Morgunblaðið - 25.02.1997, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 25.02.1997, Blaðsíða 16
16 ÞRIÐJUDAGUR 25. FEBRÚAR 1997 LANDIÐ MORGUNBLAÐIÐ Morgunblaðið/Magnús Hávarðarson MIKLAR skemmdir urðu á húsinu við Dísarland 10 af völdum snjóflóðs og fylltust herbergi sem snúa að Traðarhyrnu af snjó. íbúar húsanna sem lentu í snjófloðum í Bolungarvík í nýtt húsnæði Bið eftir viðvörun gagnrýnd SVEFNHERBERGISÁLMA hússins varð fyrir mestum skemmd- um og brotnuðu meðal annars steyptir milliveggir undan flóðinu. BÚIÐ er að finna nýtt húsnæði fyrir ijölskyldurnar tvær í Bolung- arvík sem urðu fyrir því að hús þeirra skemmdust í snjóflóðum á föstudagskvöld. Snjóflóðahættu var aflýst í Bolungarvík um klukkan 18 á sunnudag og fengu þá íbúar, á annað hundrað talsins, að snúa aftur til heimila sinna. Fulltrúi Viðlagatryggingar ís- lands hóf í gær að meta skemmdir af völdum flóðanna og má gera ráð fyrir að niðurstaða liggi fyrir í næstu viku. Ólafur Kristjánsson, bæjarstjóri í Bolungavík, segir hús- in sem urðu fyrir skemmdum ekki íbúðarhæf í núverandi ástandi og óvíst sé að íbúar vilji búa í þeim áfram eða að þau verði lagfærð. Veðurstofa ber ábyrgð „Nú heijast viðræður við sveitar- félagið og ráðuneytið um aðgerðir, þ.e. hvort húsin verði keypt eða gripið til vamaraðgerða. Við mun- um verða eins hjálplegir og við getum í þeim efnum,“ segir hann. Hjá íbúum í Bolungarvík hefur komið fram gagnrýni á hendur al- mannavarnanefnd staðarins að hafa ekki gefið út snjóflóðahættu- viðvörun fyrr, en hún var ekki gef- in fyrr en um hálfum öðrum tíma eftir að fyrsta flóðið féll. Ólafur kveðst sammála því að ferli mála hafi verið of seinvirkt og gefa hefði átt út viðvörun fyrr en raun varð á. Jónas Guðmundsson, formaður almannavarnanefndar Bolungar- víkur, og sýslumaður þar, kveðst hafa heyrt af fyrsta flóðinu skömmu fyrir klukkan 20 á föstudagskvöld og látið Veðurstofu íslands strax vita. Hann líti svo á að samkvæmt núgildandi lögum beri Veðurstofan ábyrgð á því hvenær formlegu hættuástandi er lýst yfir. „Ég kallaði saman nefndina og komst að því að íbúar í efstu húsum hefðu verið látnir vita, en aðrir íbú- ar ekki. Síðan biðum við í einn og hálfan tíma eftir fyrirmælum frá Veðurstofu íslands, og vorum ansi undrandi á því hversu langan tíma það tók, en vorum ekkert að taka fram fyrir hendurnar á stofnun- inni,“ segir Jónas. Hann kveðst fagna því að ný lög um framkvæmd þessara mála séu nú í undirbúningi á Alþingi, því að núverandi fyrirkomulag sé óljóst að hans mati. Jónas kveðst þó viður- kenna að nefndin hafi vanmetið hættuna miðað við það sem síðar kom í ljós. Hann myndi hins vegar taka strax af skarið, kæmi upp svipað ástand nú. Ekki ástæða til biðar Magnús Jónsson veðurstofustjóri kveðst ekki telja þörf á að ræða þessi mál með milligöngu fjölmiðla. „Veðurstofa beið að mínu mati ekki lengi áður en aðvörun var gef- in, en það er túlkun manna að bið hafi orðið. Ef náttúruhamfarir af einhverju tagi eiga sér stað, hlýtur í sjálfu sér ekki að vera nein ástæða til að bíða eftir viðbrögðum frá aðilum sem hafa með viðvörunar- þáttinn að gera,“ segir hann. Magnús kveðst telja þetta mál dæmi um byijunarhnökra á kerfi sem nýlega hefur verið tekið til notkunar enda ekki hægt að sjá öll tilvik fyrir. „Það hefur aldrei verið ætlunin að flytja vald til Veðurstofu í neyðarástandi, en í nýja frumvarp- inu er tekið fram, til að taka af öll tvímæli, að almannavarnanefndun- um sé að sjálfsögðu heimilt að ganga til verka án þess að yfirlýs- ing komi frá Veðurstofu." íslenskt dagsverk 97 Menntun til frelsis Selfossi - „íslenskt dagsverk 97“ efndi til þriðja landsfundar síns dagana 21.-23. febrúar. Fundur- inn fór fram á Hallanda, skammt austan við Selfoss. Islenskt dagsverk er sam- stöðuverkefni sem námsmanna- hreyfingamar á íslandi hafa staðið að í samvinnu við Hjálpar- stofnun kirkjunnar síðan í maí 1996. Höfuðmarkmiðið er að ungt fólk á íslandi sýni sam- stöðu með jafnöldrum sínum í öðrum heimshlutum og beiti sér fyrir því að auka tækifæri þeirra til náms. Á fundinum á Hallanda voru saman komnir fulltrúar frá 20 framhaldsskólum á íslandi. Jó- hanna Eyjólfsdóttir, frá íslands- deild Amnesty Intenational, fjallaði um mannréttindi og ástandið í þeim efnum á Ind- landi. Jónas Þórisson, fram- kvæmdastjóri Hjálparstofnunar kirkjunnar, flutti einnig erindi um starfsemi samstarfsaðila á Indlandi, en íslenskt námsfólk beitir kröftum sínum að þessu sinni í þágu námsfólks frá Ind- landi. Morgunblaðið/Sig. Fannar FULLTRÚAR frá 20 framhaldsskólum á íslandi voru saman komnir á fundinum á Hallanda. Sæluvika Skagfirð- inga undirbúin Metþátt- taka í dæg- urlaga- keppni Sauðárkróki - Metþátttaka er í dægurlagakeppni Kvenfélags Sauð- árkróks, að sögn Guðmundar Ragn- arsson framkvæmdastjóra, en skila- frestur á lögum rann út hinn 1. febrúar sl. Guðmundur sagði að alls hefðu 94 lög eftir 80 höfunda borist og nú væri að búið að velja þau 10 lög sem mundu keppa til úrslita á föstu- dagskvöldi í Sæluviku þann 2. mars nk. Hljómsveitarstjóri er Eiríkur Hilmisson en hann sér einnig um útsetningar og undirbúning lag- anna fyrir upptöku á geisladiski sem kemur út á úrslitakvöldinu. Guðmundur sagði að Ijóst væri að þessi dægurlagakeppni Kvenfé- lags Sauðárkróks væri búin að vinna sér fastan sess og sýndi það síaukinn fjöldi þeirra sem sendu inn lög til keppninnar, og einnig að meðal flytjenda væru margir af þekktari söngvurum landsins. Þá sagðist Guðmundur vilja fyrir hönd þeirra sem að keppninni stæðu þakka öllum þeim fjölmörgu sem sent hefðu lög og þannig lagt sitt af mörkum til þess að gera keppn- ina sem glæsilegasta. -----» Fagranesið með bíla frá Arn- gerðareyri Kaldalóni - Það gerðist hér á Isa- fjarðardúpi fyrsta góudag, sunnu- daginn 23. febrúar, að Djúpbátur- inn Fagranes sigldi frá Arngerðar- eyri til ísafjarðar með þrjá full- hlaðna flutningabíla og þar að auki fullhlaðinn flutningavagn í viðbót við þijá fólksbíla, en þá mátti kalla skipið fulllestað. Er þetta fyrsta ferðin sem þetta skip fer með slíkan flutning síðan í vetur að feijubryggja var byggð í Arngerðareyri. Á Isafirði varð að leggja stál- plötur milli skips og lands til að keyra góssinu upp úr skipinu en verið er að byggja feijubryggju á ísafirði fyrir þennan flutning. Snjó- flóðahætta í Súðavíkurhlíð lokaði allri umferð um Djúpið en þeir dóu ekki ráðalausir flutningapostulam- ir og fleyttu sér á Fagranesinu yfir Djúpið með góðum árangri. -----♦ ■♦ ♦--- Eldur í íbúðarhúsi á Flúðum Hrunamannahreppi - Litlu mun- aði að illa færi þegar kviknaði í tvíbýlishúsi að Smiðjustíg 7a á Flúðum eftir hádegi á laugardag. Húsráðandi brá sér að heiman en maður sem býr í hinni íbúðinni var heima við. Eldur hafði læst sig í þiljur í eldhúsi og er talið að kviknað hafi í út frá brauðrist. Nábúinn ásamt manni sem býr við sömu götu voru búnir að slökkva eldinn með slökkvitækjum þegar slökkviliðið bar að. Tjón af völdum eldsins varð ekki mjög verulegt en innbú var vá- tryggt. Húsnæðið er í eigu sveitar- félagsins. I I l i i -
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.