Morgunblaðið - 17.04.1997, Page 65
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 17. APRÍL 1997 65
i
3
9
I
I
I
;
i
I
l
4
4
4
I
I
4
4
(
i
(
MYIMDBÖND/KVIKMYIMDIR/ÚTVARP-SJONVARP
MYNDBÖND
Herskár kennari
Staðgengillinn
(The Substitute)____________
Spcnnumynd
★ '/2
Framleiðendur: Morrie Eisenman
og Jim Steele. Leikstjóri: Robert
Mandel. Handritshöfundar: Roy
Frumkes, Rocco Simonenlly og Al-
an Ormsby. Kvikmyndataka: Bruce
Surtess. Tónlist: Gary Chang. Aðal-
hlutverk: Tom Berenger, Ernie
Hudson og William Forsythe. 112
mín. Bandaríkin. CIC myndbönd
1997. Útgáfudagur: 15. april. Mynd-
in er bönnuð börnum innan 16 ára.
MÁLALIÐINN Shale og félagar
hans uppgötva einn daginn að það
er ekki lengur þörf fyrir þá í þjón-
ustu Bandaríkjanna. Þá eru þessi
drápstól allt í einu atvinnulaus.
Shale reynir að leita sér að vinnu
annars staðar en fínnur ekki neitt
þangað til að ráðist er á unnustu
hans sem er kennari í gagnfræða-
skóla. Shale kemst brátt að því að
ekki er allt með felldu í skólanum
og fær hann gömlu starfsfélagana
sína með sér í að takast á við þann
óþjóðalýð sem
ræður þar ríkj-
um.
Það virðist svo
vera að þeir þrír
handritshöfund-
ar sem skrifuðu
„Staðgengilinn"
hafi hver og einn
haft ákveðna
hugmynd um
hvað myndin ætti að fjalla um. í
fyrsta lagi ijallar hún um vanda-
mál sem eiga sér stað í kennslu-
kerfí bandaríkjanna, eins og „Dan-
gerous Minds“ og „Stand and Deli-
ver“. í öðru lagi er þetta mynd um
upprætingu á eiturlyfjahring. í
þriðja og síðasta lagi er þetta
stríðsmynd líkt og „Missing in
Action“. Skólinn og Shale er það
sem kemur þessum þremur sögum
saman og úr verður afskaplega
slæm, en furðulega skondin, kvik-
mynd, sem getur aldrei fengið
góða stjömugjöf fyrir gæði, en það
eru án efa margir sem hafa gaman
af allri þessari vitleysu þ.á m. ég.
Ottó Geir Borg
Raunir fast-
eignasala
Lækjargata
(River Street)
D r a m a
★ ★V2
Framleiðandi: Linda House. Leik-
stjóri: Tony Mahood. Handritshöf-
undur: Philip Ryall. Kvikmynda-
taka: Martin McGrath. Tónlist:
David Birdie og John Phillips. Aðal-
hlutverk: Aden Young, Bill Hunter,
Essie Davis. 85 mjn. Bandaríkin.
Háskólabíó 1997. Útgáfudagur: 15
apríl. Myndin er bönnuð
börnum innan 12 ára.
FASTEIGNASALINN Ben (Ad-
en Young) er bæði ungur og ósvíf-
inn í öllu sínu háttemi, það eina
sem kemst að í hans huga er það
að verða ríkur á sem skemmstum
tíma. En auðvitað breytist það allt
þegar hann lendir í röð tilviljana,
sem gera það að verkum að hann
þarf að endurskoða líf sitt frá
gmnni.
Á síðustu áram hefur verið mik-
il uppsveifla í gerð ástralskra kvik-
mynda og hafa þeir í Eyjaálfunni
sent frá sér margar ferskar afþrey-
ingarmyndir. „Lækjargata" er ein
af þeim myndum.
Myndin geislar
öll af frumleika
og skemmtileg-
um persónum, þá
sérstaklega í
upphafí, en undir
lokin jaðrar
myndin reyndar
við það að vera
væmin. Ben segir
sögu sína í fyrstu persónu og virk-
ar þessi frásagnarmáti einkar vel í
þessu tilfelli, því við förum inn í
huga hins hins peningagráðuga og
að því virðist tilfínningalausa fast-
eignasala, sem segir okkur meira
um persónu Ben, en það verður til
þess að hann verður heilsteyptari
persóna fyrir vikið. Aden Young
er virkilega góður í hlutverki Ben,
því hann hefur útlitið til að leika í
„Beverly Hills 91201“, og leikhæfi-
leikana til að halda uppi einni mynd.
Það eru réttir menn og konur í
öllum hlutverkum í myndinni og
öll tæknivinna er yfir meðallagi,
en tónlistin verður helst til of til-
finningaþrungin.
Ottó Geir Borg
Arftakar Steina og Olla
Svarti sauðurinn
(Black Sheep)
Gamanmynd
★ ★
Framleiðendandi: Lorne Michaels.
Leikstjóri: Penelope Spheeris.
Handritshöfundur: Fred Wolf.
Kvikmyndataka: Daryn Okuda.
Tónlist: William Ross. Aðalhlut-
verk: Chris Farley, David Spade,
Tim Matheson og Gary Busey. 83
mín. Bandaríkin. CIC myndbönd
1997. Útgáfudagur: 15. apríl. Mynd-
ind er öllum leyfð.
FARLEY leikur Mike Donnelly,
sem er góðhjartaður bróðir annars
frambjóðendanna í ríkisstjórakosn-
ingunum, en Donnelly er einn sein-
heppnasti maður
sem til er á jörð-
inni og allt það
sem hann kemur
nálægt endar
með ósköpum.
Til sögunnar
kemur Spade í
hlutverki Steve
Dodds, sem ráð-
inn er í að sjá um
Donnelly til þess að kosningabar-
áttan tapist ekki vegna hans. Eins
og allir vita, lenda þessir kumpán-
ar í alls kýns uppákomum og vand-
ræðum.
Farley og Spade eru mjög þekkt-
ir fyrir leik sinn í bandarískum
gamanþáttunum „Saturday Night
Live“ og hefur verið sagt um þá
að þeir séu arftakar „Steina og
011a“, og er margt til í því. „Svarti
sauðurinn" byggist mjög mikið á
samspili Farley og Spade, og þegar
þeir fá að njóta sín er myndin
sprenghlægileg, en of oft virðast
kvikmyndagerðarmennimir halda
að það sé fyndið að láta Farley
meiða sig á einhvern máta. Ég
taldi a.m.k. 20 skipti þar sem hann
lendir í einhveiju sársaukafullu.
Bestu senumar í myndinni eru
tengdar sveitakofanum, sem er
alger manndrápsgildra, og Gary
Busey, sem er kostulegur í hlut-
verki snarraglaðs hermanns. Að
mínu mati eiga þessir tveir hæfí-
leikaríku gamanleikarar betra skil-
ið en þessa meðalgamanmynd.
Ottó Geir Borg
Snert af hinu illa
(Touched byEvil)
D r a m a
★ '/2
Framleiðandi: Harry Shenman.
Leikstjóri: James Contner. Hand-
ritshöfundur: Philip E. Pennigroth,
jr. Kvikmyndataka: Ron Lautore.
Tónlist: Dan Slider. Aðalhlutverk:
Paula Abdul, Adrian Pasdar og
Susan Ruttan. 90 min. Bandarfkin.
Begvík 1997. Útgáfudagur: 8. apríl.
Myndin er bönnuð börnum
innan 12 ára.
NÓTT eina verður viðskipta-
konan Ellen Collier (Paula Abdul)
fyrir hrottalegri nauðgun á heim-
ili sínu. Hún kemst að því að hún
er bara ein af mörgum fórn-
arlömbum nauðgarans og smám
saman missir hún vonina um að
Hættu-
legur elsk-
hugi
hann verði fund-
inn og dregur
sjálfa sig út úr
samfélaginu.
Dag einn kynnist
hún Jerry Brask-
in og tekst með
þeim vinskapur
sem leiðir til ást-
arsambands. En
er Braskin
draumaprinsinn eða bara úlfur í
sauðargæru?
Nauðgun er mjög vandmeðfarið
efni í kvikmyndum og þessi mynd
reynir að segja söguna frá sjónar-
hóli fórnarlambsins og hvernig
það tekst á við líf sitt eftir atburð-
inn. Paula Abdul er hér að leika
sitt fyrsta hlutverk og hún ræðst
ekki á garðinn þar sem hann er
lægstur, heldur tekur að sér mjög
vandasamt hlutverk, þar sem per-
sóna hennar gengur í gegnum
miklar breytingar í myndinni.
Þrátt fyrir góða tilraun er Abdul
ekki nægilega þroskuð leikkona
til þess að koma þessu krefjandi
hlutverki til skila, en Pasdar er
einkar góður í hlutverki elskhug-
ans. Myndin er afskaplega fyrir-
sjáanleg, sem gerir það að verkum
að engin dramatísk spenna mynd-
ast í framrás hennar.
Ottó Geir Borg —
Söngur-glaumur og gleði í vanáaðrl áagskrá
aór- föstudagbm 2. maí
þar sem Perlur Eyjanna...
I\ÍaHaU ...MMLÖGIN verða fíutt aftrábærum söngmrum
W* hljóðfæraleikurum, auk þess fjöldi annarra atriða
Ytir ÖU ÚUUMISkoma iram :
Lúðmvinimir:
„Stalla Hú* tekur á móti matargestum.
Á stóra tjaldinu:
Kvikmyndir úr Eyjum sýndar
á stóra tjaldinu.
Afturhvarf í Möllina":
Hljómsveitin WQAR.
Mikið grín:
íMatseMt:
Œorréttur:
Sjávarréttir í brauðkœnu meo numarsósu.
TXðalréttur:
Tldsteiktur lambavödvi medgrcenmetis-
tvennu, tjrilltómat og rjómasmnepssósu.
‘Lftirréttur:
‘Vönnukaka sœlkerans,
jyllt meS ís og duöxtum.
Verð með kuoldrerði ertcr. 4,500, enverS
á skemmtun er kr. 2000 og hefst kl 21:00.
Matargestir mætið stmdvislega ki. 19:00.
Eyjalögin með söngvurunum:
Helenu Káradóttur, Bjami Arasyni og Ara Jónssyni.
Leikfélag Vestmannaeyja:
Revían Jjöígun'" eftir fjögur.
Eymannafélagið:
Einar, rinnur og Friðrik, stjóma tjaldsöngnum,
Þingmenn úrEyjum:
Þingmenn geta sýnt margar hliðar!
„Domínóu-söngvarínn:
Einar MkUnk’ sem sló svo rækilega í gegn
á siðasta Eyjakvöldi.
Munift afsláttarfcortín hjá Herjólfi
og sértilboó á gistingu
á Hótel fslandi, sfmi 568 8999.
Upplögó helgarferó
I „sluttið" meó fyrirtœkió
og starfsfólkió.
Sjáið svo Braggablús
á laugardeginum!
Hljómsveitimar Logar
og Karma leikafyrir dansi
Síml 568-7111 • Fax 568-5018