Morgunblaðið - 13.03.1997, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 13.03.1997, Qupperneq 2
2 FIMMTUDAGUR 13. MARZ 1997 MORGUNBLAÐIÐ BOÐAÐAR VINNUSTÖÐVANIR Framsókn og Dagsbrún v. félagsmanna hjá Mjólkursamsölu 9. mars Framsókn og Dagsbrún v. félagsmanna hjá EMMESS 9. mars Félag járniðnaðarmanna v. féiagsmanna hjá Eimskip 10. mars Félag jámiðnaðarmanna v. félagsmanna hjá Samskip 12. mars Dagsbrún v. félagsmanna hjá Samskip 12. mars Dagsbrún V. félagsmanna hjá Löndun 12. mars Framsókn og Dagsbrún v. féiagsmanna hjá Eimskip 12. mars Bíliðnafélagið V. félagsmanna hjá Eimskip 12. mars Rafiðnaðarsamband íslands v. félagsmanna hjá Eimskip 12. mars Rafiðnaðarsamband íslands v. félagsmanna hjá Samskip 12. mars Hlíf v. félagsmanna hjá Eimskip í Hafnarfirði 13. mars Hlíf v. bensínafgreiðslumanna 17. mars Rafiðnaðarsamband íslands v. félagsmanna hjá RARIK 17. mars Dagsbrún V. félagsmanna við bensínafgreiðslu 17. mars Rafiðnaðarsamband (slands v. féiagsmanna hjá rikinu 20. mars Samband íslenskra bankamanna 20. mars Úrslit kosninga í dag um fyrstu allsheijarverkföll 22. og 23. mars Sermal Dags- brúnar rædd á löngum fundum VIÐRÆÐUR hófust á nýjan leik í gær milli verkalýðsfélaganna Dags brúnar/Framsóknar og vinnuveit- enda hjá ríkissáttasemjara og var unnið í átta vinnuhópum að ýmsum sérkjaramálum á löngum sáttafund- um. Viðræður stóðu fram eftir kvöldi en fremur lítið miðaði í samkomu- lagsátt, skv. upplýsingum blaðsins. Ákveðið var að halda þeim áfram í dag. Verkfall VSK myndi ná til Keflavíkurflugvallar Upp úr hádegi í dag eiga niður- stöður úr atkvæðagreiðslu um 1.850 félagsmanna í Verkalýðs- og sjó- mannafélagi Keflavíkur að liggja fyrir um boðun ótímabundins alls- heijarverkfalls sem hæfist á mið- nætti 22. mars. Yrði það fyrsta allsheijarvinnu- stöðvunin í yfirstandandi kjaradeilu og næði hún yfir allt Suðurnesja- svæðið, þ.á m. til Keflavíkurflugvall- ar, en þar myndi m.a. olíuafgreiðsla við flugvélar og ýmis önnur þjónusta við millilandaflug stöðvast. I kvöld eða fyrramálið eiga niðurstöður að liggja fyrir úr atkvæðagreiðslu Dagsbrúnar, Framsóknar og Hlífar um boðun allsheijarverkfalls á mið- nætti 23. mars. í gærkvöldi lauk talningu í at- kvæðagreiðslu hjá Verkaiýðsfélag- inu Baldri á ísafirði um boðun verk- falls frá og með 2. apríl hafí samn- ingar ekki náðst. 170 félagar af 318 greiddu atkvæði eða 53,46%. 87% sögðu já en 11,17% sögðu nei. At- kvæðagreiðslur standa yfir eða eru í þann mund að hefjast hjá fjölda annarra félaga innan VMSÍ um boð- un allsheijarverkfalla 2. apríl. Staðið fast við krónutöluhækkanir Fulltrúar Verkamannasambands- ins komu til fundar með viðsemjend- um hjá sáttasemjara í gær og verður viðræðum haldið áfram í dag en fátt tíðindavert gerðist á fundinum í gær. Björn Grétar Sveinsson, formaður VMSÍ, segir að afstaða formanna félaganna úti um landið, sem komu saman í gær, sé mjög hreinskiptin og VMSÍ standi m.a. fast við kröfu- gerð sína um krónutöluhækkanir launa. Bankamenn héldu áfram viðræð- um sínum við samninganefnd bank- anna í gær og stóðu fundir fram eftir kvöldi. Niðurstaða lá ekki fyrir í gærkvöldi og var staðan óljós skv. upplýsingum sem fengust hjá deilu- aðilum skömmu fyrir miðnætti. Ef samkomulag næst ekki skal sátta- nefnd leggja fram sáttatillögu á morgun sem bera þarf undir at- kvæði á fjórða þúsund bankamanna. í gær fóru einnig fram viðræður á milli Samiðnar og viðsemjenda hennar. FRÉTTIR Sjópróf Dísarfells fyrir lukt- um dyrum til hlífðar vitnum SJÓPRÓF hófust í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær, þar sem rann- sakað er hvað varð til þess að Dísar- fellið sökk miðja vegu milli íslands og Færeyja aðfaranótt sunnudags. Sjóprófin voru haldin fyrir luktum dyrum. Þegar þinghald var sett í gær- morgun tilkynnti Jón Finnbjömsson, formaður dómsins, að hann yrði við beiðni forráðamanna Samskipa um að þinghaldið yrði fyrir luktum dyr- um. Jón vísaði þar til ákvæða laga um meðferð opinberra mála, þar sem undanþágur eru veittar frá þeirri meginreglu að þinghöld skuli háð í heyranda hljóði. Beiðni Samskipa laut að því að þinghald yrði lokað til hlífðar vitnum og þar sem rann- sókn málsins stæði og hætta væri á sakarspjöllum. Gjaldkeri Sjómannafélags Reykjavíkur, Birgir Björgvinsson, fékk heimild til að vera viðstaddur sjóprófín á meðan skýrsla var tekin af skipveijum. „Þetta áttu að vera lokuð réttarhöld, en þarna var for- stjóri Samskipa og fjöldi lögfræð- inga og framkvæmdastjóra hjá skipafélaginu. Okkur fannst því eðli- legt að fulltrúi Sjómannafélagsins væri einnig viðstaddur." Morgunblaðið/Ásdís LÖGMENNIRNIR Jón Finnsson frá Samskipum, Gunnar H. Sigurðs- son frá Vátryggingafélagi íslands, Kristinn Ingólfsson frá Siglinga- stofnun og Kristján Guðmundsson frá rannsóknamefnd sjóslysa skoða teikningu af Dísarfelli áður en sjópróf hófust í gærmorgun. Birgir sagði að þrátt fyrir að því væri borið við, að réttarhöldin væru lokuð til að vernda skipveijana, þá hefðu skipveijar ekki verið spurðir álits. „Ég var að tala við tvo sem komu fyrir réttinn í morgun og þetta var aldrei nefnt við þá.“ Teknar voru skýrslur af þeim úr áhöfn Dís- arfells sem komust lífs af í sjópróf- unum í gær og verður því haldið áfram í dag. Sjóprófín verða haldin fyrir opnum dyrum í dag. VSÓ, Verkfræðistofa Stefáns Ólafssonar, í Reykjavík hefur gert tölvulíkan að verksmiðjunni og stað- sett mannvirkin í landslaginu suður á Reykjanesi, í grennd við Hafnir. Bjartsýnir á magnesíum- verksmiðju á Reykjanesi Grindavík. Morgunblaðið. BJARTSÝNI ríkir meðal forráða- manna Hitaveitu Suðurnesja á að niðurstöður hagkvæmnisathugunar- innar vegna byggingar magnesíum- verksmiðju á Reykjanesi, sem kynna á 20. mars verði hagstæðar. Verk- smiðjunni hefur verið valinn staður norðan við Hafnarberg á Reykjanesi milli Sandvíkurtanga og Eyrarvíkur. Þar er vogur sem heitir Kópa og verður höfnin, sem fengið hefur vinnuheitið Sandhöfn, væntanlega byggð þar. Nýlega átti forstjóri Hitaveitu Suðurnesja, Júlíus Jónsson, fund með kanadískum fjárfestum, þar sem hann kynnti þeim verkefnið en áður hefur verið unnið við að fá fjár- festa að verkefninu í Evrópu og víð- ar. Enn er of snemmt að segja hveij- ar undirtektir verða enda tekur slík kynningarvinna langan tíma. Markaðshorfur eru taldar góðar á magnesíum og kemur þar til stór- aukin notkun þess í bílaframleiðslu í kjölfar nýrra staðla sem krefjast léttari bíla. 1-10% af hagnaðinum hugsanlega hingað FJÁRFESTING erlendra aðila í ens- ímvinnslu úr ljósátu mun skila tugum milljarða króna á ári í hagnað en íslenski þátturinn í vinnslunni, sem verður stjómað af Jóni Braga Bjama- syni prófessor, skilar hugsanlega frá 1-10% af heildarhagnaðinum við vinnsluna. Jón Bragi segir að íslend- ingar séu að hirða upp molana af veisluborði ensímtækninnar og skiln- ing stjómvalda skorti algjörlega. Jón Bragi segir að það að ensímið verði unnið úr ljósátu frá Suður- skautslandinu eigi sér sögulegar ástæður hjá enska fyrirtækinu. Þorskensím hugsanlega notað „Ljósátan er mun stærri þarna í suðurhöfum en við þekkjum hana, eða 4-5 sentímetrar að stærð. Farn- ir voru leiðangrar fyrir einum og hálfum áratug til suðurskautsins og þá var mikið hirt af ljósátu. Pólveij- ar, Norðmenn, Svíar og fleiri rann- sökuðu ensím úr Ijósátunni og þau þóttu mjög kröftug. Talað var um það að átan melti sjálfa sig hálfpart- inn ef hún væri látin standa. Sama má reyndar segja um loðnuna því ef hún er í átu getur hún melt gat í gegnum sig innan frá. Þarna eru á ferðinni þessi öflugu meltingarens- im í sjávarfingi," sagði Jón Bragi. Hann sagði að hérlendis hefði ver- ið ákveðið að einbeita sér að þorsk- ensímum af þeirri ástæðu að þorskur er helsti nytjafískur landsmanna og talið hentugt að vinna ensím úr hon- um úr slógi sem bærist á land. „Nú er að koma í ljós að þessi ensím eru öll skyld. Það er því allt eins líklegt að áður en yfir lýkur verði önnur ensím fyrir valinu hjá þessum erlendu aðilum, til dæmis þorskensím. Við erum núna á þró- unarstigi og þróunin fer fram hér á landi. Síðan verður þetta í til- raunavinnslu í sumar,“ sagði Jón Bragi. Fyrirtækið Norður hf. hefur ann- ast tilraunavinnslu á þorskensím- unum íslensku og notkun þeirra, eins og t.d. að roðfletta físk og gera súpu- kraft úr rækju. Jón Bragi segir að hugsanlega verði samið við Norður hf. að taka að sér vissa hluti í til- raunaensímvinnslu úr ljósátu. Hagnaðurinn þangað sem fjárfestingarnar koma frá Jón Bragi segir að enska fyrirtæk- ið sé ekki mjög stórt en afar öflugt áhættufjárfyrirtæki í lyfjaiðnaði. „Þegar maður kynnist aflinu á bak við það að koma einni slíkri afurð á markað, þ.e. rannsóknum, þróun varðandi vinnslu, öllu í sambandi við notkunina og eftirlit og fleira, sést vel hvað þarf til. Ef við íslendingar viljum njóta afrakstursins af okkar þróun verðum við líka að gera þessa hluti sjálfir. Hagnaðurinn fer þangað sem fjárfestingarnar koma frá. 600 þúsund krónur eða þar um bil í vís- indasjóðsstyrki duga hvergi til þegar fyrirtækin nota milljarða kr. í þróun- Vísindamenn sambærilegir við okkur í útlöndum fá 5-10 milljónir kr. á ári fyrir sérhvert afmarkað verk- efni,“ sagði Jón Bragi. Hann segir að íslendingar séu að glutra niður tækifærum á hveijuin degi og telur þá hafa bolmagn til slíkra fjárfestinga þótt þær geti auð- vitað reynst erfiðar. „Við eigum ekki einungis að gera auðveldu hlut- ina, á því hagnast menn ekki neitt. Hagnaðurinn af ensímtækninni get- ur numið milljörðum og tugum miHj' arða króna á ári. Við þurfum að fara að komast á þetta stig. En meðan ríkið leggur aðeins 200 milljónir kr. á ári í rannsóknarstyrki gerist ekki neitt,“ sagði Jón Bragi-
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.