Morgunblaðið - 25.02.1997, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 25. FEBRÚAR 1997 23
ySTUTT
Morðsam-
særi
afhjúpað
PALESTÍNSKA lögreglan
hefur afhjúpað samsæri um
að myrða Yasser Arafat og
fleiri palestínska embættis-
menn, að sögn samstarfs-
manns hans, Mahmuds Abbas.
Hann kveðst sjálfur vera á
lista yfir menn sem róttækir
Palestínumenn hyggist ráða
af dögum. Listinn hafi fundist
á tveimur vopnuðum Palest-
ínumönnum, sem voru hand-
teknir í vikunni sem leið.
Carl Bildt á
sjúkrahúsi
SÆNSKI stjórnmálamaðurinn
Carl Bildt, sem hefur stjórnað
uppbyggingunni í Bosníu, var
fluttur á
sjúkrahús í
Stokkhólmi á
laugardag
vegna veiru-
sýkingar eft-
ir að hafa
hnigið niður
heima hjá
sér. Bildt,
sem er 47 ára, þjáðist af höf-
uðverkjum, var máttfarinn og
átti erfitt með að tala. Hann
var enn á sjúkrahúsinu í gær
en læknar hans sögðu veikind-
in ekki alvarleg.
Rauði kross-
inn hafnar
hervernd
CORNELIO Sommaruga, for-
seti Alþjóðaráðs Rauða kross-
ins, sagði í gær að ráðið hefði
hafnað þeirri hugmynd að
starfsmenn þess störfuðu und-
ir hervernd á átakasvæðum.
Hugmyndin kom fram eftir að
sex starfsmenn þess voru
myrtir í Tsjetsjníju í desember
og þrír í Búrúndí í júní. Somm-
aruga sagði að starfsmenn
ráðsins gætu ekki notið her-
verndar þar sem þeir yrðu að
gæta fyllsta hlutleysis til að
geta hjálpað öllum fórn-
arlömbum stríðsátaka.
Tudjman boð-
ar framboð
FRANJO Tudjman, forseti
Króatíu, tilkynnti um helgina
að hann hygðist gefa kost á
sér í forsetakosningum síðar á
árinu þrátt fyrir fréttir um að
hann sé haldinn krabbameini
í maga. Ekki hefur enn verið
ákveðið hvenær kosningarnar
verða, en króatískir fjölmiðlar
segja að kosið verði í júní.
KfeOQDÖS)
Það má æfa sig með ýmsu móti
Ganga, hlaupa, synda,
fara í þolfimi, pallapuð,
I tækjasal, vaxtarmótun
eða út að hjóla.
ERLEIMT
Madeleine Albright í Peking
Kína opni
markaði sína
Peking. Reuter.
MADELEINE Albright, utanríkisráð-
herra Bandaríkjanna, sagði eftir við-
ræður við háttsetta kínverska ráða-
menn í Peking í gær, að hún hefði
greint þeim frá því hve nauðsynlegt
væri að Kína opnaði heimamarkað
sinn fyrir erlendum fyrirtækjum. Al-
bright lýsti ánægju sinni með að ekki
skyldi hafa verið hætt við heimsókn
hennar eftir andlát Dengs Xiao-
Pings. Hún var í gær viðstödd útför
leiðtogans fýrrverandi og átti viðræð-
ur við Jiang Zemin, forseta Kína, Li
Peng forsætisráðherra og Qian Qich-
en, utanríkisráðherra.
Hún sagði fréttamönnum jafn-
framt frá því, að hún hefði náð sam-
komulagi við kínverska ráðamenn
um að sérfræðingafundur um eyð-
ingu gjöreyðingarvopna yrði haldinn
í Peking um miðjan marzmánuð.
Staðan í mannréttindamálum Kína
sagði Albright hins vegar því miður
vera óbreytta.
Reuter
JIANG Zemin, forseti Kína, heilsar Madeleine Albright við upphaf
viðræðna hennar við kínverska ráðamenn.
Greiðsluáskorun
Innheimtumenn ríkissjóðs skora hér með á gjaldendur að gera skil nú þegar eða í síðasta lagi
innan 15 daga frá dagsetningu áskorunar þessarar á eftirtöldum gjöldum: Staðgreiðslu og
tryggingagjaldi til og með 12. tímabili með eindaga 15. janúar 1997 og virðisaukaskatti til og með
48. tímabili með eindaga 5. febrúar 1997 og öðrum gjaldföllnum álagningum og ógreiddum hækkunum
er féllu í gjalddaga til og með 15. febrúar sl. á staðgreiðslu, tryggingagjaldi og virðisaukaskatti, virðis-
aukaskatti í tolli, áfengisgjaldi, launaskatti, bifreiðagjaldi, slysatryggingagjaldi ökumanna, föstu árgjaldi
þungaskatts, þungaskatti skv. ökumælum, viðbótar- og aukaálagningu söluskatts vegna fyni tímabila,
skemmtanaskatti og miðagjaldi, virðisaukaskatti af skemmtunum, tryggingagjaldi af skipshöfnum ásamt
skráningargjöldum, vinnueftirlitsgjaldi, vörugjaldi af innlendri framleiðslu, vörugjaldi af ökutækjum, eft-
irlitsgjöldum, aðflutningsgjöldum og útflutningsgjöldum, skilagjaldi á umbúðir, verðbótum á ógreiddan
tekjuskatt og verðbótum á ógreitt útsvar, skipulagsgjaldi, skipagjaldi, fisksjúkdómagjaldi, jarðarafgjaldi
og álögðum opinberum gjöldum, sem eru:
tekjuskattur, útsvar, aðstöðugjald, sérstakur tekjuskattur manna, eignarskattur, sérstakur eignar-
skattur, slysatryggingagjald vegna heimilisstarfa, tryggingagjald, iðnlánasjóðs- og iðnaðarmála-
gjald, þróunarsjóðsgjald, kirkjugarðsgjald, markaðsgjald, gjald í framkvæmdasjóð aldraðra,
skattur af verslunar- og skrifstofuhúsnæði, ofgreiddar barnabætur, ofgreiddur barnabótaauki og
ofgreiddar vaxtabætur.
Fjámáms verður krafist án frekari fyrirvara fyrir vangoldnum eftirstöðvum gjaldanna ásamt dráttarvöxt-
um og öllum kostnaði, sem af innheimtu skuldarinnar kann að leiða, á kostnað gjaldenda að þeim tíma
liðnum.
Athygli skal vakin á því að auk óþæginda hefur fjárnám í för með sér verulegan kostnað fyrir gjaldanda.
Fjárnámsgjald í ríkissjóð er allt að 10.000 kr. fyrir hvert fjárnám. Þinglýsingargjald er 1.000 kr. og stimp-
ilgjald 1,5% af heildarskuldinni, auk útlagðs kostnaðar eftir atvikum. Eru gjaldendur hvattir til að gera
full skil sem fyrst til að forðast óþægindi og kostnað.
Þá mega þeir gjaldendur, sem skulda staðgreiðslu, tryggingagjald, vörugjald og virðisaukaskatt, búast við
því að starfsemi þeirra verði stöðvuð án frekari fyrirvara.
Reykjavík, 25. febrúar 1997.
Gjaldheimtan í Reykjavík
Tollstjórinn í Reykjavík
Sýslumaðurinn í Kópavogi
Sýslumaðurinn í Hafnarfirði
Sýslumaðurinn í Keflavík
Sýslumaðurinn á
Keflavíkurflugvelli
Sýslumaðurinn á Akranesi
Sýslumaðurinn í Borgarnesi
Sýslumaðurinn í Stykkishólmi
Sýslumaðurinn í Búðardal
Sýslumaðurinn á ísafirði
Sýslumaðurinn í Bolungarvík
Sýslumaðurinn á Patreksfirði
Sýslumaðurinn á Hólmavík
Sýslumaðurinn á Blönduósi
Sýslumaðurinn á Sauðárkróki
Sýslumaðurinn á Siglufirði
Sýslumaðurinn á Olafsfirði
Sýslumaðurinn á Akureyri
Sýslumaðurinn á Húsavík
Sýslumaðurinn á Seyðisfirði
Sýslumaðurinn á Neskaupstað
Sýslumaðurinn á Eskifirði
Sýslumaðurinn á Höfn
Sýslumaðurinn í
Vestmannaeyjum
Sýslumaðurinn á Selfossi
Sýslumaðurinn í Vík
Sýslumaðurinn á Hvolsvelli
Gjaldheiinta Vestfjarða
Gjaldheimta Austurlands
Gjaldheimtan í Vestmannaeyjum
Safnaóu 5 hollráóum og þú færó 1000 kr.
afslátt af þriggja mánaóa kortum i Mætti
og Gatorade brusa og duft frá Sól hf.