Morgunblaðið - 25.02.1997, Síða 51
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 25. FEBRÚAR 1997 51
>
I
j
)
5
I
í
I
%
]
3
I
I
I
4
(3
4
4
4
4
4
4
4
4
\
4
J
4
4
HESTAR
ÞÆR voru margar vel ríðandi konurnar í Mosfellsbænum á laugardag og hér fer
ein þeirra, Kolbrún Haraldsdóttir á Geysi.
BIRGITTA Magnúsdóttir og Óðinn frá Köldukinn sigruðu í kvennaflokki hjá Herði
eftir spennandi keppni.
Vetrarmót hjá Fáki og Herði
Stóðhestar
í toppsætum
HESTAMENN eru farnir að
beita fákum sínum í
keppni hver við annan en
um helgina voru vetrar-
mót haldin hjá Fáki og Herði í
vetrarveðri eins og það getur orðið
hvað fallegast og best. Reiðfærið
eins og best verður á kosið, vel
troðinn og þjappaður snjór. Harð-
armenn sem héldu sitt mót að
Varmárbökkum í Mosfellsbæ buðu
upp á töltkeppni í yngri flokkum
og flokkum karla og kvenna. Hjá
Fáki á Víðivöllum var hinsvegar
bætt við fljúgandi skeiði sem svo
hefur verið kallað. Þar var í fullorð-
insflokki skipt í atvinnu- og áhuga-
mannaflokk en einnig boðið upp á
sérstakan kvennaflokk. Hjá báðum
félögum var firmakeppnisformið
viðhaft eins og gjarnan er gert á
stuttum vetrarmótum.
í atvinnumannaflokki sigraði
Hulda Gústafsdóttir á stóðhestin-
um Hljómi frá Brún sem vakti
verulega athygli á síðasta ári þeg-
ar hann ungur að árum skipaði
sér í fremstu röð alhliða gæðinga
á Hvítasunnumóti félagsins. Er
hann kominn í ágætt form og lof-
ar góðu fyrir vorið. Sigurður Matt-
híasson kom næstur á þessum
vettvangi með gæðinginn Háfeta
frá Þúfu. Nafni hans Marínusson
fylgdi þar fast á eftir á Röðli.
Skeiðkeppnin tókst með miklum
ágætum og má ætla að þetta form,
„fljúgandi skeið“, þar sem hver
hesturinn kemur á fæti öðrum á
fljúgandi ferð þegar flaggið fellur,
geti átt framtíð fyrir sér. Þessi
aðferð fellur vel í kramið hjá
áhorfendum því fátt er skemmti-
legra en sjá góða vekringa koma
svona hver á eftir öðrum án nokk-
urra tafa.
Hjá Herði var einnig stóðhestur
í aðalhlutverki, Kappi frá Hörgs-
hóli sem Sigurður Sigurðarson sat,
og yar ekki annað að sjá en kapp-
inn væri kominn í góða þjálfun að
þessu sinni. Kappi lenti í hálfgerð-
um öldudal á síðasta ári eftir gott
ár þegar hann fór í fyrstu verðlaun
aðeins fimm vetra gamall. Næstur
kom Sævar Haraldsson á Goða frá
Voðmúlastöðum sem var vel frísk-
ur að þessu sinni.
Eins og gengur eru alltaf skipt-
ar skoðanir um dóma á mótum sem
Morgunblaðið/V aldimar
HLJÓMUR frá Brún er kominn í feiknastuð og sigraði hann ásamt
knapanum Huldu Gústafsdóttur í atvinnumannaflokki hjá Fáki.
þessum enda hratt unnið og alltaf
hætta á að einhver mistök geti
orðið. Athygli vakti þó hjá Herði
að Magnea Rós Axelsdóttir sem
verið hefur í algerum sérflokki
komst ekki einu sinni í verðlauna-
sæti. Datt mörgum helst í hug að
þarna hefðu orðið einhver mistök
hjá dómurum, númerarugl eða eitt-
hvað slíkt sem alltaf getur hent
því ekki var annað að sjá en hún
og hestur hennar Vafi væru vel
að fyrsta sætinu komin eins og svo
oft áður.
Valdimar Kristinsson
Fákur - úrslit:
Kvennaflokkur:
1. Ásta Briem á Villingi.
2. Svava Kristjánsdóttir á Dára frá
Keldudal.
3. Þóra Þrastardóttir á Hrafni.
4. Ásta Björnsdóttir á Guma.
5. Edda Hinriksdóttir á Rúmi,
Karlaflokkur - áhugamenn:
1. Þór Gylfi Sigurbjörnsson á Hrólfi
frá Bakkakoti.
2. Guðmundur Gíslason á Kviku frá
Hvítárbakka.
3. Sigurþór Jóhannesson á Kreiki
frá Ártúni.
4. Bragi Ásgeirsson á Funa.
5. Karl Davíðsson á Tinna frá
Minna-Núpi.
Atvinnumenn:
1. Hulda Gústafsdóttir á Hljómi.
2. Sigurður Matthíasson á Háfeta
frá Þúfu.
3. Sigurður Marínusson á Röðli.
4. Auðunn Kristjánsson á Regin.
5. Gunnar Már Gunnarsson á Kol-
brá frá Kárastöðum.
Ungmenni:
1. Alma Olsen á Von frá Hraunbæ.
2. Svanheiður Lóa Rafnsdóttir á
Hjörvari frá Selfossi.
3. Hrafnhildur Guðmundsdóttir á
Ögra frá Vindási.
4. Hannes Siguijónsson á Stíg frá
Traðarholti.
5. Elísabet Björgvinsdóttir á Amor
frá Austvaðsholti.
Unglingar:
1. Davíð Matthíasson á Þræði.
2. Árni B. Pálsson á Drottningu frá
Arnarstöðum.
3. Þórdís Erla Gunnarsdóttir á
Smelli frá Hrafnkelsstöðum.
4. Jóna Margrét Ragnarsdóttir á
Kóngi frá Tóftum.
5. Aníta Margrét Aradóttir á Faxa
frá Sogni.
Börn:
1. Sylvía Sigurbjömsdóttir á Kópi
frá Mykjunesi.
2. Guðbjörg Snorradóttir á Flugu
frá Dalsmynni.
3. Hlynur Snorrason á Stjömuskó
frá Grenstanga.
Pollar:
1. Sara Sigurbjörnsdóttir á Hæringi.
2. Fannar Örn Ómarsson á Sölva
frá Álfhólum.
Skeið með fljúgandi ræsingu:
1. Styrmir Snorrason, 8,89.
2. Sveinn Ragnarsson, 8,99.
3. Hulda Gústafsdóttir, 9,03.
4. Þórarinn Halldórsson, 9,33.
5. Logi Laxdal, 9,41.
Hörður - úrslit:
Kvennaflokkur:
1. Birgitta Magnúsdóttir á Óðni frá
Köldukinn.
2. Nína Múller á Hannibal.
3. Kolbrún Haraldsdóttir á Geysi.
4. Kolbrún Ólafsdóttir á Spuna frá
Syðra-Skörðugili.
5. Guðríður Gunnarsdóttir á Kol-
finni.
Karlaflokkur:
1. Sigurður Sigurðarson á Kappa
frá Hörgshóli.
2. Sævar Haraldsson á Goða frá
Voðmúlastöðum.
3. Lúther Guðmundsson á Kjamma.
4. Björn Ólafsson á Seifi.
5. Þorvarður Friðbjörnsson á Tvisti.
Ungmenni:
1. Guðmar Þór Pétursson á Stormi.
2. Helga S. Valgeirsdóttir á Dönu.
3. Sölvi Sigurðarson á Yiju frá
Keldudal.
4. Garðar Hólm á Þekki.
5. Sædís Jónasardóttir á List.
Unglingar:
1. Birta Júlíusdóttir á Viktori.
2. Amanda Dolores á Ægi.
3. Signý Svanhildardóttir á Galdri.
4. Ásgerður Þráinsdóttir á Bjólfi.
5. íris Sigurðardóttir á Pá.
Börn:
1. Kristján Magnússon á Rúbín.
2. Daði Erlingsson á Snjalli.
3. Sigurður Straumfjörð á Frey.
4. Tinna Björk Steinarsdóttir á
Skegg.
5. Jón Kristinn Þorsteinsson á
Hróki.
FORYSTUSVEITIN í atvinnumannaflokknum fer hér í breiðfylkingu fram völlinn, frá vinstri talið
Hulda og Hljómur, Sigurður V. og Háfeti, Sigurður og Röðull, Auðunn og Reginn, Gunnar Már og Kolbrá.
nsTuno
SÉRVERSLUN
HESTAMANNSINS
Háaleitisbraut 68 L . Austurver
Strni 568 4240