Morgunblaðið - 17.04.1997, Page 10
10 FIMMTUDAGUR 17. APRÍL 1997
MORGUNBLAÐIÐ
FRETTIR
Þjóðhagsstofnun spáir 3,5% hagvexti í ár og 3,8% hagvexti á næsta ári
Kaupmáttur ráðstöfunartekna
eykst um 3,5-4% árlega til 2000
Horfur eru á að hagvöxtur verði mikill hér
á landi á þessu ári annað áríð í röð, og spá-
ir Þjoðhagsstofnun 3,5% hagvexti en 2,4%
vöxtur er að meðaltali í aðildarríkjum OECD.
Spáð er að verðbólga verði til jafnaðar á
bilinu 2,5-3% 1997-1999 og að kaupmátt-
ur ráðstöfunartekna aukist um 3,5-4% á
ári á sama tímabili. Hallur Þorsteinsson
kynnti sér rit Þjóðhagsstofnunar um þjóðar-
búskapinn og ræddi við Þórð Friðjónsson,
forstjóra Þjóðhagsstofnunar.
Hlutfallsleg breyting þjóðarútgjalda og lands-
framleiðslu frá fyrra ári og viðskiptajöfnuður
sem hlutfall af landsframleiðslu, 1982-1997
Þjóðarútgjöld
Landstramleiðsla /\ ~ X
U| N:7LJu Ll T\| i’ i/ j j iN [7‘ 7“
Rfl \l \\fíðsktptalðfnuður ■. .. . . ™ V >L-L Aætl. Spa
'10 1982 1983 1984 1985 1986 1987 1981 1988 1989 1990 1991 1992 1993 1994 1995 1996 1997
í RITI Þjóðhagsstofn-
unar, Þjóðarbúskapn-
um, kemur fram að
mikill uppgangur hafi
sett svip á þróun ís-
lenskra efnahagsmála
að undanförnu, og
komi þetta meðal ann-
ars fram í einstaklega
hagfelldum niðurstöð-
um fyrir síðastliðið ár.
Samkvæmt áætlunum
var hagvöxtur 5,7% á
árinu 1996 og hefur
vöxturinn ekki verið
meiri í efnahagslífinu
hér á landi frá árinu
1987, og jafnframt
var þetta með hæstu
hagvaxtartölum í iðnríkjum á síð-
asta ári. Áætlað er að þjóðarút-
gjöld í heild hafi aukist um 7,4%
í fyrra og skýrist þessi aukning
af 23,5% aukningu íjárfestingar
og 6,5% aukningu einkaneyslu.
Samneysla jókst minna, eða um
2,5%, og útflutningur vöru og þjón-
ustu í heild var tæplega 10% meiri
en árið á undan.
Sími 555-1500
Kópavogur
Foldarsmári
Glæsilegt ca 140 fm nýlegt raðhús á
einni hæð. Áhv. ca 5,5 millj. Verð 11,8
millj.
Garðabær
Stórás
Gott ca 200 fm einbhús auk 30 fm
bílsk. Mögul. á tveimur íb. Ekkert áhv.
Skipti möguleg á 3ja herb. fb.
Reykjavík
Stöðugleiki hefur
einkennt verðlags-
þróunina undanfarin
þrjú ár. Verðbólga
milli áranna 1995 og
1996 var ívið meiri
en næstu tvö árin á
undan, eða 2,3% en
var 1,7% 1995 og
1,5% 1994. Kaup-
máttur ráðstöfunar-
tekna á mann jókst
um 4,5% frá árinu á
undan, og síðastliðin
tvö ár hefur kaup-
máttur ráðstöfunar-
Þórður tekna á mann aukist
Friðjónsson. um rúmlega 8%, sem
er töluvert meiri
aukning en í flestum öðrum lönd-
um.
Fjárfestingar í atvinnuvegum
og aukin einkaneysla
Horfur eru á að hagvöxtur verði
mikill hér á landi á þessu ári ann-
að árið í röð, og spáir Þjóðhags-
stofnun 3,5% hagvexti borið saman
við 2,4% vöxt að meðaltali í aðild-
arríkjum OECD. í fyrra var hag-
vöxturinn hér á landi 5,7%, og er
reiknað með að hann verði áfram
mikill á árunum 1998 og 1999, eða
3,8% fyrra árið og 2,8% hið seinna.
Stefnir því í að hagvöxtur á ís-
landi verði áfram meiri en í helstu
viðskiptalöndum.
Hinn mikli hagvöxtur stafar
annars vegar af stór- -----------
aukinni atvinnuvega-
fjárfestingu og hins veg-
ar af aukinni einka-
neyslu. Þjóðarútgjöld í
heild eru talin aukast
um 7% á þessu ári í
framhaldi af 7,4% aukningu í
fyrra, og hafa þau vaxið mun
YFIRLIT ÞJÓÐHAGSSPÁR Hlutfallslegar breytingar frá fyrra ári (%) 1994 1995 1996 1997
Einkaneysla +1,8% +4,6% +6,5% +5,0%
Samneysla +3,7% +1,3% +2,5% +2,0%
Fjárfesting -1,1% -2,8% +23,5% +20,0%
Þjóðarútgjöld +1,5% +3,4% +7,4% +7,0%
Otflutningur vöru og jþjónustu +9,8% -2,3% +9,9% +2,0%
Innflutningur vöru og þjónustu +4,1% +3,8% +16,0% +12,7%
Landsframleiðsla +3,5% +1,2% +5,7% +3,5%
Þjóðartekjur +3,5% +2,1% +4,4% +3,9%
Viðskiptajöfnuður, (% af iandsfrl.) +1,9% +0,8% -1,9% -5,0%
Skipholt
Góð ósamþ. einstaklíb. ca 48 fm í fjölb.
Verð 2,7 millj.
Leirubakki
Góð 4ra herb. Ib. ca 90 fm á 3. hæð.
Fráb. útsýni. Verð 6,6 millj.
Hafnarfjörður
Gunnarssund
Tíl sölu er góð 3ja herb. (b. á jarðh.
Breiðvangur
Mjög góð 5 herb. ca 112 fm íb. á
2. hæð. Laus fljótl. Verð 8,4 millj.
Álfaskeið
Einbýlishús á tveimur hæðum með
hálfum kj„ samtals 204 fm. Mikið
endurn. Ath. skipti á lítilli íb.
Reykjavíkurvegur
Glæsileg 2ja herb. íb. á 3. hæð. Lltið
áhv. Verð 4,3 millj.
Æ Fasteignasala,
IT Strandgötu 25, Hfj.
Árni Grétar Finnsson, hrl.
Stefán Bj. Gunnlaugsson, hdl.
Stöðugleiki
hefur ein-
kennt verð-
lagsþróunina
hraðar en þjóðartekjurnar að und-
anförnu og fyrir vikið hefur mynd-
ast talsverður halli á viðskipta-
jöfnuði. Hallinn stefnir í tæplega
26 milljarða króna á þessu ári,
eða 5% af landsframleiðslu, í stað
9,1 milljarðs króna halla í fyrra
og 3,4 milljarða afgangs í hitti-
fyrra. Innflutningur vegna stór-
iðjuframkvæmda er áætlaður um
13 milljarðar á þessu ári.
Verðbólga færlst
nokkuð í aukana
í kjölfar nýgerðra kjarasamn-
inga er gert ráð fyrir að verðbólga
færist nokkuð í aukana, og spáir
Þjóðhagsstofnun að verðbólgan
verði til jafnaðar á bilinu 2,5-3%
á samningstímanum, þ.e. 1997-
1999, en hún verði þó meiri fram-
an af. Þetta er töluvert meiri verð-
bólga en búist er við í helstu við-
skiptalöndum. Miðað við óbreytt
nafngengi krónunnar felur þetta í
sér um það bil 1% hækkun á raun-
gengi krónunnar á ári á næstu
þrernur árum.
Á grundvelli kjarasamninganna
og skattaráðstafana í tengslum
við þá er reiknað með að kaup-
máttur ráðstöfunartekna aukist
um 3,5-4% á ári á árunum 1997-
1999, en til samanburðar er gert
ráð fyrir 2-3% aukningu kaup-
máttar á ári að meðaltali í aðildar-
ríkjum OECD á umræddu tímabili.
Afkoma atvinnuveganna er tal-
in verða góð á þessu ári eins og
undanfarin þijú ár. Þjóðhags-
stofnun ætlar þó að afkomuþróun-
in verði mismunandi eftir grein-
um, og einkum megi reikna með
að hún versni I láglaunagreinum
og útflutnings- og samkeppnis-
------- greinum. Þetta stafar
annars vegar af því að
lægstu laun hækkuðu
umfram meðaltals-
hækkanir samkvæmt
________ nýgerðum kjarasamn-
ingum og hins vegar af
hækkun raungengisins. Á móti
vegur líklegur afkomubati í ýms-
um þjónustugreinum og innlend-
um vaxtargreinum.
Reynir á þanþol hagkerfisins
Vegna mikilla umsvifa og eftir-
spurnar í þjóðarbúskapnum er
búist við að atvinnuleysi minnki á
næstu misserum. Þannig er spáð
að atvinnuleysið á þessu ári verði
að meðaltali 3,7% af vinnuaflinu
en var 4,3% í fyrra og 5% í hitti-
fyrra. Reiknað er með að atvinnu-
leysið minnki einnig á árinu 1998,
en þó minna en á þessu ári.
Þjóðhagsstofnun segit' það
liggja í hlutarins eðli að mikill vöxt-
ur í efnahagslífinu muni reyna á
þanþol hagkerfisins á næstu miss-
erum. Flest bendi til þess að fram-
leiðslugeta þjóðarbúsins verði nýtt
að þeim mörkum sem samrýmist
verðstöðugleika. Jafnframt stefni
í meiri halla á viðskiptajöfnuði en
æskilegt geti talist, og meiri aukn-
ing þjóðarútgjalda en Þjóðhags-
stofnun geri ráð fyrir feli í sér
hættu á að verðbólga og viðskipta-
halli fari úr böndum. Því sé mikil-
vægt að stuðla að auknum þjóð-
hagslegum sparnaði á næstu árum
með því að gæta ýtrasta aðhalds
í ríkisfjármálum og taka nægilega
þétt í taumana í peningamálum til
að halda aftur af vexti þjóðarút-
gjalda.
Efnahagshorfur á næstu árum
í Þjóðarbúskapnum kemur fram
að næstu ár muni markast mjög
af byggingu og gangsetningu
nýrra stóriðjuvera og raforkufram-
kvæmdum vegna þeirra. Nær ör-
uggt þyki að álver Norðuráls verði
reist á Grundartanga og einnig
verði afkastageta Islenska járn-
blendifélagsins aukin, en ------
þessar framkvæmdir
bætast við mannvirkja-
gerð vegna stækkunar
ISAL sem enn stendur
yfir. Líklegt þykir að
hagvöxtur næstu fimm
árin verði um 3% á ári. Framan
af tímabilinu verður hann mun
meiri, eða 3,5-4% á ári, en hins
vegar mun hægari á seinni hluta
þess þar sem ekki er gert ráð fyr-
ir frekari stóriðjuframkvæmdum
en þegar eru í sjónmáli. Tii saman-
burðar er spáð 2,8% hagvexti til
jafnaðar á ári í ríkjum OECD á
næstu fimm árum.
Þjóðhagsstofnun gerir ráð fyrir
að samneysla aukist að jafnaði
um 1,7% á ári að jafnaði 1997-
2001, og skattbyrði sem hlutfall
af landsframleiðslu lækki nokkuð,
en að fjárfestingar hins opinbera
vaxi lítillega, eða um 0,7% árlega.
Gert er ráð fyrir að nafnvextir á
erlendum lánum hækki um 0,3
prósentustig árið 1997 en raun-
vextir verði nánast óbreyttir árin
1997-2000.
Gert er ráð fyrir að útflutningur
sjávarafurða aukist um 2,5% að
jafnaði á ári og útflutningur stór-
iðjuafurða muni aukast mikið sam-
Álag verður á
hagkerfinu á
næstu miss-
erum
hliða gangsetningu stækkunar
ÍSAL, Norðuráls og stækkunar
íslenska járnblendifélagsins árin
1997-2000. Útflutningur áls eykst
úr um 100 þúsund tonnum á ári í
um 220 þúsund tonn og útflutning-
ur kísiljárns eykst úr um 70 þús-
und tonnum árlega í um 110 þús-
und tonn.
Framkvæmdir vegna iðjuver-
anna á Grundartanga standa yfir
árin 1997-2000 með hámarki árið
1998, en þar verður alls fjárfest
fyrir um 36 milljarða króna og
1.600 ársverk þarf til fram-
kvæmdanna. Hagvöxtur 1997
vegna þessara framkvæmda verð-
ur 1,2% meiri en ella, en áhrif fjár-
festinganna fjara síðan út 1999-
2000. Þegar tekið hefur verið til-
lit til innfluttra aðfanga til fram-
leiðslu áls og járnblendis er ætlað
að eftir standi um 0,9% af lands-
framleiðslunni og tæplega 180
frambúðarstörf bætast við í iðju-
verum og raforkuvinnslu. Var-
anleg heildaraukning landsfram-
leiðslunnar vegna þessara verk-
efna er áætluð um 1,1%. Að teknu
tilliti til erlendra vaxta- og arð-
greiðslna vegna framkvæmdanna
telur Þjóðhagsstofnun að ætla
megi að eftir standi um 0,4% af
þjóðarframleiðslu sem beint fram-
lag til viðskiptajafnaðar og vergr-
ar þjóðarframleiðslu. Hins vegar
gæti varanleg heildaraukning
þjóðarframleiðslunnar orðið allt
að 0,7% með traustri hagstjórn.
Höfuðatriði að gæta aðhalds
í ríkisfjármálum
Þórður Friðjónsson, forstjóri
Þjóðhagsstofnunar, segir að það
sem mestu máli skipti sé annars
vegar það að engin merki sjáist
um að brestir séu í raunskilyrðum
hvorki innanlands né erlendis og
flest bendi til þess að þjóðhagsleg
skilyrði verði hagstæð á næstu
árum, en hins vegar valdi ákveðn-
um áhyggjum hættumerki sem
felist í því að töluvert mikill gang-
ur er í efnahagsstarfseminni.
„Það eru einfaldlega gömui og
ný sannindi að þegar rofar til í
efnahagsmálunum hjá okkur þá
erum við fljótir að taka við okkur
og reynslan sýnir þetta mjög vel.
Þess vegna er þeim mun mikil-
vægara að hagstjórn veiti efna-
hagslífinu nægilega mikið aðhald
á næstu misserum, en það er
nauðsynlegt til að koma í veg fyr-
ir að þensla grafi um sig. Þeim
mun traustara sem aðhaldið er
þeim mun líklegra er að við náum
betri árangri í efnahagsmálunum
á næstu árum. Ef verðbólga nær
hins vegar að grafa um sig þá er
hætt við að það feli í sér að óum-
flýjanlegt verði að grípa til harka-
legri aðgerða síðar. Þjóðarútgjöld-
in aukast hratt, viðskiptahalli er
meiri en æskilegt er og sömuleiðis
-------- verðbólga. Það verður
því töluvert mikið álag á
hagkerfinu á næstu
misserum," sagði Þórð-
ur.
________ Hann sagði að höfuð-
atriði væri að gæta að-
halds í ríkisfjármálum og að við
undirbúning fjárlaga fyrir næsta
ár verði það sjónarmið ríkjandi að
ríkisíjármálin stuðli að því að halda
aftur af þjóðarútgjöldum og efla
þjóðhagslegan sparnað þannig að
ýtrasta aðhalds verði gætt í út-
gjöldum ríkissjóðs á árinu 1998.
„Það er einmitt þá sem umsvifin
við framkvæmdirnar eru langmest
og þess vegna er meginmál að
ríkissjóður veiti þeim framkvæmd-
um eins mikið svigrúm í þjóðarbú-
skapnum og mögulegt er og miði
frekar að því að auka opinberar
framkvæmdir á árunum 1999 og
2000 þegar kúfurinn í fram-
kvæmdum í einkageiranum er að
baki. Að því marki sem ekki reyn-
ist unnt að halda aftur af þjóðarút-
gjöldum með ríkisfjármálum er
auðvitað nauðsynlegt að halda
nægilega þétt um taumana í pen-
ingamálum þannig að stöðugleik-
anum verði ekki stefnt í tvísýnu,“
sagði Þórður.