Morgunblaðið - 17.04.1997, Side 26
26 FIMMTUDAGUR 17. APRÍL 1997
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
EG ER aðallega að fjalla um sköpun-
argleðina og hið sjónræna. Ég
nálgast málverkið af ást og er
reyndar ástfanginn af því,“ segir
Daði sem í gegnum málverkið nær góðu
sambandi við kvenlíkamann, reyndar svo
góðu að mörgum þykir nóg um. „Mörgum
finnast myndir mínar of erótískar. Ég vinn
líka mjög meðvitað með tákn listar og reð-
urs, pensilinn, en hann er milliliður fyrir
mig og ég nota hann til að tjá tilfinningar
mínar. Guðbergur Bergsson segir í einni bók
sinni; fegurðin býr í líkama sem elskar, og
fyrir mér er málverkið líkami.“
Hann segir fólk vilja eignast myndir sínar
því þær séu fullar af ævintýrum en hann
málar ævintýralegar myndir af því að honum
finnst sem nóg sé til af því dimma og illa
í heiminum þótt hann sé ekki að bæta þar
við. Hann hefur þó komið með innlegg um
dekkri hliðar mannlífsins. „Ég málaði til
dæmis einu sinni mynd af líkkistu. Líkt og
í skáldsögunum þarf alltaf einhver að deyja
á endanum.“
Þessi sýning er óvenju björt, sem er
náttúrlega ekki nógu gott, maður
fær ekki starfslaun út á það.
Nefndarfólk hefur enga trú á bjart-
sýnum listamanni."
í framhaldi af þessum ummælum berst
tal okkar Daða að máli sem honum liggur
mjög á hjarta, starfslaunum listamanna en
Daði hefur á síðusta áratug fengið alls eins
árs starfslaun, þrátt fyrir að hann sæki allt-
af um. „Það er eins og það sé einhver einn
hópur sem hirðir þetta. Þetta er orðið dálít-
ið líkt og þegar Septem-mennirnir réðu lög-
um og lofum í landinu og hirtu þá bita sem
voru í boði. Súmmaramir voru þá ungu
mennimir og blótuðu liðinu sem réð en nú
hefur þetta snúist við og þeir eru orðnir
valdaaðili og teknir við stjórnartaumunum.
Kristján Guðmundsson hefur tekið við stöðu
Þorvaldar Skúlasonar," segir Daði og glottir.
Er ekkert útskýrt af hverju þú færð ekki
laun?
Málverkið hefur átt undir högg að
sækja,“ segir Daði sem fullyrðir
að veðjað sé á ákveðna listamenn
til að senda á sýningar erlendis
fyrir íslands hönd, listamenn sem eiga að
heita frægir erlendis en séu það kannski
alls ekki sem sést best á því, að sögn Daða,
að þeir em, líkt og aðrir íslenskir lista-
menn, sjaldséðir í erlendum listatímaritum.
„Þessi svokallaða nýlist er miklu meira
áberandi í opinbera kerfínu á íslandi miðað
við það sem er að gerast erlendis. Þar em
allt aðrir hlutir í gangi.“
„Við teljum okkur vera svo mikið með á
nótunum sem við emm alls ekki. Post hum-
an stefnan svokallaða sem var mikið ríkj-
Einhver deyr
á endanum
Daði Guðbjömsson listmálari segir íslendinga vera
sveitamenn og þeir eigi ekki að vera að apa eftir
erlendum listastefnum. Þóroddur Bjamason komst
að þessu og ýmsu öðm í samtali við listamanninn
sem sýnir verk sín í Gallerí Fold við Rauðarárstíg.
Morgunblaðið/Kristinn
DAÐI Guðbjörnsson segir fólk ekki hafa neina trú á bjartsýnum listamönnum.
andi í listum fyrir 6-8 áram, og er mikið landinu að mestu.“ Daði segir ástæðuna
í gangi ennþá, virðist hafa farið framhjá vera þá að ofuráhersla hafi verið lögð á
formalisma í myndlist, bæði nú, á valdatíma
Súm-listamannanna, og áður. „Ég vil til
dæmis meina að ég sé Post humaisti að
miklu leyti sem kemur fram í því, hvernig
ég nálgast kvenlíkamann í verkum mínum.
Þegar ég sæki um starfslaun er ég
ekki að sækja um til að ég géti
haldið áfram að prenta grafík og
ramma inn myndir heldur til að
komast út úr því sem ég er í dags daglega,
feta nýjar slóðir.“
Þú ert í raun að segja það að þú fáir
ekki tækifæri til að þróa list þína áfram?
„Já, ég fæ ekki tima til að vinna að nýj-
um verkefnum.“
Ef við útilokum alla klíkustarfsemi. Held-
ur þú að það séu einhveijir aðrir þættir sem
ráða því að þú fáir ekki starfslaun lista-
manna?
„Kannski er það af því að ég hef ekki
búið erlendis í nógu langan tíma. Kannski
hef ég haft of háar tekjur. Kannski þarf
að koma upp einhveiju heimsfrægðarkerfi
þannig að maður fái visst marga bónus-
punkta sem fara eftir mikilvægi salanna sem
maður sýnir í.
Mér þætti það mjög til bóta ef að lista-
menn fengju að vita hveijar starfsreglur
úthlutunarnefndarinnar era og hvað telur
þegar umsókn er metin. Það er líka slæmt
að nefndarmenn séu allir skipaðir af sama
aðila, SÍM.“
Daði segir þá myndlist sem er ríkj-
andi hér á landi upprunna í millj-
ónaþjóðfélögum og þar séu henn-
ar náttúrlegu heimkynni. „Maður
er mikið að velta fyrir sér hvað þessi stór-
borgarmyndlist er sterk hérna.“ Ástæðuna
segir listamaðurinn vera þá að íslenskir lista-
menn séu haldnir minnimáttarkennd. „Við
eram að búa til stórborgarmyndlist til að
sanna fyrir okkur og öðrum að við séum
rosalega stórir karlar.“
Eigum við þá að búa til sveitamyndlist?
„Nei, alls ekki, ég vil bara meina það að
myndlist eins og ég bý til og fleiri, sé miklu
eðlilegri upplifun á landinu og umhverfmu
hér. Við erum bara sveitamenn hér og verð-
um bara hlægileg á erlendum vettvangi með
því að vera að flytja út stórborgarmyndlist
sem gerð er af vanefnum. Hún verður ekki
trúverðug."
Á sýningunni í Gallerí Fold eru vatnslita-
myndir eftir Daða. Verkin eru glaðleg og
björt, í þeim koma fiskar og bátar ítrekað
fyrir, ásamt konunni, að sjálfsögðu. Margur
myndi sjálfsagt ekki viðurkenna að verkin
væru dæmigerð íslensk.
Ert þú að stunda hina einu sönnu ís-
lensku myndlist?
„Mín myndlist er í takt við tíðarandann
og mig sjálfan sem persónu.
HAGKAUP
■fynr fiölskMm
Tónleikar
Finns
endurteknir
TÓNLEIKAR Finns Bjarnasonar og
Jónasar Ingimundarsonar verða end-
urteknir I Listasafni Kópavogs í
kvöld klukkan 20:30.
Finnur Bjarnason og Jónas Ingi-
mundarson fluttu á mánudagskvöld-
ið lagaflokkinn Malarastúlkuna
fögra eftir Schubert. Margir urðu
frá að hverfa og því hefur verið
ákveðið að endurtaka tónleikana.
---------♦ ♦ ♦
Jóhann og Mar-
is í Njarðvíkum
JÓHANN Smári Sævarsson, ópera-
söngvari og Maris Skuja, píanóleik-
ari endurtaka tónleika sína sem
haldnir voru í íslensku óperunni 15.
apríl sl. Tónleikana halda þeir í Ytri-
Njarðvíkurkirkju í kvöld kl. 20.30.
Á efnisskrá eru rússnesk ljóð, ís-
lensk sönglög og óperuaríur úr ýms-
um áttum.
----♦—♦—♦---
Sigurður Örlygs-
son opnar sýningu
SIGURÐUR Örlygsson opnar mynd-
listarsýningu í Galleríi Regnbogans,
Hverfísgötu 54, í dag, fimmtudag.
Sýning Sigurðar verður opin virka
daga frá kl. 16-24 og frá kl. 14-24
um helgar.