Morgunblaðið - 01.03.1997, Blaðsíða 33
32 LAUGARDAGUR 1. MARZ 1997
MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 1. MARZ 1997 33
IMtanpmMafrtfe
STOFNAÐ 1913
ÚTGEFANDI: Árvakur hf., Reykjavík.
FRAMKVÆMDASTJÓRI: Hallgrímur B. Geirsson.
RITSTJÓRAR: Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
JAFNINGJAR
TIL VARNAR
ETTHVERT nýstárlegasta verkefni hérlendis í vímuefna-
vörnum er Jafningjafræðsla framhaldsskólanna og á
þetta verkefni eins árs afmæli í dag, 1. marz. Frá því að
starfsemin hófst hafa um 6.000 framhaldsskólanemendur
víðsvegar um land, um 2.000 grunnskólanemendur og 3.000
nemendur Vinnuskóla Reykjavíkurborgar fengið heimsókn
frá Jafningjafræðslunni. Upphaflega var um að ræða tilrauna-
verkefni, en í ljósi reynzlunnar hafa aðstandendur verkefnis-
ins ákveðið að framhald verði á og starfsemin verði fastur
liður í forvarnastarfi í framtíðinni.
Markmið Jafningjafræðslunnar er að jafningjar, þ.e. fólk
á svipuðum aldri og með svipuð áhugamál, fræði jafningja
sína um skaðsemi og áhrif áfengis og annarra vímuefna, en
með því móti er talið að draga megi úr neyzlu þeirra. Aðstand-
endurnir benda á að ungt fólk taki oft meira mark á jafnöld-
rum sínum og skólafélögum en hinum fullorðnu, t.d. foreldr-
um og kennurum. Því til stuðnings vitna þeir í rannsóknir
sem gerðar hafa verið hér á landi og sýna að vinahópur hef-
ur mikil áhrif á lífsstíl fólks, þar á meðal áfengis- og fíkni-
efnaneyzlu.
í forystugrein Morgunblaðsins í desember 1995, er Jafnin-
gjafræðslan var að fara af stað og mikil umfjöllun hafði
verið um svokallaðar E-töflur í þjóðfélaginu, sagði blaðið:
„í eiturumhverfi líðandi stundar eru öll börn í hættu, mitt
barn, þitt barn, okkar börn. Öll ábyrg þjóðfélagsöfl verða
að leggjast á árar gegn helför eiturefnanna, fjölmiðlar, heim-
ili, kirkja, lögregla, skólar og æskulýðsfélög. En sterkasta
vörnin býr í framtaki og hugviti uppvaxandi kynslóðar.“
Upphaflega var Jafningjafræðsla framhaldsskólanna sett
á stofn sem samvinnuverkefni menntamálaráðuneytisins og
Félags framhaldsskólanema. Nú er hún metin sem verulegt
framlag til varnar aukinni neyzlu unglinga á áfengi og tób-
aki og annarra hættulegra vímuefna.
Aldrei fyrr hefur íslenzkt þjóðfélag staðið frammi fyrir
jafnmiklu framboði af hvers konar vímuefnum og það gerir
nú á dögum. Mikið er því í húfi að vímuvarnir séu teknar
föstum tökum.
BARÁTTAN VIÐ
HUNGUR
FÁTT ER ÁTAKANLEGRA en að sjá myndir af svelt-
andi börnum, sem birtast í blöðum og sjónvarpi, þeg-
ar hungursneyð skellur á í fjarlægum löndum. Þá tekur
umheimurinn oftast við sér og söfnun er hrint af stað til
aðstoðar. Fljótlega beinist athyglin að öðru og þá virðist
gleymast, að hungur er viðvarandi vandamál víða um
heim - alla daga ársins, ár eftir ár. Samkvæmt upplýsing-
um frá Matvæla- og landbúnaðarstofnun Sameinuðu þjóð-
anna (FAO) búa um 800 milljónir manna við hungur. Flesta
rekur líklega í rogastans, þegar þeir heyra svo háa og
ógnvænlega tölu um hungrað fólk, svo háa að hún virðist
óraunveruleg.
Það ljós er þó í myrkrinu, að hungruðum hefur fækkað
um eitt hundrað milljónir síðustu áratugina, en þeir voru
taldir um 900 milljónir áður. Þetta er að sjálfsögðu afrek
úr af fyrir sig, þótt hungurvofan sé skæð sem fyrr. Rétt
er að hafa í huga, að á þeim tíma, sem þessi árangur
hefur náðst, hefur mannfólkinu fjölgað gífurlega.
FAO efndi til ráðstefnu í Róm í nóvembermánuði sl.,
þar sem fjallað var um stefnumótun í baráttunni við hungr-
ið. Samkvæmt áætlun, sem þar var samþykkt, og ríkis-
stjórnir munu fylgja eftir, er stefnt að því, að fækka um
helming þeim, sem búa við næringarskort og hungur í
heiminum, fram til ársins 2015. Takist það munu um 400
milljónir manna búa við næringarskort. Stofnun eins og
Worldwatch Institute finnst markið sett of lágt og að sjálf-
sögðu má það til sanns vegar færa.
Áætlun FAO miðar að því, að berjast gegn hungri
næstu 35 árin með nýjungum í líftækni og nýjum leiðum
til geymslu á matvælum. Reiknað er með því, að á þessu
tímabili fjölgi mannkyni úr 5,7 milljörðum í 8,7 milljarða,
svo augljóst er, hversu gífurlegt átak það er að tryggja
fæðuöflun fyrir allt þetta fólk. En það er jafnljóst, að án
samræmdra aðgerða ríkisstjórna til að tryggja framgang
áætlunar FAO munu miklar hörmungar ganga yfir mann-
kynið. Baráttan við hungrið hlýtur því að vera forgangs-
verkefni.
Yfirmenn skrifstofa alþjóðalögreglunnar Interpol í Norður-Evrópu funda á íslandi
Barist við glæpi
með tækni að vopni
Herman Heijerman, yfírmaður Evrópuskrifstofu Interpol, segir að
peningum skattborgara sé eytt í tölvukerfi Schengen-ríkja, sem að
mörgu leyti skarist við kerfi Interpol. Þá sé Europol, löggæslustofnun
ESB, ætlað að róa á sömu mið. Ragnhildur Sverrisdóttir ræddi
við hann og Aurelijus Racevicius, yfirmann Interpol-skrifstofunnar í
Litháen. Racevicius segir að þar í landi reyni lögregla að hindra glæpa-
menn í að komast í álnir með sölu á stolnum bílum, því annars færi
þeir sig yfír í fíkniefnasmygl og peningafölsun.
YFIRMENN Interpol-skrif-
stofa í Norður-Evrópu
funduðu hér á landi í gær
og á fimmtudag. Alþjóða-
lögreglan Interpol var stofnuð árið
1923 og voru höfuðstöðvarnar þá í
Vín í Austurríki. Eftir síðari heims-
styijöldina var þráðurinn tekinn upp
að nýju árið 1946 í París í Frakk-
landi. Höfuðstöðvarnar hafa hins
vegar verið í Lyon í Frakklandi frá
1989. Þar starfa um 300 manns frá
55 ríkjum. Aðildarríki Interpol eru
hins vegar 177 talsins, þar af eru
44 í Evrópu.
Herman Heijerman stýrir Evr-
ópuskrifstofunni, sem var komið á
laggirnar þar sem ástæða þótti til
að sinna þeirri heimsálfu sérstak-
lega. Skilaboð og beiðnir um upplýs-
ingar hjá Interpol eru 1,6 milljónir
talsins á ári og 70-80% þeirra
tengjast Evrópu.
Allar upplýsingar
á einum stað
„Evrópá hefur ávallt leikið mjög
stór hlutverk í Interpol-samstarf-
inu,“ sagði Herman Heijerman.
„Interpol er byggt þannig upp, að
árlega er haldin ráðstefna allra 177
aðildarríkjanna, svipað og þegar
fulltrúar aðildarríkja Sameinuðu
þjóðanna hittast. Þar eru lagðar lín-
ur í stefnumörkun. Hins vegar sjá
höfuðstöðvar í Lyon um samskipti
við ríkin. Þannig er hægt að leita
á einn stað eftir upplýsingum, í stað
þess að skrifstofur Interpol í hveiju
landi þurfi að leita sjálfar til ann-
arra skrifstofa hér og þar í heimin-
um. Samskiptamiðstöð er nauðsyn-
leg til að gera starfið skilvirkara."
Skrifstofur Interpol í hveiju landi
eru yfirleitt innan vébanda rann-
sóknarlögreglu og það gildir til
dæmis á Islandi, þar sem Rannsókn-
arlögregla ríkisins sér um samskipti
við Interpol. „Ég get néfnt dæmi
um hvernig Interpol starfar. Ef ver-
ið er að rannsaka fíkniefnamál á
íslandi, þá vaknar ef til vill grunur
um að málið teygi anga sína til
Hollands og Frakklands. Interpol á
íslandi leitar þá til höfuðstöðvanna,
sem geta beint beiðninni áfram til
einnar af tíu undirdeildum, í þessu
tilviki til fíkniefnadeildar. Hún sér
um að samræma upplýsingar land-
anna og þannig er rannsókn málsins
flýtt verulega.“
Heijerman sagði að
þörfin fyrir starf Inter-
pol hefði aukist mjög á
síðasta áratug. „Eftir að
járntjaldið féll fjölgaði
aðildarríkjum Interpol í Evrópu úr
27 í 44. Við höfum lagt mikla vinnu
af mörkum við að aðstoða ný aðild-
arríki í uppbyggingu rannsókna.
Interpol ræður yfir mjög fullkomn-
um tölvubúnaði, sem teygir anga
sína um allan heim. í fátækari lönd-
um hefur Interpol sett upp tölvu-
búnað á eigin kostnað, svo þetta
upplýsinganet verði sem fullkomn-
ast.“
Þegar ný ríki bætast í hópinn þá
koma jafnframt upp ný vandamál.
„Ný vandamál fylgja einnig nýrri
tækni, því afbrotamenn tæknivæð-
ast ekki síður en aðrir. Þannig er
ekki langt síðan fýrst fór að bera
á ýmsum tölvuafbrotum, til dæmis
fjársvikum, og fölsun greiðslukorta
er nú mikið vandamál."
Breytt löggæsla
skapar vanda
Heijerman sagði að einn vandi
Interpol, og ekki sá minnsti, væri
breyting á löggæslu í Evrópu og
nefndi þar sérstaklega Schengen-
samkomulagið um afnám eftirlits á
landamærum innan ESB og Euro-
pol, löggæslustofnun ESB. „Auðvit-
að vildu menn vel þegar þeir komu
upplýsingakerfi Schengen og
Europol á laggirnar, en þessi tví-
eða þríverknaður er ekki til bóta,“
sagði hann. „Interpol hefur komið
upp gagnamiðstöðinni ASF, Auto-
matic Search Facility, þar sem að-
ildarríkin setja upplýsingar um af-
brot og afbrotamenn. Hér vil ég
skjóta inn í, að eftir að tölvur urðu
almennar tóku mörg ríki við sér og
settu lög um meðferð persónuupp-
lýsinga. Slík lög eru mjög misjöfn
eftir ríkjum. Frakkar og Hollend-
ingar eru til dæmis með mjög
stranga löggjöf og það setur
ákveðnar skorður í Interpol-sam-
starfmu. Þessar þjóðir geta nálgast
nákvæmar upplýsingar frá mörgum
öðrum, en mega sjálfar ekki veita
nema takmarkaðar upplýsingar.
Þrátt fyrir þetta er gríðarlegan fróð-
leik að finna hjá ASF,
til dæmis um eftirlýsta
glæpamenn, stolna list-
muni og farartæki og
svo mætti lengi telja.
Þetta umfangsmikla eft-
irlits- og upplýsingakerfi hefur
margsannað ágæti sitt.“
Áður en Schengen-samkomulag-
ið tók gildi var aðildarríkjum þess
gert að setja upp sameiginlegt eftir-
litskerfi til að skrá glæpi, en Heijer-
man er ekki sáttur við hvernig stað-
ið var að málum. „Löndin hafa lagt
í mikinn kostnað vegna þessa og
þar þykir mér peningum skattborg-
ara illa varið. Aðeins aðildarríki
Schengen hafa aðgang að upplýs-
ingunum. Sem dæmi má nefna, að
ef bíl er stolið í Schengen-landinu
Hollandi, þá eru upplýsingar settar
inn á tölvukerfið. Fari bíllinn hins
vegar inn í Pólland, sem ekki á
aðild að Schengen, þá sjá tollverðir
ekki að honum hafi verið stolið, því
þeir hafa ekki aðgang að upplýs-
ingakerfinu. Ef vel á að vera þarf
Holland því að setja upplýsingar um
stolna bíla einnig inn á kerfi Inter-
pol, svo löggæsla ríkja utan Scheng-
en eigi möguleika á að upplýsa
málið. Þetta er bara tvíverknaður."
Vanþekking
stj órnmálamanna
Það sama gildir um
Europol, að sögn Heijer-
mans. „Það hafa komið
upp vandamál, sambæri-
leg vandanum vegna
Schengen, vegna þessar-
ar löggæslustofnunar
ESB í Haag. Stjórnmála-
menn þekkja ekki störf
lögreglunnar og gera sér
því ekki grein fyrir að
þeir eru í raun að greiða
oft fyrir sama hlutinn.
Einn tilgangur þessa
fundar yfirmanna Int-
erpol-skrifstofa er að
vekja athygli á þessu.
Allir hafa það að leið-
arljósi að beijast gegn
glæpum. Við eigum hins vegar að
nýta sem best þá fjármuni, sem
fara til baráttunnar, en ekki kasta
peningum skattborgaranna út um
gluggann,“ sagði Herman Heijer-
man, yfirmaður Evrópuskrifstofu
Interpol.
Litháar byrjuðu
frá grunni
Aurelijus Racevicius er yfirmaður
Interpol-skrifstofunnar í Litháen.
Hann sagði að lögreglan þar í landi
hefði nánast þurft að byija frá
grunni árið 1990. Litháen varð fyrst
Eystrasaltsríkjanna til að lýsa yfir
sjálfstæði frá Sovétríkjunum árið
1990, en Moskvustjórnin viður-
kenndi ekki fullt sjálfstæði landsins
fyrr en í september 1991.
■ „Við komum lögreglunni á lagg-
irnar í desember 1990. Við þurftum
Fjársóun
vegna van-
þekkingar
Herman Aurelijus
Heijerman Racevicius
HÖFUÐSTÖÐVAR alþjóðalögreglunnar
Interpol í frönsku borginni Lyon.
að byija alveg upp á nýtt, allt frá
því að gera nýja einkennisbúninga,“
sagði Racevicius. „Það var þó ekki
minnstur vandinn að breyta hugar-
fari lögreglumannanna, sem margir
höfðu áður starfað innan herlög-
reglunnar. Þegar Rússarnir fóru
hurfu um leið 35% allra yfirmanna
herlögreglunnar á brott, en enn er
fjórðungur Iögreglumanna í Litháen
fyrrverandi herlögreglumenn.
Gagnabankar, sem lögreglan tók
við, nýttust heldur ekki nema að
takmörkuðu leyti, því þeir höfðu
verið byggðir upp með það fyrir
augum að kúga almenning og þjóna
yfírvöldum, en ekki til að upplýsa
sakamál, hvað þá þjóna almenn-
ingi.“
Rússneska mafían og útbreiðsla
starfsemi hennar í Evrópu hefur
verið töluvert í fréttum. Racevicius
hafnar því að Rússamir ráði lögum
og lofum í undirheimum Litháens.
„Um allan heim er að fínna skipu-
lagða glæpastarfsemi, en við eigum
fullt í fangi með innlenda glæpa-
menn. Þeir sjá líka til þess að rússn-
eska mafían nái ekki fótfestu. Lög-
reglunni tekst líka vel að spoma
við því, enda þekkjum við vinnu-
brögð rússnesku glæpamannanna.
Þessi ■ vandi, útbreiðsla rússnesku
mafíunnar, er því meiri í löndum
eins og Þýskalandi, þar sem menn
vita ekki alveg hvernig á að bregð-
ast við.“
Óttast hagnað
glæpamanna
Sú skipulagða glæpastarfsemi,
sem Litháar þurfa helst að kljást
við, er áfengissmygl og
smygl á stolnum bílum
frá vestri austur til
Rússlands. „Við áætlum
að glæpamenn hagnist
um 30-40 milljónir
bandaríkjadala á ári [2-3 milljarða
króna] á þessari smyglstarfsemi.
Við höfum ekki mestar áhyggjur
af áfenginu eða bílunum sem slík-
um, heldur óttumst við að þessi
hagnaður geri glæpamönnum kleift
að fara út á aðrar brautir, til dæm-
is fíkniefnasmygl. Þá er mjög mikil
eftirspurn eftir bandaríkjadölum og
þýskum mörkum, svo peningafölsun
eykst hröðum skrefum. Fíkniefna-
smygl og peningafölsun eru glæpir,
sem hafa mjög eyðileggjandi áhrif
á samfélagið og því verðum við að
kappkosta að kæfa slíkt í fæðingu.
Núna er fíkniefnanotkun lítil í Lit-
háen og eingöngu einstaklingar sem
standa að smávægilegu smygli, en
það gæti breyst hratt. í Rússlandi
er mikil eftirspurn eftir fíkniefnum,
sérstaklega kókaíni og því viðbúið
að reynt verði að smygla því í stór-
um stíl í gegnum Litháen. Á móti
kemur svo, að í Vestur-Evrópu eru
vopn seld háu verði og þau er hægt
að fá ódýrt í Rússlandi."
Racevicius sagði að Litháen hefði
verið fyrst fyrrverandi Sóvétlýð-
velda til að ganga til liðs við Inter-
pol. „Alþjóðalögreglan er gluggi
okkar að umheiminum og hvergi
er betri upplýsingar að fá um
glæpastarfsemi. Stærstu glæpa-
samtökin starfa um allan heim, svo
þjóðum er nauðsynlegt að standa
saman í baráttunni gegn þeim.“
Mannréttindi brotin
í þágu rannsókna?
Stjórnvöld í Litháen styðja við
bakið á lögreglunni sem best þau
geta, að sögn Raceviciusar. „Þingið
setti sérstök lög til höfuðs skipu-
lagðri glæpastarfsemi og það má
ef til vill segja að lögin séu á mörk-
um þess að ganga gegn mannrétt-
indum. í þeim er kveðið á um, að
dómari geti úrskurðað menn í allt
að tveggja mánaða varðhald, ef
grunur leikur á að þeir tengist
skipulögðum glæpum. Þessi lög
voru sett árið 1993 og 85% lands-
manna studdu þau, samkvæmt nið-
urstöðum þjóðarat-
kvæðagreiðslu. í 90%
tilvika, þar sem lögun-
um er beitt, reynist unnt
að sanna sekt hinna
handteknu, en það er
auðvitað í tilfellum hinna sem menn
velta fyrir sér hvort réttlátt sé að
tilgangurinn helgi meðalið. Þingið
endurskoðar þessi Iög á 6 mánaða
fresti og gerir það næst núna í
mars. Það verða auðvitað miklar
umræður um málið, eins og alltaf
og ég get ekki spáð um hver niður-
staðan verður," sagði Aurelijus
Racevicius, yfirmaður Interpol-
skrifstofunnar í Litháen.
Frá kúgun til
þjónustu við
almenning
„Sýnir vonandi í verki
vilja þjóðanna til
frekara samstarfs“
Lars Emil Johansen,
formaður grænlensku
landstjómarinnar, og
Halldór Ásgrímsson
utanríkisráðherra undir-
rituðu í gær yfirlýsingu
þar sem staðfest var
samkomulag Grænlend-
inga og íslendinga um
loðnuveiðar frá því fyrr
í mánuðinum.
EG VONA að þessi undirritun
sýni í verki viljann til frek-
ara samstarfs þjóðanna,“
sagði Lars Emil Johansen,
formaður grænlensku landstjórnar-
innar í gær en hann og Halldór Ás-
grímsson utanríkisráðherra undirrit-
uðu í gær yfirlýsingu þess efnis að
ísland og Grænland hefðu staðfest
samning milli landanna um loðnuveið-
ar innan íslenskrar og grænlenskrar
lögsögu, sem gerð var í Nuuk, 20.
febrúar sl.
Samkvæmt samkomulaginu er
grænlenskum loðnuskipum heimilt að
veiða í lögsögu íslands allt að 8.000
lestir af loðnu af loðnukvóta íslands
á loðnuvertíð þeirri, sem lýkur í lok
apríl nk. Aðeins eitt grænlenskt skipt
er gert út til loðnuveiða úr þeim stofn-
um, sem samningurinn tekur til.
Á móti verður íslenskum loðnuskip-
um heimilt að veiða 8.000 lestir af
loðnu úr þeim kvóta sem kemur í hlut
Grænlands, á loðnuvertíð þeirri sem
hefst í júlí nk. Þá verður íslenskum
skipum heimilt að veiða allt að 8.000
lestir af heildarkvóta íslands, sunnan
64°30’N við Austur-Grænland en
samkvæmt gildandi samningi milli
Noregs, íslands og Grænlands um
nýtingu loðnustofnsins hafa loðnu-
veiðar verið íslenskum skipum óheim-
ilar á því svæði.
Johansen kvaðst ánægður með
samninginn, hann skapaði jafnvægi í
veiðunum, gæfi Grænlendingum
möguleika á að landa á íslandi, sem
væri mikilvægt, þar sem ekki væru
loðnubræðslur á Grænlandi.
Sagði Johansen yfírlýsinguna sem
undirrituð var í gær vera bráðabirgða-
samkomulag og að stjórnvöld vonuðu
að það yrði til þess að komist yrði
að bindandi samkomulagi um nýtingu
stofnanna á svæðinu sem deilt væri
um. Hann gerði hins vegar lítið úr
hversu ósamkomulagið risti djúpt. „Ef
við teljumst óvinir, þá er þetta þægi-
legasta óvinátta sem ég hefi kynnst,"
sagði Johansen brosleitur og bætti
því við að samskipti þjóðanna hefðu
hingað til snúist allt of mikið um fisk.
Von um uppbyggilegri
samskipti
Löndin hafa ekki aðeins deilt um
loðnuveiðar en Davíð Oddsson forsæt-
isráðherra staðfesti í gær að ákveðið
hefði verið að hefja samninga um fisk-
veiðar á Reykjaneshrygg utan 200
mílnanna og veiðar við miðlínu, norð-
vestur af íslandi.
„Ég vona að við getum nú farið
að nota tíma okkar, orku og sköpun-
argáfu til að styrkja samvinnu Græn-
lands og íslands á ýmsum sviðum,
t.d. hvað varðar menningu, ferðamál
og markaðsmál," sagði Johansen.
Minntist hann á möguleikann á sam-
vinnu á sviði ferðamála, þar sem er-
lendir ferðamenn, sem kæmu til ís-
lands og Grænlands, sæktust eftir
svipuðum hlutum. Þá nefni Johansen
sem dæmi að Grænlendingar hefðu
áhuga á að auka útflutning selaafurða
Morgunblaðið/Þorkell
LARS Emil Johansen, formaður grænlensku landsstjórnarinnar,
heimsótti forseta Íslands, Ólaf Ragnar Grímsson og eiginkonu
hans, Guðrúnu Katrínu Þorbergsdóttur, á Bessastaði á fimmtudags-
morgun.
Morgunblaðið/Ásdís
HALLDÓR Ásgrímsson utanrikisráðherra og Lars Emil Johansen
undirrita yfirlýsingu þess efnis að ísland og Grænland hafi stað-
fest samning milli landanna um loðnuveiðar innan íslenskrar og ^
grænlenskrar lögsögu.
til íslands, kjöts og skinna. Það síðar-
nefnda ætti að koma sér vel hér á
landi, þar sem loftslag væri svipað.
„Halldór Ásgrímsson getur staðfest
ágæti selskinnsins," sagði Johansen.
Þá nefndi hann að íslendingar hefðu
selt Grænlendingum harðfisk í gegn-
um tíðina og ef til vill væri kominn
tími til að snúa því við. „Eg vona að
þjóðirnar verði opnar fyrir meiri sam-
vinnu og þá á ég ekki aðeins við
stjórnvöld, heldur einnig almenning í
löndunum tveimur."
„Við geymum hluta
sögu ykkar“
Lars _ Emil Johansen sagði sam-
skipti íslands og Grænlands hafa
aukist eftir að Grænlendingar fengu
heimastjórn árið 1979. ----------------------
Ósk Grænlendinga um Grænlending-
meiri samvinnu við Islend- ar geta landað
inga, væri ekki liður í sjálf- x ís|anHS
stæðisbaráttunni. „Hvort ____________________
Grænlendingar
sem lirænienaingar eru
hluti Danmerkur eða sjálfstætt ríki,
eru söguleg og landfræðileg tengsl á
milli landanna. Þið eruð afar meðvituð
um sögu ykkar og hluta hennar er
að fínna hjá okkur. Og auðvitað viljum
við byggja upp utanríkissamskipti
okkar, það getur ekki allt beðið þess
að við fáum sjálfstæði. Við getum
vissulega lært sitthvað af ykkur.“
Lars Emil Johansen segir að þrátt
fyrir að Danir fari enn með utanríkis-
mál fyrir hönd Grænlands, hafí Græn-
lendingar öðlast aukið vald á því sviði,
sem hafi komið skýrt í Ijós er þeir
gengu úr Evrópusambandinu árið
1985. Hann leggur hins vegar áherslu
á að þrátt fyrir að óánægju gæti með
hvernig Danir hafi farið með t.d.
Thulemálið, sé ósk Grænlendinga um
sjálfstæði ekki knúin áfram af nei-
kvæðum tilfinningum í garð Dana.
Demantar og olía
Grænlendingar veiða mest af rækju
og grálúðu en Johansen sagði lands-
menn eiga von á því að þorskurinn
léti sjá sig að nýju. Ekki stæði hins
vegar til að stökkva til og gera róttæk-
ar breytingar á fískveiðum, þegar
þorskur gæfist að nýju. Hvalveiðar
væru línudans á milli þess að gefa..
ekki eftir gagnvart umhverfísverndar-
samtökum en ganga þó ekki of langt
í sókninni. Selveiðar væru vonandi
_________ atvinnuvegur í sókn, sér-
staklega með tilliti til út-
flutnings.
Grænlendingar binda
miklar vonir við olíuleit og
málmvinnslu, eins og áður
hefur komið fram. Norska olíufélagið
Statoil og fleiri félög hafa staðið að
olíuleit vestur af Grænlandi og lofar
hún góðu. Þá má nefna zink-vinnslu,
auk þess sem demantar hafa fundist.
Johansen hefur sýnt sérstakan
áhuga á alþjóðlegri ráðstefnu um hag-
ræn og pólitísk sjónarmið varðandi
hvalveiðar í Norður-Atlantshafi, sem
haldin verður að Hótel Loftleiðum í
dag, laugardag. Að eigin ósk mun
hann taka þátt í hringborðsumræðum
um framtíð hvalveiða ásamt fulltrúum
ráðuneyta og hagsmunaaðila í lok ráð-
stefnunnar og hefjast þær kl. 16.15.