Morgunblaðið - 17.04.1997, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 17. APRÍL 1997 29
LISTIR
Grétar Hjaltason sýnir á Selfossi
Morgunblaðið/Sig. Fannar.
GRÉTAR Hjaltason við verk sín sem eru til sýnis
í safnahúsinu á Selfossi.
„Hér eru myndir sem
ég kannast ekki við“
Selfossi. Morgunbladið
GRÉTAR Hjaltason sýnir nú um
þessar mundir í safnahúsinu á Sel-
fossi. Sýning’in er opin virka daga
frá kl. 17-19 og laugardaga og
sunnudaga frá 14-19. Síðasti sýn-
ingardagur er sunnudaginn 20.
apríl nk.
„Ég er enginn listmálari, heldur
frístundamálari sem reynir að fást
við myndlist. Mér dettur ekki í hug
að bera mig saman við myndlistar-
fólk. Það væri eins og að halda því
fram að garðskúr væri höll. Fátt
er jarðbundnara en garðskúr, en
hallir eru á mörkunum, ég tel mig
jarðbundinn að mestu,“ segir Grét-
ar.
Grétar er Selfyssingur að upp-
runa og í tilefni af 50 ára afmæli
bæjarins taldi hann ráðlegt að sýna
á Selfossi. „Annars er ekki allt með
felldu með þessa sýningu mína. Það
eru hér myndir sem ég kannast
ekkert við að hafa málað. Þær eru
merktar mér en eru sennilega
danskar, ef ekki franskar. Kannski
ekki ljótar, en þær eru greinilega
merktar mér“ - segir Grétar
Hjaltason „Frístundamálari" frá
Selfossi.
ÞRÓUN BYGGÐAR A ÍSLANDI
Þjóðarsátt um framtíðarsýn
Ráðstefna haldin á Hótel KEA, Akureyri 22. og 23. apríl 1997
Haldin á vegum landshlutasamtaka sveitarfélaga, Sambands ísl. sveitarféiaga og Byggðastonunar
ÞRIÐJUDAGUR 22. APRÍL
Róðstefnustjóri: Einor Njólsson, bæjarstjóri ó Húsovík og formoður Eyþings.
13:00 Setning: Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, formaður Sambands
islenskra sveitarfélaga.
13:10 Ávarp: Davíð Oddsson, forsætisráðherra.
Fromtíðarmöguleikar í nýtingu mannauðs og náttúruauðlinda
13:30 Auðlindir - mannauður - þjóðartekjur - somkeppnisstaða:
Þórður Friðjónsson, forstjóri Þjóðhagsstofnunar.
13:45 Orkan og orkufrekur iðnaður: Þorsteinn Hilmarsson,
upplýsingafulitrúi landsvirkjun.
14:00 Búið með landinu: Drífa Hjartardóttir, hreppnefndarm.
Rangárvallahreppi, Keldum.
14:15 Hafið - útgerðin - byggðin: Andri Teitsson, deildarstjóri
Verðbréfadeildar fslandsbanka Akureyri.
14:30 Umræður. Umræðustjóri: Valtýr Sigurbjornarson,
Byggðastofnun á Akureyri.
15:00 Kaffihlé.
Breytingar í byggð
15:30 Hvert stefnir byggðin? - Sögulegt yfirlit og skýringar:
Sigurðui Guðmundsson, forstöðumaður Þróunarsviðs
Byggðastofnunar.
15:45 Orsakir búferlaflutninga: Stefán Ólafsson, prófessor Hóskóla
Islands.
16:00 Stefnumótun og afleiðingar ■ Stefnumótun flutt heim í hérað?:
Ingunn St. Svavarsdóttir, sveitarstjóri Öxarfjarðarhrepps.
16:15 Byggðastofnun ó breyttum timum: Egill Jónsson, formaður
stjórnor Byggðastofnunar.
16:30 Umræður. Umræðusljóri: Stefón Gíslason, sveitarstjóri
Hólmavík.
17:00 Kaffihlé.
Gestafyrirlesari
17:15 Atvinnuþróun í dreifbýli Skotlands: Dr. Kenneth WatTaggart
Director of Strategy í Highlands and Islands Enterprise.
18:00 Fyrirspurnir.
Miðvikudagur 23. apríl
Ráðstefnustjóri: Guðmundur Malmquist, (orstjóri Byggðastofnunar.
Breytt alþjóðoumhverfi, - nýir möguleikar
9:00 Staða íslands í breyttum heimi: Albert Jónsson, deildarstjóri alþjóða- og öryggismáladeildar i forsætisróðuneytinu.
9:15 Nýja samskiptatæknin - möguleikar og takmarkanir i samskiptum innanlands og við útlönd: Hólmar Svansson, deildarstjóri Innkaupadeildar SH á Akureyri.
9:30 Ferðaþjónusta og umhverfismál: Guðrún Jónsdóttir, framkvæmdastjóri Markaðsróðs Borgarness.
9:45 Umræður. Umræðustjóri: NN.
10:15 Kaffihlé.
Úrslitaatriði i samkeppnisstöðu Islands um fólkið
10:30 Æðri menntastofnanir - og mikilvægi nýrra menntunártækifæra: Þorsteinn Gunnarsson, rektor Hóskólanum ó Akureyri.
10:45 Ibúaþróun - hlutverk höfuðborgarsvæðisins: Inga Jóna Þórðardóttir, borgarfulltrúi Reykjavik.
11:00 Hvernig höldum við í hæfasta fólkið? Sigurður Tómas Björgvinsson, Kynningarmiðstöð Evrúpurannsókna.
11:15 Umræður. Umræðustjóri: Björn Sigurbjörnsson formaður bæjarróðs Sauðárkróki og form. SSNV.
12:00 Hódegisverður
Þjóðarsátt 13:00 um framtiðarsýn Hlutverk og staða atvinnufyrirtækjanna i breyttu umhverfi: Þorkell Sigurlaugsson, forstöðumoður Þróununarsviðs Eimskipafélags islands.
13:15 Opinber þjónusta í héraði: Magnús Pétursson, ráðuneytisstjóri fjórmálaróðuneyti.
13:30 Þéttbýli—dreifbýli: samherjar eða andstæðingar?: Guðrún Ágústsdóttir, forseti borgarstjórnar Reykjavíkur.
13:45 Mikilvægi sköpunar verkefna heima i héraði: Gisli Sverrir Árnason, forseti bæjarstjórnar Hornafjarðar.
14:00 Aukin verkefni sveitarfélaga - framtíðarsýn: Orífa Sigfúsdóttir, forseti bæjarstjórnar Reykjanesbæjar.
14:15 Umræður. Umræðustjóri: Guðmundur Bjarnason bæjarstjóri i Neskaupstað.
15:00 Samantekt, meginniðurstaða: Arnar Póll Hauksson, RUV Akureyri.
15:30 Ráðstefnuslit: Guðmundur Malmquist.
Skráning fer fram hjá Byggðastofnun á Akureyri í síma 461-2730, fax 461 - 2729. Vinsamlegast takið fram við skráningu,
greiðslumáta eða hvert skuli senda reikning. Ráðstefnan er öllum opin.