Morgunblaðið - 25.02.1997, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 25.02.1997, Blaðsíða 40
40 ÞRIÐJUDAGUR 25. FEBRÚAR 1997 AÐSENDAR GREINAR MORGUNBLAÐIÐ Hvað hyggst R-listinn fyrir? FYRIR nokkrum dög- um var haldinn „samn- ingafundur" með samninganefndum rík- is og Reykjavíkurborg- ar annars vegar og fulltrúum BSRB hins vegar. Þar kom skýrt í ljós að ríkið stendur - beinlínis i vegi fyrir því ' að eðlilegar samninga- viðræður um kaup og kjör geti farið fram. Samningamenn ríkis- ins halda fast við að félög opinberra starfs- manna eigi ekki að hafa afskipti af kjara- samningum nema að hluta til. Vísað er til 9. greinar laga um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins, en með henni er forstöðumönnum stofnana gefíð stóraukið svigrúm til að ákveða starfsmönnum svoköll- uð viðbótarlaun. Sé ekki samið um fyrirkomulag viðbótarlaunanna i kjarasamningi, fá forstöðumenn 'stofnana stóraukið vald til að ákveða tilteknum hópum laun að eigin geðþótta. Sjálfstæðisflokkurinn mótar launastefnu R-listans Ríkisstjórn hlýtur á hveijum tíma að ákveða launa- og starfsmanna- stefnu sína. Það hefur núverandi ríkisstjórn gert. Nú bregður hins vegar svo einkennilega við að Reykjavíkurborg hefur tekið upp sömu stefnu og ríkið. Borg og ríki ->hafa með sér sameiginlega samn- inganefnd, undir formennsku full- trúa ríkisins. Þeim sem studdu R- listann þykir þetta furðuleg ráðstöf- un, þar sem forsætis- og ijármálaráðherr- ann, þeir sem mestu ráða um stefnuna í þessum efnum, eru úr þeim flokki sem er í minnihluta í borgar- stjórn. Með öðrum orð- um: R-listinn hefur fal- ið Sjálfstæðisflokknum að móta launa- og starfsmannastefnu sína í yfirstandandi kjarasamningum. Flokkur minnihlutans ræður launastefnu meirihlutans! R-listinn hefur unnið að margvíslegum framfaramálum í borginni sem vonandi munu standa Góðæríð, sem allir eru sammmála um að nú ríki í landinu, segir Sjöfn Ingólfsdóttir, er líka í Reykjavík, sem lengst, borgarbúum til heilla. Launa- og starfsmannastefna, sam- skipti og samstarf við stéttarfélög starfsmanna, eru líka mikilvæg hagsmunamál, ekki bara starfs- manna, heldur allra borgarbúa. Því betur sem búið er að starfsmönnum, því betur geta þeir sinnt starfi sínu, borginni helst betur á góðu starfs- fólki og stendur sig betur í harðri samkeppni um gott vinnuafl. Reykjavíkurborg er næst stærsti atvinnurekandinn í landinu, aðeins ríkið hefur fleira fólk í vinnu. Borg- Sjöfn Ingólfsdóttir in hefur þess vegna alla burði til að móta sína eigin stefnu gagnvart starfsmönnum og hefur enga þörf fyrir að binda trúss sitt við ríkið í þeim efnum. Góðærið til allra Góðærið, sem allir eru sammála um að nú ríki í landinu, er líka í Reykjavík. Fjölmörg fyrirtæki í borginni hafa stórbætt afkomu sína á undanfömum misserum. Góðærið er hins vegar langt frá því að vera komið á launareikninga starfs- manna borgarinnar. Er nema von að starfsfólkið spyiji hvað valdi. Svarið felst í þeirri launastefnu, sem ríkið hefur mótað og R-listinn geng- ist undir og felur beinlínis í sér þá fýrirætlun að auka launamuninn innan borgarkerfisins, og snið- ganga stéttarfélögin við þær ákvarðanir. Frá þessari stefnu vill hvorki borg eða ríki falla, stefnu sem sýnist ganga þvert á þær hug- myndir um jöfnun lífskjara, sem R-listinn hefur verið talinn standa fyrir, og boðaði fyrir síðustu kosn- ingar. Nýjar upplýsingar í atvinnu- vegaskýrslu Þjóðhagsstofnunar lofa ekki góðu um afleiðingar geðþótta- launakerfisins. I henni kemur fram að á sama tíma og þjóðarsátt var um að hækka ekki kaup launa- fólks, þar sem atvinnuvegirnir réðu ekki við launahækkanir á tímabil- inu, þá hafa ýmsir æðstu stjórnend- ur hins opinbera fengið launahækk- anir sem nema tvöföldum eða jafn- vel þreföldum launum láglaunahóp- anna, að ekki sé nú minnst á banka- stjóralaunin frægu. I þessu Ijósi er ástæða til að spyija: Hvað hyggst R-listinn fyrir? Ætlar hann að láta ríkið draga sig á asnaeyrunum áfram, eða mæta til alvarlegra samningaviðræðna við Starfsmannafélög borgarinnar um kaup og kjör? Höfundur er formaður Starfsmannafélags Rcykjavíkurborgar. „Noblesse oblige“ ÞESSI frönsku orð eru oft viðhöfð, þegar menn taka við virð- ingastöðum. Þau eru venjulega þýdd á óbeinan hátt: „Vandi >fylgir vegsemd hverri“. Þau orð finnast mér all lágkúruleg og ná ekki hinni réttu merk- ingu. Nær væri að segja: „Tignin skyld- ar“. í orðunum felast líka kröfur um ábyrgð. Hæstaréttardómarar hafa sérstöðu. Það eru gerðar kröfur til þeirra; þeir þurfa að vera vammi firtir. Einn vinur minn, mjög grandvar maður, sem lét af störfum sem hæstaréttardómari fyrir nokkrum árum, sagði oftar en einu sinni, að hann skyldi segja mér álit sitt, á - einu eða öðru, þegar hann væri hættur í réttinum. Þó langt sé um liðið, er hann jafn tregur til slíks í nú og áður. Bókin „The Judge is always al- one“ eftir bandarískan hæstaréttar- dómara kom út fyrir skömmu. I henni kryfur hann starfsævi við lok og heldur því m.a. fram, að hæsta- réttardómarar megi ekki þekkja nokkurn né umgangast aðra en þá, sem þeir myndu verða að víkja úr dómarasæti fyrir vegna vanhæfi. Ætlast er til þess, að hæstarétt- ardómarar láti stjórnmál afskipta- laus. Enda ekki kjörgengir til Al- þingis. Þeim er aftur á móti fijálst að bjóða sig fram til forsetaembætt- is og ættu að öðru jöfnu að vera vel til slíks starfs fallnir. Þegar Pétur Kr. Hafstein bauð sig fram til forseta lýðveldisins, hafði hann fengið leyfi frá störfum -J- í Hæstarétti. Þar sem framboðið tókst ekki, settist hann að nýju í Hæstarétt. Hvorki dómsmálaráðherra né Hæstiréttur gerðu neina athugasemd við það, enda hafði fram- boðið ekki haft nein áhrif á hæfni hans. Lögmönnum ber að sýna Hæstarétti virðingu Lögmennska gerir svipaðar kröfur um virðingu. Það er til vandræða og hneisu, þegar lögmenn grípa til heiftarlegra og illa grundaðra árása á Hæstarétt eða dóm- endur hans. Lögmenn komast stundum hörmulega úr jafnvægi vegna tap- Lögmennska gerir kröf- ur um virðingu, segir Gunnlaugur Þórðar- son. Það ertil vandræða og hneisu, þegar lög- menn grípa til heiftar- legra og illa grundaðra árása á Hæstarétt eða dómendur hans. aðs máls og gremju sinni svala þeir e.t.v. með því að fara með dylgjur og grunsemdir í garð réttarins í fjölmiðla. Með slíku athæfi grafa þeir undan því trausti, sem okkur lögmönnum ber að sýna æðsta dóm- stól landsins. Auðvitað er sjálfsagt, að lög- fræðingar gagnrýni dóma, en mál- efnalega. Það er sannfæring mín, að lögmenn treysta Hæstarétti. Allir eru þeir albúnir næsta dag að áfrýja máli, af því að þeir gera sér vonir um að rétturinn sjái málið í öðru ljósi en undirrétturinn. Þeir treysta Hæstarétti. Hæstarétti getur skjátlast, þeir eru ekki alvitrir dómaramir. Það sama á við hina misvitru þingmenn, sem samþykkja oft vitlaus lög. Við því er ekki annað að gera en að taka því, en reyna að hafa áhrif til bóta, en það stendur lögmönnum næst. Frumhlaup Hreins Loftssonar Hitt má ekki dyljast neinum, að vanhæfi dómara og aðrar grun- semdir eru afskaplega óáþreifanleg atriði í lögmennsku og að bera slíkt á borð fyrir Hæstarétti er oft vottur um illa grundaða lögfræði. Frum- hlaup hins óreynda hæstaréttarlög- manns, Hreins Loftssonar, stafar bersýnilega af því, að hann hefur hvorki haft manndóm né sannfær- ingarkraft til þess að koma vitinu fyrir ólöglærðan húsbónda sinn. Sá einþykki kaupsýslumaður hefur ekki viljað átta sig á því, hve vafa- söm og glær hegðun hans í viðskipt- um var. Kaup á tveimur faliít fyrir- tækjum, gerð í þeim tilgangi að geta snuðað samfélagið um milljóna tugi í opinberum gjöldum. Athæfið var tæpast löglegt og tvímælalaust siðlaust og Hæstiréttur dæmdi það löglaust, svo sem vera bar. Það er dapurlegt og óafsakanlegt þegar kollegar mínir grípa til þess að leggja mál sín í dómstól götunn- ar og ekki síður ískyggilegt, þegar fjölmiðlar í ákafa sínum til þess að skapa æsing í þjóðfélaginu, gína við slíkum fréttum, hráum frá sögu- manninum sjálfum. Þeir eru yfir- leitt vafasamir heimildarmenn. Höfundur er hæstaréttarlögmaður. Gunnlaugur Þórðarson Umhverfis- mál á ábyrgð okkar allra ÞAÐ hefur sjálfsagt ekki farið fram hjá neinum sú umræða um umhverfismál, tengd fyrirhugaðri stóriðjuuppbyggingu, sem verið hefur í fjölmiðlum að undanförnu. Er það vel. I rauninni er ég undr- andi á því að þessi umræða skuli ekki hafa orðið háværari mikið fyrr og að mínu áliti hafa fjölmiðl- ar alls ekki sinnt upplýsingaskyldu sinni þar að lútandi. Umfjöllun um stóriðjumálin í fjölmiðlum hefur hingað til verið ansi einhliða og stórlega hefur vantað að um þessi málefni væri fjallað á víðtækari og faglegri máta. Lítið hefur verið minnst á umhverfisvandamál tengt þessum stóriðnaði eins og engin mengun hlytist af honum. Reyndar lét hæstvirt- ur iðnaðarráðherra hafa það eftir sér í blaðaviðtali varðandi fýrirhugað álver á Grundartanga að íbú- ar Kjósarhrepps þyrftu engar áhyggjur að hafa því mengun yrði engin! Ég ætla að vona að umhverf- isvitund almennings sé betri en hæstvirts ráðherra því þetta stenst náttúrulega alls ekki! Það vita allir sem eitthvað vita um um- hverfismál að frá allri stóriðju kemur meng- un, spurningin er hversu kröfu- hörð við erum varðandi mengunar- varnarbúnað hversu mikla meng- un við sleppum með. En hvers vegna að hafa yfirhöfuð einhveijar áhyggjur af mengun hér á þessu skeri í N-Atlantshafi þar sem íbú- ar eru svo fáir, getum við ekki bara mengað eins og okkur lystir, Ég ætla að vona, segir Sigrún Theódórsdótt- ir, að umhverfisvitund almennings sé betri en hæstvirts ráðherra. fer þetta ekki bara allt hvort sem úr út í loftið og hverfur? Frá fyrir- huguðu álveri munu berast 300.000 tonn af koltvísýringi (CO2) sem er það sama og frá öllum íslenska flotanum saman- lagt sem þýðir 11% aukningu CO2 á Islandi. Og í stað þess að vera eins metnaðarfullir og nágrannar okkar Norðmenn sem leyfa 0,3-0,4 kg flúor/áltonn ætlum við að láta duga að miða við hámarks- tölu í alþjóðiegum staðli sem er 100% hærri, eða sem nemur 0,6 kg/áltonn. Sama er að segja með brennisteinstvísýringinn (S02)sem m.a. veldur súru regni og drepur skóga (er það jú ekki töfralausn ríkisstjórnarinnar að veita pening í uppbyggingu skóga til að bæta fyrir aukna C02 mengun en þá verður skógurinn að lifa það af en ekki skemmast af völdum S02 útblásturs). Þar ætlum við að sætta okkur við 21 kg/áltonn í stað 2 kg/áltonn ef vothreinsibún- aður er notaður. Of hár styrkur koltvísýrings (C02) í andrúmsloftinu er orðið viðurkennt vandamál í heiminum og það leiðir af sér m.a. hækkað hitastig. Nú eru sjálfsagt ein- hveijir sem hugsa að það sé til hagsbóta fyrir okkur sem búum á þessu kalda skeri, en málið er ekki svona einfalt. Talið er að þetta muni m.a. hafa í för með sér að óveður verða tíðari, yfir- borð sjávar hækkar og láglendi og smáeyjar fara undir vatn. Einnig mun staðbundinn vatnss- kortur aukast og 1/3—1/2 jökla hverfa og síðast en ekki síst munu hafstraumar í N-Atlantshafi verða veikari. Það er nokkuð ljóst að þetta síðastnefnda er nokkuð afdrifaríkt fyrir okkur íslendinga því samkvæmt þessu mun stefna Golfstraumsins breytast, hann mun leita fyrr austur með lítilli aðkomu á íslandi. Þá þarf nú ekki að rífast mikið lengur yfir því hversu mörg álver á að byggja á Islandi eða hversu mörg tonn fisks eigi að veiða við íslandsstrendur því þá verður ekki lengur byggilegt á íslandi. En hvers vegna á almenningur að vera að skipta sér af þessu máli, hvi ætti stjórn- völdum ekki að vera treystandi til að meta þessi mál af skynsemi með langtímahags- muni þjóðarinnar að leiðarljósi en ekki með skammtímadollara- merki í augum? Best væri ef hægt væri en reyndin virð- ist því miður allt önnur. í fyrsta lagi virðast stjórnvöld íslands nefnilega vera búin að gleyma því að þau samþykktu alþjóðlegan samning í Ríó 1992 sem skuld- bindur þá að sjá til þess að engin aukning verði á C02 mengun þjóð- arinnar frá árinu 1990 til ársins 2000. Með þennan samning að leiðarljósi samþykkja þau með bros á vör, 11% aukningu C02 á Islandi með nýju álveri, auk allrar annarrar aukningar sem þegar hefur átt sér stað á C02 því lítið sem ekkert hefur verið brugðist við þessu vandamáli hérlendis. Annað sem bendir til þess að hags- munir almennings virðast fyrir borð bornir af háttvirtri ríkisstjórn er að 1995 var gefinn út bækling- ur af markaðsdeild Iðnaðarráðu- neytisins og Landsvirkjunar sem heitir: „Lowest energy prices“ (lægsta orkuverðið). I þessum bæklingþ eru tíundaðir kostir þess að við íslendingar getum boðið allra lægstlaunaða vinnuaflið í sambærilegum ríkjum Evrópu. Þetta er nú góður grunnur fyrir verkalýðshreyfinguna í komandi kjarasamningum. Auk þess, og takið nú vel eftir, séu starfsleyfi fyrir stóriðnað hér á landi vana- lega samþykkt með lágmarkskröf- um til umhverfismála (the operat- ing licence is usually granted with a minimum of environmental red tape). Er furða þótt manni líði eins og sé verið að selja mann lægst- bjóðanda? Einhvers staðar stendur skrifað að við höfum ekki fengið jörðina að gjöf frá foreldrum okkar heldur erum við með hana að láni frá börnunum okkar. Ég skora á ís- lensk stjórnvöld að endurskoða stefnu sína í umhverfismálum og horfa í augun á börnunum sínum þegar þau viðurkenna það stefnu- og ábyrgðarleysi sem ríkt hefur í þeim málum hingað til. Höfundur er garðyrkjufræðingur. Sigrún Theodórsdóttir
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.