Morgunblaðið - 25.02.1997, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 25.02.1997, Blaðsíða 14
14 ÞRIÐJUDAGUR 25. FEBRÚAR 1997 MORGUNBLAÐIÐ OKEYPIS FYRIR BÖRNIN PAKKI GISTING I TVEGJA MANNA HERBERGI í 3 NÆTUR, MORGUNVERÐUR INNIFALINN 5.980,- pam2 GISTING í TVEGJA MANNA HERBERGI í 4 NÆTUR, MORGUNVERÐUR INNIFALINN 6.980,- PAK GISTING í TVEGJA MANNA HERBERGI í 5 NÆTUR, MORGUNVERÐUR INNIFALINN 7.980.- PR. FULLORÐII1N MIÐAÐ ER VIÐ AÐ GIST SÉ í TVEGGJA MANNA HERBERGJUM OG BÖRNIN GISTI í HERBERGI FORELDRA SINNA. HÁMARK 2 BÖRN í HERBERGI MEÐ FORELDRUM. ALDUR BARNA 0-15 ÁRA. PASKAEGG FYLGJA FYRIR BÖRNIN HÓTEL KEA HAFNARSTRÆTI 87-89 AKUREYRI SlMI 462 2200 FAX 461 2285 ATH: TAKMARKAÐUR HERBERGJAFJÖLDI GlLDIR FRÁ 26. MARS TIL 31. MARS AKUREYRI Samkomulag um fjárframlög til Vetraríþróttamiðstöðvar íslands undirritað Stöðnun í uppbyggingn íþróttamannvirkja rofin Morgunblaðið/Kristján JAKOB Björnsson bæjarsljóri og Björn Bjarnason menntamálaráðherra takast í hendur eftir að hafa skrifað undir samkomulag um fjárframlög vegna reksturs og uppbyggingar Vetrar- íþróttamiðstöðvar íslands á Akureyri. BJÖRN Bjarnason menntamála- ráðherra og Jakob Björnsson, bæjarstjóri á Akureyri, undirrit- uðu á sunnudag samkomulag ráðuneytisins og Akureyrarbæjar um rekstur og uppbyggingu Vetr- aríþróttamiðstöðvar íslands. Sam- komulagið felur m.a. í sér að menntamálaráðuneytið og Akur- eyrarbær munu standa sameigin- lega straum af kostnaði vegna starfsemi Vetraríþróttamiðstöðv- arinnar, þ.m.t. kostnaður vegna fræðslumála, laun starfsmanns og annað starfsmannahald. Uppbygging íþróttamannvirkja og annarrar aðstöðu til vetrar- íþrótta verður á vegum Akureyrar- bæjar. Framkvæmdum skal hagað í samræmi við framkvæmdaáætl- un stjómar Vetraríþróttamið- stöðvar en er háð samþykki bæjar- ins. Menntamálaráðherra mun á fimm ára tímabili, á árunum 1998- 2002, beita sér fyrir sérstakri styrkveitingu á fjárlögum hvers árs, til uppbyggingar aðstöðu til vetraríþrótta á Akureyri, samtals 50 milljónir króna. Á móti mun Akureyrarbær á þriggja ára tímabili, á árunum 2000-2002, veita fé til Vetrar- íþróttamiðstöðvar íslands, til frek- ari uppbyggingar vetraríþrótta í bænum, samtals 100 milljónir króna. Tenging skóla vi,ð skíðaíþróttina Bjöm Bjamason menntamála- ráðherra sagði þetta samkomulag undirritað í trausti þess að unnt verði að efia og styrkja aðstöðu á Akureyri til að auðvelda fólki að stunda vetraríþróttir, ekki aðeins keppnisfólki heldur einnig öllum almenningi. Björn sagði það ánægjulegt að áhugi væri á að tengja starf V etraríþróttamiðstöðvarinnar skólastarfi í bænum. Þar beinist áhugi manna að framhaldskólun- um, Verkmenntaskólanum sér- staklega, sem er með íþróttabraut og getur lagt sitt af mörkum til að efla skíðaíþróttina með sama hætti og gert er í öðrum löndum. Björn nefndi Noreg í því sam- bandi, þar sem keppnismenn hafa notið þess að sameina nám og skíðaíþróttina, á þann veg að góð- ur árangur hefur náðst. „Undir- búningur er þegar hafinn, Vetrar- íþróttamiðstöðin vinnur að málinu og hefur sett sig í samband við Verkmenntaskólann og ég á von á það skili árangri." Akveðin stöðnun rofin Jakob Björnsson bæjarstjóri sagði að þótt ýmislegt hafi verið gert í gegnum árin sé með þessu samkomulagi rofin ákveðin stöðn- un í uppbyggingu og endurbótum íþróttamannvirkja í bænum. Jakob sagðist líta svo á að þetta tíma- bil, 1998-2002 væri fyrsti áfang- inn, verkefnalistinn væri langur og af nógu væri að taka í framtíð- inni. Árangur innan skamms „Þegar taiað er um vetrar- íþróttir á Akureyri er mönnum jafnan tíðrætt um Skíðastaði í Hlíðarfjalli en menn horfa einnig til annarra þátta. Og ég hef þá trú að þessi samningur muni hafa það í för með sér að mjög fljót- lega verði hægt að sýna árangur varðandi skautaíþróttina," sagði Jakob. Þórarinn E. Sveinsson, formað- ur stjórnar Vetraríþróttamið- stöðvar íslands, segir að nú þegar fjármagn hefur verið tryggt, þurfi stjórnin að setjast niður að for- gangsraða verkefnum. Hann seg- ir að stjórnin hafi rætt mikið um þann möguleika að virkja fram- haldsskólanna. „í því sambandi mætti hugsa sér að koma á sam- starfi við skóla í nágrannalöndun- um, sem bjóða nemendum uppá að sameina námið með skíða- íþróttinni.“ Þórarinn segir horft til þess að gera samning við Skautafélag Akureyrar um að ráðast í að byggja yfir skautasvellið. Einnig sé fyrirhugað að laga skíðabrekk- urnar í Hlíðarfjalli í áföngum á næstu árum. Innbrot í bíla UNGUR piltur var handtekinn aðfaranótt laugardags en lögreglu var tilkynnt að hann væri að brjót- ast inn í mannlausar bifreiðar á Brekkunni. Við yfirheyrslur hjá rann- sóknardeild lögreglunnar viður- kenndi hann að hafa ásamt öðrum pilti farið inn í fjölda bíla í hverf- inu fyrr í vetur. Alls upplýstust 17 innbrot í bíla, skemmdarverk og þjófnaðir úr þeim sumum, en litlu var stolið. Aðallega var rótað í bílunum og óverulegar skemmdir unnar á sumum þeirra. Cbtóhátu) SÁÁ-N verður haldin í húsi aldraðra föstudaginn 28. febrúar 1997. Fjölbreytt skemmtidagskrá m.a. Ellismellir frá Dalvík með nýja dagskrá. Veislustjóri verður Óðinn Svan Geirsson (bakari og Bylgjumaður). Þórarinn Tyrfingsson flytur ávarp. Júlíus Guðmundsson og Gunnar Tryggvason ásamt aðstoðarfólki leika fyrir dansi. Húsið opnað kl. 19.30. Borðhald hefst stundvíslega kl. 20.00. Tryggið ykkur miða fyrir fimmtudaginn 27. febrúar, í fyrra var uppselt. MulapanLuw í »íma 461 3644. Vexð miða fot. 2.8CC. Skemmtinefnd SÁÁ-N. Morgunblaðið/Kristján Bókamarkaður BÓKAMARKAÐUR hefur verið opnaður í Kaupvangsstræti 1 á Akureyri, en það er bókaverslun- in Möppudýrið sem að honum stendur. Á markaðnum er úrval bóka, m.a. ævisagna, fræðibóka, skáld- sagna og barnabóka. Þá er þar einnig að finna myndbönd með fjölbreyttu efni, m.a. óperur, barnamyndir og margskonar fræðsluefni.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.