Morgunblaðið - 17.04.1997, Page 4
4 FIMMTUDAGUR 17. APRÍL 1997
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Áfrýjunarnefnd samkeppnismála
Takmörkun á aðgangi samnings
er andstæð samkeppnislögum
ÁFRÝJUNARNEFND samkeppnis-
mála hefur staðfest ákvörðun sam-
keppnisráðs frá því í janúar að
samningur Tryggingastofnunar rík-
isins og Læknafélags Reykjavíkur
um takmörkun á aðgangi lækna að
samningi um sérfræðilæknishjálp
sé andstæður samkeppnislögum.
Tryggingastofnun kærði ákvörðun
samkeppnisráðs og felldi áfrýjunar-
nefndin úrskurð sinn í síðustu viku.
Ákvörðunarorð samkeppnisráðs
voru á þá lund að með hliðsjón af
markaðsráðandi stöðu Trygginga-
stofnunar sem kaupanda á sér-
fræðilæknisþjónustu hafi aðgangs-
takmarkanir samkvæmt samningi
TR og Læknafélags Reykjavíkur
skaðleg áhrif á samkeppni. Felist
þær aðgangstakmarkanir annars
vegar í einkarétti félaga í LR að
samningnum og hins vegar í því
hlutverki samráðsnefndar fulltrúa
TR og LR að meta þörf fyrir þjón-
ustu í viðkomandi grein og fá til
þess upplýsingar um umfang vænt-
anlegs reksturs. Geta fulltrúar
lækna í nefndinni hugsanlega lent
í þeirri aðstöðu að ákveða hvort
veita eigi nýjum lækni, e.t.v. í sömu
sérgrein og þeir eða sá, sem er í
nefndinni, aðgang að samningnum.
Samningur Tryggingastofnunar
við LR gerir einnig ráð fyrir að
sérfræðingar skuli vera félagar í
LR. Megi líta svo á í samkeppnis-
rétti að félagsaðild sem skilyrði
fyrir réttindum sem samningurinn
veitir geti falið í sér ólögmæta mis-
munun.
Áfrýjunarnefndin staðfestir
þessa ákvörðun samkeppnisráðs en
fellir úr gildi þá ákvörðun að samn-
ingur aðila um gjaldskrá bijóti í
bága við samkeppnislög, gjaldskrá-
in sé hluti af samningskjörum sem
heimilt sé að semja um samkvæmt
almannatryggingalögum.
Felldu
samninga
og boða
verkfall
NÍTJÁN verkalýðsfélög hafa
fellt í atkvæðagreiðslu nýgerða
kjarasamninga landsambanda
Alþýðusambands íslands. Þar af
hafa átta boðað verkfail frá og
með 24. apríl en enn er eftir að
telja hjá þremur félögum. Á
Vestfjörðum hafa verkalýðsfélög
boðað verkfall frá og með næsta
mánudegi 21. apríl. Þá hafa flug-
virkjar fellt sína samninga og
boðað verkfall frá og með 25.
apríl og flugmenn stefna í
tveggja sólarhringa verkfall frá
kl. 20 föstudaginn 18. apríl til
kl. 24 sunnudagskvöld 20. apríl.
Samningar felldir í 19 félögum, 8 hafa boðað verkfall
Siglufjðrður
Húsavík
f Akureyri >,
SérSamningúr v.
leskaupstaður
ískrúðsfjðrður
Djúpivogur
Reykjavik
Sandgerði,
Grundar-
Akranes
Samningar Boðað
,, , felldir verkfall
Verkamanna-
sambandið ° ®
Landsamband
iðnverkafólks n "
Landsamband fsl. . .
verslunarmanna Q ®
bakki
Merkingar matvæla
Engar undanþágur
fra reglugerð ESB
UMHVERFISRAÐUNEYTIÐ hefur
ákveðið, í kjölfar athugunar og við-
ræðna við Eftirlitsstofnun EFTA, að
veita engar undanþágur frá reglu-
gerð Evrópusambandsins um merk-
ingar matvæla. Ekki verður látið
duga að merkingar og upplýsingar
séu í hillum verslana eða bæklingum,
eins og íslenskir innflytjendur mat-
væla frá löndum utan Evrópusam-
bandsins höfðu lagt til, enda kæmi
skýrt fram í reglugerðinni að merk-
ingar yrðu að vera á umbúðum eða
áföstum merkimiða. Lokafrestur til
að fulinægja kröfum reglugerðarinn-
ar rennur út í október. Þetta kom
fram í svari Guðmundar Bjamasonar
umhverfisráðherra við fyrirspum
Guðrúnar Helgadóttur varaþing-
manns á Alþingi í gær.
Guðmundur sagðist telja að reglu-
gerðin myndi ekki hafa áhrif á vöruv-
al, enda væri hægt að útvega vörur,
sem koma frá löndum utan ESB, í
Evrópu og væm þær þá merktar
samkvæmt reglugerðinni. Hann taldi
hins vegar að það fyrirkomulag gæti
'haft einhver áhrif á verðið.
Morgunblaðið/Þorkell
LÍN tekur tillit til álits
umboðsmanns í máli
finnsks ríkisborgara
„Reynum
að leysa
málið far-
sællega“
MÁLI finnskrar stúlku, sem búsett
hefur verið hér á landi í níu ár og
var synjað um námslán frá Lána-
sjóði íslenskra námsmanna vegna
náms í Englandi, jafnvel þó að hún
hefði áður fengið lán til náms við
Háskóla íslands, hefur verið vísað
til vafamálanefndar LÍN og segir
stjórnarformaður sjóðsins að reynt
verði að leiðrétta það. Umboðsmað-
ur Alþingis hefur, með vísan til jafn-
ræðisreglu Helsinki-samningsins,
gefið út álit þess efnis að hún eigi
rétt á láni frá LÍN vegna námsins
í Englandi.
„Við munum eðlilega taka tillit
til umsagnar umboðsmanns og
reyna að leiðrétta þetta mál,“ segir
Gunnar Birgisson, stjórnarformað-
ur LÍN. Hann segir þetta algert
undantekningartilfelli og að ekkert
slíkt hafi komið upp hjá sjóðnum
áður. „Málinu verður vísað aftur til
vafamálanefndar, sem mun af-
greiða málið samkvæmt tilmælum
umboðsmanns. Við munum reyna
að leysa málið farsællega fyrir
þessa stúlku," segir Gunnar og
bætir við að þegar um einhvern
vafa sé að ræða eigi námsmaðurinn
að njóta hans.
Stjórn LÍN synjaði beiðni finnsku
stúlkunnar um lán til náms í Eng-
landi á þeim forsendum að hún
væri erlendur ríkisborgari og reglur
EES-samningsins um veitingu
námsaðstoðar tækju ekki til henn-
ar. Stjórnin taldi að jafnvel þótt
leyfilegt væri að veita erlendum rík-
isborgara undanþágu vegna náms
sem stundað væri hér á landi, ætti
það ekki við um nám í þriðja landi.
Um þetta segir Gunnar: „Það koma
stundum upp atvik sem úthlutunar-
reglumar ná ekki alveg yfir og
auðvitað er aldrei hægt að gera
reglur þannig að þær taki á öllum
undantekningartilfellum."
-----♦ ♦ ♦
Sumar í nánd
AÐEINS lifir eftir vika af vetri
og þær Lára Hildur (t.v.) og
Guðný Dóra í Gróðrarstöðinni i
Fossvogi í Reykjavík búa sig og
aðra með græna fingur undir
vorkomuna. Sumarmál eru á
laugardag og síðan kemur harpa
með sumardeginum fyrsta.
224 milljónum munaði á afkomuspá og uppgjöri Útgerðarfélags Akureyringa
Upplýsingar gefnar
eftir bestu vitund
FORSVARSMENN Verðbréfaþings
Islands og Útgerðarfélags Ákur-
eyringa hf. (ÚA) ræddu í vikunni
um upplýsingagjöf fyrirtækisins
vegna afkomu síðastliðins árs. í
fréttabréfi ÚA, sem sent var út í
byijun október, var því spáð að
hagnaður félagsins myndi nema um
100 milljónum króna á árinu en í
uppgjöri, sem birt var nú í apríl, kom
I ljós að tap varð á félaginu sem
nam 124 milljónum króna. Milli spár
og endanlegrar niðurstöðu munar
því 224 milljónum króna. Hafa vakn-
að spumingar um hvort forsvars-
mönnum fyrirtækisins hafí ekki ver-
ið það ljóst í októbermánuði að tap
yrði á rekstri fyrirtækisins á árinu.
Guðbrandur Sigurðsson, fram-
kvæmdastjóri ÚA, segir að efni-
svinnsla og frágangur fréttabréfsins
innan fyrirtækisins hafí byggst á
bestu vitund á þeim tíma.
Stefán Halldórsson, fram-
kvæmdastjóri Verðbréfaþings Is-
lands, segir að þingið hafi ekki ósk-
að eftir sérstökum fundi um málið
heldur hafi það verið tekið upp á
fundi, sem haldinn var með ÚA-
mönnum, sem liður í heimsókn
Verðbréfaþings til hlutafélaga á
Norðurlandi eystra. „Við óskuðum
eftir skýringum á þessu misræmi
og fengum þær. Við munum hins
vegar ekkert tjá okkur um þær
skýringar. Það er ekki að sjá að
reglur þingsins hafí verið brotnar í
þessu tilviki en engu að síður gefa
mál sem þessi tilefni til að skoða
hvort heppilegra sé að standa að
upplýsingagjöf með öðrum hætti til
að draga úr óvissu á markaðnum.
Verðbréfaþing vinnur stöðugt að
því að bæta upplýsingagjöf hlutafé-
laganna og á margs konar sam-
skipti við félögin um þau efni án
þess að greint sé sérstaklega frá
hveiju tilviki í fjölmiðlum."
Veigamiklar forsendur
brugðust
Guðbrandur Sigurðsson segir að
ekkert sé óeðlilegt við það _að um-
ræður um upplýsingagjöf ÚA hafí
komið upp á samráðsfundi fulltrúa
fyrirtækisins og Verðbréfaþingsins.
„Það munar vissulega miklu á af-
komuspánni og endanlegu uppgjöri
en það á sér allt eðlilegar skýringar
þegar betur er að gáð. Afkomuspáin
byggðist á endurskoðaðri rekstrará-
ætlun ÚA, sem gerð var í júní, og
hún var lögð til grundvallar þegar
efni fréttabréfsins var unnið í sept-
ember en það var sent út í byijun
október. í áætluninni var gert ráð
fyrir því að rekstur félagsins yrði
nálægt núllinu en afkoma dótturfé-
laga, endurgreiðsla frá Sölumiðstöð
hraðfrystihúsanna og fleira myndu
skapa hagnað, sem næmi um 100
milljónum króna. Nokkrar veiga-
miklar forsendur fyrir áætluninni
brugðust hins vegar í ágúst og sept-
ember. Niðurstaðan af veiðum, sér-
staklega úthafsveiðum, var vægast
sagt mikil vonbrigði en framleiðni
frystitogaranna var 180 milljónurn
króna lakari en ráðgert var. Þá varð
kostnaður við þjónustudeildir og
skrifstofur 30 milljónum króna hærri
en áformað var en tekjur af land-
vinnslueiningunni og ísfískskipum
25 milljónum lægri en ráðgert var.“
Aðspurður hvort það hefðu verið
mistök að senda fréttabréfið út með
svo röngum upplýsingum í byijun
október fyrst þá þegar var komið
í ljós að áætlanir félagsins myndu
riðlast, sagði Guðbrandur:
„Afkomuspáin var auðvitað að-
eins byggð á áætlun. Auðvitað er
leitast við að fara eftir því sem rétt-
ast er talið á hveijum tíma en stund-
um gerist það auðvitað að menn
verða óhóflega bjartsýnir eða svart-
sýnir.“