Morgunblaðið - 13.03.1997, Page 60
60 FIMMTUDAGUR 13. MARZ 1997
MORGUNBLAÐIÐ
MYNDBÖND/KVIKMYNDIR/ÚTVARP-SJÓNVARP
MYIMPBÖNP
Hundleiðinleg
MYNDBÖND
SÍÐUSTU VIKU
Geimtrukkarnir
(Space Truckers) ir-k
Börnin á akrinum
(Children of the Corn) k
Powder
(Powder) kk'h
Innrásin
(TheArrival) kk
Umsátrið á
Rubyhryggnum
(The Siege at Ruby Ridge) k k
Draumur sérhverrar konu
(Every Woman’s Dream) k k'h
Ríkharður þriðji
(Richardlll) kkk'h
Bleika húsið
(La Casa Rosa) k k
Sunset liðið
(SunsetPark) k'h
í móðurleit
(Flirting with Disaster) kkk
Banvænar hetjur
(Deadly Heroes)
Dauður
(DeadMan) k
Frú Winterbourne
(Mrs. Winterbourne) kk'h
Frankie stjörnuglit
(Frankie Starlight) k k'h
Dagbók morðingja
(KiIIer: A Journal ofMurder) 'h
Klikkaði prófessorinn
(The Nutty Professor) kkk
Eyðandinn
(Eraser) kk'h
Sporhundar
(Blood-hounds)_____________
Spcnnumynd ^
Framleiðandi: Wilshire Court
Productions. Leikstjóri: Michael
Katleman. Handritshöfundur:
Pablo Fenjves. Kvikmyndataka:
Fernando Arguelles. Tónlist: John
Frizzell. Aðalhlutverk: Corbin
Bernsen og Christine Harnos.
83 mín. Bandaríkin. Cic myndbönd
1997. Útgáfudagur: 11. Mars.
Myndin er bönnuð bömum innan
16 ára.
RITHÖFUNDUR og lögreglu-
kona elta uppi alræmdan glæpa-
mann, sem er nýsloppinn úr fang-
elsi. Rithöfundurinn er að reyna
að ljúka við nýjustu bók sína, en
hún vill koma
morðingja föður
síns á bak við
lás og slá. Eins
og í flestum
myndum þess-
arar tegundar
eru þau algerar
andstæður og
eyða langmest-
um tíma mynd-
arinnar í það að fara í taugarnar
hvort á öðru.
Mynd þessi býður ekki uppá
neitt nýtt á vígstöðvum „félaga“-
myndanna. Handritið er afskap-
lega þunnt, persónusköpunin er
einfeldnisleg, sem leiðir til þess
að leikurinn verður vel fyrir neðan
meðallag. Myndin á að heita
spennumynd, en verður aldrei
meira spennandi en dömubinda-
auglýsing.
Þetta er ekki lélegasta mynd
sinnar tegundar, en er ágætis til-
raun til þess að hljóta þann vafa-
sama heiður. Fyrirsjáanlegar
þvælur eins og Sporhundarnir
verða því miður að vera til staðar,
svo að hægt sé að meta góðar
myndir, en það er mér með öllu
óskiljanlegt að nokkur nenni að
horfa á svo illþeijandi óskapnað.
Ottó Geir Borg
hljómtækjasamstæða
59.900,-kr. 1
10.000,- kr. afmælisafsláttur
Samsung SV-120 Nieam
Stereo-myndbandstæki
Nokia 1610
GSM-handsími
Samsung
SV-35 XK
ndstæki
iYOKO YC-194
gvekjaraklukka
mGrensásvegi 11
Sími: 5 886 886
afmælistilboo Fax: 5 886 888
Samsung
sjónvarfsi
DAVID Helfgott við píanóið á tónleikum sinum
í Boston Symphony Hall.
Sigurganga
eða sorgarsaga?
PÍANÓLEIKARINN David Helfgott,
sem öðlast hefur skyndilega frægð
og frama vegna myndarinnar Shine,
er nú á tónleikaferð í Bandaríkjunum
og hefur hlotið misjöfn viðbrögð.
Lokasigurinn í kvikmyndinni er ekki
eins endanlegur í raunveruleikanum
að margra mati. I þýska vikuritinu
Der Spiegel sagði í þessari viku að
Helfgott ætti fremur heima á heilsu-
hæli, þar sem hann gæti notið lífs-
ins, en í tónleikasölum heims og í
dagblaðinu The Boston Globe sagði
að tónleikaferð hans væri menguð
af „andrúmslofti siðferðislegs gjald-
þrots“. Hörð gagnrýni á Helfgott og
þá, sem standa að hljómleikaferð-
inni, hafa knúið einn helsta píanóleik-
ara Ástrala til vamar landa sínum.
Kvikmyndin Shine segir frá þvi
hvemig Helfgott nær sér á strik eftir
áralanga baráttu við andlega van-
heilsu og fer aftur að halda tónleika,
en menn em ekki á eitt sáttir um það
hvort raunveruleikinn sé í samræmi
við það, sem blasir við á hvíta tjaldinu.
Menn velta því fyrir sér andlegu
ástandi Helfgotts en hann gefur m.a.
frá sér undarleg hljóð þegar hann
leikur á píanóið. Einnig hefur verið
deilt um raunverulega hæfiieika hans
sem tónlistarmanns. Blaðamaður
USA Today hlustaði á tónleika Helfg-
otts í Boston á dögunum og velti
m.a. upp þeirri spurningu hvort vin-
sældir hans mundu endast þar sem
fólk kæmi til þess að horfa á þennan
furðufugl á sviði en ekki til þess að
hlusta á tónlistarflutning hans.
Nú hefur einn virtasti píanóleikari
Ástralíu, Roger Woodward, risið upp
til varnar Helfgott og segir hann
vera síðasta heiðarlega manninn í
þessum bransa. „Vinsældir myndar-
innar og velgengni Helfgotts á tón-
leikasviðinu hefur gert sígildri tónlist
mikinn greiða og aukið vegsemd
hennar um allan heim,“ segir Wo-
odward.
Eitt er víst, hvorki Helfgott né
nánustu samstarfsmenn hans bjugg-
ust við því fári sem Shine hefur kom-
ið af stað. Upphaflega ætlaði hann
eingöngu að halda þrjá tónleika en
nú er talað um 18. Helfgott hefur
reynt að spyma við fótunum og veit-
ir t.d. fá viðtöl, en það kemur ekki
í veg fyrir töluverða fjölmiðlaumfjöll-
un sem getur stundum verið fjand-
samleg.
Nr.; var Lag Flytjandi
1. ; (1) Remember me Blueboy
2. i (2) Hedonism Skunk Anansie
3. i (-) Song 2 Blur
4. : (8) Firewater burn Bloodhound gang
5. i (3) Do funk Daft punk
6. í (11) Ain't talking'bout it Apollo 440
7. i (4) Squealer Red
8. i (16) Karvel Björk
9. i (22) Erika Bady On and on
10.; (12) Runaway Nuyorican soul & India
11.503) The foundotion X-zibit
12. i (14) l'm not feeling you Yvette Michel
13.; (5) Dennis Leary Asshole
14.: (6) No.l crush Garbage
15.; (24) Local god Everdear
16.; (7) The new pollution Beck Hansen
17. i (9) 1 will survive Cake
18.5(10) Let me dear my throat D.J. Kool
19.5(20) 1 shot the sheriff Warren G
20. i (-) Spin spin sugar Sneaker Pimps
21.i (-) l'll be Foxy Brown & Jay
22.; (-) The theme Tracey Lee
23.; (25) Toxygene 0RB
24.; (-) Mama Spice girls
25-i (18) Discoteque U2
26.; h She's a star James
27.i (23) Svuntuþeysir Botnleðja
28.5(15) Your womun White Town
29.5(21) Nancy boy Placebo
30.; (19) What's come over me Frente