Morgunblaðið - 08.01.1997, Side 56
•'HYIINDJll
HÁTÆKNI TIL FRAMFARA
Mi Tæknival
SKEIFUNNI 17
SlMI 550-4000 • FAX 550-4001
MORGUNBLADIÐ, KRINGLAN I, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181,
PÓSTHÓLF 3040, NETFANG MBL@CENTRUM.IS / AKUREYRI: KA UPVANGSSTRÆTI 1
MIÐVIKUDAGUR 8. JANÚAR 1997
VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK
Hreppsnefnd Kjósarhrepps á fundi
með stjórnanda Columbia
Kynntu mótmæli
^ vegna staðar-
vals álversins
HREPPSNEFND Kjósarhrepps
átti í gærkvöldi fund með James
F. Hensel, aðstoðarforstjóra Col-
umbia álfyrirtækisins, sem haldinn
var að ósk Hensels, en hann vildi
kynna sér viðhorf hreppsnefndar-
manna, sem hafa mótmælt harð-
lega staðsetningu fyrirhugaðs ál-
vers á Grundartanga. Fundurinn
fór fram í félagsheimilinu Félags-
\*garði.
Guðbrandur Hannesson, oddviti
Kjósarhrepps, vísar á bug að
hreppsnefnd Kjósarhrepps hafi
komið of seint fram með sínar
athugasemdir. „Bréf sem við feng-
um frá Hollustuvernd hljóðar upp
á að við höfum frest til 13. janúar
að gera athugasemdir og við för-
um eftir því. Okkur var ekki boðið
upp á þetta í fyrra en maður á
kannski að fylgjast betur með og
^,_-^psa völvuspána árið áður,“ segir
hann.
Fundurinn í gærkvöldi stóð á
annan klukkutíma og að honum
loknum sagði Guðbrandur að þar
hefði ekkert það komið fram, sem
breytti skoðun hreppsnefndar-
manna á málinu. Nefndin væri
eftir sem áður algerlega mótfallin
byggingu álvers við Hvalfjörð.
Viðræður við Hollustuvernd
og Náttúruverndarráð.
I dag ætíar hreppsnefndin að
eiga fund með Hollustuvernd ríkis-
ins og Náttúruverndarráði vegna
þessa máls. Einnig er í undirbún-
ingi fundur iðnaðarráðherra með
hreppsnefnd Kjósarhrepps.
Samkvæmt upplýsingum Morg-
unblaðsins er búist við miklum
umræðum og jafnvel hörðum deil-
um um umhverfismál og fleiri mál
í tengslum við staðsetningu álvers-
ins á opnum borgarafundi sem
boðað er til í félagsheimilinu Heið-
arborg í Leirársveit á fimmtudags-
kvöldið.
■ Deilurnar/29
Morgunblaðið/Kristinn
JAMES F. Hensel, aðstoðarforsljóri Columbia álfyrirtækisins á fundinum með hreppsnefndarmönnum
í Kjós í félagsheimilinu Félagsgarði í Kjós í gærkvöldi.
Hrönn hf. á ísafirði sameinast Samherja hf. á Akureyri
Kvótaeign Hrannar tæpir
tveir milljarðar króna
Frystitogarinn Guðbjörg ÍS
áfram gerður út frá Isafirði
M"
Morgunblaðið/Sverrir
GUÐBJÖRGIN ÍS-46 kom ný til landsins síðla í október 1994.
Hugbúnað-
arfyrirtæki
sameinast
ÁKVEÐIÐ hefur verið að sameina
hugbúnaðarfyrirtækin Hug hf. og
íslenska forritaþróun hf. Sameinað
fyrirtæki verður væntanlega
-*■ -%tærsta hugbúnaðarfyrirtæki
landsins með um hálfs milljarðs
króna veltu í ár.
Fulltrúar eigenda félaganna
hafa átt í viðræðum um sameiningu
eftir að breska hugbúnaðarfyrir-
tækið CODA Group plc. keypti
Windows hugbúnaðarhluta Is-
lenskrar forritaþróunar. Samkomu-
lag hefur nú náðst og verður það
lagt fyrir hluthafafundi félaganna
á næstunni.
Ekki hefur verið ákveðið með
nafn á sameinaða fyrirtækið en
Gunnar Ingimundarson, fram-
kvæmdastjóri Hugar hf., verður
framkvæmdastjóri þess.
■ Verður stærsta/16
-----»■-»--♦---
Drengur fyrir
bíl á Akureyri
ÁTTA ára gamall drengur varð
fyrir bíl á Akureyri í gærkvöldi og
slasaðist á höfði.
Slysið varð á mótum Skarðshlíð-
ar og Litluhlíðar. Drengurinn virð-
ist hafa hlaupið yfir götuna og
'^Grðið fyrir bíl sem þar ók um.
^ Hann kastaðist upp á vélarhlíf bíls-
ins og á framrúðu og síðan í göt-
una. Drengurinn hlaut höfuð-
meiðsl og var fluttur með sjúkra-
flugi til Reykjavíkur að lokinni
rannsókn á Akureyri en var ekki
talinn í lífshættu eftir því sem
- næst var komist.
EIGENDUR Samheija hf. á Akur-
eyri og Hrannar hf. á ísafirði, sem
gerir út frystitogarann Guðbjörgu ÍS,
hafa undirritað samkomulag um að
sameina þessi sjávarútvegsfyrirtæki
undir merki Samheija hf. í sam-
komulaginu er gert ráð fyrir að út-
gerð Guðbjargar ÍS verði óbreytt frá
því sem verið hefur á ísafirði. Kvóti
Guðbjargar er 3.400 þorskígildis-
tonn, að verðmæti tæpir 2 milljarðar
króna miðað við núgildandi verð á
varanlegum kvóta. Samhetji er
stærsta útgerðarfyrirtæki landsins
með um 24.300 þorskígildistonn.
Þorsteinn Már Baldvinsson, fram-
kvæmdastjóri Samheija, segir til-
ganginn með sameiningunni að gera
gott fyrirtæki betra. „Þetta er jafn-
framt hluti af þeirri þróun sem átt
hefur sér stað að undanförnu og
snýr að því að gera íslenskan sjávar-
útveg hagkvæmari."
Við sameininguna eignast hluthaf-
ar Hrannar hlutabréf í Samheija en
Þorsteinn Már vildi ekki gefa upp
hversu stór sá eignarhlutur er á þess-
ari stundu. „Við stefnum að því að
fara með Samheija á hlutabréfa-
markað í febrúar og þá kemur í ljós
hvernig hlutafjáreign er háttað."
Veltan eykst um
550-650 milljónir
Velta Hrannar hf. á síðasta ári
var um 550-600 milljónir króna og
hjá fyrirtækinu starfa um 40 manns.
Þorsteinn Már segir að velta Sam-
heija aukist um 550-650 milljónir
króna við sameininguna en velta fyr-
irtækisins hérlendis á síðasta ári var
áætluð um 5,3 milljarðar króna. Afla-
heimildir Hrannar eru um 3.400
þorskígildistonn en aflaheimildir
Samheija rúmlega 21.000 þorskí-
gildistonn.
Guðbjörg ÍS er eitt stærsta og
fullkomnasta fiskiskip landsins.
Skipið er rúmlega 1.200 brúttólestir
að stærð, smíðað í Noregi árið 1994.
Fyrir á Samheiji sjö togara og tvö
fjölveiðiskip á Islandi.
Þorsteinn Jóhannesson, forseti
bæjarstjórnar ísafjarðar, segist ekki
trúa því að Guðbjörgin verði gerð
út frá ísafirði um ókomna framtíð.
„Reynslan hefur sýnt okkur allt ann-
að. Við höfum dæmi um sameiningu
Samheija við Hvaleyrina í Hafnar-
fírðinum. Þar fóru aflaheimildirnar
fljótlega úr byggðarlaginu. í hjarta
mínu trúði ég því að þetta myndi
ekki gerast. Það er vilji eigenda sem
ræður og þeir verða að gæta síns
hags, en þarna er hagur almennings
fyrir borð borinn. Við getum ekki
gert annað gegn þessu en hafa sam-
band við hluthafa, en ef þetta er
fyllilega ákveðið er lítið hægt að
gera gegn því. Það er sannfæring
mín að það séu til nógu sterkir aðil-
ar á svæðinu, til dæmis Gunnvör,
Básafell, Hraðfrystihúsið í Hnífsdal
og Bakki hf., sem hefðu getað ráðið
við þau vandamál sem Hrönn átti
við að glíma.“
Þorsteinn segist óttast mest álits-
hnekki fyrir byggðarlagið hverfi
Guðbjörgin á brott. „Það mun taka
okkur mörg ár að vinna það áiit aft-
ur upp. Að vísu gerist ekki ýkja
mikið í fyrstu. Stór hluti áhafnarinn-
ar hefur verið með lögheimili utan
ísafjarðar, en skipið hefur komið
hingað, landað og sótt sinn kost og
það hefur skapað þó nokkur þjón-
ustustörf."
Básafell hafði áhuga
Gunnar Birgisson, formaður
stjórnar Básafells, segir að fyrirtæk-
ið hafí haft fullan hug á viðræðum
við Hrönn, en ekki hafi verið við þá
rætt. „Eg er sannfærður um að við
hefðum getað náð jákvæðri niður-
stöðu en það hafa engar viðræður
farið fram milli fyrirtækjanna. Þeir
vissu af okkur, en áhugi virtist ekki
vera fyrir hendi. Þeir verða sjálfir
að skýra af hveiju þeir töluðu við
aðra. Þetta er mikil blóðtaka fyrir
Isafjörð ef kvótinn fer. Kvóti Jöfurs,
um 1.400 tonn, er nýfarinn frá Hnífs-
dal til Siglufjarðar og nú fara 3.400
tonn auk um 350 tonna kvóta í
Flæmska hattinum."