Morgunblaðið - 01.03.1997, Blaðsíða 60
60 LAUGARDAGUR 1. MARZ 1997
MORGUNBLAÐIÐ
MYNDBÖIMD/KVIKMYNDIR/ÚTVARP - SJÓNVARP
Meira fjör - Nýir þættir Steins
Armanns á Bylgjunni
Gríðarleg sam-
keppni en skaðar
ekki vinskapinn
► „ÞETTA verða Iétt-
ir og skemmtilegir
Iaugardagsþættir.
Þessi fyrsti þáttur
verður svolitið litaður
af rúmlega klukku-
stundar útsendingu
frá Irlandi þar sem
hljómsveitin U2 er
með biaðamannafund
til að kynna nýja plötu
sína.“
Það er sem sagt ekk-
ert grín þar á ferðinni?
„Nei, nei. Þeir eru
að senda beint út um
allan heim og meðal
annars í þáttinn
minn,“ sagði leikarinn,
grínistinn og útvarpsmaðurinn
Steinn Armann Magnússon sem
Steinn Armann
Magnússon
Davíð
þætti,
sest við hþ'óðnemann á
Bylgjunni í dag í fyrsta
skipti þegar nýr þáttur
hans, Meira fjör, fer í
loftið kl. 12. Hann seg-
ir þáttinn verða með
írskum blæ í tilefni af
beinu útsendingunni
en hann segir að í
hverjum þætti verði
tekið fyrir ákveðið
þema. Aðstoðarmaður
hans er tónlistarmað-
urinni Hjörtur Hows-
er.
Athygli vekur að
Steinn mun með þætt-
inum hefja samkeppni
við fóstbróður sinn,
Þór Jónsson, sem er með
ásamt Jakobi Bjarnari Grét-
HLJÓMSVEITIN U2 á ýmsum skeiðum ferils síns.
Morgunblaðið/Golli
arssyni, á Rás 2 á laugardögum.
„Þættirnir skarast í um einn
klukkutíma. Ég er frá 12-16 en
þeir byija klukkan 15. Þetta verð-
ur gríðarleg samkeppni en ég
held að það muni ekki hafa nein
áhrif á vinskap okkar. Minn þáttur
verður með eilítið öðru sniði, hann
verður meiri tónlistarþáttur þó
maður verði með innskot hér og
þar. Þátturinn dregur nafn sitt
af laginu Meira fjör með harmon-
ikkuleikaranum Bjarna Böðvars-
syni. Ég vil að slagorð þáttarins
sé: Ekki bara harmonikkuþáttur."
Þetta er semsagt enginn grófur
brandaraþáttur í anda Radíus?
„Það verður ekkert leikið efni
þó einstaka spaug verði í bland.
Þeir verða ekki grófir, þó maður
geti ekki lofað neinu því maður
getur ekki alveg breytt um per-
sónuleika þó maður sé kominn upp
á Bylgju.“
U2 í beinni útsendingu
frá Dublin
M Y N D V A K I
^ Gætið þess að klukkan í
myndbandstækinu sé rétt stillt.
í
i
Munið að setja tóma
í tækið og að
sambandi.
Kennitölur
verða birtar á
Morgunblaðsins
Sláðu inn kennitölu dagskrárliðar
sem þú ætlar að taka upp.
Tækið fer sjálfkrafa í gang einni mínútu
fyrir auglýstan upphafstíma og hættir
4 mínútum eftir að dagskrárliðnum á að
Ijúka samkvæmt dagskrá.
Tækin með Myndvaka-
búnaði eru yfirleitt merkt
ShowView eða VideoPlus+.
Réttar rásir í myndbandstækinu: Sjónvarpið:
rás 1
Stöð 2: Sýn:
rás 2 rás 3
Myndvaki
á morgun
► MORGUNBLAÐIÐ byijar á
morgun að birta sérstakar
kennitölur með dagskrá
þriggja íslenskra sjónvarps-
stöðva, Sjónvarpsins, Stöðvar
2 og Sýnar. Tölurnar auðvelda
mörgum sjónvarpsnotendum
að stilla myndbandstæki sín
fyrirfram til að taka upp þætti
úr sjónvarpi.
Þessi tækni hefur fengið
heitið Myndvaki á íslensku en
gengur undir ýmsum nöfnum
erlendis, til dæmis ShowView
í Mið-Evrópu og VideoPIus+
í Bretlandi. Mörg nýleg mynd-
bandstæki sem seld hafa verið
hér á landi undanfarin ár eru
búin þessari tækni og auð-
kennd ýmist með merkjum
ShowView eða VideoPlus+.
Réttar rásir
Morgunblaðið hefur fengið
einkaleyfi hér á landi til að
birta þessar tölur, sem
sérstakur tölvubúnaður
reiknar út frá auglýstri
dagskrá og rásum
sjónvarpsstöðvanna. Mikilvægt
er að sjónvarpsstöðvunum sé
raðað rétt í minni
myndbandstækisins.
Sjónvarpið á að vera á rás 1,
Stöð 2 á rás 2 og Sýn á rás
3. Rásanúmer Sýnar breyttist
frá því sem sagt var hér í
blaðinu síðastliðinn sunnudga
í kjölfar þess að Stöð 3 hætti
útsendingum.
Þegar búið er að stilla
klukku myndbandstækisins og
raða rásunum rétt í minnið
nægir að slá kennitölu
dagskrárliðar inn í
myndbandstækið til að taka
hann upp. Upptakan hefst þá
einni mínútu fyrir auglýstan
sýningartíma og lýkur fjórum
mínútum eftir að
dagskrárliðnum á að ljúka
samkvæmt auglýstri dagskrá.
Ef hætta er á að dagskráin
dragist á langinn er yfirleitt
hægt að lengja
upptökutímann.
, Bylgjan fékk einkaleyfi á
Islandi á beinni útsendingu
hljómsveitarinnar U2 um allan
heim þar sem húp kynnir nýja
plötu sína, Pop. Utsendingin
verður í þætti Steins Armanns
og hefst klukkan eitt og
stendur í einn klukkutíma.
„Þeir munp silja við hljóðnema
í Dublin á Irlandi og segja frá
plötunni og leika lög af henni.
Eg veit ekki til þess að nein
hljómsveit hafi kynnt plötu
sína með þessum hætti um alla
heimsbyggðina áður,“ sagði
Hallur Helgason á Bylgjunni í
samtali við Morgunblaðið.
MYNDBÖND
SÍÐUSTU VIKU
Steinakast
(Sticks and Stones) k'h
Kazaam
(Kazaam) kk
í blíöu og stríöu
(Faithful) + k'h
Billy slær í gegn
(Billy’s Holiday) k k
Jane Eyre
(Jane Eyre) k k
Ed
(Ed) 'h
Dauði og djöfull
(Diabolique) k
Barnsgrátur
(The Crying Child) k
Riddarinn á þakinu
(Horseman on the Roof)
kkk
Nær og nær
(Closer and Closer) k k'h
Til síðasta manns
(Last Man Standing) k k'h
Geimtrukkarnir
(Space Truckers) k k
Börnin á akrinum
(Children of the Corn) k
Powder
(Powder) kk'h
Innrásin
(The Arrival) k k
Umsátrið á Rubyhryggn-
um
(The Siege at Ruby Ridge)
k k
Draumur sérhverrar
konu
(Every Woman’s Dream)
*k'h