Morgunblaðið - 25.02.1997, Qupperneq 27
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
ÞRIÐJUDAGUR 25. FEBRÚAR 1997 27
List um listum-
ræðu - í síma
MYNPLIST
M o k k a
INNSETNING
Magnea Þ. Ásmundsdóttir. Opið alla
daga til 6. mars.
LISTUMRÆÐA hefur löngum
þótt veikburða hér á landi, og
kemur þar marjgt til. Fyrir hið
fyrsta hafa Islendingar iítið
kynnst því hvernig er hægt að
fjalla af viti um málefni, sem verð-
ur aldrei brotið til mergjar; til-
hneiging okkar er sterk til að ljúka
öllum umræðum með ákveðinni
afstöðu til afmarkaðra valkosta,
„annað hvort ... eða,“ „með eða
móti“. Einnig hafa fámenni og
persónuleg nálægð oftar en ekki
gert áhugafólki um listir erfitt um
vik að tala opinskátt, þar sem
umræðan kann að koma við kaun-
in á einhveijum viðstöddum, sem
á hagsmuna að gæta.
Afleiðingin er sú að umræðan
koðnar oftar en ekki niður í tveggja
manna tal á förnum vegi eða fer
fram á sellufundum innvígðra í
hornum kaffihúsa. í öllu falli berst
hún lítið út til almennings og ekki
er leitað eftir áliti fjöldans á þessu
sviði nema í undantekningartilvik-
um - en þar ber eftirminnilega
framkvæmd á vegum listamann-
anna Komar og Melamid fyrir
stuttu auðvitað hæst.
Á þessum grunni má skoða inn-
setningu Magneu Þ. Ásmundsdótt-
ur sem áhugaverða tilraun til að
gefa utanaðkomandi kost á að
bijóta upp selluna, hlera umræð-
una og jafnvel leggja orð í belg.
Mokka, mekka listumræðunnar í
áratugi, er kjörinn vettvangur fyr-
ir þessa tilraun, og hún er gerð
með þeim hætti að miðillinn ætti
að vera öllum nærtækur - hæfilega
ópersónulegur og aðgengilegur í
senn, sjálfur síminn.
Magnea hefur áður notað sím-
ann sem miðil fyrir sína listrænu
hugsun, en á „Stefnumóti trúar og
listar“ sem fram fór í Hafnarborg
1995 setti hún upp „Símaþjónustu
Heilags Anda“. Þar var hægt að
hringja inn, reyna að ná sambandi
eða leita huggunar; ef það gekk
ekki var hið minnsta hægt að fá
sér kaffi á Hans kostnað.
Yfirskriftin að þessu sinni er
„Það er síminn til þín“ og er bæði
ábending um að umræðan eigi
erindi við alla og að flestir hafi
eitthvað til málanna að leggja.
Símtækin á veggjum staðarins
gefa fjarstöddum tækifæri til að
hringja inn og ræða við gesti stað-
arins, sem eiga þess einnig kost
að hringja á milli borða eða út af
staðnum. Á ákveðnum tímum fara
fram símaþing (kölluð „Mokka-
plugged" með tilvísun til ónefnds
tónlistarþáttar), en þá taka upp
símtólið ákveðnir aðilar sem koma
með ýmsum hætti að málefnum
myndlistarinnar. Þegar hafa
óþekktur myndlistarmaður, borg-
arstjóri, fjármálaráðherra, list-
fræðingur og gagnrýnandi setið
fyrir svörum, og fleiri slík þing
eru væntanleg á sýningartíman-
um.
Þessi innsetning gefur þannig
fjölmarga möguleika til að fjörga
upp á listumræðuna, og er ekki
að efa að þeir verða nýttir með
ýmsum hætti. En innsetningin set-
ur einnig fram skemmtilega þver-
sögn, því listumræðan sjálf er nú
orðin formlegt inntak listarinnar.
Listakonan hefur þannig skapað
tilbrigði við hina umdeildu setningu
„list um list“; það sem hér blasir
við er í raun „list um umræðu um
list“. - Það er hætt við að ýmsum
þyki listin orðin helst til sjálfhverf
fylgi alvara slíkri framsetningu,
og það kann að vera kankvís
ábending listakonunnar til kollega
sinna þegar öllu er á botninn hvolft.
E.S.: Ekki má gleyma því mikil-
vægasta: Til að taka þátt í öllu
saman þarf ekki annað en að
hringja, og númerið er 561-9080.
Lifi umræðan.
Eiríkur Þorláksson
Kvenpostular
MYNPLIST
H o r n i ð
MÁLVERK
Sigríður Gísladóttir. Opið alla daga
frá 11-23.30. Til 5. marz.
Aðgangur ókeypis.
VIÐ skildum við síðustu sýningu
Sigríðar Gísladóttur, Aflabrögð á
djúpmiðum, á sama stað fyrir réttu
ári, en þá var hún í óða önn að
spyrða saman físk og trúarbrögð,
hvunndaginn og heimslist-
ina. Var auðséð á vinnu-
brögðunum að hún vildi
fara eigin leiðir, lætur eng-
an segja sér fyrir verkum
frekar en fyrri daginn og
ekki víkur hún af þeirri
mörkuðu leið á hæðina að
þessu sinni.
Sigríður hefur ríka hvöt
til að segja sögu í myndum
sínum, bæði opna sem
dulda, því myndir hennar
kunngera manni sitthvað
við nánari skoðun sem fer
hjá í fyrstu, en eru samt
engar felumyndir. Að þessu
sinni er listakonan mætt á
véttvanginn með 13 stórar
konumyndir sem bera í sér
sterkar trúarlegar, og sem
fyrri daginn ísmeygilegar,
vísanir. Eftir smástund
rennur upp fyrir skoðand-
anum að þetta eru ekki
venjulegar mannamyndir,
heldur postular í kvenlíki.
Hver og ein ábúðarmikil
og þiýstin freyjan er kufl-
klæddur heilagleiki, svo
sem gerðist í málverki á
tímum endurreisnarinnar,
endurfæðingarinnar, en
hér hafa orðið kynskipti í
anda kvenréttindabarátt-
unnar.
Giska sjálfstæðar og
sjálfsöruggar hofróður, vinkonur
listakonunnar úr Staðarsveit vest-
ur, hafa tekið að sér hlutverk karl-
ímyndarinnar. Hver og ein fullkom-
lega fijáls, hvort sem hún vill fara
norður, suður, austur eða vestur,
eftir öllum strikum kompássins, -
... fyrir öllum sýslumönnum og
hreppstjórum, böðlum og besefum,
kristnum og ókristnum, guðhrædd-
um sem hundheiðnum, körlum sem
konum, börnum og blóðtökumönn-
um, eins og gestinum er gert full-
ljóst í rituðu máli í skrá.
Sigríður Gísladóttir virðist hafa
gengið innblásin til verks, málað
þessar konur hratt og fijálslega,
meira af kappi og vinnugleði en
fyrirhyggju í flestum tilvikum.
Þannig er mest borið í kankvís and-
litin, svo minnir á ljósmyndir, en
minna í kuflana, sem eru þá full
hráir, settlegir og loftkenndir. En
þegar hún rífur í þá, leggur skap-
gerðina í útfærsluna, þannig að
myndast misfellur, saumur í kufli
eða þykkildi í hári verður útkoman
mun efniskenndari og um leið sann-
verðugri. Hið lofsverðasta við fram-
kvæmdina er þó að gerandinn er
meðvitaður um nútímann, færist
mikið í fang, spennir bogann hátt
og er hvergi hræddur hjörs í þrá.
En málunarhátturinn virðist kalla á
lengri yfirlegur, meiri vinnu í flötinn
til að gera framsetningu myndefnis-
ins, form og liti safaríkari.
Bragi Ásgeirsson
EITT verkanna á sýningu Sigríðar.
HEKLA B. Guðmundsdóttir:
„Þrjár kindarlegar og
Hekla gýs“.
Heklu-
myndir
LISTAMAÐUR mánaðarins í Gall-
erí Smíðar & skart Skólavörðustíg
16a, er Hekla Björk Guðmundsdótt-
ir.
Hekla lauk námi í fjöltæknideild
Myndlista- og handíðaskóla Islands
1994, hún stundaði einnig nám í
Hochschule fúr bildende kunst í
Hamborg í Þýskalandi.
Verkin eru unnin með olíu á
striga 1997. í myndunum eru sterk
íslensk áhrif og túlka þær á léttan
einfaldan hátt landið og sveitina
með sauðkindina í aðalhlutverki.
Kynningin stendur til 18. mars.
Galleríið er opið frá kl. 11-18
virka daga og kl. 11-14 laugardaga.
Kynning á
Suzuki að-
ferðinni í
Keflavík
NÚ stendur yfir í Tónlistarskólan-
um í Keflavík svokölluð „Opin vika“
sem haldin er árlega í skólanum.
Þá halda nemendur fjölda tónleika
víðs vegar um bæinn og góðir gest-
ir koma í heimsókn. Af þessu til-
efni stendur skólinn fyrir kynningu
á Suzuki-aðferðinni, miðvikudaginn
26. febrúar kl. 18. Er aðgangur
ókeypis og öllum heimill. •
Foreldrar 3-6 ára gamalla barna
eru sérstaklega boðnir velkomnir
en aðferðin miðar að því að kenna
mjög ungum börnum að spila á
hljóðfæri.
Við Tónlistarskólann í Keflavík
er kennt samkvæmt Suzuki-aðferð-
inni á píanó og fíðlu.
Næsta haust stendur til að auka
kennsluframboð fyrir Suzuki-nem-
endur og mun þeim, sem koma á
kynninguna, gefast kostur á að sækja
um skólavist fyrir næsta vetur.
Auglýsing um innlausnarverð
verðtryggðra spariskírteina ríkissjóðs
FLOKKUR INNLAUSNARTÍMABIL INNLAUSNARVERÐ* ÁKR. 10.000,00
1982- 1.fl. 1983- l.fl. 1984- 2.fl 1985- 2.fl.A 1985-2.fl.B 01.03.97 -01.03.98 01.03.97 -01.03.98 10.03.97 10.03.97 10.03.97 - 10.09.97 kr. 183.487,50 kr. 106.606,30 kr. 100.240,90 kr. 61.926,70 kr. 28.442,30 **
* Innlausnarverð er höfuðstóll, vextir, vaxtavextir og verðbætur.
** Við innlausn fylgi ógjaldfallnir vaxtamiðar spariskírteinis.
Innlausn spariskírteina ríkissjóðs fer fram í afgreiðslu Seðlabanka íslands,
Kalkofnsvegi 1, og liggja þar jafnframt frammi nánari upplýsingar um skírteinin.
Reykjavík, 25. febrúar 1997.
SEÐLABANKIÍSLANDS
______
mmm