Morgunblaðið - 26.04.1997, Side 10
10 LAUGARDAGUR 26. APRÍL 1997
MORGUNBLAÐIÐ
FASTEIGNASALA
I SKÚLAVÚRÐUSTlG 38A
FAX 552-9078
L 0PIÐ9-18
LAUGARDAGA 11-15
Viðar Friðriksson jB,
Löggiltur fasteignasali H
552-9077
Opið í dag 12-14.
I Kóp. - Vesturbær - einbýli |
p Einbýlíshús 138 fm m. 32 fm bílsk. 3-
; 5 herb. eða einstakl.íb. I kjallara. Stór
y lóð. Verð 12,2 millj.
1 Álftanes - einbýli
F Fallegt einbýlish. 140 fm ásamt 60
fm tvöf. bílsk. á kyrrlátum stað. 3-4
i I herb. 2 stofur. Verð 13,5 millj.
IHvassaleiti - raðhús
Fallegt 200 fm raðh. á 2 hæðum. 4-5 F
i herb. Tvennar svalir. Góður garður.
| Verð 14,9 millj.
■ Hörgshlíð - sérhæð
I 135 fm sérhæð ásamt 27 fm bílsk. 2 I
H stofur og sólskáli. 2-3 svefnh. 2
i svalir. Verð 12,5 millj.
■ Kirkjuteigur - 2 hæð
I 4ra herb. íbúð á 2. hæð í þríb. 2 |
m svefnh. 2 stofur, 17 fm útiskúr.
j Háaloft og yfirbyggingarréttur. Laus.
| i Verð 9,4 millj. y
| Drápuhlíð - sérhæð
| 4ra herb. íbúð á 1. hæð 110 fm i ■
| fjórb. 2 stofu og 2 svefnh. Nýtt park-
! et. Suðursvalir. áhv. húsbr. 56,1 m.
J Verð 9,2 millj.
iHoltagerði - Kóp. -|
■ sérhæð
- 4ra herb. 113 fm neðri hæð í tvíbýli, j
Iásamt 23 fm bílsk. 3 rúmg. svefnh. ■
ágæt stofa, allt sér. Verð 8,8 millj.
Lindir III - Kóp. - nýtt
Glæsil. 2ja-3ja-4ra herb. íb. í litlu i
fjölbýli við opið svæði. Teikn. og _
H nánari uppl. á skrifst.
IltofgtiiiHfiMfr
- kjarni málsins!
FRÉTTIR
Aðlögun fyrir lokaáfangann að ljúka
Minnstu verkefni erfið
í 7.000 metra hæð
LEIÐANGURSMENN eru í stöðugu sambandi við umheiminn
frá grunnbúðunum í 5.300 m hæð. Hér eru þeir Hörður Magnús-
son (t.v.) og Hallgrímur, bróðir hans, í tækjunum.
ÍSLENSKU fjallagarparnir eru óð-
um að ná sér eftir veirusýkingar
og ljúka aðlögun fyrir síðasta
áfanga klifursins á tind Everest sem
hugsanlega verður eftir tíu daga til
hálfan mánuð. Ræðst það af veðri
því enn ríkir vetrarveður á tindinum
og segir Hörður Magnússon, að-
stoðarmaður Everestfaranna, að nú
verði menn bara að bíða færis, veðr-
ið verði að ráða.
„Einar Stefánsson er staddur í
Dingboche þar sem hann hvílir sig
eftir veikindin síðustu daga áður
en hann tekur til við síðasta áfang-
ann í aðlögun, Björn Ólafsson hefur
lokið aðlögun sinni og þarf ekki upp
í fjall aftur fyrr en gefur á tindinn
sjálfan og Hallgrímur Magnússon
lýkur aðlögun sinni í öðrum búðum
á næstu fjórum dögum,“ sagði
Hallgrímur í samtali við Morgun-
blaðið í gær.
Fjallgöngugarparnir hafa þar
með fjórum sinnum farið upp og
niður milli efri og neðri búðanna
og segir Hallgrímur að með þessu
náist góð aðlögun og hins vegar
megi menn ekki ofreyna sig við
það, þess vegna verði að taka hana
í áföngum. Þegar aðlögun sé fengin
búi fjallgöngumennirnir að henni í
nokkrar vikur.
Þegar allir hafa lokið aðlögun
bíða þeir allir færis næstu daga í
grunnbúðum sem eru í um 5.300 m
hæð og segir Hallgrímur að þar sé
aðstaðan góð fyrir biðina. Sagði
hann þá félaga hefðu viljað vera
samstiga í þessari aðlögun en
heilsufar hefði truflað það nokkuð.
Einar myndi örugglega ná sér og
þá yrðu þeir saman í Iokasprettin-
um. Leiðangursstjórinn og yfirmað-
ur sherpanna hefðu þó lokaorðin í
því og sæju þeir um að skipuleggja
atlögurnar að tindinum.
Síðustu daga hafa mál gengið
þannig að Hallgrímur hélt að
morgni sumardagsins fyrsta áleiðis
í þriðju búðir og var kominn þangað
fyrir hádegi. Chris Watts og Chris
Brown, sem fóru með honum, voru
ekki komnir upp síðast þegar frétt-
ist. Björn kom niður úr þriðju búð-
um þann dag. Einnig komu niður
Jon Tinker, Chris Jones og Mark
Warham.
I pistli Harðar segir ennfremur
í gær:
Þreyttir á skeytafréttum
Þeir eru allir þreyttir eftir nær
viku uppi og tvær nætur í yfir 7.000
m hæð. Aðlögun þeirra er nú lokið
í bili og næsta verkefni er að safna
kröftum á ný. Það er alveg ótrúlegt
hversu erfítt er að athafna sig þeg-
ar 7.000 m er náð. Minnstu verk-
efni verða stór og þegar þrekið er
búið er erfitt að ná því aftur. Chris
Jones var til dæmis aðeins 50 metra
á eftir Birni upp í fjórðu búðir en
það tók hann rúma klukkustund að
staulast þá metra.
Við höfum undanfarna daga
reynt að ná stuttbylgjusendingum
Ríkisútvarpsins hér en án nokkurs
árangurs. Okkur er farið að langa
að heyra fréttir að heiman öðruvísi
en í skeytaformi, en við verðum
víst að sætta okkur við þetta.
Loftþrýstingur fer hækkandi hér
í grunnbúðum enda við hæfi nú í
upphafi sumars. Vonandi er það
merki um að veður fari batnandi
og að bráðum gefist færi á að reyna
við tindinn. Þangað til látum við
hveijum degi nægja sína þjáningu.
Of mikil hvíld?
Hallgrímur á hvíldardag uppi í
þriðju búðum í dag, föstudag. Hann
er við góða heilsu og á von á að
fara upp í fjórðu búðir á morgun
eða hinn. Félagar okkar sem með
honum eru telja hvíldina að vísu
fullmikla því að hann er sá þeirra
sem sefur best og nýtir hann þenn-
an eiginleika óspart og þarf að vekja
hann bæði í hádegis- og kvöldmat!
Björn er með smáaðkenningu að
vírussýkingunni sem hrjáð hefur
leiðangurinn og eru þá allir leiðang-
ursmenn búnir að fá hana. Hann
er samt vel haldinn og mun halda
niður til Dingboche til hvíldar með
Jon Tinker, Chris Jones og Mark
Warham á morgun, laugardag. Þar
mun hann hitta Einar og koma
þeir félagar aftur upp eftir nokkra
daga.
Þeir sem hafa verið hér áður
segja að undanfarnar vikur hafi
verið óvenju kalt og höfum við ekki
farið varhluta af því. Veðrið efst í
fjallinu hefur farið batnandi undan-
farna daga og er það merki um
vorkomuna. Eins og staðan er í dag
lítur því út fyrir að tímasetningin
hjá okkur sé nokkuð góð og líkur
á að allir verði tilbúnir um leið og
veður gefur til uppgöngu.
Sjá Everestsíðu Morgunblaðsins:
http://www.mbl.is/everst/
rrn 4 4 rn rrn 4 nnn lárusþ.valdimarsson,framkvæmdastjóri
UUL I luU'UUL lu/U JÚHflNNÞDRBftRSON,HRL.LÓGGILTURFASTEIGNASflLI.
Nýjar á fasteignamarkaðnum meðal annarra eigna:
Glæsileg suðuríbúð - eins og ný
3ja herb. á 3. hæð 82,8 fm v. Víkurás. Sólsvalir. Frág. sameign.
Gamla góða húsnlánið kr. 2,5 millj. Skipti æskil. á 3ja herb. risíb. í
nágr. Landspítalans.
Góð eign - vinsæll staður
Mjög gott parhús, suðurendi, 76,4 fm v. Hjallasel. Allt eins og nýtt.
Sólskáli. Góð geymsla. Þjónhúsnæði f. aldraða.
Góð eign - hagkvæm skipti
Vandað og vel byggt raðh. v. Hrauntungu, Kóp. Skipti mögul. á góðri
4ra herb. íb. m. sérinng. og bílsk.
Útborgun kr. 500 þús.
Nýendurbyggð 2ja herb. risíb. í reisul. steinh. skammt frá Sundhöll
Rvíkur. Nýtt eldh. Nýtt sturtubað m. sér þvottaaðst. Leiðslur og
lagnir í húsinu eru nýjar.
Nokkrar góðar eignir
Einbhús, raðhús og hæðir til sölu í borginni og nágr. Hagkvæm skipti
mögul. Nánari uppl. á skrifst.
Opið í dag kl. 10-14.
Gleðilegt sumar,
með þökk fyrir traust og góð viðskipti á liðnum vetri
• • •
Opið í dag frá kl. 10-14.
Viðskiptunum fylgja ráðgjöf
og traustar upplýsingar
ALMENNA
FASTEIGNASALAN
LAUGAVEG118 S. 5521150-5521370
Lýsi sett á
markað í Kína
STJÓRNENDUR Lýsis hf. undirrit-
uðu samning við China Peace Corp-
oration og Beijing Peace Century
Economic & Trade Inc. í Peking í
gær um markaðssetningu á Omega
fitusýrum í perluformi í nokkrum
borgum Kína. Undirritun samnings-
ins ber upp á sama tíma og Ingi-
björg Pálmadóttir, heilbrigðisráð-
herra^ er þar í opinberri heimsókn.
Jón Ólafsson, markaðsstjóri Lýsis,
segir að markaðurinn í Kína sé afar
spennandi og Kínveijar séu sér
meðvitandi um hollustugildi lýsis.
Jón segir að tekist hafi samstarf
við kínverskt dreifingarfyrirtæki
sem hafi unnið afar góða vinnu,
að mati stjórnenda Lýsis. Gerðar
eru miklar væntingar til þessa
markaðar í framtíðinni. Byrjað
verður að flytja inn nokkra gáma
af Omega perlum en í framtíðinni
er stefnt að því að flytja einnig inn
þorskalýsisperlur. Fyrst verður þó
að skrá framleiðsluna inn á Kína-
markað og segir Jón að það sé ferli
sem tekur nokkra mánuði. Fyrstu
sendingarnar fara ekki utan fyrr
en í haust.
Góður markaður í
Austur-Evrópu
Jón segir að kínverskir sam-
starfsaðilar Lýsis hafi heimsótt fyr-
irtækið og þeir haft mikinn áhuga
á að eiga viðskipti við það. Jón
segir að verði úr þessu mikil við-
skipti sé það afar jákvætt fyrir
Lýsi.
Innanlandsmarkaðurinn fyrir
lýsi í neytendapakkningum er um
60 tonn. Lýsi hf. er einnig að vinna
að markaðssetningu í Rússlandi og
sala er hafin í Hvíta-Rússlandi,
Litháen og Póllandi. Jón segir
mikla hefð fyrir lýsisneyslu í aust-
anverðri Evrópu. Lýsi hf. selur
meira magn af lýsi í neytenda-
pakkningum á þessu ári til Póllands
en innanlands.
2,5 millj-
ónir hafa
safnast
SAFNAST hafa 2 milljónir og
250 þúsund krónur til styrktar
sambýliskonu Elíasar Arnar
Kristjánssonar, skipverja á
Ægi, sem fórst við björgunar-
störf 5. mars síðastliðinn, og
að sögn Sigurðar Helga Guð-
jónssonar hæstaréttarlög-
manns, eins aðstandenda söfn-
unarinnar, hafa borist fyrirheit
um 250 þúsund krónur til við-
bótar.
Líknar- og styrktarsjóður
Landssambands lögreglu-
manna gaf 150 þúsund krónur
í söfnunina síðastliðinn mið-
vikudag. Sigurður Helgi sagði
að yfirleitt gæfi fólk á bilinu
1-3 þúsund krónur, en þó væru
dæmi um að mun hærri upp-
hæðir hefðu borist frá ein-
staklingum.
Tekið er á móti framlögum
til styrktar sambýiiskonu El-
íasar Arnar á bankareikning í
Sparisjóði Reykjavíkur og ná-
grennis. Bankanúmerið er
1154-05 og reikningsnúmerið
er 440000.
Borgarstjóri
á ráðstefnu í
Noregi
INGIBJÖRG Sólrún Gísladótt-
ir borgarstjóri tekur nú um
helgina þátt í viðamikilli ráð-
stefnu í Þrándheimi í Noregi
sem ber yfirskriftina „Kvinn-
ekjönn í topp-politik“ þar sem
samankomnir eru norrænir
stjórnmálamenn.
Borgarstjóri flytur ræðu á
ráðstefnunni og tekur þátt í
pallborðsumræðum ásamt
Monu Sahlin, fyrrv. varafor-
sætisráðherra og jafnréttis-
málaráðherra Svíþjóðar, Jytte
Hilten, ráðherra rannsóknar-
mála í Danmörku, Elisabeth
Rehn, fyrrv. ráðherra öryggis-
mála og jafnréttis í Finnlandi,
og Gunhild Öyangen, fyrrver-
andi landbúnaðarráðherra í
Noregi.
Samræmdum
prófum fagnað
Grillaðar
pylsur og
bátsferðir
FÉLAGSMIÐSTÖÐVAR og
íþrótta- og tómstundaráð
Reykjavíkur bjóða tíundubekk-
ingum upp á grill, tónlist og
bátsferðir í Nauthólsvík til að
samfagna þeim eftir síðasta
samræmda prófið á þriðjudag.
Ferðin hefur verið auglýst í
Félagsmiðstöðvunum, en lagt
verður af stað klukkan 18 með
rútum og ekið í Nauthólsvík-
ina. Pylsur verða grillaðar, og
boðið í siglingar. Fagnaðurinn
stendur til klukkan 21 og þá
verður haldið með rútum til
baka.
Rafiðnaðar-
menn semja
KJARASAMNINGUR rafiðn-
aðarmanna hjá Rafmagnsveit-
um ríkisins var samþykktur í
gær. 62,7% þeirra sem tóku
þátt í kosningunni sögðu já en
32,2% nei. Auðir seðlar voru
fjórir og tveir ógildir.
Rafiðnaðarmenn höfðu fellt
áður gerðan samning. Hann
var tekinn upp og borinn að
nýju undir félagsmenn í gær.