Morgunblaðið - 17.04.1997, Blaðsíða 56
»6 FIMMTUDAGUR 17. APRÍL 1997
MORGUNBLAÐIÐ
Ókeypis lögfræðiaðstoð
í kvöld milli kl. 19.30 og 22.00
í síma 551 1012.
Orator féhg laganema.
STRETCH
gallabuxur
Tfskuver/.lun v/Nesveg
Seltjarnarnesi sími 561 1680
*
Aðalfundur
Aðalfundur Sparisjóðs Svarfdæla, Dalvík,
verður haldinn að Rimum í Svarfaðardal
28. apríl 1997 kl. 20.30.
Fundarefni: Venjuleg aðalfundarstörf
samkvæmt samþykktum sjóðsins.
Að loknum aðalfundi er boðað til fundar í
fulltrúaráði Sparisjóðsins.
Ársreikningur fyrir árið 1996 liggur frammi í
afgreiðslum sjóðsins fyrir stofnfjáreigendur
viku fyrir aðalfund.
Stjórnin.
ecco
Úrval af herra-
og kvenskóm
Einnig nokkrar
tegundir
í barnaskóm
Toppskórinn
• Veltusundi við Ingólfstorg
• Sími 5521212.
STEINAR WAAGE „ STEINAR WAAGE
SKÓVERSLUN ^ SKOVERSLUN ^
SÍMI 55 l 85 l 9 SÍMI 568 9212 -#
IDAG
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15 frá mánudegi til föstudags
í fáum orðum
ÉG ER ósátt við það, að
„þjóðarsálin" fái ekki að
velja næsta biskup. Þjóðin
er vart hlutdrægari í sínu
vali en biskupskjósendur
innan prestastéttarinnar,
þar sem hver höndin virð-
ist upp á móti annarri, eins
og í þinginu.
Um leið vil ég láta í ljós
fróma ósk. Mættum vér fá
meira að heyra af uglu-
speglum og spaugurum,
því eins og meistari Þór-
bergur orðaði það:
„Grunntónn tilverunnar er
meinlaust grín“.
Gjört á vinnukonufrí-
daginn.
Guðrún Jakobsen,
Bergstaðastræti 34.
Dæmið ekki,
eða þið
verðið dæmdir
í MORGUNBLAÐINU
þann 10. apríl birtist frá-
bær grein „Forsetasonur
inn“ eftir Daníel Sigurðs-
son, kennara. Það er svo
sannarlega fagnaðarefni
þegar kennari verður til
að verja Björn Sv. Björns-
son.
Ég kynntist Bimi fyrir
mörgum árum þegar ég
var gjaldkeri í varahluta-
verslun hjá Heklu hf, en
þá var Björn umboðsmað-
ur fyrir Encyciopedica
Britannica í sama húsi.
Bjöm kom alltaf til að
heilsa og hressa okkur í
búðinni á svo skemmtileg-
an hátt. Ég gleymi því
ekki.
Að lokum skulum við
minnast orða Drottins:
„Dæmið ekki, eða þið verð-
ið dæmdir".
Virðingarfyllst,
Vilhjálmur Alfreðsson,
Efstasundi 76, Rvík.
Minnisvarði um
Jón biskup
VEGNA greinar í Velvak-
anda fyrir nokkmm dögum
um minnisvarða um Jón
biskup Arason vil ég benda
fólki á að það er til minnis-
varði við veginn sem liggur
niður að Skálholti. Þessi
minnisvarði var settur upp
1912. Það var ensk kona
sem gekkst fyrir því, Disn-
ey Leith. Hún var vinveitt
íslandi og íslenskri sögu.
Hún fékk til liðs við sig
mann sem hét Þorgrímur
Guðmundsen. Matthías
Þórðarson fomminjavörð-
ur benti henni á þennan
stað þar sem hann taldi
heimildir segja að þar
hefðu Jón biskup og synir
hans verið höggnir. Magn-
ús Guðnason, steinsmiður,
vann minnisvarðann. Það
var gyllt letur framan á
honum sem var farið að
mást. 1993 var minnis-
varðinn tekinn niður og
letrið var endurnýjað, er
núna upphleypt. Það var
félag kaþólskra
leikmanna sem gekkst
fyrir því að letrið yrði
endumýjað. Steinninn var
síðan settur aftur upp 5.
nóvember 1994. Þar voru
viðstaddir þá athöfn sr.
Guðmundur Óli Ólafsson,
sóknarprestur, og sr.
Sigurður Sigurðarson
vígslubiskup. Eftir
athöfnina var bænastund
og ávörp flutt í kirkjunni.
Torfi Ólafsson,
Melhaga 4.
Tapað/fundið
Perluhringur
tapaðist
PERLUHRINGUR úr gulli
með grænum steini tapað-
ist fyrir framan 10-11 í
Miðbæ í byijun mars.
Uppl. í síma 565-1550 eða
565-4764. Fundarlaun.
Belti af frakka
tapaðist
UM mánaðamót var ég svo
óheppin að tapa belti af
frakkanum mínum sem er
dökkblár, ef einhver skyldi
hafa hirt það en ekki hent
því hafi þá samband í síma
561-4895.
Stjömukort
tapaðist
STJÖRNUKORT í bókar-
líki tapaðist í Garðabænum
11. apríl. Skilvís finnandi
vinsamlega hafi samband
í síma 565-5445.
Eyrnatappi
tapaðist
EYRNATAPPI, sérmótað-
ur úr sílikoni, tapaðist
föstudaginn 11. apríl á
tónleikum í Háskólabíói
eða eftir tónleikana á leið
út í rútu eða í rútunni.
Skilvís finnandi vinsam-
lega hringi í síma
552-8256.
SKAK
Umsjðn Margcir
Pétursson
STAÐAN kom upp í keppni
í áskorendaflokki á Skák-
þingi íslands um páskana.
Siguijón Sigurbjörnsson
var með hvítt, en Stef-
án Kristjánsson hafði
svart og átti leik.
Hvítur var að leika 25.
g2—g4?, en 25. Bxg7
eða 25. Df2l? Var mun
25^ - Hxd4! 26. Hxf7
(Skárra var 26. Rf3,
en eftir 26. - Hd5 27.
gxh5 — Hxh5 28.
Dxa7 — Dc8 stendur
svartur einnig til vinn-
ings) 26. — Kxf7 27.
Df3+ - Kg8 28. cxd4
- Hf8 29. De2 -
Dxd4+ og hvítur
gafst upp.
Klúbbakeppni Hellis fer
fram föstudagskvöldið 18.
apríl kl. 20 í félagsheimili
Hellis í Mjódd (hjá Bridge-
sambandinu). Allir skák-
klúbbar eru boðnir vel-
komnir til leiks. Skráning
á staðnum, 15 mínútum
áður en taflið hefst.
SVARTUR leikur og vinnur.
COSPER
NEI, það er einmitt kostur að hafa stóriðju í nágrenn-
inu. Þá sérðu alltaf úr hvaða átt hann blæs.
Víkveiji skrifar...
SJÓNVARPIÐ sýndi í fyrri viku
Kastljósþátt, þar sem fjallað
var um strand Víkartinds. í þættin-
um var fjallað um strandið frá öllum
sjónarmiðum og reynt að komast
að því hvernig á þeim töfum hafi
staðið, sem orðið höfðu á björgun
varnings úr skipinu. í sjálfu sér var
þátturinn hin bezta samantekt á
þessu máli, þar sem sitt sýndist
hverjum.
Þegar Kastljósþátturinn var
kynntur, sagði kynnirinn, að nú
yrði strandmálið krufið til mergjar.
Þetta var margendurtekið í kynn-
ingum og gott ef þulan fór ekki
einnig með þessa staðhæfingu.
Heldur stakk þetta Víkverja, vegna
þess að hann álítur að með þessari
staðhæfingu sé verið að rugla sam-
an tveimur orðatiltækjum, þ.e.a.s.
annars vegar að kryfja eitthvað,
sem er gott og gilt tungutak og
hins vegar að bijóta eitthvað til
mergjar. Orðatiltækið að bijóta til
mergjar er afskaplega myndrænt,
er fólk sat að snæðingi og vildi ná
í merginn, sem var inni í beininu.
Til þess varð að bijóta beinið til að
ná til mergsins, sem mörgum þótti
lostæti.
xxx.
INN Á borð Víkveija barst í vik-
unni tímaritið Dagfari, sem er
tímarit Samtaka herstöðvarand-
stæðinga. Satt að segja brá Víkveija
svolítið við að fletta blaðinu, því að
aðstandendur þess virðast vera ein-
hvers konar nátttröll, sem dagað
hafa uppi í kaldastríðshugsunar-
hætti, sem Víkveiji hélt satt að segja
að heyrði fortíðinni til. En þetta fólk
virðist ekkert hafa lært, skilið og
lesið síðastliðinn áratug. Forneskjan
í hugarfari þess virðist algjör. Það
virðist gjörsamlega hafa misst úr
síðastliðinn áratug.
Enn virðist hatrið á Bandaríkja-
mönnum heltaka þetta fólk og á
heimskorti, sem fylgir grein Gunnars
Karlssonar sagnfræðiprófessors og
birt er á bls. 11 í tímaritinu, er
U.S.S.R. eða Sovétríkin enn við lýði.
Sovétríkin eru raunar merkt með
sérstökum skálínum á kortinu, rétt
eins og Kúba, Mongólía og Kína og
skýringin á kortinu segir að um sé
að ræða „kommaríki". Sérkennileg
sagnfræði það.
Þeir aðilar, sem skrifa í blaðið
eru, auk áðurnefnds sagnfræðipró-
fessors, Sveinn Rúnar Hauksson
læknir, Einar Valur Ingimundarson
umhverfisverkfræðingur, sem raun-
ar er titlaður ritstjóri blaðsins, Þor-
leifur Friðriksson sagnfræðingur,
Garðar Mýrdal eðlisfræðingur og
Einar Már Guðmundsson rithöfund-
ur. Leiðara blaðsins skrifar svo Birna
Þórðardóttir. Ein grein, sem flokkast
undir aðsent efni og ber fyrirsögnina
„Sölumenn dauðans" er eftir Ástþór
Magnússon stofnanda Friðar 2000.
xxx
LEIÐARA Bimu Þórðardóttur
segir hún, að í þessu tölublaði
Dagfara sé reynt að leita svara við
því hvort starf Samtaka herstöðvar-
andstæðinga hafi verið hjóm eitt og
engu skilað. Hún segir: „Vandi okk-
ar og verkefni er ætíð hið sama; að
halda baráttunni vakandi þar til sig-
ur vinnst og gleyma ekki að þar
þarf að flétta saman alla þijá þætt-
ina - efnahagslega, pólitíska og sið-
ferðilega.
Nató hefur í engu breyst. Þar er
tilgangurinn hinn sami og fyrr, að
vemda hagsmuni hinna ríku gegn
okkur „sem eigum / ekkert föður-
land nema jörðina / enga hugsjón
nema lífið“.
Veit þetta fólk ekki, að nú berst
fjöldi fyrrverandi Varsjárbandalags-
þjóða fyrir því að gerast aðilar að
Atlantshafsbandalaginu, NATO? Og
svo er fullyrt, að ekkert hafi breytzt.