Morgunblaðið - 17.04.1997, Page 42
. 42 FIMMTUDAGUR 17. APRÍL 1997
MORGUNBLAÐIÐ
AÐSENDAR GREINAR
Alþjóðadagur meina-
tækna - 15. apríl 1997
ALÞJ ÓÐAS AMTÖK meina-
tækna LAMLT (Intemational
Association of Medical Laboratory
Technologists) eru samtök meina-
tækna um allan heim.
í dag eru 37 félög frá
36 þjóðlöndum sem
eiga aðild að þessum
samtökum.
v IAMLT var stofnað
1958 og frá upphafi
hafa samtökin beitt sér
fyrir gæðaumbótum á
störfum meinatækna
og bættu aðgengi ein-
staklinga að þjónustu
þeirra. Þetta hafa sam-
tökin fyrst og fremst
gert með fræðslu og
samræmingu í gæða-
málum, samræmingu
staðla er varða störf
meinatækna, umbótum
á menntun, umfjöllun um umhverf-
ismál og mörgu fleiru sem varðar
störf og stöðu meinatækna víða um
heim. Samtökin hafa staðið fyrir
v alþjóðlegum mótum meinatækna
annaðhvert ár, þar sem unnið er
að fræðslu um nýjungar í meina-
tækni, kynningu og tengslum
meinatækna víða um heim, saman-
burði á stöðu og möguleikum til
menntunar, litið er til sögu fagsins
og framtíðarmöguleikar skoðaðir.
IAMLT hefur starfað í nánum
tengslum við Alþjóðaheilbrigðis-
málastofnunina WHO með stöðu
samtaka sem ekki eru stjómvald
(Non Govemmental Organization).
*■ Síðasta alþjóðaþing IAMLT var
haldið í Osló sumarið 1996. Á því
þingi var ákveðið að efna til meina-
tæknidags, sem haldinn yrði á
hvetju ári, nánar tiltekið þann 15.
apríl. Þemað í ár var
ákveðið í samráði við
Alþjóðaheilbrigðis-
málastofnunina og er:
Meinarannsóknir -
Lykill að lækningu
berkla.
Hér á landi em
berklar það sjaldgæfur
sjúkdómur að þeir telj-
ast ekki mikið heil-
brigðisvandamál en
vora það hins vegar á
áram áður og era enn
víða um heim.
Alþjóðaheilbrigðis-
málastofnunin hefur
bent þjóðum heimsins
á að smitsjúkdómar eru
mesta heilbrigðisvandamál þeirra.
Stofnunin lagði áherslu á að miðað
við nútímasamgöngur hefði engin
þjóð efni á því að láta sem vanda-
mál annarra þjóða, er varða smit-
sjúkdóma, komi sér ekki við.
Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin
lýsti því yfir árið 1993 að hættu-
ástand væri í berklamálum. Þremur
árum síðar, eða 1996, segir í
skýrslu þeirra um berkla:
að berklar eru valdir að dauða
fleiri kvenna en þeirra sem
deyja af bamsföram.
að berklar geri fleiri börn að
munaðarleysingjum en nokkur
önnur farsótt
að berklar eru aðal dánarorsök
Berklar valda dauða
fleiri fullorðinna, segir
Edda Sóley Óskars-
dóttir, en allir aðrir
smitsjúkdómar
í heiminum.
alnæmisjúklinga í heiminum og
er um þriðjungur dauðsfalla í
þeim hópi rakinn til þeirra
að gera má ráð fyrir að hluti
flóttamanna um allan heim geti
verið smitaður
að berklar leggjast fyrst og
fremst á fólk í blóma lífsins,
15-44 ára, og hægja þannig á
hagvexti þjóða
að berklar eru valdir að dauða
fleiri fullorðinna í heiminum en
allir aðrir smitsjúkdómar sam-
anlagt
Meinatæknafélag íslands vill
leggja sitt af mörkum til að hvetja
þjóðir heims til að taka höndum
saman og leggja til atlögu við þenn-
an hættulega sjúkdóm. í því skyni
hvetur félagið stjómvöld á íslandi
til að halda vöku sinni og stuðla að
því að greining og meðferð berkla
verði eins markviss og áhrifarík og
mögulegt er hér á landi. Jafnframt
hvetur félagið stjómvöld til að
leggja hönd á plóginn í alþjóðlegu
samstarfi og þróunaraðstoð.
HSfundur er meinatæknir.
Edda Sóley
Óskarsdóttir
Drekatré, sampotta
420sm
Helgar
Begoníur
(frostþolnir)
24sm 850,-
30sm 1.250
40sm 1.650
Drekatréjxs;
(frostþolnir)
24sm 95
Afgreiðslutími
Mán.-föstud.
Laugardag:
Sunnudag:
Soiv blómapottar
Thai biómapottar
Guðbergur
Bergsson og
heill barnanna
GUÐBERGUR
Bergsson ritar grein-
ina „BamaheilT* í DV
26. mars. Þar telur
hann að sú umhyggja
fyrir börnum er heyra
megi í fjölmiðlum sé
stundum furðuleg.
Hann skrifar:
„Þeir lýsa nákvæm-
lega hvernig þeim er
nauðgað, aðferðum,
aldri barnsins og öðra
í þeim dúr sem áður
hefði þótt óeðlilegt í
þessu samfélagi.“ Og
Guðberg grunar að í
„skjóli fréttaflutnings
séu fréttamenn ekki
aðeins að velta sér upp úr atburð-
unum heldur beinlínis að æsa upp
hvatir sínar og samfélagsins með
lýsingunum“. Og bætir við að þetta
efni hljómi „eins og dulbúið bam-
aklám“ og telur það ekki við hæfi
ólæsra barna er hljóti að heyra
slíkt. Þá undrast skáldið „kynlegt
viðhorf til barna og unglinga"
þeirra sem ráða og nefnir um það
íslensk og erlend dæmi, þar á
meðal frétt í Figaró hveijir voru
handteknir í aðgerðum lögreglu
gegn þeim sem misnota börn, en
það hafi t.d. verið kennarar, frétta-
menn, dagmæður og telpur í
barnapössun. „Lýsing blaðsins á
dæmigerðum sökudólg var þannig:
„Giftur maður í góðri stöðu“.“ Síð-
an bætir Guðbergur við strax á
eftir: „Það er ekkert nýtt að hræsn-
arar og kynferðislega krumpað
fólk stjómi hjálparstofnunum.“
Áður fyrr hafi hreinar meyjar og
munkar stjórnað þeim, heldur hann
áfram, en nú séu það utanheimilis-
mæður, félagsráðgjafar og sér-
menntað fólk með „lærdómskjaft-
inn á réttum stað“.
Það er staðreynd að fjölda bama
er nauðgað um víða veröld. Að
jafna frásögnum af því við hvert
annað klám er bæði
röng hugsun og mikil
ónærgætni við þolend-
ur. Og þeir sem
kveinka sér við þess-
um lýsingum ættu að
hugsa út í hvemig það
er fyrir barnið að upp-
lifa ofbeldið á eigin
skrokki í miskunnar-
lausum raunveruleik-
anum. Það er óeðlilegt
að þessir glæpir skuli
vera framdir en ekki
að frá þeim sé skýrt.
Neyð barnanna sjálfra
harmar Guðbergur
ekki einu orði. En
hann reynir hins vegar
að gera mjög tortryggilega við-
leitni stjórnvalda í vestrænum
löndum til að spoma við barna-
Varast ber fjandskap
og fordóma, segir Sig-
urður Þór Guðjóns-
son, í málefnum sem
varða heill barna.
meiðingum. Vissulega era þetta
vandmeðfarin mál og því ástæða
til að fara varlega, enda er það
yfirleitt gert, þó búast megi við
slysum og mistökum. Ekki veit ég
nánar um bakgrunn frönsku frétt-
arinnar. En skyldi fólkið hafa ver-
ið handtekið bara si svona út í
bláinn af tómri illgirni og skin-
helgi? Ætli hafi nú ekki verið
sæmilega gilt tilefni fyrir aðgerð-
unum? Og hvemig á eiginlega að
bregðast við misnotkun á bömum?
Með því að líta ávallt undan eins
og gert hefur verið um aldir? Þá
er eins gott að gera sér ljóst að
þeir sem misnota börn era ekki
með horn og hala. Þeir eru oftast
Sigurður Þór
Guðjónsson
AÐALFUNDUR SIF HF.
Aðalfundur SÍF hf. (Sölusambands íslenskxa fiskfram-
leiðenda hf.) verður haldinn í Súlnasal Hótels Sögu,
föstudaginn 2. maí og hefst kl. 14.00.
Á dagskrá fundarins verða:
1. Venjuleg aðalfundarstörf skv. grein 4.03 í
samþykktum félagsins.
2. Tillaga stjómar um arðgreiðslur.
3. Heimild til stjómar um kaup á eigin hlutum
samkvæmt 55. gr. hlutafélagslaga.
4. Önnur mál.
Tillögur frá hluthöfum, sem bera á fram á aðalfundinum,
skulu komnar í hendur stjómar eigi síðar en 7 sólarhring-
um fyrir fundinn til þess að þær verði teknar á dagskrá.
Dagskrá aðalfundarins, ársreikningar félagsins og
endanlegar tillögur liggja frammi á skrifstofu félagsins
hluthöfum til sýnis frá og með 26. apríl 1997.
Fundargögn og atkvæðaseðlar verða afhentir á skrifstofu
félagsins að Fjarðargötu 13-15, Hafnarfirði þriðjudaginn
29. og miðvikudaginn 30. apríl næstkomandi.
Um kvöldið verður haldið aðalfundarhóf fyrir hluthafa,
framleiðendur og gesti þeirra í Súlnasal Hótels Sögu og
hefst hófið kl. 20.00. Húsið verður opnað kl. 19.30. Miðar
á hófið verða seldir á skrifstofu SÍF og á aðalfundinum.
Stjórn SÍF hf.