Morgunblaðið - 17.04.1997, Blaðsíða 8
8 FIMMTUDAGUR 17. APRÍL 1997
MORGUNBLAÐIÐ
FRETTIR
Um verðandi gagns-
leysi karlmanna
,u.
essa dagana snýst aðal
•brandarinn, einkum hjá
meðvituðum konum, um
það að karlmenn séu á barmi
þess að verða úreltir og óþarflr.
?g-Mu/Jb*
ÞETTA er nú raeiri byltingin Sigga mín. Nú getum við valið um það hvort við viljum fá
það með gumsinu eða ekki, eða bara gumsið án þess að fá það . . .
Greinargerð borgarlögmanns um
útboð fyrir Nesjavallavirkjun
Kærunefnd hef-
ur ekki lagastoð
Talsmenn lána-
sjóða iðnaðarins
Tjá sig ekki
vegna trún-
aðarskyldu
FORSVARSMENN Iðnlánasjóðs og
Iðnþróunarsjóðs vilja ekki tjá sig um
ásakanir stjómarformanns Plastos
ehf. i garð sjóðanna, sem birtust í
Morgunblaðinu í fyrradag.
Stjórnarformaðurinn, Jenný St.
Jensdóttir, sakaði sjóðina um að
hafa brugðist hlutverki sínu þegar
Plastos leitaði til þeirra vegna bygg-
ingar nýs verksmiðjuhúss að Suður-
hrauni í Garðabæ. Sagði hún að
langvarandi óvissuástand um tilveru
og tilvist sjóðanna væri óþolandi.
Bragi Hannesson, forstjóri Iðn-
lánasjóðs, neitaði að tjá sig um
málið þar sem starfsmenn sjóðsins
væru undirseldir bankaleynd og
mættu því ekki tjá sig um mál ein-
stakra viðskiptavina. í svipaðan
streng tók Þorvarður Alfonsson,
framkvæmdastjóri Iðnþróunarsjóðs.
„REYKJAVÍKURBORG telur sig
hvergi hafa brotið þau lög eða reglur
sem giida um framkvæmd útboða
og að skilmálum hafi verið fylgt í
hvívetna," segir meðal annars í
greinargerð Hjörleifs Kvaran borgar-
lögmanns til fjármálaráðherra vegna
kæmmáls í framhaldi útboðs á
hverflasamstæðu til Nesjavallavirkj-
unar.
í greinargerð sinni segir borgar-
lögmaður að kæmnefnd útboðsmála
sem íjármálaráðherra byggir úr-
skurð sinn á hafi ekki lagagrundvöll
og að henni virðist hafa verið falin
víðtækari verkefni en fjármálaráð-
herra á að annast. Brot á lögum um
skipan opinberra innkaupa og fram-
kvæmda sæti kæm til fjármálaráðu-
neytis en löggjafmn hafí ekki falið
öðram meðferð slíkra mála.
Borgarlögmaður svarar einstökum
efnisatriðum kærunnar og segir varð-
andi það að taka tilboði Mitsubishi
að sveitarfélög ráði sjálf málefnum
sínum og að ákvörðun verkkaupa eða
gerð verksamnings verði ekki breytt
eftir að tilboð frá bjóðanda hefur ver-
ið samþykkt. Hafi ráðuneytið því enga
heimild til aðgerða gegn Reykjavíkur-
borg. Segir einnig í greinargerðinni
að útboðsmeðferðin á Evrópska efna-
hagssvæðinu sé ekki kærð heldur
framkvæmd þess eftir að tilboð voru
opnuð og sé ekki að finna í lögum
nr. 65/1993 heimild til afskipta fjár-
málaráðuneytis. Geti það því ekki
fjallað um þennan þátt málsins.
í lok greinargerðar borgarlög-
manns segir að við mat á tilboðum
hafi eingöngu verið litið til tilboðsfjár-
hæða eins og þær hafí verið við opn-
un og þeirra atriða sem meta átti til
verðs sérstaklega, samkvæmt ákvæð-
um útboðslýsingar, svo sem gufu-
notkunar, lánskjara og varahluta.
♦ ♦ ♦-----
Ránið í 10-11
verslimunum
Mennirnir
þrír í gæslu-
varðhaldi
HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur úr-
skurðaði 32 ára gamlan Reykvíking
í gæsluvarðhald til 23. apríl nk. á
þriðjudagskvöld, vegna gruns um
aðild að ráni á tæplega sex milljón-
um króna af starfsmanni 10-11
verslananna á Suðurlandsbraut á
mánudagsmorgun.
Tveir aðrir menn, sem einnig em
gmnaðir um aðild að ráninu, hafa
verið úrskurðaðir í gæsluvarðhald
til sama tíma. RLR fer með rann-
sókn málsins.
Úðunartæki
icimai
gegn óhreinindum
og skaðvöldum.
RÁÐGJÖF
SÉRFRÆÐINGA
UM QARB-
OG GRÓÐURRÆKT
GRÓÐURVÖRUR
VERSLUN SOLUFELAGS GARÐYRKJUMANNÍ
Smiöjuvegi 5, Kópavogi, sími: 554 3211
«asss
Félag áhugafólks um Downs heilkenni
Stuðningnr við
foreldra bama
með litningagalla
Birna H. Bergsdóttir
TLUNIN er að
stofna félag
áhugafólks um
Downs heilkenni (synd-
rome) og er tilgangurinn
meðal annars að: Stuðla
að fræðslu fyrir foreldra
og almenning um Downs
heilkenni. Efla samkennd
milli aðstandenda. Afla
upplýsinga um Downs
heilkenni og miðla þeim.
Samræma og efla þjón-
ustu.
Foreldrar hafa boðað til
stofnfundar sem verður
haldinn í dag, fimmtudag-
inn 17. apríl kl. 20:30 í
húsnæði Þroskahjálpar,
Suðurlandsbraut 22, 2
hæð. Bima H. Bergsdóttir
er einn áhugamanna.
- Hvað er Downs heil-
kenni?
„Heilbrigðir eru með 23
litningapör eða 46 litninga. Barn
með Downs heilkenni hefur þrjú
eintök af 21 litningi og því alls
47 litninga. Afleiðingin birtist í
þroskahömlun og útlitseinkennum
sem kennd hafa verið við mongó-
líta, eins og skásett augu, flatt
nef og styttri útlimir. Bömin líkj-
ast samt fyrst og fremst foreldmm
sínum. Greindarvísitalan er frá
40-70 stigum og þ.a.l. verða bæði
fín- og grófhreyfingar hægari og
barnið seinna til máls. Ekki er
vitað hvað veldur Downs heilkenn-
um en ástæðuna er ekki að finna
í einhveiju sem móðirin gerði á
meðgöngunni. Aukalitningurinn
er til staðar frá getnaði."
- Fara börn með Downs heilkenni
heim með mæðrum sínum af fæð-
ingardeildinni?
„Já, þannig er það núna. Börnin
ganga svo í Greiningarstöð ríkisins
í þjálfun, stuðning og eftirlit. Þá
liggur leiðin í leikskóla í heima-
hverfínu. Bömin hafa svo farið í
Öskjuhlíðarskóla í Reykjavík en á
landsbyggðinni í almennan skóla.
Vonandi gefst öllum þessum böm-
um kostur á almennum skólum
með nýju grunnskólalögunum."
- Hvers vegna þarf sérstakt félag
áhugafólks um Downs heilkenni?
„Þetta er spurning sem ég hef
velt fyrir mér síðastliðin 3 ár.
Árlega fæðast um 4 - 5 börn á
íslandi með litningagallann Downs
heilkenni. Það er því stór hópur
aðstandenda ungra barna sem
annast börn með þennan litninga-
galla.
Þegar ég varð foreldri bams
með Downs heilkenni velti ég fyr-
ir mér hvort ég gæti leitað til
annarra foreldra til að auðvelda
mér að takast á við þau
vandamál sem upp
kynnu að koma.
í litlu samfélagi eins
og á íslandi, þar sem
allir þekkja alla, komst
ég fljótlega að því að nokkrir for-
eldrar Downs heilkennabama hitt-
ust til að bera saman bækur sín-
ar. En sú starfsemi var með
óreglulegu formi.
Upplýsingamar sem komu fram
á þessum fundum um eftirlit, þjálf-
un og réttindabaráttu Downs heil-
kenna barna vom ómetanlegar.
En það vantaði að koma hlutunum
á blað, skrá upplýsingarnar og
fræðsluefnið sem hægt er að fá
og styrkja samkennd milli for-
eldra.“
- Mun félagið styðja nýja foreldra
bama með Downs heilkenni?
„Já, með stofnun félags stuðlum
við að öryggi nýrra foreldra bama
með Downs heilkenni og meiri við-
► Birna H. Bergsdóttir er
fædd árið 1959 í Reykjavík. Hún
er hjúkrunarfræðingur frá
Hjúkrunarskóla íslands árið
1982. Hún starfaði á Landakoti
og Borgarspítala og einnig sem
skólahjúkrunarfræðingur. Eig-
inmaður hennar er Ólafur Njáll
Sigurðsson og eiga þau þrjú
böm, þeirra á meðal þriggja ára
son með Downs heilkenni. Hann
heitir Daníel og fæddist í sept-
ember 1993.
urkenningu á fötlun þessa hóps.
Það er ótrúlegt hvað miklar
breytingar verða á tilfinningum
þeirra sem ala barn sem er ekki
eins og vonast var eftir. Það koma
margar neikvæðar tilfinningar
fram og bitrar og það er þá sem
við foreldrar þurfum hjálp.
Nýlega var gefín út bók af for-
eldrum barna með Downs heil-
kenni, sem nefnist Börnin okkar.
Hún er ætluð til stuðnings foreldr-
um sem eignast barn með Downs
heilkenni. Þar er safnað saman
myndum af 34 íslenskum börnum
sem eiga það sameiginlegt að vera
með Downs heilkenni.
Þessi börn eiga það samt fyrst
og fremst sameiginlegt að vera
böm með sömu þarfír, langanir
og tilfinningar og önnur börn, og
að vera þátttakendur í venjulegu
fjölskyldulífi. Það var ósk okkar
sem stóðum að útgáfu bókarinnar
að í framhaldi af henni yrði félag
stofnað um málefnið."
- Hvert verður gildi félagsins?
„Það að geta leitað til slíks fé-
lags þegar foreldri eignast barn
með Downs heilkenni og geta sem
fyrst notið þeirra sér-
stöku og yndislegu
hluta sem öll börn veita,
hlýtur að vera ómetan-
legt. Einnig á félags-
skapurinn að veita þeim
stuðning sem em í því ábyrgðar-
hlutverki að ala upp þessi börn
með því að safna saman upplýsing-
um.
Þegar fiutningur málefna fatl-
aðra frá ríki til sveitarfélaga verð-
ur að veruleika árið 1999 getum
við sem félag staðið betur vörð
um réttindi barna okkar, sérstak-
lega innan smærri sveitafélaga þar
sem erfiðara er að fá sérþjónustu
fyrir þessa einstaklinga og gæta
réttarstöðu hvers og eins.
Við horfum jákvætt til framtíð-
ar og ætlum að byggja upp já-
kvæða starfsemi. Aðstandendur
og áhugafólk ættu að sýna sam-
stöðu og mæta á stofnfund félags
áhugafólks um Downs heilkenni."
Vandinn að
ala upp öðru-
vísi barn