Morgunblaðið - 25.02.1997, Síða 55
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 25. FEBRÚAR 1997 55
BREF TIL BLAÐSIIMS
Vaknið!
Frá Vilhjálmi Baldurssyni:
VAKNIÐ! Verkamenn og aðrir lág-
launamenn. Reisið höfuðið andartak
upp úr sandinum. Lítið yfir. Það sem
áður var grónar grundir skreyttar
einstaka blómi er nú eyðimörk. Jafn-
vel síðasta hálmstráið er fokið burt.
Þar sem áður var von, jafnrétti og
bjartsýni er nú misskipting og spill-
ing. Aðeins lifir minningin um það
sem áður var, minningin um verka-
lýðshreyfingu sem lifði í um 60 ár
og stóð vörð um rétt hvers vinnandi
manns til að sjá sér og sínum far-
borða.
Nú er enn komið að samningum
um okkar kjör. Sumir fara af stað
með meiri kröfur en aðrir. Fullrúar
VR koma að borðinu með sínu vana-
lega lítillæti, hógværar kröfur þeirra
er litið á með þó nokkurri velþóknun
af mönnunum hinum megin við borð-
ið. Grétar Þorsteinsson og hans
menn eru jafnvel enn hógværari.
Vanalega þegar tveir aðilar semja
um eitthvað bytja þeir á setja fram
miklar kröfur og mætast svo í ein-
hverjum punkti sem báðir eru ná-
kvæmlega jafn óánægðir með. VR
fer fram á u.þ.b. 5% hækkun kaup-
taxta á ári. Eftir þetta venjubundna
hark við VSÍ tilkynna þeir okkur að
vegna hættu á þensluáhrifum hafi
niðurstaðan orðið 2% hækkun á ári
en á móti hafi þurft að fórna einum
frídeginum og heildarhvíldartíminn
yfir daginn verði framvegis 30 mín
í stað 35 áður. í raun er samninga-
viðræðum lokið, fulltrúar okkar eru
aðeins að velta fyrir sér hvort hljómi
betur að segja 6% hækkun á þremur
árum eða 2% hækkun á ári í þrjú ár.
Nú er komin fram alveg ný að-
ferð við að ákveða laun, bankaað-
ferðin svokallaða. Væri ekki hægt
að taka þessa aðferð upp á almenn-
um vinnumarkaði, launþegar ákveða
laun formanns, (forseta) síns verka-
lýðs- eða stéttarfélags og fá síðan
vissa prósentu af launum þeirra.
Þessi aðferð hefur virkað mjög vel
hjá bönkunum sem sést best á upp-
gjöri þeirra fyrir síðasta ár en þeir
j skiluðu verulegum hagnaði.
Þið megið samt ekki detta í þá
' gildru að halda að það sé einhver
I _____________________________________
von. Þeir tímar eru liðnir þar sem
hinn almenni launþegi hafði einhver
áhrif á kjör sín. Nú er þetta ákveðið
fyrir okkur af vinnuveitendum. Mjög
fyrirtækjavæn ríkisstjóm hefur ríkt
hér í nokkur ár og ásamt mjög slappri
stjórnarandstöðu og steindauðri
verkalýðsfoiystu hefur verið skapað
hér draumaland atvinnurekanda.
Þetta er svolítið skrítið land. í þessu
landi er það talið eðlilegt að laun
verkamanna hækki um 1.000 kr. á
tveimur ámm á meðan laun banka-
stjóra sem vinna hjá ríkinu hækka
um nokkur hundruð þúsund. í þessu
skrítna landi er það ekki talið skrítið
á menn í bankaráðum ákveði kaupið
hjá sjálfum sér. í landi þessu er ekk-
ert undarlegt við það þótt fyrrver-
andi ráðuneytisstjóri fái 5,5 milljónir
á ári fyrir það eitt að vera til. Það
er einnig ekkert furðulegt við það
þó að þijú olíufélög hækki bensínlítr-
ann um sömu upphæð á sömu
klukkustund og segjast síðan ekki
hafa samráð um verð á bensíni.
Það er engin von um að geta
breytt þessu. Kolkrabbinn og
smokkfiskurinn munu leiða okkur
inn eilífðina. En þótt við getum
ekki breytt þessu getum við þó allt-
af spurt spurninga. Við getum til
dæmis hringt í Magnús L. Sveinsson
og spurt: „Af hveiju ert þú ekki
búinn að semja um, mér til handa,
meiri kjarabætur síðustu 5 árin?“
eða hringt í Pálma Jónsson bankar-
áðsmann og spurt. „Af hveiju ertu
búinn að veita bankastjórum þínum
allt að 50% hækkun launa á 2
árum?“ Hringt í ráðherra og spurt:
„í hvað ertu að nota skattpeningana
mína?“ Jafnvel hringt og óskað
bankastjórunum til hamingju með
síðustu launahækkunina. Þó svo að
við séum dauðadæmd til eilífrar
vistar í þessu landi við kjör sem
ekki þekkjast í nágrannalöndunum
og getum engu breytt um það get-
um við að minnsta kosti látið vita
af okkur, að eitthvert Iíf og ein-
hvern anda sé enn að finna í sauðs-
vörtum almúganum.
VILHJÁLMUR BALDURSSON,
Staðarsel 4 n.h., Reykjavík.
Aðild að ITC getur
breytt lífi þínu
j Frá Huldu Guðmundsdóttur:
| HANN langaði að mæla til afmælis-
• barnsins. Þegar kom að því að menn
fóru að kveða sér hljóðs, varð hann
máttlaus, hann
gat ekki með
nokkru móti stað-
ið upp. Veislunni
lauk án þess hann
kæmi því frá sér,
sem hann hafði
æft fyrir framan
spegilinn heima!
Hún vissi ekk-
ert um fundar-
sköp eða félags-
mál yfir höfuð.
Nú langaði hana til að skilja þetta
allt. Á fundinum stóðu margir upp
en enginn orðaði það, sem hún hafði
ætlað að spyija um. Hjartslátturinn
var svo mikill að henni fannst hún
vera að kafna og hún gat ekki hreyft
( sig, Kannast þú við svona líðan?
Hverju getur aðild að ITC
( breytt?
ITC stendur fyrir International
training in communication, sem þýð-
ir þjálfun í samskiptum. ITC gefur
þér tækifæri til að: Þjálfa hæfileika
til forystu, auka hæfni sem áheyr-
andi og flytjandi, þjálfa skipulags-
hæfileika, öðlast þroska með því að
byggja upp sjálfstraust, ná meiri
I viðurkenningu í starfi og samfélagi
sem einstaklingur, vera þátttakandi
í alþjóðlegum félagsskap sem starfar
! á fræðilegum grundvelli án sjónarm-
iða. Hver sem tekur þátt í starfi ITC
gerir það með ósk um sjálfsþroska
í samfélagi við aðra, sem finna hvöt
hjá sér til að halda áfram að læra
með ástundun og æfingum. Á þenn-
an hátt helga félagar sig markmiði
ITC til þess að bæta samskipti og
skilning. Samvirkir þættir, hæfni til
samskipta og gildi þess að tala, er
undirstrikað með námi, þjálfun og
æfingum. Þegar félagi nýtir sér
hveija reynslu til þroska kemur brátt
að því að þjálfunin nýtist í kringum-
stæðum sem oft koma fyrir í dag-
legu lífi. Sjálfið stækkar og áhrif
hans verða meiri og víðtækari.
Það er knýjandi löngun til sjálfs-
þroska sem fær fólk í fyrstu til þess
að gerast ITC-félagi. ITC-samtökin
opna upp á gátt dyr þær er leiða til
sjálfsbótar og sem aldrei lokast.
Fjórtán deildir eru starfandi á land-
inu, og er hámarksfjöldi í hverri deild,
til þess að hver og einn fái þau tæki-
færi sem þjálfunin býður upp á.
Fundardagar eru ákveðnir í upphafí
vetrar og eru að jafnaði auglýstir í
dagbók dagblaðanna. tjálfunin sem
við fáum gerir okkur hæfari til að
axla ábyrgð í daglegu lífi. Fundirnir
eru öllum opnir og þú getur komið
sem gestur án allra skuldbindinga.
Vertu innilega velkominn í góðan
félagsskap og þér mun líða betur.
„Heimur batnandi fer vegna
þeirra sem vilja það og stíga skref
til að svo megi verða.“ E. White.
HULDA GUÐMUNDSDÓTTIR,
í kynningar- og útbreiðslunefnd
I. ráðs ITC,
Lindarbyggð 11, 270 Mosfellsbæ.
Hulda
Guðmundsdóttir
Blomberg Excellent
fyrir þá sem vilja
aðeins það besta!
OFNAR:
15 gerðir í hvítu, svörtu,
stáli eða spegilálferð, fjölkerfa
eða Al-kerfa með Pynolyse
eða Katalyse hreinsikerfum.
HELLUBORB
*1B geröir, með háhitahellum
eða hinum byltingarkenndu,
nýju Spansuðuhellum, sem
nota segulorku til eldunar.
Ný írábær hönnun á ótrúlega góðu veröi.
Blomberq
Hefur réttu lausnina fyrir þig!
Einar Farestvert & Go. hf.
Tbppurinn
í eldunartækjum
Blomberg
Fermirigar'
I
-------------------------i
Sunnudaginn 9. mars gefur Morgunblaðið út hinn árlega blaðauka Fermingar, en um
4 þúsund ungmenni verða fermd nú í lok marsmánaðar og í aprílmánuði.
Er þetta í áttunda sinn sem slíkur blaðauki er gefínn út með upplýsingum á einum
stað um allt það sem viðkemur undirbúningi fermingardagsins.
í blaðaukanum verður m.a. rætt við fermingarböm og foreldra um undirbúninginn og
fermingardaginn. Fjallað verður um fatnaö, hárgreiðslu,
veisluna ásamt uppskriftum af mat og kökum, skreytingar á fermingarborðið, fermingargjafir og
gefnir minnispunktar varðandi fermingarundirbúninginn.
Auk þess verður fjallað um fermingar íslenskra bama eriendis, tekin verða tali fermingarböm
fyrr og nú, skoðaðar gamlar fermingarmyndir ásamt fleiru.
Allar nánarí upplýsingar veita starfsmenn auglýsingadeildar
í síma 569 1171 eða með símbréfi 569 1110.
Kær kveðja,
Skiiafrestur: Dagsetning: Vikudagur: Klukkan:
Auglýsingapantanir 3. mars mánudagur 12.00
Óunnið auglýsingaefni til vinnslu hjá Mbl. 4. mars þriðjudagur 12.00
Tilbúnar auglýsingafilmur 5. mars miðvikudagur 16.00
Birting í blaöauka án vsk. 24,5% sv/hv 2-3 litir 4 litir
Krónur á dálksm 746,- 1.019,- 1.163,-
—