Morgunblaðið - 01.03.1997, Blaðsíða 52
52 LAUGARDAGUR 1. MARZ 1997
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
I DAG
Poppmessa og
sinfóníutónleikar
í Neskirkju
DAGSKRÁ sunnudagsins í Nes-
kirkju er með fjölbreyttasta móti
að þessu sinni en dagurinn er jafn-
framt æskulýðsdagur þjóðkirkjunn-
ar.
Um morguninn kl. 11 er barna-
guðsþjónusta þar sem gestir frá
Hjálparstofnun kirkjunnar og
Kristniboðssambandinu kynna
hjálpar- og kristniboðsstarf. Eftir
hádegi kl. 14 er poppmessa sem að
miklu leyti er í umsjá væntanlegra
fermingarbama. Þar verður m.a.
boðið upp á gospeltónlist og á eftir
verða fermingarbörnin með kaffí-
sölu í safnaðarheimili kirkjunnar.
Síðdegis þennan dag kl. 17 eru
tónleikar Sinfóníuhljómsveitar
áhugamanna. Á efnisskránni er sin-
fónía nr. 6 í F-dúr (Sveitalífssinfón-
ían) eftir Beethoven og píanókon-
sert nr. 1 eftir Mendelsohn. Einleik-
ari er Anna Guðný Guðmunsdóttir
en stjómandi er Ingvar Jónasson.
Aðgangseyrir er 1.000 kr. en frítt
er fyrir börn, nemendur og eldri
borgara. Hljómsveitin hefur haft
aðstöðu til æfinga og hljómleika-
halds í kirkjunni undanfarin misseri.
Um kvöldið kl. 20.30 er fundur
í hjónastarfi Neskirkju. Þar ræðir
Eiísabet Berta Bjarnadóttir, félags-
ráðgjafi hjá fjölskylduþjónustu
kirkjunnar, um ýmsar áleitnar
spumingar varðandi ást og tilfinn-
ingar í sambúð og hjónabandi. Hún
veltir því einnig fyrir sér hvemig
blása megi lífí í glæðurnar ef tilfinn-
ingahitinn er farinn að dofna. Fund-
urinn er í safnaðarheimili kirkjunnar
og er öllum opinn.
Fundur um arangur
Reykjavíkurlistans
REGNBOGINN, samtök um
Reykjavíkurlista, heldur opinn fund
um árangur Reykjavíkurlistans í
borgarstjóm þriðjudagskvöldið 4.
mars á Kornhlöðuloftinu. Fundur-
inn hefst kl. 20.30.
Framsögumenn verða: Ingibjörg
Sólrún Gísladóttir, borgarstjóri:
Hverju hefur Reykjavíkurlistinn
breytt? Umskipti í stjórnsýslu -
nýjar áherslur í borgarstjórn. Guð-
rún Ágústsdóttir, borgarfulltrúi:
Nýtt aðalskipulag - hugmynda-
fræði og ásteytingarsteinar. Guð-
rún Ögmundsdóttir, borgarfulltrúi:
Velferðarþjónusta borgarinnar - ný
vandamál, nýjar lausnir. Sigrún
Magnúsdóttir, borgarfulltrúi:
Breytingar í skólamálum og fram-
tíðarsýn Reykjavíkurlistans.
Framsögumenn svara fyrirspum-
um eftir hveija framsögu og að
þeim loknum verða almennar um-
ræður. Kaffígjaid er 500 kr. Fund-
arstjóri verður Stefán Jón Hafstein,
ritstjóri.
og ferskt hrossakjöt
Vefurgamalt saitkjöt í þriggja lítra fötum
Hann Benni hinn kjötgóði er með nýtt og ferskt hrossakjöt um helgina. Þú
getur valið um snitsel, lundir, file og fleira á frábæru verði. Hróður
hangikjötsins hans Benna berst um allan heim og það fæst líklega hvergi
betra hangikjöt í fermingarveisluna en hjá Benna. Líttu bara á verðið!!!!
g)Silfur í antikbásnum
Silfurveisla hjá Þorvaldi m.a. frá Georg jensen
Hann Þorvaldur er með einn fallegasta antikbásinn í Kolaportinu og selur
bæði húsgögn og smærri muni. Hann er yfirleitt með mikið úrval af silfúr-
munum, en þessa helgi verður hann með meira úrval en nokkru sinni fyrr.
Það er m.a. að finna fallega silfurmuni frá George Jensen. Láttu sjá þig.
ÖSídustu snjóbrottin
Verðiö (kr. 19900 með bindrngum) sló í gegn
Loksins kom að því að fólk áttaði sig á gæðunum og lága verðinu á
kanadísku snjóbrettunum. Þau runnu út um síðustu helgi og um þessa helgi
seljum við síðustu snjóbrettin á þessu einstaka og frábæra verði. Það er því
eins gott aó mæta snemma og tryggja sér snjóbretti á sprengjuverði.
DHvalkjöt um helgina
Glæný Rauðspretta, fersk Tindaskata og m.fl.
Fiskbúðin Okkar er allar helgar með úrval af venjulegum og óvenjulegum
fiski á góðu verði. Um þessa helgi er lögð áhersla á Hvalkjöt, glænýja
Rauðsprettu og ferska Tindaskötu. Einnig hrogn og lifur, kútmaga tilbúna í
pottinn, Steinbít, Karfa, siginn fisk, sósurétti, lúxusfiskibollur og m. fleira.
«2 KOIAPORTIÐ
Opiðlaugardagaogsunnudcigakl.11-17
SKAK
Umsjón Mnrjjeir
Pétursson
STAÐAN kom upp á alþjóð-
lega mótinu á Bermúda um
daginn. Alexandre Lesiege
(2.500) frá Kanada, hafði
hvítt og átti leik,
en Svíinn Johan
Hellsten (2.485)
var með svart.
17. Bxh6! - f6
(Eða 17. — gxh6
18. Hg3+ - Kh8
19. Dxf7 - Bc5+
20. Khl - De7 21.
Dg6 - Be3 22.
Hxe3! — Dxe3 23.
f6 og hvítur vinnur)
18. Bf4 - Ha8 19.
Dh7+ - Kf7 20.
Dg6+ — Kg8 21.
Hh7 - Bd7 22.
Dh5 - Bc5+ 23.
Khl - Kf8 24.
Dg6 og svartur gafst upp.
Deildakeppni Skáksam-
bands Islands lýkur í dag
í Skákmiðstöðinni, Faxafeni
12. Sjötta umferðin hefst
kl. 10 fyrir hádegi og sú
sjöunda og síðasta kl. 17.
Hraðskákmót íslands
1997 fer fram á morgun kl.
14 á sama stað.
og vinnur.
HVÍTUR leikur
HOGNIHREKKVISI
Ftá* hi/aböi. wmdeonl kemar þu ? "
VELVAKANDI
Svarar í síma 569 1100 frá 10-12 og 14-16
frá mánudegi til föstudags
Netfang: laugaÞmbl.is
Hvar er umbun
áskrifenda
Stöðvar 3?
VIÐ hér á heimilinu höf-
um verið skráðir notend-
ur Stöðvar 3 síðan um
jól 1995. Við höfum verið
krafm um afnotagjald,
kr. 1990 á mánuði, sl. 8
mánuði og höfum innt
það af hendi í þeirri trú
að afruglaramir væru
rétt að koma og okkur
bæri því að greiða um-
samda upphæð.
í fréttum af kaupum
Stöðvar 2 á Stöð 3 hefur
hins vegar komið fram
að harla fáir af skráðum
notendum hafi greitt af-
notagjöldin, að ekki sé
nú talað um alla hina sem
hafa haft búnað til að sjá
ótruflaðar útsendingar
Stöðvar 3 allan þann
tíma sem hún hefur verið
í loftinu.
í gær mátti skilja á
nýjum eigendum Stöðvar
3, að þeir hefðu hug á
að umbuna þessum fáu
notendum Stöðvar 3 sem
greitt hafa afnotagjöldin
af stöðinni.
Harla kát hringdum
við því í áskriftarsíma
Stöðvar 2 til að spyija
hvað áskrift að stöðinni
kostaði okkur og ekki
stóð á svari. Tilboðið
gengur út á að skilvísir
notendur Stöðvar 3 geta
komið til þeirra, sótt hjá
þeim afraglara og fengið
kynningaráskrift í mán-
uð, þ.e. til 10. apríl nk.
Gjaldið fyrir þessa kynn-
ingaráskrift er kr. 1.660
kr. sem mun vera hálft
afnotagjald stöðvarinn-
ar.
Við voram ánægð með
Stöð 3 og sjáum ekki
ástæðu til að kvarta yfír
því að hafa þurft að
borga þótt segja megi að
við höfum verið höfð að
hálfgerðum fíflum að
greiða fyrir afnot sem
flestir aðrir fengu ókeyp-
is. Aftur á móti fínnum
við að óbreyttu ekki hjá
okkur neina hvöt til að
þakka nýjum eigendum
fyrir umbun fyrir skilvís-
ina.
Áskrifendur Stöðvar 3.
Tapað/fundið
Lyklar fundust
BRÚN ieðurkippa, merkt
Camel, með bíllykli og
húslykli, er í óskilum.
Upplýsingar í síma 553
4307.
Barnaskór á
Landspítalanum
LÍTILL barnaskór var
skilinn eftir á kvenna-
deild Landspítalans, við
aðalinngang og er hægt
að vitja hans þar.
Dýrahald
Síamshögni óskast
Síamshögni, af gamla
kyninu óskast fyrir læðu.
Upplýsingar í síma 552
2809 eftir kl. 18.
Pennavinir
ÁTJÁN ára sænsk stúlka
með áhuga á bókmennt-
um, tónlist, kvikmyndum,
ferðalögum o.fl.:
Jessica Dymen,
Strákvágen 23,
183 40 TSby,
Sweden.
BELGÍSKUR 35 ára karl-
maður sem safnar póst-
kortum með landslags- og
borga- og bæjarmyndum:
Luc Vanbegin,
Desch uyffeleerdreef
61,
B-1780 Wemmel,
Belgium.
FIMMTÁN ára japönsk
stúlka með margvísleg
áhugamál:
Hitomi Watanabe,
2-14-12 Kameda,
Koriyama-shi,
Fukushima-ken,
963 Japan.
TUTTUGU og fjögurra
ára Ghanastúlka með
áhuga á tónlist, ferðalög-
um, bókmenntum og póst-
kortum:
Chrissie Myles-
Abadoo,
P.O. Box 49,
Oguaa Town,
Ghana.
SÆNSKUR piltur sem
safnar merkjum og minja-
gripum knattspyrnufé-
laga vill komst í samband
við íslenska safnara með
skipti í huga:
Lars Iredahl,
SödervSgen 36,
183 64 TSby, Sweden.
Víkveiji skrifar...
FJÖLMIÐLAR á Vesturlöndum
hafa tekið kollsteypu vegna
nýlegra frétta af einræktun kindar-
innar Dolly. Menn hafa gefið
ímyndunaraflinu lausan tauminn,
fyllst hryllingi yfir hættunni á því
að vondir menn ákveði að fjölfalda
harðstjóra á borð við Hitler eins
og gert var í kvikmyndinni „Boys
from Brazil“, að auðugir furðufugl-
ar vilji láta margfalda sig svo að
þeir geti lifað að eilífu eða að
óvandað fólk geti látið draum sinn
um hreinan kynstofn rætast. Og
er þá fátt eitt nefnt.
Varað hefur verið við hræðslu-
áróðri í kjölfar fréttanna af Dolly
og hvatt til þess að menn kanni
gaumgæfílega allar hliðar málsins,
áður en lög og reglur verða settar
um það. Ekki verður hins vegar
horft fram hjá því að Dolly er stað-
reynd og siðfræðin er eins og svo
oft áður, mörgum skrefum á eftir
vísindunum. Víkveiji hefur oft
furðað sig á því hversu lítil áhersla
hefur verið lögð á siðfræði vísinda,
á sama tíma og stórstígar framfar-
ir hafa orðið á vísindasviðinu, ekki
síst í líffræði. Þrátt fyrir að vísind-
in geri konum kleift að eignast
börn, þótt þær séu komnar á sjö-
tugsaldur, og að fá leigumæður til
að ganga með fósturvísa sína hefur
siðferðilegum hliðum mála sem
varða t.d. getnað ekki verið svarað
nema að hluta til. Hart er deilt á
vísindamenn fyrir að bregða sér í
hlutverk guðs, skaparans, en ekki
virðist nóg að gert til að koma í
veg fyrir að óvandaðir menn nýti
sér slíka þekkingu. Ekki nægir að
treysta siðferðiskennd vísinda-
manna, brengluð siðferðiskennd
eins eða tveggja getur nægt til
þess að stigin verði skref sem aldr-
ei verði aftur tekin.
Víkveiji leyfir sér að vona að
tilvist Dollyar verði til þess að
menn gefi siðferðilegum hliðum
vísinda meiri gaum en áður til þess
að þeim gefíst kostur á að átta sig
á því hvað er í húfi áður en þeir
mæta nágrannanum einræktuðum
í Hagkaupi. Þar með er hann ekki
að segja að vísindamenn skorti sið-
ferðisvitund, heldur einfaldlega að
hvetja til þess að menn velti fyrir
sér, æsinga- og fordómalaust, hvar
þeir dragi mörkin hvað möguleika
í vísindum varðar, að fræðimenn
verði í auknum mæli fengnir til að
fjalla um þessi mál, fyrr en raunin
hefur verið, og að stjómvöld bregð-
ist fyrr við þegar tímamótafréttir,
sbr. einræktun Dollyar, berast.
xxx
VIGSLA hins glæsilega menn-
ingarhúss á Grænlandi
minnir menn enn einu sinni á mikil-
vægi þess að tónlistarhús rísi hér
á landi. Það hlýtur að vera íslend-
ingum hvatning að horfa til þess
af hversu miklum myndarbrag
Grænlendingar stóðu að byggingu
hússins, þrátt fyrir bágan efnahag
og töluverða andstöðu heimafyrir
fyrst í stað. Ekki verður annað séð
en að mikill vilji sé fyrir því að slíkt
hús rísi hér sem fyrst, teikningar
að því liggja fyrir, svo og staðar-
val. Enn er deilt um hvers konar
tónlistarstarfsemi húsið eigi að
hýsa en það væri mikill skaði ef
það verður til þess að seinka bygg-
ingu hússins. Reykjavík verður
menningarborg Evrópu árið 2000.
Vonandi geta íslendingar státað
af tónlistarhúsi um aldamótin, eða
að minnsta kosti fagnað því að
bygging þess sé hafin.