Morgunblaðið - 17.04.1997, Side 39
MORGUNBLAÐIÐ
AÐSEIMDAR GREINAR
FIMMTUDAGUR 17. APRÍL 1997 39
Tæknimenntun og
Tækniskóli Islands
NÚ UM stundir er
eðlilegt að leiða hug-
ann að þörf þjóðfélags-
ins á tæknifræði-
menntun og hvar hægt
er að öðlast hana.
Mjög erfitt er að
gera sér grein fyrir hve
marga tæknifræðinga
þarf að útskrifa á
næstu árum og áratug-
um. Hver þarf nýliðun-
in að vera? Núverandi
skipting verk- og
tæknifræðinga er ekki
í samræmi við skipt-
ingu þeirra í nágranna-
löndum okkar. Þar er
það álitið eðlilegt að
tæknifræðingar séu fleiri en verk-
fræðingar. Ef notaðar eru þær for-
sendur sem notaðar eru t.d. í Dan-
mörku til þess að áætla nýliðun í
tæknistéttunum og þá þróun at-
vinnulífs í iðnvæddu þjóðfélagi er
ekki óeðlilegt að gera ráð fyrir því
að þurfa að brautskrá um 100
tæknifræðinga og um 40 verkfræð-
inga árlega á næstu árum og ára-
tugum.
Tækniskóli íslands
Haustið 1961 skipaði þáverandi
menntamálaráðherra Gylfi Þ. Gísla-
son, nefnd þriggja manna til að
semja frumvarp til laga um stofnun
tækniskóla á íslandi. Frumvarpið
varð að lögum 1963. Eftir þetta
skipaði ráðherra tækniskólanefnd
til að semja reglugerð um Tækni-
skóla íslands. Nefndin starfaði á
árunum 1963 til 1964. Haustið
1964 var skólinn settur í fyrsta
sinn, nánar tiltekið 2. október. Frá
upphafi hefur Tækniskólinn verið
sniðinn að danskri fyrirmynd og er
svo enn.
Fyrsti rektor skólans var ráðinn
Ingvar Ingvarsson og gegndi hann
stöðunni í tvö ár. Fyrra skólaárið
var Helgi Gunnarsson vélatækni-
fræðingur rektor fyrir Ingvar sem
dvaldi í Bandaríkjunum. Bjarni
Kristjánsson, vélaverkfræðingur,
var rektor skólans frá 1963 til 1990,
en þá tók við núverandi rektor skól-
ans Guðbrandur Steinþórsson
byggingaverkfræðingur.
Fyrstu árin urðu allir nemendur
skólans að fara út til Danmerkur
til að ljúka námi sínu þar að loknum
fyrsta hluta hér heima. 1969 urðu
tímamót í sögu skólans en þá var
hafist handa við að fullmennta
byggingatæknifræðinga hér á
landi.
Frá árinu 1991 hafa iðnaðar-
tæknifræðingar verið útskrifaðir
frá Tækniskóla íslands. Á næsta
ári er fyrirhugað að fyrstu véla-
og orkutæknifræðingarnir braut-
skráist frá skólanum. Enn verða
nemendur í rafmagnstæknifræði að
fara til Danmerkur og ljúka námi
þar að lokum fyrsta hluta hér
heima.
Tæknifræðideildir
Tækniskóla íslands
Við Tækniskóla íslands starfa
ijórar tæknifræðideildir, bygginga-
deild, iðnaðardeild, véla- og orku-
deild og rafmagnsdeild.
Byggingadeild Tækniskóla ís-
lands er önnur stærsta sérgreina-
deild skólans, og lengi vel eina
deildin sem útskrifaði tæknifræð-
inga. Upphaf byggingadeildarinnar
má telja að hafí verið eins og áður
segir 1968, en þá var ákveðið að
hefja kennslu til lokaprófs í bygg-
ingatæknifræði. Við skipulagningu
á tæknifræðináminu var tekið mið
af erlendu tæknifræðinámi og þeim
hefðum sem ríkja þar sem tækni-
fræðinámið hefur fest sig í sessi.
Sérkenni tæknifræðinámsins er
tenging við verkþekkingu nemenda,
þá reynslu sem þeir hafa úr atvinnu-
lífinu. Var stuðst við námsskrá
danskra tæknifræði-
skóla, og var tækni-
fræðiskólinn í Horsens
í Danmörku einn af
þeim. Haustið 1969 var
síðan hafin kennsla í
2. hluta námsins.
í júní 1971 voru
fyrstu byggingatækni-
fræðingarnir braut-
skráðir eins og áður
segir og eru því liðin
26 ár frá fyrstu út-
skriftinni. í hópnum
sem brautskráðist
1971 voru tólf nemend-
ur. Námstíminn var
fyrstu árin þijú ár en
námið lengdist í þtjú
og hálft ár árið 1974. Þessi aukning
fólst í að vinna lokaverkefni. Loka-
verkefnið var og er unnið á 7. önn
Meginmarkmið Tækni-
skólans, segir Guð-
mundur Hjálmarsson,
er að veita nemendum
bæði almenna menntun
og sérmenntun.
námsins og eru til þess ætlaðar 10
vikur. Lokaverkefnið var og er enn
sérhæft, en er þó innan ramma
tæknifræðinámsins. Lokaverkefni
eru sótt út í atvinnulífið.
Árið 1977 varð enn ein breyting
á námi við Tækniskólann, þegar
áfangakerfíð var tekið upp. Um
leið gekk í gildi ný reglugerð skól-
ans.
Ef miðað er við áramótin 1996
og 1997 þá hafa útskrifast frá
Tækniskóla íslands 373 bygginga-
tæknifræðingar, þar af 5 konur.
Fjöldi iðnaðartæknifræðinga er 64
þar af 5 konur ef miðað er við sömu
áramót.
Nemendur skólans eru með verk-
legar æfíngar við ýmsar rannsókn-
arstofnanir m.a. á Keldnaholti og
þar kenna og leiðbeina viðkomandi
starfsmenn stofnana nemendum.
Byggingadeildin 1996
í byggingadeild Tækniskóla ís-
lands eru tvær námsbrautir, iðn-
fræði- og tæknifræðinámsbraut þar
sem áður var ein samfelld náms-
braut.
Fram til ársins 1994 var bygg-
ingadeild Tækniskóla íslands ein
samfelld námsbraut þar sem iðn-
fræðinámið tók 3 annir en tækni-
fræðinámið 5 annir. Á haustönn
1994 varð breyting á og urðu náms-
brautirnar að tveim aðskildum
námsbrautum, iðnfræði- og tækni-
fræðinámsbraut, og sama gildir í
rafmagns- og véladeild skólans.
Byggingaiðnfræði er þriggja
anna nám að loknu iðnnámi og prófí
úr undirbúningsdeild Tækniskóla
íslands eða fyrri hluta tæknibrautar
framhaldsskóla. Kenndir eru 22
áfangar og síðan lokaverkefni.
Námið er samtals 48 námseiningar.
Lengd tæknifræðinámsins er
þijú og hálft ár og er krafist verk-
kunnáttu sem er iðnnám eða 20
mánaða viðeigandi starfsreynslu
áður en nám er hafíð.
Samkvæmt reglugerð Tækni-
skólans er honum fyrst og fremst
ætlað að taka við iðnaðarmönnum,
eða nemendum sem hafa viðeigandi
verkþjálfun. Reynsla undanfarinna
ára virðist sýna að þeir nemendur
sem ná bestum árangri í náminu
koma úr hópi iðnaðarmanna, sem
lokið hafa prófi í frumgreinadeild
Tækniskóla íslands.
Námið í byggingatæknifræði við
Tækniskóla íslands skiptist í þijú
sérsvið; húsbyggingasvið, lagna- og
umhverfissvið og framkvæmdasvið.
Á húsbyggingasviðinu er lögð aðalá-
hersla á heildarhönnun bygginga. Á
framkvæmdasviðinu er lögð aðalá-
hersla á þá þætti sem snerta stjórn-
un og áætlanir við mannvirkjagerð.
Á lagna- og umhverfissviðinu er lögð
aðaláhersla á hönnun, Iagnakerfí og
umhverfísfræði. Á 5. önn verða nem-
endur að velja um að taka eitthvert
þessara sérsviða. Lokaverkefni er
síðan unnið á 7. önn og er innan
þess sérsviðs sem nemandinn valdi.
Með lokaverkefninu velur nemand-
inn einnig tvo valáfanga sem geta
verið af 5. önn, 6. önn, frá orku-
tæknifræði eða iðnaðartæknifræði.
Nemanda er í sjálfsvald sett hvort
hann vinnur lokaverkefnið á haust-
önn eða vorönn.
Tæknifræðinámið er 7 anna há-
skólanám og eru kenndir 56 áfang-
ar, sem eru 112 námseiningar.
Námið veitir prófgráðuna B.Sc.
Nám að Ioknu námi við
Tækniskólann
Hér er rétt að geta aðeins um
möguleika til framhaldsnáms að
loknu námi í tæknifræðideildum
Tækniskóla íslands. Iðnfræðiprófið
veitir iðnfræðingum rétt til þess að
hefja nám í byggingafræði við ýmsa
byggingafræðiskóla í Danmörku
eða í tæknifræði við Tækniskólann.
Tæknifræðiprófíð er B.Sc. háskóla-
próf. Það tekur tæknifræðinga að
jafnaði tvö ár að verða master-verk-
fræðingar við erlenda háskóla.
Lokaorð
Skólar eru í eðli sínu íhaldsamar
stofnanir, en þrátt fyrir það hefur
átt sér stað hægfara þróun í iðn-
og tæknifræðinámi við Tækniskóla
íslands.
Meginmarkmið Tækniskólans er
að veita nemendum bæði almenna
menntun og sérmenntun sem gerir
þá hæfa til að takast sjálfstætt á
hendur tæknileg störf og ábyrgðar-
stöður í þágu atvinnuvega þjóðarinn-
ar.
Námsmarkmið tæknifræðinnar er
að nemendur geti að loknu námi
leyst af hendi verkefni á sviði hönn-
unar, starfað að stjómun fram-
kvæmda, haft með höndum eftirlit
og úttektir og geti umgengist um-
hverfí sitt og náttúmna án þess að
skemma hana.
Sé íhugað hvað sé framundan í
þróun á námi í tæknifræði, kemur
helst í hug að skoða þarf hvort ekki
eigi að taka upp nýjar námsgreinar
og fjölga áföngum og þar með auka
sérhæfíngu í náminu og jafnframt
fjölga tækifærum til sérhæfíngar
með því að auka við sérsviðin. Ef
slík breyting yrði þá þyrfti að huga
að lengingu námsins jafnvel um
hálft ár.
Við Tækniskóla íslands er og
verður boðið upp á háskólanám, sem
er mjög hagnýt starfsmenntun og
veitir jafnframt mikla möguleika til
framhaldsnáms við erlenda háskóla.
Höfundur er deildarstjórí við
Tækniskóla íslands.
/
Hún valdi
skartgripi
frá Silfurbúðinni
(dsiLFURBÚÐIN
Kringlunni 8-12 •Sími 568 9066
________- Par fœröu gjöfma -
Guðmundur
Hjálmarsson
Er Aburðarsalan
ísafold komin
til að vera?
ER Áburðarsalan
ísafold komin til að
vera? Það er undir
bændum komið. Bænd-
ur ættu að skoða hug
sinn vel áður en þeir
hefja viðskipti við
Áburðarsöluna ísafold.
Getur Áburðarsalan
ísafold veitt bændum
þjónustu sem Áburðar-
verksmiðjan veitir
bændum?
1 Áburðarverksmiðj-
unni vinna um hundrað
íslendingar við að
framleiða áburð í Gufu-
nesi. Þeir kaupa ís-
lenskar landbúnaðaraf-
urðir af íslenskum bændum. En þeir
sem framleiða áburð Áburðarsölunn-
ar ísafoldar eru Hollendingar; þeir
Það yrði mikið slys, seg-
ir Georg Árnason, ef
starfsemi Áburðarverk-
smiðjunnar legðist af.
kaupa örugglega ekki landbúnaðar-
afurðir af íslenskum bændum.
Áburðarsalan ísafold hóf innreið
sína á markaðinn með því að bjóða
fáar tegundir áburðar á Suðurlandi
þar sem markaðurinn er sterkur og
hagkvæmur. Verð á þessum áburði
er eitthvað lægra en verð á áburði
frá Áburðarverksmiðjunni og ódýr-
ari en frá Norsk Hydro. Áburðar-
verksmiðjan hefur síðan lækkað sitt
áburðarverð til þess að veija stöðu
sína á markaðinum.
Það kemur einkennilega fyrir
sjónir þegar æðakerfi Bananasöl-
unnar hf. er skoðað, en hún er eftir
því sem næst verður komist eigandi
Áburðarsölunnar ísafoldar. Eigend-
ur Bananasölunnar hf. eru Garð-
yrkjufélög Reykjavíkur, Ragnar í
Flúðasveppum, sem nýtur nær ein-
okunaraðstöðu við framleiðslu og
sölu á sveppum, og
ýmsir garðyrkjubænd-
ur á Flúðum sem einnig
njóta innflutnings-
verndar.
Stofnandi Áburðar-
sölunnar ísafoldar er
Þorsteinn V. Þórðar-
son, fyrrverandi sölu-
stjóri áburðarverk-
smiðjunnar og umsjón-
armaður Lífeyrissjóðs
starfsmanna Áburðar-
verksmiðjunnar. Líf-
eyrissjóðurinn er að
hefja skaðabótamál á
hendur honum þessa
dagana af ástæðum
sem fram hafa komið í
fréttum. Óhjákvæmilega vekur það
upp spurningar um viðskiptasiðferði
þegar keppinauturinn ræður til
starfa Þorstein V. Þórðarson fyrr-
verandi sölustjóra Áburðarverk-
smiðjunnar. Þorsteinn er nú sölu-
stjóri Áburðarsölunnar ísafoldar.
Það yrði mikið slys ef starfsemi
Áburðarverksmiðjunnar legðist af.
Slys fyrir íslenskan landbúnað, slys
fyrir íslenskan iðnað og slys fyrir
íslenska tæknikunnáttu í áburðar-
iðnaði.
Áburðarverksmiðjan framleiðir
áburð eftir óskum íslenskra bænda,
fyrir íslenskan jarðveg.
í heimi stöðugt vaxandi mengunar
framleiðir Áburðarverksmiðjan
áburð með umhverfisvænum aðferð-
um, áburð fyrir íslenskan landbúnað.
Eftir því sem næst verður komist
eru flestir sammála um að áburðar-
verð muni hækka í landinu ef Áburð-
arverksmiðjan hættir að framleiða
áburð. Því segi ég við íslenska bænd-
ur: Standið vörð um íslenska áburð-
arframleiðslu, því þá standið þið
vörð um íslenskan landbúnað. Sam-
einaðir stöndum vér, sundraðir föll-
um vér.
Höfundur er vélfræðingur,
starfsmaður í
Áburðarverksmiðjunni.
Georg
Amason
íslenskar lgkningajurtif
Námskeið verður haldið
20. og 27. apríl kl. 20.00 - 22.00.
Kennt að búa til jurtasmyrsl, te og seyði.
Verð kr. 4.900.
Einnig einkaviðtöl, ráðgjöf og
ilmolíunuddtímar.
Anna Rósa Róbertsdóttir MINMH
grasalæknir og ilmolíunuddari,
sími 551-0135.
n® UBBKMmmmam
Kynning verður á hinum margverðlaunuðu
ELANCYL vörum sem bjóða upp á
mismunandi meðferð við CELLULITE
l ■; '7
( í dag: LAUGAVEGSAPÓTEK kl. 13-18
Xmorgun: HRINGBRAUTARAPÓTEK
kl. 13-18
< ■■
1 m
/m
• #
\
újöf^
kaupum
i MS