Morgunblaðið - 25.02.1997, Síða 46

Morgunblaðið - 25.02.1997, Síða 46
46 ÞRIÐJUDAGUR 25. FEBRÚAR 1997 MIIMNINGAR MORGUNBLAÐIÐ STEFÁN JÓHANN ÓLAFSSON + Stefán Jóhann Ólafsson fædd- ist í Reykjavík 19. ágúst 1917. Hann lést á Sjúkrahúsi Reykjavíkur að morgni hins 17. febrúar síðastlið- inn. Foreldrar hans voru hjónin Ólafur Þorsteinsson, háls-, nef- og eyrnalækn- > ir, fæddur í Reykja- vík 20. nóvember 1881, d. 16. sept. 1972, Tómassonar járnsmiðs í Reykja- vík og Valgerðar Ólafsdóttur, og Kristín Ingveldur Guð- mundsdóttir, f. 20. des. 1892 að Hraunum í Fljótum, d. 8. sept. 1976, Einarssonar og Jó- hönnu Jórunnar Stefánsdóttur. Bræður Stefáns eru Þor- steinn Guðmundur, tannlæknir i Reykjavík, f. 21. des. 1920, d. 6. nóv. 1984, kvæntur Ólöfu Vilmundardóttur, og Ólafur, lögfræðingur, f. 20. júní 1925, kvæntur Elsu Einarsdóttur. Stefán kvæntist 6. ágúst 1949 Kolbrúnu Ólafsdóttur, f. 12. april 1925 í Reykjavík, Proppé, f. 12. maí 1886, d. 19. des. 1949, kaupmaður og alþingismaður á Þingeyri, síðar framkvæmda- stjóri SIF, og Áslaugar Hall Proppé, f. 19. maí 1887, d. 4. sept. 1952. Börn þeirra eru Áslaug, f. 24. júní 1950, meina- tæknir, gift Einari Erni Krist- inssyni, f. 30. júní 1949, banka- starfsm. Dóttir hennar og Jóns Á hendur fel þú honum, sem himna stýrir borg, það allt, er áttu í vonum, og allt, er veldur sorg. Hann bylgjur getur bundið og bugað storma her, hann fótstig getur fundið, sem fær sé handa þér. (B. Halld.) Elskulegur tengdafaðir minn, Stefán Ólafsson, er látinn eftir stranga baráttu við illkynja sjúk- dóm. Það var á haustdögum 1995 sem sjúkdómur hans greindist og í kjölfarið fylgdi erfið læknismeðferð, sem því miður bar ekki þann árang- Barðasonar, f. 28. júlí 1949, er Anna Margrét, f. 9. ágúst 1975. Dóttir Ás- laugar og Einars er Kolbrún, f. 24. jan. 1990. Ólafur, f. 5. janúar 1952, við- skiptafr. og lögg. fast.sali, kvæntur Ingibjörgu Þórðar- dóttur, f. 19. mars 1955, banka- starfsm., synir þeirra eru Þórður Sigfús, f. 24. nóv. 1973, Stefán Jó- hann, f. 6. janúar 1981, og Ólaf- ur Már, f. 16. des. 1986. Einar Baldvin, f. 4. sept. 1957, lög- fræðingur, kvæntur Ragnhildi Steinbach, f. 23. febrúar 1952, lækni, sonur þeirra er Baldvin, f. 19. mars 1981. Stefán varð stúdent frá MR 1936 og lauk kandidatsprófi í læknisfræði frá HÍ 1943. Hann stundaði framhaldsnám í Bandaríkjunum á árunum 1943- 1948, í Madison, Wisconsin 1943-1944 og á Mayo Clinic Rochester, Minnesota, 1944- 1948. Hann var sérfræðingur í háls-, nef- og eyrnalækningum og starfaði sem læknir við Landakotsspítala frá 1949, einnig við Landspítalann frá 1951 og kenndi við læknadeild HI frá 1951, var skipaður dós- ent 1959. Útför Stefáns verður gerð frá Dómkirkjunni i dag og hefst athöfnin klukkan 13.30. ur sem vonir stóðu til. Stefán reynd- ist mér ætíð hinn mætasti maður og ef eitthvað bjátaði á með heilsuf- ar okkar var hann boðinn og búinn, jafnt að nóttu sem degi, að hjálpa okkur. Mannkosti Stefáns þarf ekki að tíunda, því öllum þeim, er hann þekktu, eru þeir kunnir. Þegar Stef- án Jóhann sonur minn var skírður hélt Stefán honum undir skírn og var guðfaðir hans og vona ég að Stefán minn hafi erft eitthvað af mannkostum afa síns. Stefán var góður faðir, tengdafaðir og afi og er hans nú sárt saknað af allri fjöl- skyldunni. Stefán átti mjög góða eiginkonu og voru þau afar sam- t Ástkær eiginkona mín, HELGA ÁSTA ÓLAFSDÓTTIR, Holtabraut 12, Blönduósi, lést á Landspítalanum 23. febrúar. Sigurður H. Þorsteinsson. JJ t Þökkum innilega öllum, sem auðsýndu okkur samúð og hlýju vegna andláts og útfarar eiginmanns míns, föður, tengdaföður, afa og langafa, KRISTMUIMDAR HALLDÓRSSONAR, skipstjóra og útgerðarmanns, Ólafsvík. Laufey Eyvindsdóttir, Brynjar Kristmundsson, Margrét Jónasdóttir, Sumarliði Kristmundsson, Ægir Kristmundsson, Þór Kristmundsson, Óðinn Kristmundsson, Matthildur Kristmundsdóttir, Laufey Kristmundsdóttir, Kristin Kristmundsdóttir, Halldór Kristmundsson, Steinþór Ómar Guðmundsson, Jóhanna Jónsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Kristin G. Jóhannsdóttir, Árný Bára Friðriksdóttir, Jóhanna Njarðardóttir, Sólrún Bára Guðmundsdóttir, Árni Guðjón Aðalsteinsson, Ólafur Helgi Ólafsson, Klaus Grunhagen, hent og ber heimili þeirra vitni um smekkvísi og kærleika. Stefán var ötull að fylgjast með í sérgrein sinni og sótti hann ráð- stefnur víða um heim til að auka stöðugt við þekkingu sína. Hann var afar farsæll í sínu starfi og var mjög vel látinn af samstarfsmönn- um sínum og nemendum. Margir af sjúklingum Stefáns hafa sagt mér hve gott var að leita til hans. Mig langar til gamans að geta þess, að mín fyrstu kynni af honum voru þegar ég, ellefu ára gömul, var send til Reykjavíkur til þess að láta taka úr mér hálskirtlana. Þá þegar kynntist ég því hve góður maður hann var. Ekki hefði mig órað fyrir því þá, að þessi maður ætti síðar eftir að verða tengdafaðir minn. Stefán átti gæfuríka ævi. Hann var ættrækinn og voru tengsl hans við fólk sitt mikil og góð og langar mig í því sambandi sérstaklega að minnast Ásu föðursystur hans sem lést í hárri elli 1991. Hún var fædd og ól mestan sinn aldur í næsta húsi við bernskuheimili Stefáns þar sem hann hafði lækningastofu sína lengst af, en mikill samgangur var ætíð milli þeirra heimila. Tel ég að Ása hafi lagt allt sitt traust á Stef- án þegar hún varð ekkja, en þar var ekki í kot vísað hvað greiðasemi og góðvild snerti. Þegar heiðursmaður fellur frá er manni orða vant en minningin um góðan mann lifir og ég þakka guði fyrir að hafa átt slíkan tengdaföður og synir mínir svo góðan afa, sem þeir nú sárt sakna. Stefáni Jóhanni Ólafssyni þakka ég góða samfylgd. Far þú í friði, friður guðs þig blessi. Inga. Látinn er í Reykjavík mikill heið- ursmaður, Stefán Olafsson, læknir. Stefán var systursonur föður míns, Einars Baldvins Guðmundssonar. Mikil vinátta var með þeim frænd- um þar sem faðir minn bjó á upp- vaxtarárum sínum hjá systur sinni og mági í Skólabrú. Þegar Sefán fæddist held ég að föður mínum hafi fundist hann vera að eignast lítinn bróður. Góður vinskapur var síðan milli foreldra minna og Stef- áns og Kolbrúnar konu hans. Stefán var því í mínum huga ekki „bara“ frændi minn því mér fannst ég allt- af vera mun tengdari honum en það. Sennilega er það vegna þess hve mikið ég á honum að þakka og get ég í því sambandi minnst á að ég var ekki einnar klukkustund- ar gömul þegar þurfti að flytja mig eftir fæðingu í heimahúsi í skynd- ingu á spítala. Auðvitað var hringt í Stefán og hann kom eftir nokkrar mínútur, setti mig í þvottakörfu og eins og hann sagði oft seinna hlæj- andi, var sá fyrsti sem bauð mér í bíltúr. Stefán frændi minn reyndist mér síðan ætíð mjög vel og á ég erfitt með að ímynda mér hvernig allt hefði verið, hefði hans ekki notið við, einkum eftir að ég hafði misst foreldra mína, rúmlega tví- tug, og var komin með tvö börn og síðan þrjú. Alltaf gat ég hringt til Stefáns, á nóttu sem degi, þegar börnin voru veik. Mér fannst um leið og hann sagði við mig í sím- ann: „Ég renni við hjá þér á leið heim af stofunni á eftir“ að þá þyrfti ég ekki að hafa neinar áhyggjur lengur. Ég vil einnig minnast á hversu frábærlega hann reyndist okkur í veikindum móður minnar_ og var okkur ómetanleg hjálp. Ég kveð hér kæran frænda minn og sendi Kolbrúnu og börnum þeirra innilegar samúðarkveðjur. Kristín Klara. Kynni okkar Stefáns hófust þeg- ar á menntaskólaárunum þegar danskir skólapiltar frá 0stre Borg- erdyds-skóla í Kaupmannahöfn komu hingað sumarið 1934. Slóst hann í för með nokkrum 5. bekking- um til Danmerkur þótt hann væri þá í 4. bekk. Þetta voru nemenda- skipti milli skólanna og bjuggum við á heimilum nemenda. Sérstak- lega er mér heimferðin mjög minn- isstæð, sjógangur mikill en við Stef- án þá orðnir vel sjóaðir. Fjöldi hátíð- argesta frá Þjóðhátíðinni í Vest- mannaeyjum kom um borð. Sumir heldur illa á sig komnir og man ég sérstaklega hve Stefán vorkenndi þeim vegna sjóveikinnar. Hann mátti ekkert aumt sjá. Hann ólst upp í foreldrahúsum hjá sinum ágætu foreldrum, sem lögðu mikla rækt við uppeldi sona sinna, Stef- áns, sem var elstur, Þorsteins, tann- læknis og Ólafs, lögfræðings. Á þessu ágæta heimili, sem annálað var fyrir gestrisni og höfðingsskap í hvívetna, gafst mér kostur á að njóta margra ánægjustunda. Við félagarnir notuðum hlé sem varð á náminu 11-12 f.h. til að iðka sund saman, báðir höfðum við áhuga á því að spila brids og nýttum við stundum tímann til þess. Kandí- datspróf tókum við saman vorið 1943. Nú skildu leiðir en að loknu framhaldsnámi hittumst við aftur í Kaupmannahöfn. Vorum við þar saman fjögur og skoðuðum margt í borginni. Þegar heim var komið áttum við talsverða samvinnu á lækningasvið- inu og unnum báðir á Landakots- spítalanum í Reykjavík um árabil, einnig síðar, því báðir voru starf- andi læknar hér í borg auk þess sem Stefán vann meira eða minna að sérgrein sinni á öllum aðal spít- ölum í borginni auk tilsagnar og kennslu. Hann var bæði vel látinn og vandvirkur kennari. Hann var áhugasamur um íþróttir og stund- aði göngur og sund alla ævi og sama er að segja um Kolbrúnu. Fáum hjónum hefi ég kynnst, sem voru jafn samhent og elskuleg og þau. Margar ánægjustundir átt- um við saman á hinum glæsilegu og frábæru heimilum þeirra, þar sem ávallt ríkti góður andi hollrar og innilegrar vináttu og ekkert lát- ið ósparað til þess að gleðja góða vini og gesti. Um áratuga skeið höfum við haft tíð samskipti, Ragn- hildur og ég spiluðum við þau og síðan hún lést, Ingibjörg Þorsteins- dóttir frænka hennar og ég. Auk þess höfum við Stefán haft reglu- lega spilafundi með ýmsum öðrum, þ.á m. Ólafi Bjarnasyni, prófessor, en þeir Stefán stunduðu saman lax- veiði um árabil. Stefán var alltaf hreinn og beinn, drengskaparmaður, vandaður til orðs og æðis, þeim kostum búinn, sem bestu menn prýða. Flyt ég öllum hans nánustu inni- legustu samúðarkveðjur. Bjarni Konráðsson. í dag þegar Stefán Ólafsson, læknir, er kvaddur langar mig að minnast hans nokkrum orðum. Við Stefán vorum systkinabörn og sam- skiptin milli fjölskyldna okkar hafa alltaf verið náin. Fyrstu bernsku- minningar mínar eru bundnar við æskuheimli hans Skólabrú 2 þar sem Kristín, föðursystir mín, og Ólafur Þorsteinsson læknir bjuggu alla tið. Faðir minn, Einar Baldvin Guðmundsson, bjó ásamt móður sinni á heimili þeirra frá unglingsár- um þar til hann stofnaði sitt eigið heimili. Faðir minn og Stefán ólust upp eins og bræður, enda var með þeim mikil vinátta alla tíð. í Skóla- brú 2 var gestrisni mikil og safnað- ist fjölskyldan þar saman alla hátíð- isdaga og þurfti reyndar ekki slíkra daga við því Kristín hafði morgun- kaffi flesta daga þar sem oft var setinn bekkurinn. Ása mágkona hennar bjó í næsta húsi og þar var einnig oft gestkvæmt. Því má segja að stórfjölskyldan hafi átt sér at- hvarf á þessum reit. Að loknu læknisnámi hér heima hélt Stefán til framhaldsnáms til Bandaríkjanna þar sem hann dvaldi í 5 ár. Þegar heim kom kvæntist hann Kolbrúnu Ólafsdóttur og hóf starf sem læknir hér í Reykjavík og síðar jafnframt sem kennari við læknadeild Háskóla íslands. Mikil vinátta var með foreldrum mínum og Kolbrúnu og Stefáni og man ég vart eftir fagnaði á Víðimel 27 án þess að Kolbrún og Stefán væru þar. Við systkinin fórum ekki var hluta af þessari vináttu enda litum við ævinlega á Stefán sem okkar nánasta ættingja. Við hjónin eigum fjölda góðra minninga um ánægjustundir með Stefáni og Kolbrúnu sem við erum þakklát fyrir. En ekki síst er okkur í huga þakklæti til Stefáns fyrir alla umhyggju hans og hjálp sem hann veitti okkur með læknisstörf- um sínum. í þeim efnum sparaði hann hvorki tíma né fyrirhöfn og fylgdi þar í fótspor föður síns. Þeir feðgar ráku lækningastofu saman í Skólabrú 2 í fjöldamörg ár eins og fiestir eldri Reykvíkingar muna. Með Stefáni er genginn góður og vandaður maður sem skilaði merku ævistarfi. Við hjónin sendum Kolbrúnu og börnum þeirra innileg- ar samúðarkveðjur. Jóhanna J. Thors. Kær vinur og kollega hefur kvatt. Stefán Ólafsson, dósent við Lækna- deild Háskóla íslands, lést úr krabbameini hinn 17. þessa mánað- ar. Mig langar með örfáum orðum að minnast þessa einstæða dreng- skaparmanns og höfðinglega ljúf- mennis. Kynni mín af Stefáni eru orðin æði löng eða allt frá menntaskólaár- unum og koma nú upp í hugann minningarnar ein af annarri og ylja sem sól í vetrarnepjunni. Við læknadeildina áttum við Stefán samstarf um langt árabil þar sem við vorum samkennarar. Kennslustörfin fóru honum ágæt- lega úr hendi og var hann vel met- inn og virtur af nemendum. Jafn- framt rak Stefán eigin lækninga- stofu og starfaði á sínu sérsviði á Landakoti og Landspítala. Stefán stundaði framhaldsnám við virtar stofnanir í Bandaríkjun- um. Á starfsferli sínum sótti hann iðulega læknaþing erlendis í sér- grein sinni. Allmörg sumur vorum við Stefán ásamt eiginkonum okkar við lax- veiðar í hinu fagra Borgarfjarðar- héraði og nutum þar unaðssemda náttúrunnar og veiðimennskunnar. í slíku umhverfi er gott með góðum að vera. Ekki verður Stefáns minnst án þess að geta Kolbrúnar svo sam- hent sem þau hjón voru. Hið glæsi- lega heimili þeirra vitnar um frá- bæran myndarskap húsmóðurinnar og margra góðra samverustunda á heimilinu er að minnast og þakka. Höfðingleg gestrisni og hlýtt viðmót þeirra var rómað. Við Margrét þökkum Stefáni samfylgdina, vináttuna og öll hin góðu kynni og kveðjum hann með þakklæti og virðingu. Við sendum Kolbrúnu og fjölskyldunni innilegar samúðarkveðjur. Ólafur Bjarnason. Stefán Ólafsson, háls-, nef- og eyrnalæknir, er nýlátinn eftir all- langa baráttu við erfiðan sjúkdóm. Það er mikill sjónarsviptir að Stef- áni, bæði meðal ótal sjúklinga sem hann á löngum starfsferli sinnti af alkunnri nostursemi, sem og starfs- bræðra sem minnast hans sem góðs leiðbeinanda og félaga. Að Stefáni stóðu sterkir stofnar í báðar ættir. Faðir hans Ólafur Þorsteinsson fékk, fyrstur lækna á Islandi, sérfræðingsleyfi í háls-, nef- og eyrnalækningum og vann geysimikið brautryðjendastað á því sviði á fyrri hluta þessarar aldar, en hann hafði numið fræði sín í Kaupmannahöfn, Berlín og Munc- hen. Var hann með eindæmum af- kastamikill læknir, en fyrstu ára- tugina starfaði hann við sérgrein sína á Landakotsspítala en síðar á Landspítala, allt til ársins 1951, er hann lét af störfum. Sá hann um kennslu læknanema í sérgreininni á sama tíma, en síðan tók Stefán sonur hans við þeirri kennslu. Átti hann óvenju langan og glæstan læknisferil að baki og var af þeim sökum gerður að heiðursfélaga í Læknafélagi Reykjavíkur, auk þess sem hann hlaut Stórriddarakross Fálkaorðunnar. Kristín, móðir Stefáns, var af Hraunsætt úr Fljótum norður og því afkomandi Einars Guðmunds-

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.