
jarðsungin frá Dómkirkjunni föstudag-
inn 10. janúar kl. 15.00.
Þeim, sem vildu minnast hennar, er
vinsamlegast bent á líknarstofnanir.
Valdimar Hannesson,
Hannes Valdimarsson, María Þorgeirsdóttir,
Júlíus Valdimarsson,
Garðar Valdimarsson, Brynhildur Brynjólfsdóttir,
Þórður Valdimarsson, Þóra Sigurbjörnsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
LARA JULIA
SIG URÐARDÓTTIR
t
Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma,
GUÐRÚN JÓNSDÓTTIR,
verður jarðsungin frá Fríkirkjunni í Reykjavik föstudaginn 10. janúar
kl. 10.30.
Lovísa M. Marinósdóttir, Njáll Þorsteinsson,
Sigrún Ólöf Marinósdóttir,
Jón Örn Marinósson, Sigrfður Dagbjört Sæmundsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Ástkær systir okkar,
JÓHANNA SIGRÍÐUR
GUÐMUNDSDÓTTIR
frá Nýjabæ,
Álagranda 23,
sem lést á Landakotsspítala 2. janúar,
verður jarðsett frá Neskirkju fimmtu-
daginn 9. janúar kl. 10.30.
Birna Guðmundsdóttir,
Helga Guðmundsdóttir.
t
Bróðir okkar og mágur,
HELGI ÞORGEIRSSON,
Blönduhlíð 11,
verður jarðsunginn frá Háteigskirkju
fimmtudaginn 9. janúar kl. 13.30.
Eiríkur Þorgeirsson,
Lilja Þorgeirsdóttir,
Svanlaug Þorgeirsdóttir,
Kristín Eyjólfsdóttir,
Björn Kristófersson,
Sigurþór Magnússon.
t
Ástkær eiginkona mfn, móðir okkar,
tengdamóðir og amma,
ÁRNÝ MAGNEA HILMARSDÓTTIR
frá Hofi, Skagahreppi,
til heimilis á
Móabarði 8B, Hafnarfirði,
verður jarðsungin frá Hafnarfjarðar-
kirkjuföstudaginn lO.janúarkl. 10.30.
Blóm og kransar vinsamlegast afþakk-
aðir, en þeim, sem vildu minnast henn-
ar, er bent á Krabbameinsfélag íslands eða Gigtarfélag íslands.
Guðsteinn Hróbjartsson,
Hilmar Guðsteinsson, Karolfna Hilmarsdóttir,
Aðalbjörg Guðsteinsdóttir, Guðjón Karlsson.
t
Frændi okkar,
PÁLL K. SÆMUNDSSON,
Öldugötu 52,
Reykjavík,
sem lést 1. janúar 1997, verður jarð-
sunginn frá Fossvogskapellu fimmtu-
daginn 9. janúar kl. 13.30.
■
Systkinadætur.
t
Ástkær móðir mín, tengdamóðir, amma,
langamma og systir,
ISAFOLD TEITSDÓTTIR
hjúkrunarkona,
verður jarðsungin frá Fossvogskirkju
fimmtudaginn 9. janúar kl. 13.30.
Óttarr Arnar Halldórsson,
Ingrid Elsa Halldórsson,
íris Kristína Óttarsdóttir,
Esther Angelica Óttarsdóttir,
Alexandra Ingrid Hafliðadóttir,
Jóhanna María Teitsdóttir.