Morgunblaðið - 13.03.1997, Qupperneq 13

Morgunblaðið - 13.03.1997, Qupperneq 13
MORGUNBLAÐIÐ FRETTIR FIMMTUDAGUR 13. MARZ 1997 13 Morgunblaðið/Ásdís ÞAU hafa undanfarið hálft ár haldið námskeið í árangursstjórn- un fyrir 14 stjórnendur Reykjavíkurborgar. Vilhjálmur Krist- jánsson og Guðfinna Bjarnadóttir. Stjórnunarnámskeið fyrir yfirmenn Reykjavíkurborgar Stefnt að bættri þjónustu og auk- inni hagkvæmni BORGARSTJÓRI og 13 aðrir lykil- stjórnendur borgarinnar hafa síðustu mánuði setið umfangsmikið nám- skeið í árangursstjórnun en tilgangur þess er að bæta stjórnun, auka hag- kvæmni í rekstri borgarkerfisins og bæta þjónustu við borgarbúa. Leiðbeinendur eru Guðfinna Bjarnadóttir og Vilhjálmur Kristjáns- son sem reka fyrirtækið LEAD Con- sulting í Bandaríkjunum. Byggir að- ferðafræði þeirra meðal annars á því að nýta þekkingu úr sálfræði og verkfræði við að setja fram áætlan- ir, endurbæta verkferla, leggja áherslu á mannlega þáttinn og mæla stöðugt árangurinn. „Síðasta hálfa árið höfum við unn- ið eina viku í mánuði með hópnum, sem hefur verið sérlega skemmtileg- ur og áhugasamur um verkið. Borg- in á sterka leiðtoga og við erum sann- færð um að breytingar til batnaðar eigi eftir að verða á stjórnkerfinu,“ segja þau Guðfinna og Vilhjálmur. Aður en þau komu til skjalanna höfðu forráðamenn borg- arinnar þegar hafið starf að umbótum í stjóm borg- arkerfisins. Málið var tekið upp að frumkvæði borgar- stjóra og vildu stjórnendur borgarinnar skilgreina á ný þjónustuhlutverk borgarinnar og nýta fjármuni betur. En hvaða atriði eru einkum tekin til skoðunar á nám- skeiði sem þessu? Miklar breytingar í stjórnun „Nánast öll atriði í stjórnkerfi borgarinnar og reynt er að ná fram umbótum á þeim. í því sambandi má nefna langtímaáætlanagerð, rammafjárhagsáætlun, starfs- mannamál, upplýsingamál og stöð- ugar umbætur. Miklar breytingar eiga sér stað í allri stjómun bæði hjá einkafyrirtækjum og í opinberri stjórnsýslu, menn eru að endurskipu- leggja stjómskipulag til að ná hag- kvæmni og menn vilja sjá mælanleg- an árangur. Þannig hefur meirihluti OECD-landanna tekið upp árangurs- stjórnun." Þau leggja áherslu á mikilvægi þess að taka upp aðferðir sem gefist hafa vel hjá öðrum aðilum og að skoða sérstaklega viðmið fyrir ár- angursríka stjórnsýslu. Lykilatriði em að stjórnun sé lýðræðisleg enda sé hún bæði árangursrík og hag- kvæm, að borgin skilgreini sig sem þjónustufyrirtæki fyrir borgarana, að fram fari endurskilgreining á samstarfí og samskiptum milli stofn- ana, að valdi sé dreift, að starfsmenn séu með í verkinu og að stöðugt sé hugað að umbótum og breytingum. Námskeiðið fer þannig fram að Guðfmna og Vilhjálmur þjálfa þátt- takendur í ákveðnum vinnubrögðum við nútímastjórnun, benda m.a. á hvaða tæki má nota til að forgangs- raða umbótaverkefnum og bæta þjónustu og mikil áhersla er lögð á það á námskeiðinu að byggja upp góðan liðsanda, svipað og hjá íþrótt- aliði. Hafa fundir oftast verið haldn- ir í Reykjavík en einu sinni var fund- að að Úlfljótsvatni og vom þá borg- arfulltrúar einnig teknir í hópinn. „Sterk liðsheild hefur myndast, menn eru samtaka og sammála um að láta verkið takast og til þess að svo megi verða er ekki síst mikil- vægt að virkja sem flesta samstarfs- menn. Það verða allir að vera meðvit- aðir um hvað er um að vera og taka þátt í því. Svona breytingar geta tekið þrjú til fimm ár og oft taka menn fimm skref áfram og þijú aft- urábak, þetta getur gengið svolítið upp og niður en aðalatriðið er að stjómendur tileinki sér þessa að- ferðafræði og séu tilbúnir að byggja á henni áfram." Guðfinna tók BA í sál- fræði og síðar doktorspróf í stjórnunarsálfræði. Vil- hjálmur lagði stund á nám í stjómmálafræði og tók meistarapróf í opinberri stjórnsýslu. „Ég naut þess í náminu í Bandaríkj- unum að búa yfir ákveðinni reynslu og hafa náð nokkrum þroska enda um þrítugt þegar við fórum út og öll reynsla og þekking kemur til góða í svona námi og starfi," sagði Vil- hjálmur. Guðfinna starfaði á verk- fræðistofu í tengslum við nám sitt þar sem sálfræðin og verkfræðin tvinnuðust saman og sagði hún að þau hefðu í framhaldi af því ákveðið að stofna til þessa fyrirtækis um árangursstjórnun. Um 70% verkefna í Bandaríkjunum „Um 70% verkefna okkar eru í Bandaríkjunum og verkefnið fyrir Reykjavíkurborg er það stærsta sem við höfum unnið hér heima. Við höf- um einnig unnið fyrir fjármálaráðu- neytið og Stjómunarfélagið og haldið einstök námskeið," segja þau Guð- finna og Vilhjálmur en þau eru í þeirri óskastöðu að næg verkefni eru framundan og jafnvel hafa þau þurft að vísa frá. „Við störfum oftast saman en fyr- ir kemur að við erum ein með nám- skeið. Þannig höfum við oftast getað annað verkefnunum og síðan höfum við tryggt okkur aðgang að nokkrum hópi annarra sérfræðinga ef stærri verkefni berast,“ segja þau að lokum. Borgin verði þjónustu- fyrirtæki -við segjum það uml Nýju ostasneiðaumbúðirnar eru byltingfyrir neytendur! Þeer hvíla d plastbakka og eru í loftskiptum umbúðum, sem gerir þœr léttari í meðfórum oggeymslu. Klippið endann afpokanum ogtakið bakkann lít. (mynd 1) Ostabakkinn er tilbúinn á borðið. Að lokinni máltíð setjið bakkann aftur ípokann. Lokið honum meðþví að brjóta saman endann. (mynd 2) Skoðiðgaumgœfilega mynd 3 og 4. Veitið sérstaka athygli bakkanum sem ostasneiðarnar liggja á. 1 nýju umbúðunum eru Gouda 26%, Gouda 17%, Óðalsostur ogMaribó. tynd 3 ð a 1 a mynd 1 U S t ) / í mynd 2 ISLENSKIR OSTAR, j - kjarni málsins!
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.