Morgunblaðið - 13.03.1997, Page 39

Morgunblaðið - 13.03.1997, Page 39
MORGUNBLAÐIÐ AÐSENDAR GREINAR FIMMTUDAGUR 13. MARZ 1997 39 byggðinni yrði bætt áratuga þjóð- nýting í þágu innflutningsverslun- ar og ríkissjóðs. Sjávarútvegurinn og landsbyggðin var áratugum saman burðarklár fyrir þá, sem þjónustuðu ríkið og innflutnings- verslunina, en sú starfsemi fer einkum fram á höfuðborgarsvæð- inu. Nú krefjast þeir þess hæst af öllum að auðlindaskattur taki við af þjóðnýtingunni. Það er t.d. athyglisvert að sá mikli stein- steypusali og réttlætisfrömuður, Halldór Jónsson, skuli ekki hafa áttað sig á því að hann hafi notið góðs af þjóðnýtingu sjávarútvegs- ins og landsbyggðarinnar. Landsbyggðin í gjörgæslu Þessi „þjóðnýtingarstefna" leiddi sjávarútveginn og fisk- vinnsluna afvega. Asamt með tekj- unum var þróunarstarfi og ný- sköpun í sjávarútvegi og fisk- vinnslu haldið niðri með óraunhæf- um kaupmætti íslensks gjaldmið- ils. Menntakerfið tók ekki tillit til þarfa sjávarútvegs og fiskvinnslu. Greinin varð útundan í þróunar- starfi og nýsköpun. Atvinnugrein- in var gengisfelld áratugum sam- an. Landsbyggðin var gengisfelld með sjávarútveginum. Lands- byggðin varð afgangsstærð, sem menn vöndust á að líta á sem vandamál, sem glíma ætti við í gjörgæslustofnunum. Hvers konar atvinnulíf, hvers konar mannlíf þrifist í dag á landsbyggðinni, ef grundvallaratvinnulíf fólksins þar hefði áratugum saman fengið að búa við eðlilegar hagrænar að- stæður? Landsbyggðin má ekki bjarga sér sjálf Nú þegar rofar til í atvinnulíf- inu, nú þegar sjávarútvegurinn og fiskvinnslan eru að byija að rétta úr kútnum, þrátt fyrir allan sam- dráttin undanfarin ár, er kallað hátt eftir aðgerðum til að draga úr arðsemi og slagkrafti lands- byggðarinnar. Nú þegar fram- kvæmdir við stóriðju eru ýmist hafnar eða að komast á fram- kvæmdastig á höfuðborgarsvæð- inu, virðist þjóðin sammála um það að koma upp sérstökum skatti á sjávarútveg og fiskvinnslu, auð- lindaskatti á sjávarútveginn, sem er að sjálfsögðu sérstakur skattur á atvinnulíf landsbyggðarinnar. Það er eins og það séu örlög þess- arar þjóðar að ætla landsbyggð- inni setu á biðstofum styrkja- og hjálparstofnana. Hún má ekki bjarga sér sjálf. Viðskipti með kvóta, sem að langmestu leyti eru hagræðingar- viðskipti, þar sem útgerðarmenn selja og kaupa veiðiheimildir til að búa til rekstrarhæfa kvótasam- setningu, eru notuð til að sýna fram á hve miklir fjármunir fari fram hjá eiganda auðlindarinnar, þjóðinni sjálfri. í þeirri umræðu er ekki litið til þess að í miklum hluta þessara viðskipta jafnast á tekjur vegna sölu á veiðiheimildum annars vegar og útgjöldum vegna kvótakaupa hins vegar. Þegar samningamálin eru í brennidepli, eru vaktar vonir um að hjá hinum „illræmdu sægreifum“ sé að finna fjársjóðinn mikla, sem allan vanda leysi. Og síðan eru gerðar skoð- anakannanir, sem sýna að menn vilji óðir og uppvægir sækja fé í þennan sjóð. í hinum hatrömmu deilum um aflahlutdeildarkerfið, hafa aðilar sem ekki koma sér saman um annað en andstöðu við kvótakerf- ið, sameinast um að kenna því um allt sem aflaga fer. í þessari um- ræðu hefur verið sáð mikilli óánægju með kerfið, en jafnframt hatri í garð útgerðarmanna. Eg er ekki viss um að menn geri sér fyllilega grein fyrir hvað er að vaxa upp af þessu sáðfræi. Sjálfsagt er að leiðrétta þá agnúa, sem enn eru á aflamarks- kerfinu, og þeir eru nokkrir. Það hlýtur að vera hægt án þess að ráðast í ófrægingarherferð gegn heilii atvinnustétt. Það hefur hent þessa þjóð áður að spjótum hefur verið beint að heilum atvinnustétt- um í hita leiksins. Bæði kaup- mannastéttin, bændastéttin og kennarastéttin hefur á tímum orð- ið að þola ósanngjarnar stéttará- rásir. Það hefur ekki reynst okkur vel. Ennfremur tel ég æskilegt aáb höfuðatvinnuvegi landsbyggðar- innar verði gefið ráðrúm til að rétta úr kútnum og sýna hvers hann er megnugur fyrir land og þjóð, áður en við leggjumst undir feld til að hugsa út með hvaða hætti hægt verður að búa til sér- stakar skattlagningaraðferðir til að halda landsbyggðinni niðri. Höfundur er alþingismaður fyrir Norðurlandskjördæmi eystra. FLÍSASKERAR OG FLÍSASAGIR TT' i íS^^i: Stórhöfða 17, við GuUinbrú, sfmi 567 4844 AÐALFUNDUR OLÍS 1997 Aðalfundur Olíuverzlunar íslands hf. fyrir rekstrarárið 1996, verður haldinn í Sunnusal (áður Atthagasal) Hótel Sögu, fimmtudaginn 20. mars nk. kl. 16:00. Dagskrá: Samkvæmt 13. gr. samþykkta félagsins. Ársreikningur félagsins og gögn vegna fundar munu liggja frammi til sýnis á skrifstofu félagsins að Héðinsgötu 10, Reykjavík, 7 dögum fyrir fundinn. Stjórn Olíuverzlunar íslands hf. ■ ■ ■ ■ ■H DRESS MANN bHm Ath. við sendum í póstkröfu Grænt númer 800 S730 - Sími S62 9730 - Fax S62 9731 LAUGAVEGI 1S B REVKJAVIK

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.