Morgunblaðið - 17.04.1997, Side 68
m
CS>
AS/400 er...
...þar sem grafísk
notendaskil eru
í fyrirrúmi
<n> NÝHfcRJI WÍ
OPIN KERFIHF
byltinqarkennd
fistölva
liitfnBmatffiftiiiiiiiiiittiiJiiiiiiiiuii'amsl
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMl 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181,
PÓSTHÓLF 3040, NETFANG MBL(S>CENTRUM.1S / AKUREYRI: KAUFVANGSSTRÆTI 1
FIMMTUDAGUR 17. APRÍL 1997
VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK
Þjóðhagsstofmm segir hagvöxt hér á landi
áfram meiri en í helstu viðskiptalöndum
Spáð 3,6% hag-
vexti á árinu
ÞJÓÐHAGSSTOFNUN áætlar að
hagvöxtur hér á næstu árum verði
áfram meiri en í helstu viðskipta-
löndum. Spáir hún 3,5% hagvexti á
þessu ári en spáð er 2,4% vexti að
meðaltali í ríkjum OECD. í fyrra var
hagvöxtur hér 5,7% og hefur vöxtur-
inn ekki verið meiri í efnahagslífínu
hér frá árinu 1987. Reiknað er með
að hagvöxtur á næsta ári verði 3,8%
og 2,8% árið 1999.
í kjölfar nýgerðra kjarasamninga
gerir Þjóðhagsstofnun ráð fyrir að
^i- verðbólga verði til jafnaðar 2,5-3%
á samningstímanum sem er töluvert
meiri verðbólga en búist _ er við í
helstu viðskiptalöndum. Á grund-
velli samninganna og skattaráðstaf-
ana er reiknað með að kaupmáttur
ráðstöfunartekna aukist um 3,5-4%
á ári 1997-1999, en gert er ráð fyr-
ir 2-3% aukningu kaupmáttar á ári
að meðaltali í ríkjum OECD.
Þórður Friðjónsson, forstjóri Þjóð-
hagsstofnunar, segir að töluvert álag
verði á hagkerfinu á næstu misser-
um og því sé höfuðatriðið að gæta
aðhalds í ríkisfjármálum. Við undir-
búning fjárlaga fyrir næsta ár verði
það sjónarmið að ríkja að ríkisfjár-
málin stuðli að því að halda aftur
af þjóðarútgjöldum.
■ Kaupmáttur/10
ASV og vinnuveitendur á Vestfjörðum
Sammála um að bónus
farí ekki í kauptaxta
LOKIÐ er úttekt nefndar Alþýðu-
sambands Vestfjarða og vinnuveit-
enda á áhrifum þess að bónus-
greiðslur verði teknar inn í kaup-
taxta. Var samhljóða niðurstaða
nefndarinnar að þessi leið væri
ekki fær, laun fiskvinnslufólks
hækkuðu á frídögum en lítil hækk-
un væri á dagvinnulaunum og
hætta væri á að afköst og fram-
leiðni minnkuðu.
í bókun frá samningafundi í bytj-
un mánaðarins voru aðilar sammála
um að kanna hver áhrif þess yrðu
á laun og framleiðni og launakostn-
að fyrirtækja að færa bónusgreiðsl-
ur inní kauptaxtana. Einar Jóna-
tansson, formaður Vinnuveitenda-
félags Vestfjarða, sagði ljóst að
sérfræðingar frá báðum aðilum
væru sammála um að þessi leið
væri ekki fær. Sagði hann brýnt
að hefja nú viðræður og freista
þess að ná samningum áður en
verkfall kemur til framkvæmda á
miðnætti næsta sunnudags. Stuttur
tími væri til stefnu og þar sem
undirbúa þyrfti stöðvun á vinnslu í
dag og á morgun.
Nefndin kannaði áhrif á fram-
leiðni og launakostnað svo og tekjur
fiskvinnslufólks bæði í frystihúsum
og rækjuvinnslu með afkastatengd-
an bónus og hjá húsum með fastar
yfirgreiðslur. I báðum tilvikum eru
áhrifin svipuð á laun fiskvinnslu-
fólks, þau muni hækka mest á frí-
dögum og þegar ekki er unnið
vegna hráefnisskorts_ en minna í
venjulegri dagvinnu. Áhrifin á hús-
in eim þau að afkastahvatinn
minnkar, kostnaður á framleidda
einingu vex og framleiðni minnkar.
Nokkuð er þó misjafnt frá einu
frystihúsi til annars hvernig áhrifin
koma fram og áhrif á laun geta
verið misjöfn jafnvel innan sama
vinnustaðar.
€9fc
Hvalreki
við Kópa-
sker
MILLI16 og 18 metra
Ianga andarnefju rak á
land í fjörunni við Kross-
sand skammt frá bænum
Snartarstöðum norðan við
Kópasker fyrr í vikunni.
Helgi Arnason sem býr
á Hjarðarási, nýbýli frá
Snartarstöðum, leit á
skepnuna í gær en þá var
háflóð og erfitt að sjá hver
tegundin var.
Samkvæmt lýsingu fyr-
ir starfsmanni Hafrann-
sóknastofnunar er þó talið
að um andarnefju sé að
ræða. Helgi sagði best ef
hægt væri að draga
skrokkinn á haf út áður
en hann færi að rotna í
fjörunni.
Morgunblaðið/Kristinn
KJÖRSÓKN í gær var heldur minni en í rektorskjörinu árið 1991.
Rektorskjör við Háskóla Islands
Páll varð efstur
PÁLL Skúlason, prófessor í heim-
— • speki, hlaut flest atkvæði í rektors-
kjöri sem fram fór í Háskóla ís-
lands í gær eða 28,62% atkvæða.
Jón Torfi Jónasson, prófessor í upp-
eldis- og menntunarfræði, hlaut
27,20% atkvæða, Vésteinn Ólason,
prófessor í íslenskum bókmenntum,
hlaut 21,33% atkvæða og Þórólfur
Þórlindsson, prófessor í félags-
fræði, hlaut 21,24% atkvæða. Þar
sem enginn þeirra hlaut meirihluta
greiddra atkvæða í rektorskjörinu
verður kosið að nýju að viku liðinni
á milli tveggja efstu manna.
Kjörstöðum var lokað kl. 18 í gær
og lauk talriingu atkvæða laust fyr-
ir kl. 23. Úr hópi kennara og ann-
arra starfsmanna greiddi 441 at-
kvæði eða 81,82% þeirra sem voru
á kjörskrá. Úr hópi stúdenta kaus
1.531 eða 27,44% þeirra sem voru
á kjörskrá. Greidd atkvæði stúdenta
gilda sem einn þriðji hluti greiddra
.'•-atkvæða alls.
Kjörsókn í gær var heldur minni
Kosið aftur að
viku liðinni
en í rektorskjörinu árið 1991, þegar
Sveinbjörn Björnsson fráfarandi
rektor var kjörinn, en þá greiddu
88,7% kennara og annarra starfs-
manna atkvæði, en 36,3% stúdenta.
Drengileg
kosningabarátta
Páll Skúlason hlaut 117 atkvæði
starfsmanna eða 26,53% og 502
atkvæði stúdenta eða 32,79%. Hann
sagðist í samtali við Morgunblaðið
í gærkvöldi vera ánægður með úr-
slitin og að kosningabaráttan hing-
að til hefði verið afskaplega drengi-
leg, góð og jákvæð fyrir Háskóla-
samfélagið.
Jón Torfi Jónasson hlaut 98 at-
kvæði starfsmanna eða 22,22% og
569 atkvæði stúdenta eða 37,17%.
Hann sagði þegar úrslitin lágu fyr-
ir að þau hefðu ekki komið honum
á óvart. „Ég er mjög sáttur og
finnst afskaplega spennandi og
notalegt að fá að takast á við Pál
um þetta,“ sagði hann.
Vésteinn Ólason hlaut 108 at-
kvæði starfsmanna eða 24,49% og
230 atkvæði stúdenta eða 15,02%.
Aðspurður sagði Vésteinn að niður-
staða kjörsins væri vissulega von-
brigði, en kosningabaráttan hefði
verið fjörug og skemmtileg og úr-
slitin skýr.
Þórólfur Þórlindsson hlaut 115
atkvæði starfsmanna eða 26,08%
og 177 atkvæði stúdenta eða
11,56%. Hann benti á að stúdentar
hefðu greinilega ráðið úrslitum í
þessu kjöri, því atkvæði starfs-
manna hefðu skipst nokkuð jafnt á
milli frambjóðendanna fjögurra.
Hann sagði ennfremur að kosninga-
baráttan hefði verið drengileg og
góð og óskaði þeim tveimur sem
eftir standa til hamingju með sigur-
inn.
Morgunblaðið/Ásdís
Fjórmenningar
í góðu formi
HJÚKRUNARFRÆÐINEMAR á
þriðja ári buðu frambjóðendunum
fjórum til rektorskjörs að koma í
blóðþrýstings- og blóðfitumælingu
í gær, m.a. til að vekja athygli á
alþjóðlegum degi 12. maí, tileink-
uðum ungu fólki og heilbrigði.
Að sögn Soffíu Eiríksdóttur hjúkr-
unarfræðinema eru fjórmenning-
arnir allir í mjög góðu formi. Þeir
voru allir undir viðmiðunarmörk-
um í blóðfitu og með mjög góðan
blóðþrýsting. Frá vinstri: Þórólfur
Þórlindsson, Vésteinn Ólason, Páll
Skúlason, Jón Torfi Jónasson og
Soffía Eiríksdóttir.
Miðar hægt
hjá flug-
mönnum
FUNDUR fulltrúa flugmanna og
Flugleiða stóð enn hjá ríkissátta-
semjara um miðnættið í gær og var
búist við að hann stæði eitthvað
fram eftir nóttu. Fundur hófst
klukkan 13.
Félag íslenskra atvinnuflug-
manna hefur boðað rúmlega
tveggja sólarhringa verkfall hjá
Flugleiðum frá kl. 20 annað kvöld
hafi samningar ekki tekist. Kristján
Egilsson, formaður FÍA, segir rætt
um kauphækkanir, vinnutíma og
raunar hvers kyns kjaraatriði.
-------» ♦ ♦-
Hagnaður
Hagkaups
247 milljónir
HAGNAÐUR Hagkaups nam alls
um 247 milljónum króna á síðasta
ári, samkvæmt upplýsingum Morg-
unblaðsins. Þetta er ívið meiri hagn-
aður en árið 1995 þegar hagnaður-
inn nam 224 milljónum. Upplýs-
ingar úr ársreikningum Hofs og
dótturfélaga voru birtar í fyrsta
sinn opinberlega á síðasta ári vegna
ársins 1995.
■ Hagnaður/B3
------♦ ♦ ♦----
Flugöryggis-
samtök Evrópu
Nýtt skoð-
anakerfi
„EKKERT sem ógnað getur flugör-
yggi kom fram við skyndiskoðun
þýska loftferðaeftirlitsins á þotu
Flugleiða í Hamborg 5. mars né á
nokkurri vél þeirra flugfélaga sem
nefnd voru í frétt Bild Zeitung og
sögð á svörtum lista," sagði Jochen
Pieper, talsmaður þýska loftferða-
eftirlitsins, í samtali við Morgun-
blaðið. Sagði hann atriðin sem skoð-
unarmenn nefndu hjá þessum félög-
um öll minni háttar.
■ FIugöryggi/34
■ Þjóðverjar/84