Morgunblaðið - 08.01.1997, Side 45
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 8. JANÚAR 1997 45
I
I
I
I
I
I
I
I
I
;
1
i
i
í
i
i
i
i
i
i
BRÉF TIL BLAÐSIIVIS
Opið bréf til Utvarpsráðs
Frá Hauki Vilhjálmssyni og
Kristni Jóni Bjarnasyni:
HEYRNARLAUSIR hafa lengi barist
fyrir því að fá íslenskt efni textað í
ríkisjónvarpinu þ.e. fréttir, fraeðslu-
og skemmtiefni. Tíu prósent Islend-
inga eru heymarlausir eða svo heyrn-
ardaufir að þeir geta ekki notið talaðs
máls í útvarpi né sjónvarpi. Þetta
gerir þá óörugga og stuðlar með öðru
að meiri einangrun en þyrfti að vera.
Þess vegna er nauðsynlegt að stjórn-
völd tryggi jafnt aðgengi allra lands-
manna að því efni sem flutt er í sjón-
varpi.
Áskorun Félags heyrnarlausra
„Aðalfundur Félags heyrnarlausra
haldinn 22. júní 1996 skorar á út-
varpsráð að hafmn verði undirbúning-
ur og vinna við textun á íslensku efni
sem flutt er í Ríkissjónvarpinu". Text-
un efnis fyrir heymarlausa og heyrn-
arskertra verði talin eðlilegur þáttur
í þjónustu Ríkissjónvarpins við þegna
landsins svo það efni sem þar er fram
sett gagnist flestum.
Síða númer 888 í textavarpinu
Flestöll ný sjónvarpstæki em með
textavarpi. Nokkur ár era liðin síðan
textavarp Sjónvarpsins hófst. Félag
heyrnarlausra hafði lengið barist fyrir
því að texti yrði á áramótaskaupi og
bauðst jafnvel til að greiða kostnað-
inn. Því miður hafnaði útvarpsráð því
á þeirri forsendu að texti traflaði aðra.
Fyrir rámum tveimur áram keypti rík-
issjónvarpið viðbótarbúnað fyrir 30-40
milljón króna. Sjónvarpið hefur sett
textann á sérstakan síðu sem nefnd
er hér eftir „888“. Þá gátu allir lands-
menn horft á áramótaskaupið, ávarp
forsætisráðherra og annað íslenskt
sjónvarpsefni á gamlárskvöld 1994.
En okkur langar til að vekja athygli
á að búnaðurinn er aðeins notaður á
stórhátíðum. Á Norðurlöndum hefur
notkun „888“ verið smám saman að
aukast. Á erlendum gervihnattasjón-
varpsrásum, t.d. Discovery, er hægt
að velja sambærilega rás og „888“ á
mörgum tungumálum og þannig geta
heyrnarlausir og heyrnarskertir fylgst
með með því að lesa textann (auðvitað
ekki á íslensku).
Nefnd um þjónustu
Ríkissjónvarps 1991
Menntamálaráðherra skipaði nefnd
til að fjalla um þjónustu Ríkissjón-
varpsins við heyrnarlausra og koma
með tillögur til úrbóta í apríl 1991.
Nefndin lagði m.a. til að allt innlent
efni yrði endursýnt með texta og
fréttastofa sjónvarps ætti að bæta
skýringartextum við fréttir þar sem
því yrði við komið. Þá var og lagt til
að heymarlausir fái vikulega 20 mín-
útna fréttaskýringarþætti á táknmáli
fyrir utan venjulegra dagskrá. Ekkert
af þessu hefur verið framkvæmt því
miður.
Minnkandi textun
Textað efni i Sjónvarpinu er mun
sjaldgæfara en var fyrir nokkrum
árum. Þetta er slæm þróun fýrir
heymarlausra. Allt erlent efni eins og
fræðslumyndir var textað fyrir tíu
árum. Nú era allir slíkir þættir með
íslensku talmáli. Þar með geta heyrn-
arlausir og heyrnarskertir ekki notið
þess. Sama hefur gerst hjá Stöð 2 þar
sem textun fer einnig minnkandi, en
hjá Stöð 3 er allt erlent sjónvarpsefni
með texta.
í Bandaríkjunum
era til lög um að
allt sjónvarpsefni
skuli vera textað.
Fólk getur valið á
sínu sjónvarpi hvort
það vill hafa texta
eða ekki. Fréttir era
Haukur textaðir í beinni út-
Vilhjálmsson sendingu, þá er not-
aður rittúlkur, sem
skrifar allt sem sagt
er. Margar Sjón-
varpsstöðvar era í
Bandaríkjunum og
er texti á þeim öll-
um.
Hvað er til ráða?
Rauði kross ís-
lands hefur skrifaði
útvarpsráði bréf 7.
október 1995 og bauðst til að kosta
texta á fréttum í ár. Rauði kross ís-
lands fékk það svar frá útvarpsráði
að þetta væri of dýrt og ekki til tæki
til að texta. En sjónvarpið er með
fullkominn textavarpsbúnað. Hvert er
vandamálið?
Þættir gerðir af heyrnar-
lausum á táknmáli
Á Norðurlöndum gera heyrnarlaus-
ir sérstaka þætti á táknmáli í sérstök-
um myndbandastöðvum sem þeir reka
sjálfir með framlagi ríkissjóðs viðkom-
andi lands. Hér á landi kostar Félag
heyrnarlausra slíka þætti. Norðuriönd
sem við beram okkur gjarnan saman
við era langt á undan í þessum efn-
um. Útsendingin fer í gegnum sjón-
varpsrás hjá viðkomandi ríkissjón-
Frá Einari Þorsteini:
MEÐAN lyfjanefnd ríkisins er að
reyna að koma sér saman um það,
hvernig orða eigi reglugerð um svo-
kölluð „náttúralyf", sem EES-samn-
ingurinn að sögn krefst að takmarki
aðgang landsmanna að fæðubótar-
efnum í nafni „neytendaverndar“,
berst sú frétt erlendis frá að meira
„góðgæti" af þessu tagi sé væntan-
legt. Að þessu sinni berst erki-
biskups-boðskapurinn beint frá Róm.
Þar er að störfum lítið þekkt kommi-
sjón, sem ber nafnið Codex Aliment-
arious. Hún vinnur á vegum Samein-
uðu þjóðanna eða réttara sagt Al-
þjóðaheilbrigðis-stofnunarinnar,
WHO. WHO getur samkvæmt GATT-
samningunum beitt þau lönd gífur-
legum sektum, jafnvel svo að það
kippi grundvelli undan afkomu þeirra,
sem ekki framkvæma það sem nefnd-
ir hennar ákveða. Codex-komissar-
arnir eru að sögn búnir að ákveða
eftirfarandi:
* Það á að gera vítamín og önnur
fæðubótarefni ófáanleg nema með
lyfseðli.
* Það má ekki selja þessi efni í fyrir-
byggjandi tilgangi.
varpi. Þá sparast myndbandaspólur
og aðgengi heymarlausra eykst að
sjónvarpsefni. Okkur skilst að í Dan-
mörku fylgist margir heyrandi með
slíkri útsendingu og hafi gaman af.
Að lokum
Hvers vegna er svona erfitt að leysa
okkar mál? Við hljótum að spyija
hvort auðvelt sé að fjárfesta viðbótar
textavarpsbúnað fyrir 30-40 milljón
króna en erfitt að nýta þennan búnað
betur með því að nota starfslið Sjón-
varpsins eða ráða nýtt fólk til textun-
ar. Við hljótum að spyrja hvort allt
efni sem flutt er í sjónvarpinu sé ekki
til í textuðu formi, í ritvinnslu eða á
skjá, t.d. fyrir framan fréttaþuli svo
hægt sé að vinna upp úr því. Við
höldum a.m.k. að ódýrt sé að nýta
tölvutækni eins og hún er í dag.
Hjá Sameinuðu þjóðunum era til lög
sem varða kynþætti, litarhátt, þjóð-
emi, fötlun og trá. Af hveiju þurfum
við að þola þessa mismunun af hendi
ríkissjónvarpsins? Við eram alvöra
íslendingar af holdi og blóði með okk-
ar réttindi, þarfir og skyldur. Það sem
greinir okkur að er að við eram heym-
arlausir og biðjum um lausn á einföldu
máli.
Við skoram því á útvarpsráð að
taka þessi mál upp nú þegar. Málið
þolir enga bið og við höfum sýnt bið-
lund of lengi. Hvers vegna höfum við
ekki sama aðgengi og aðrir að sjón-
varpi „allra landsmanna"? Þeir hafa
útvarpið og sjónvarpið. Við höfum
bara myndir og táknmálsfréttimar og
allt hitt fer fram hjá okkur.
HAUKUR VILHJÁLMSSON,
stundakennari í Háskóla íslands í
táknmálsfræðum.
KRISTINN JÓN BJARNASON,
nemandi í Gallaudet-háskólanum í
Washington DC í Bandaríkjunum.
Báðir höfundar era heyrnarlausir.
* Það á að minnka allar pillustærðir
þessara efna niður í lágmarksstærðir
(RDA).
* Ný fæðubótarefni má ekki setja á
GATT-markaðinn nema að fengnu
leyfi hjá Codex-nefndinni í Róm.
Að sögn lögfræðings „Life Ex-
tension Foundation“ í Bandaríkjun-
um, Suzanne Harris, sem er sérfræð-
ingur í málefnum GATT, sam-
anstendur Codex-kommissjónin að
níu tíundu hlutum af fulltráum stórra
alþjóðiegra lyfjafyrirtækja. 16 þeirra
greiddu þessum frumdrögum at-
kvæði. 2 atkvæði vora á móti. Annað
þeirra var greitt af fulltrúa Fæðu-
og lyfjaeftirlits Bandaríkjanna, FDA.
En enginn fulltrúi í nefndinni er frá
almenningi!
Með þessu ætti mönnum að verða
ljóst hvers konar afbökun lýðræðisins
er hér á ferðinni. Og hvemig þessi
nýjasta svikamylla við tilfærslu fjár-
magns frá lítilmagnanum til auð-
manna á að starfa.
Ætli mætti ekki fara að veita Nó-
belsverðlaun fyrir snilli af þessu tagi?
EINAR ÞORSTEINN,
hönnuður,
kingdomemmedia.is
Kristinn Jón
Bjarnason
Heilsufrelsi
“iráfot í m&tyuo- • öfréti ptú
Hverfisgötu 78,
sími 552 8980
2-20
Hvað mundir þú
hafa í matinn eftir
að hafa unnið
rúmlega 44 tnllllúnftr
í Víkingalottóinu?
V I K I N
■#TT#
Til mikils að vinna!
Alla miðvikudaga fyrirkL 17.00.