Morgunblaðið - 13.03.1997, Page 51
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 13. MARZ 1997 51
I
I
I
I
:
I
2
2
(
:
i
(
4
(
(
|
(
(
i
i
i
j
r
BRÉF TIL BLAÐSINS
Að lítilsvirða
andstæðinginn
Frá Sigurði Þór Guðjónssyni:
EG ER einn þeirra sem reyna að
mynda sér sæmilega hlutlæga skoð-
un um stóriðju á Islandi og þá sér
í lagi umdeilt álver í Hvalfirði. En
þetta er erfitt fyrir venjulegt fólk
vegna þess hve skoðanir eru skiptar
meðal þeirra sem eru að fræða þjóð-
ina með eða móti.
Jón Sigurðsson, framkvæmda-
stjóri íslenska járnblendifélagsins
hf., ritar grein í Morgunblaðiðið
26.febrúar sem heitir „Um það.sem
er logið og hitt, sem er satt“. Ég
varð þrumu lostinn við lestur henn-
ar. Framkvæmdastjórinn ber fram
þær ásakanir að meðal „hluta þess
fólks sem berst gegn álverinu á
Grundartanga", heigi „tilgangurinn
meðalið án nokkurra siðgæðis-
marka“. Þetta fólk, sem er líklega
mestanpart alþýðufólk í Kjósinni,
er því siðleysingjar sem einskis
svífst að dómi Jóns. Og hann leggur
fram „sönnun“ fyrir máli sínu.
„Sönnunin" er nokkrar sögur sem
hvergi er þó hægt að ganga úr
skugga um hvort hafi raunverulega
gerst eða séu bara misskilningur
Jóns. Stundum vísar hann þó til
„greinarskrifara" eða „greinarhöf-
unda“ en án frekari skýringa svo
lesendur greinar hans í Morgunblað-
inu geta ekki borið frumheilmildina
saman við endursögn og túlkun
Jóns. Eftirfarandi sögu segir hann
sem hveija aðra staðreynd án vísana
til nokkurra heimilda: „Grunnskóla-
kennari á Akranesi segir 10 ára
börnum sem hún kennir, að verði
álverið á Grundartanga byggt, muni
það menga umverfið þannig, að þau
muni fullorðin eignast vansköpuð
börn. Innrás kennara í hugarheim
lítilla barna, með upplogna hryll-
ingssögu af þessu tagi, er að mati
skrifara þessarar greinar enn verra
ofbeldi en ýmislegt það, sem nú er
réttilega barist gegn í þjóðfélaginu."
Það er greinilegt að Jón Sigurðs-
son veit ekkert um afleiðingar of-
beldisverka fyrir börn. Þá hefði hann
ekki skotið svona hátt yfir markið.
Þungar refsingar liggja við ofbeldi
gegn börnum. Slíkur verknaður er
alvarlegur glæpur og það er borg-
araieg skyida hvers manns að gera
yfirvöldum viðvart ef þeir hafa grun
eða vissu um slíkt ofbeldi. Við höfum
hér orð Jóns sjálfs fyrir því að í
grunnskólanum á Akranesi fremji
kona nokkur ofbeldisglæpi gegn
börnum sem séu með verri ofbeldis-
glæpum gegn þeim. En hver er þá
ofbeldismaðurinn, minn kæri Jón?
Foreldrar á Akranesi geta ekki sof-
ið rótt og yfirvöld ekki litið svo á
að þú gegnir þinni borgaralegu
skyldu fyrr en þú upplýsir það.
Allt er þetta víst nógu rökrétt.
En samt er þessi rökfærsla mín
vegna sögu Jóns tóm vitleysa, því
jafnvel hann sjálfur veit ósköp vel
að í raunveruleikanum er ekki verið
að misþyrma neinum börnum í
grunnskólanum á Skaga og hann
þarf því ekki að tilkynna um neinn
meintan ofbeldismann. Orð hans eru
vissulega bara stóryrði, sem falla í
hita leiksins, en þau eru þó satt að
segja fyrir neðan allar hellur.
Grein Jóns er skrifuð af mikilli
fyrirlitningu á þeim sem hann ritar
gegn. Kona er nefnd „valkyija", sem
auðvitað er niðrandi orð um konu,
svona álíka og orðið „hrokagikkur“
til að lýsa einum herlegum fram-
kvæmdastjóra. Andstæðingar Jóns
eru að hans áliti haldnir „sjúklegu
ofstæki“ sem þýðir að þeir séu bein-
línis andlega bilaðir. En þeir eru
einnig siðferðilegt undirmálsfólk því
þeir beijast „án nokkurra siðgæðis-
marka". Og auðvitað eru þeir líka
„ofstækisfólk" og lygarar. En Jón
sjálfur? Hvernig brygðist hann við
ef hann væri vændur um þetta
sama? Ætli heyrðist þá ekki hljóð
út- horni. Að vísu lætur hann í veðri
vaka að einungis „hluti“ þeirra sem
andvígir eru álverinu sé siðspillt og
andlega sjúkt fólk. En skyldi sá
„hluti" hvenær sem er ekki geta
orðið ansi stór eftir hentisemi hans
sjálfs? Og eru allir þeir sem hlynnt-
ir eru álverinu til hinnar mestu fyrir-
myndar? Eru það bara sumir „hinir“
sem eru ómerkilegir? Ekki sumir
„við“? Er virkilega ekki hægt að
deila hart og skörulega án þess að
vera með svona persónulegar lítil-
lækkanir í þeirra garð sem eru ann-
ars sinnis?
Grein Jóns, með sínum lauslega
söguburði sem ógerlegt er að henda
reiður á og fjarstæðukennda ásökun
um ofbeldisglæpi gegn börnum,
mun ekki auðvelda almenningi að
mynda sér skynsamlega og hlut-
læga skoðun um það hitamál sem
er fyrirhugað álver í Hvalfirði.
Frumreglan í öllum deilum um mál-
efni er það að lítilsvirða ekki and-
stæðinginn. Sýna honum þess í stað
sömu virðingu og tillitssemi og
menn vilja sjálfir njóta.
SIGURÐUR ÞÓR GUÐJÓNSSON,
rithöfundur.
Opið bréf til fjármála
ráðherra og jaðar-
skattanefndar
Frá Lárusi Elíassyni:
ÞAÐ ER mikið dásemdarland, þetta
ísland, sem lánar þegnum sínum fé
til menntunar eftir settum reglum
og krefst ekki vaxta, en þó verð-
tryggingar á end-
urgreiðslunum.
Þetta sagði mað-
ur erlendum sam-
stúdentum sínum
þar sem maður var
í þekkingaröflun í
faggreinum sem
ekki voru kenndar
hér heima. Sinni
þjóð og manni sjálf-
um, það best maður
vissi, til hagsbóta.
Góð ímynd og falleg hugsjón, en
hvaðan koma peningarnir til að end-
urgreiða blessuð námslánin? Jú, með
hærri launum.
En hafi manni tekist að komast
yfir nauðþurftarmörkin til að end-
urgreiða af námslánunum er maður
orðinn verri þegn. Börnin manns
verða síðri þannig að skattajöfnun
ríkisins milli þegna á mismunandi
æviskeiðum (barnabætur) hverfa að
mestu. Sama gildir um þá stefnu
þessarar þjóðar að ungar fjölskyldur
eigi að koma sér upp þaki yfir höfuð-
ið, henni er lagt fyrir róða enda
geta þessir uppar jú bara byggt yfir
sína grísi sjálfir. Reyndar fær þetta
vesalings fólk sem er á nýjustu
námslánunum með 7% endurgreiðsl-
unni hvort sem er ekki greiðslumat
þannig að eigið húsnæði þvælist
varla fyrir því.
Þegar þessir áhrifavaldar eru
taldir saman, ásamt mögulegum
hátekjuskatti, eru þessir námslána-
endurgreiðslu-uppar að þvæiast í um
60-70% jaðarskatti. Það þýðir að
fyrir hveijar 100 kr. sem maður
ætlar til endurgreiðslu námslána
þarf að vinna sér inn á milli 250 og
333 kr. En maður er jú ekki bara
að borga 100 kr. heldur alla töluna
þar sem ríkið tekur muninn til sín
í tekjuskatti og lægri vaxta- og
barnabótum. Þessar 100 kr. duttu
ekki af tijánum heldur þurfti að
vinna fyrir þeim, þá væntanlega með
þeirri auknu þekkingu sem námið
gaf.
Útkoman er sú að raunvextir sem
ríkið fær af útgreiddum námslánum
eru á bilinu 7-20% eftir jarðarskatta-
hlutfalli og endurgreiðslutíma. Megn-
asta óréttlæti og örugglega ekki það
sem Alþingi stefndi að þegar lögin
um námslán voru sett.
Að sjálfsögðu eiga því endur-
greiðslur námslána að vera frádrátt-
arbærar frá tekjuskattsstofni. Það
mætti hugsa sér námslánin sem
öfugan lífeyrissjóð, þ.e. maður nýtur
lífeyrisins fyrst en endurgreiðir hann
síðan á lengri tíma með tekjutengd-
um greiðslum. Og til að allir fái sitt,
þ.m.t. gjaldheimtan, þá er hægt að
skattleggja námslánveitingar með
sama hætti og atvinnutekjur að því
marki sem lánveitingin var til fram-
færslu, þá á því ári sem þær eru
greiddar út.
Með kröfu um snöggar úrbætur.
LÁRUS ELÍASSON,
framkvæmdastjóri Alpan hf.
Að selja land
og grafa bein
Frá Jóni Hálfdanarsyni:
FYRIR margt löngu voru samin lög
um íslenska járnblendifélagið hf. Þá
tók Alþingi þá ákvörðun að forræði
yfir fyrirtækinu ætti að vera í ís-
íenskum höndum.
Nú er gengið til samninga við Norð-
menn að Alþingi forspurðu og þessi
veigamikla forsenda notuð sem
skiptimynt. Er ekki rétt að staldra
við og velta fyrir sér hvert við stefn-
um? Ætlum við útlendingum að
standa einum fyrir uppbyggingu
orkufreks iðnaðar og taka fyrir okk-
ur erfiðar ákvarðanir í framtíðinni?
Eiga þeir einir að ráða hvar í heimin-
um hagnaði af nýtingu auðlinda
okkar verður fyrirkomið? Lengi hef-
ur verið klifað á því að orkan í land-
inu geti orðið okkur mikil verðmæti
og nú hiilir undir það. í sjávarútvegi
gilda takmarkanir á eignarhaldi út-
lendinga. Af hveiju höldum við þeim?
Finnst íslendingum engu skipta
hveijir fara með forræði yfir þeim
fyrirtækjum sem nýta auðlindir
landsins og þeir ætla niðjum sínum
að vinna hjá? Væri ekki rétt að Al-
þingi íslendinga tæki til umræðu
með hvaða hætti við ætlum að starfa
og lifa áfram hér í landinu áður en
lengra er haldið?
JÓN HÁLFDANARSON,
eðlisfræðingur á Akranesi.
Falsað
bréf
BRÉF merkt Sveini Ólafssyni,
Birkigrund 62, Kópavogi, birt-
ist á þessum síðum í Morgun-
blaðinu í gær.
í ljós kom að bréfið var fals-
að, en sá sem ritaði það hafði
sett nafn Sveins undir, heimil-
isfang og síma og handskrifað
nafn hans neðst á handritið.
Morgunblaðið biður Svein
afsökunar á birtingu þessa
bréfs, en í ljósi þessa verður
Morgunblaðið að taka upp ný
vinnubrögð varðandi birtingu
á bréfum og greinum.
LANCOME
Kynning á nýju vorlitunum,
ásamt ýmsum öðrum
skemmtilegum nýjungum.
Sérfrœðingur frá LANCÖME
verður á staðnum í dag
og á morgun og veitir
persónulega ráðgjöf.
Glœsilegur kaupauki.
BYLGJAN
Hamraborg, sími 564 2011
VJÐ lÆYSlJM VANPAMÁIJN
Kynning verður á hinum margverðlaunuðu
ELANCYL vörum sem bjóða upp á
mismunandi meðferð við CELLULITE
.
•':
EAU THERMALE
ásamt Avene húðvörunum sem
ætlaðar eru fyrir hina viðkvæmustu húð og bjóða
upp á ýmis meðferðarkrem við húðvandamálum.
C
I dag: HAGKAUP, Skeifunni
J
Á morgun: BORGARAPÓTEK )
Komið og fáið faglega ráðleggingu.
Gjöffylgir
kaupum
LISTAKOKKAR 1 J?v
^ Jr OG DÁSAMLEGUR MATUR I ^
í TiLEFN115 ÁRA AFMÆLIS OKKAR:
Kvöldoghelgar-
tilboð
♦♦♦ allan marsmánuð
Hefurdu bodid
fjálskyldunni ut að borða nýlcga?
Jíácftseðdí
forrétt: Koníaksbætt humarsúpa
Veljíð:
Okkar landsfræga
LAMBASTEIK BERNAISE
meö bakaöri kartöflu
GRÍSALUND
með graðostasósu.
NAUTAPIPARSTEIK
með villisveppum.
tfflottmli isbwHwi í bvenum w* buúfuluui i oeróbui
oij koo aiufvitaó (jhe&ilaji mbitbuiHiui,
AÐEINS KR, 1,390,-
Við erum á besta
stað í bænum.
POTTURINN
OG
PflNÍ
Góð aöstaða í barna-
hominu.
BRRUTRRHOITI 22
SÍMI551-1690