Morgunblaðið - 25.02.1997, Qupperneq 25
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 25. FEBRÚAR 1997 25
ERLENT
Dönsk skýrsla um stækkun ESB
Aðild A-Evrópuríkja
árið 2000 óraunsæ
Kaupmannahöfn. Morg-unblaðið.
ALLT tal stjórnmálamanna um að
Austur-Evrópuríkin geti fengið aðild
að Evrópusambandinu árið 2000 er
óraunsætt og væri nær að tala um
2003-2005. Þetta eru niðurstöður
skýrslu, sem danska utanríkismála-
stofnunin, DUPI, vann að beiðni
Evrópunefndar danska þingsins.
Svipaðar raddir heyrast reyndar
einnig frá Austur-Evrópu og þannig
sögðu bæði pólskir og ungverskir
ráðherrar nýlega á alþjóðlegu efna-
hagsmálaráðstefnunni (World Ec-
onomic Forum) í Davos að óraun-
sætt væri að tala um aðild árið 2000.
Danska stjórnin hefur hingað til
sett það á oddinn að fyrstu Austur-
Evrópulöndin yrðu aðilar að ESB
árið 2000. Stjórnin ber ekki aðeins
hag Austur-Evrópu fyrir btjósti,
heldur er stækkun ESB mikilvæg
röksemd á heimavelli til að vinna
fylgi kjósenda í þjóðaratkvæða-
greiðslum, sem væntanlega eiga eft-
ir að verða um niðurstöðu ríkjaráð-
stefnu ESB og undanþágur Dana frá
Maastricht-sáttmálanum.
í skýrslu DUPI, Europæisk stab-
ilitet: EU’s udvidelse med de centr-
'dl- og esteuropæiske lande, segir
hins vegar að árið 2000 sé fremur
táknrænt en raunsætt takmark, ekki
aðeins vegna seinagangs ESB, held-
ur ekki síður vegna þess að það taki
nýju aðildarlöndin tíma að aðlagast
breyttum aðstæðum. í skýrslunni er
einnig tekið upp samhengi ESB og
NATO og þeirri spurningu velt upp
hvort og þá hvernig um verði að
ræða einhveija verkaskiptingu
þeirra hvað varði aðild Austur-Evr-
ópulanda að þessum tveimur sam-
tökum.
Bjartsýni stjórnmálamanna
Skýrslan hefur þegar valdið um-
ræðu í Danmörku vegna hinnar mis-
munandi tímasetningar stjórnmála-
manna annars vegar og sérfræðinga
hins vegar. Ove Fich, formaður Evr-
ópunefndar þingsins, hafnar ekki
niðurstöðum skýrslunnar, en segist
sem stjórnmálamaður kjósa að halda
sig við bjartsýna von um að stækk-
unin gangi fljótt fyrir sig, þó annað
kunni síðan að koma í ljós.
Fegurðin
og evróið
Brussel. Reuter.
MEÐþví að flylja ræðu um
ágæti hinnar sameiginlegu
Evrópumyntar, evrósins, vann
hin nítján ára gamla Sandrine
Durant sér um helgina inn titil-
inn „Ungfrú Brabant Wallon“.
Frá þessu sagði belgíska dag-
blaðið Vers L’Avenirí gær. Með
sigrinum ávann Sandrine sér
réttinn til að taka þátt í keppn-
inni „Ungfrú Belgía 1997“.
Reuter
EMU mun ekki verða að veruleika 1999, segir Kenneth Clarke.
Kenneth Clarke, fjármálaráðherra Bretlands
Segir að EMU mum semka
London. The Daily Telegraph.
KENNETH Clarke, fjármálaráð-
herra Bretlands, gaf í skyn um helg-
ina, að hann tryði því að ekkert yrði
af Efnahags- og myntbandalagi Evr-
ópu, EMU, í janúar 1999 eins og að
er stefnt.
Clarke, sem hefur verið einna já-
kvæðastur allra forystumanna
brezka íhaldsflokksins í garð Evr-
ópusamrunans, sagðist í sjónvarps-
viðtali á sunnudag vera sammála
Wilhelm Noelling, fyrrverandi stjórn-
armanns þýzka seðlabankans, Bund-
esbank, sem hefur sagt að forða
bæri Evrópu frá „martröðinni" sem
sameiginleg mynt yrði, ef skilyrðun-
um fyrir myndun hennar væri ekki
fylgt út í æsar.
Noelling, sem um tíma var fjár-
málaráðherra sambandslandsins
Hamborgar og síðar um skeið for-
seti bankastjórnar seðlabankans,
hefur hótað að kæra þýzku ríkis-
stjórnina, ef hún dirfðist að reyna
að sveigja Maastricht-skilyrðin til.
Clarke sagði það vera mjög ólíklegt
að af myntbandalaginu yrði í janúar
1999. „Það er allt umvafið vafa eins
og er og ég tel okkur hollast að fara
varlega," sagði ráðherrann. En hann
vildi leggja áherzlu á að brezka ríkis-
stjórnin væri ekki andsnúin mynt-
bandalaginu í sjálfu sér, aðeins ef
forsendur þess yrðu veiktar.
Hann sagði útilokað að af EMU
yrði án þátttöku hvort tveggja
Þýzkalands og Frakklands. Hann
sagðist ekki trúa því að Þýzkaland
myndi reyna að útvatna skilyrðin,
en benti á að efnahagsástandið í
landinu gæti seinkað því að hin sam-
eiginlegu mynt verði tekin upp.
SEMENTSBUNDIN
FLOTEFNI
Uppfylla ströngustu gæöakröfur
• Rakaheld án próteina * Níðsterk
• Hraðþornandi * Dælanleg eða handílögð
» Hentug undir dúka, parket og til ílagna
147 PR0NT0
154 PRESTO
316 REN0V0
Efni frá:
ISNASARGÓLF
Smlðjuvegur 72,200 Kópavogur
Simar: 564 1740,692 4170, F«: 5541769
Vikutilboð
áKanarí
18. mars
frákr. 39*932
Við eigum nokkrar viðbótaríbúðir þann 18. mars í viku á Ensku
ströndinni og á okkar vinsælasta gististað, Green Sea. Nýttu þér
þetta einstaka tilboð og stökktu í sólina með beinu flugi
Heimsferða.Toppgististaður, Green Sea, með allri þjónustu,
íþróttaaðstöðu, góðum garði, verslunum, veitingastöðum og
skemmtidagskrá.
Verðkr. 39*932
M.v. hjón með 2 börn, 2-14 ára,
Green Sea, 1 vika.
Verðkr. 49*960
M.v. 2 fúllorðna í stúdió, Green Sea,
18. mars, 1 vika.
Toyota Corolta XLi Sedan árg.
'94, ek. 22 þús. km„ vín-
rauður, sjálfsk., saml., spoiler.
Verð 1.170.000. Ath. skipti.
Nissan Sunny SLX 4WD árg.
'92, ek, 63 þús. km„
dökkgrár, 5 g. Verð
1.070.000. Ath. skipti.
MMC Lancer GLXi 4WD árg. '91, ek.
109 þús. km, hvítur, 5 g. Verð
760.000. Bein sala.
3VW Golf GL 1800 árg. '95, ek.
113 þús. km„ dökkblár, sjálfsk.,
álfelgur. Verð 1.230.000.
Ath. skipti.
Mazda 323 St. 4WD árg. '94,
ek. 67 þús. km„ dökkgrár, 5 g„
álfelgur. Verð 1.120.000.
Ath. skipti.
MIKIÐ ÚRVAL AF NÝLEGUM BÍLUM - ALLAR GERÐIR - ÚTVEGUM BÍLALÁN
I M. Benz 190E 2,3 árg. '93, ek.
56 þús. km„ svartur. sjálfsk.,
I sóllúga, álfelgur, ABS, leður,
rafm. í öllu. Verð 2.300.000.
I Ath. skipti.
SiiiS—i
'
wmsmammsmm
Félag Löggiltra Bifreiðasal
Funahöfða 1 • Sími: 567-2277 • Rífandi sala • Fríar auglýsingar • Frítt innigjald
Sölumenn:
Ingimar Sigurösson, lögg. bifr.
Axel Bergmann
Til sölu allar gerðir af Grand
Cherokee Laredo og Ltd., bæði 6
cyl. og 8 cyl. Góðir fyrir íslenska
vetrarófærð.
Dodge Caravan Grand 4WD árg.
'95, ek. 33 þús. km., dökkgrænn, 7
manna, einn með öllu, góður fyrir
stórar fjölskyldur. Verð 2.950.000.
Ath. skipti. Áhv. bílalán.
I Chevrolet Blazer 4,3 árg. '96,
ek. 3 þús. km., vínrauður,
sjálfsk., álfelgur, samlæs-
ingar, ABS. Verð 3.500.000.
I Ath. skipti.
Toyota Double Cap dísel, árg.
'91, ek. 156 þús. km., rauður,
hús, 31" dekk. Verð 1.350.000.
Ath. skipti.
Toyota Corolla St. XLi árg.
H '97, ek. 9 þús., hvítur. Verð
| 1.480.000. Áhv. bílalán.
sali
U Toyota Corolla XLi H/B árg. '96,
ek. 20 þús. km., dökkblár, 5 g.
Verð 1.190.000. Ath. skipti.
Hönnun: Gísli B.