Morgunblaðið - 17.04.1997, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 17. APRÍL 1997 11
FRÉTTIR
Beiðni um stofnun
séreignadeilda
ósvarað í þrjú ár
Félagsmálaráðherra tekur undir áhyggjur
af aukningu á svartri atvinnustarfsemi
Var ekki spenntur
fyrir tilskipuninni
HRAFN Magnússon, fram-
kvæmdastjóri Sambands almennra
lífeyrissjóða (SAL), segir að beiðni
frá SAL um heimild til að stofna
séreignadeildir við lífeyrissjóði á
almennum vinnumarkaði hafi legið
hjá íjármálaráðuneytinu í þijú ár
og henni aldrei verið svarað. Málið
sé nú til meðferðar hjá umboðs-
manni Alþingis.
I ályktun sambandsstjórnar SAL
um lífeyrisfrumvarp ríkisstjórnar-
innar kemur fram að SAL telji
óhjákvæmilegt að lífeyrissjóðir á
almennum vinnumarkaði fái heim-
ild til að taka við viðbótargjaldi til
séreignadeilda. Ekki síst þar sem
rekstrarkostnaður sameignarsjóða
sé mjög lágur og langtum lægri
en kostnaður við rekstur banka,
tryggingarfélaga og verðbréfafyr-
irtækja sem ein eigi að fá slíkar
heimildir ef frumvarp ríkisstjórnar-
innar nái fram að ganga í óbreyttri
mynd.
„Við höfum verið með hug-
Nýir yfirmenn
við Lögreglu-
skóla ríkisins
•MEÐ tilvísun til nýju lögreglu-
laganna hefur dómsmálaráðherra
skipað lögreglumenn í nýjar stöður
yfirmanna við Lögregluskóla ríks-
ins.
Gunnlaugur V. Snævarr, sem
verið hefur yfirkennari við skólann
frá 1988, hefur
verið skipaður yf-
irlögregluþjónn.
Gunnlaugur sem
er 47 ára gamall
er kennaramennt-
aður, auk þess að
vera lögreglu-
maður.
Eiríkur Hreinn Helgason,
rannsóknarlögreglumaður hefur
verið skipaður
aðstoðaryfiriög-
regluþjónnn. Ei-
ríkur sem er 41
árs hefur starfað
í lögreglunni frá
1975 og við skól-
ann sl. fimm ár.
Umsækjendur
um stöðurnar, aðrir en Gunnlaug-
ur og Eiríkur, voru: Bjarni J.
Bogason, rannsóknarlögreglu-
maður, sem sóttu um stöðu yfir-
lögregluþjóns, og Gylfi Dýrmunds-
son, rannsóknarlögreglumaður,
sem sótti um stöðu aðstoðaryfir-
lögregluþjóns. Um báðar stöðurn-
ar sóttu eftirgreindir: Árni Sig-
mundsson, flokkstjóri, Björgvin
Björgvinsson, rannsóknarlög-
reglumaður, Einar G. Guðjónsson,
aðstoðarvarðstjóri, Halldór Hall-
dórsson, lögreglumaður, Helgi
Skúlason, fulltrúi við Lögreglu-
skólann, Hörður Siguijónsson,
rannsóknarlögreglumaður, Jón S.
Ólason, fulltrúi við Lögregluskól-
ann, Sigurgeir Arnþórsson, varð-
stjóri og Stefán Arngrímsson, lög-
reglumaður.
h|>
povtjmx .. .blahií* - kjarni inálsins!
myndir um að stofna sérstakar
séreignadeildir við okkar lífeyris-
sjóði þar sem menn gætu greitt
umfram 10% iðgjaldið. Við höfum
talið að með því að gera það þann-
ig myndum við auka sparnaðinn í
landinu sem kæmi þá séreignasjóð-
unum til góðra nota,“ segir Hrafn.
Hann segir að málið hafi strand-
að í ijármálaráðuneytinu þar sem
beiðni um þetta hafi legið í 2-3
ár og málið sé nú hjá umboðs-
manni Alþingis en Sameinaði líf-
eyrissjóðurinn sendi þangað kvört-
un. Samhliða þessu hefði svo verið
heimiluð stofnun sérstakra sér-
eignasjóða, t.d. nýverið hjá Búnað-
arbankanum.
„Þrátt fyrir allt frelsið sem verið
er að tala um er samkvæmt þessu
stjórnarfrumvarpi ekki gert ráð
fyrir því að sameignarsjóðir, sem
hafa yfirburðaþekkingu á þessu
sviði, fái að taka við viðbótarsparn-
aði og við mótmælum því,“ sagði
Hrafn.
Morgunblaðið/Ásdís
ÞESSAR stúlkur fundu dauða
gæs og ákváðu að leggja hana
til hinstu hvílu á viðeigandi
stað. „Við drápum hana ekki
- við fundum hana svona og
ætlum heim að grafa hana,“
sögðu þær við ljósmyndarann.
PÁLL Pétursson félagsmálaráð-
herra segir að hugsast geti að
vinnutímatilskipun Evrópusam-
bandsins leiði til svartrar atvinnu-
starfsemi hér á landi. Þorsteinn
Geirsson, æskulýðs- og íþróttafull-
trúi Seltjarnarness, sagði í Morgun-
blaðinu í gær að hann óttaðist að
vinnutímatilskipunin leiddi til mik-
illar tekjuskerðingar íslensks
launafólks og það leitaði í auknum
mæli eftir aukavinnu þar sem tekj-
ur þess væru ekki gefnar upp til
skatts.
„Ég var ekkert spenntur fyrir
þessari vinnutímatilskipun frá ESB
og þóttist nú sjá að það yrði til
röskunar. Aðilar vinnumarkaðarins
hafa samið um þetta sín á milli og
það hefur augljóslega ýmsa kosti
í för með sér að hafa vinnutímann
hóflegan. Það er á tilskipuninni
ákveðin sveigja svo hægt er a.ð
jafna áhrifin á lengra tímabili. Ég
held að 60-80 tíma yfirvinna á
mánuði sé út af fyrir sig óþarflega
mikil. Þeir menn lifa ekki miklu
íjölskyldulífi sem vinna svo langan
vinnudag," sagði Páll.
Launþegasamtökin vildu fá
tilskipunina í gildi
Páll sagði að eins mætti kenna
um neyslumynstri íslenskra laun-
þega og lágum tekjum að þeir
sæki í að vinna svo mikið. „Menn
hafa e.t.v. farið út í íjárfestingar
og vilja afla mikilla tekna hratt.
Ég átti reyndar von á því að sam-
tök launamanna myndu vera smeyk
um að launamenn yrðu fyrir mik-
illi tekjuskerðingu vegna tilskipun-
arinnar. Þvert á móti því sem ég
átti von á hafa launþegasamtökin
pressað mjög á um að fá þessa
skipun viðtekna," sagði Páll.
Hann sagði að hægt væri að
ímynda sér að í einhveijum tilfell-
um ýtti tilskipunin undir svarta
atvinnustarfsemi hér á landi og
það væri náttúrulega ekki af hinu
góða.
NRD NYJR OC CLÆ5ILECR
LUN í KRINCLUNNI