Morgunblaðið - 26.04.1997, Qupperneq 23
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
LAUGARDAGUR 26. APRÍL 1997 23
Whitewater-málið enn á döfinni
James McDougal
segir forseta-
hjónin ljúga
Washington. Reuter.
Helmut Kohl úti-
lokar seinkun EMU
Bonn. Reuter.
Sextánda F-16-þotan
ferst í Noregi
Flugmaður-
innlasekki
flugkortin vel
FLUGMAÐUR F-16 þotu norska
hersins sem fórst í Totenfjorden í
fyrradag hefur að öllum líkindum
ekki lesið rétt af flug- og leiðarkort-
um sínum, að því er talsmaður flug-
hersins tjáði blaðinu Aftenposten.
Þotan flaug á raflínur og segir
talsmaðurinn ólíklegt að raflínurnar
hafi ekki komið fram á kortunum.
Til þess sé einmitt ætlast af flug-
mönnum að þeir skoði flugkortin
rækilega fyrir flugferð með raflínur
í huga.
Per Morten Storengen ofursti
átti að vera í 1000 feta eða 314
metra hæð er hann flaug á raflín-
urnar og varð að skjóta sér út í
fallhlíf. Samkvæmt upplýsingum
rafveitunnar í Bindal eru raflínurn-
ar hvergi hærri en 285 metrar og
hefur hann því flogið of lágt. Var
hann ásamt tveimur öðrum orrustu-
flugvélum úr flugsveit er tilheyrir
hraðsveitum Atlantshafsbandalags-
ins (NATO), að æfa árás á óvina-
skip. Storengen er þrautreyndur
orrustuflugmaður og slapp ómeidd-
ur frá óhappinu.
Norski flugherinn keypti á sínum
tíma 72 orrustuþotur af gerðinni
F-16, sem eru smíðaðar í Bandaríkj-
unum. Hafa 16 þeirra farist og með
þeim sex flugmenn. Tjón á þessari
þotutegund er hlutfallslega hærra
í Belgíu og Hollandi en í Noregi.
Fimm þotur af 16 flugu utan í
fjallshlíð eða rákust á mannvirki á
jörðu niðri, fjórar fórust vegna
hreyfílbilunar og tvær eftir að hafa
flogið inn í fuglager.
JAMES McDougal, sem dæmdur
hefur verið í þriggja ára fangelsi
fyrir aðild sína að Whitewater-mál-
inu svokallaða, sagði í fyrrakvöld,
að Bill Clinton, forseti Bandaríkj-
anna, og kona hans, Hillary Rodham
Clinton, lygju til um þátt sinn í þessu
máli. Talsmaður forsetans vildi ekk-
ert um þessi ummæli segja en Clint-
on sagði fyrir helgi, að hann hefði
ekki áhyggjur af yfirlýsingum eða
framburði McDougals.
McDougal, sem kom fram í þætt-
inum „Larry King Live“ á CNN-sjón-
varpsstöðinni, breytti nú fyrri fram-
burði sínum og sagði, að Clinton,
sem þá var ríkisstjóri í Arkansas,
hefði lagt hart að bankastjóranum
David Hale að veita Susan McDoug-
al, þáverandi eiginkonu James
McDougals, lán að upphæð rúmlega
21 milljón ísl. kr.
McDougal sagði, að Clinton hefði
þó ekki hafst neitt ólöglegt að en
lýsti öllum þremur mönnunum á
fundinum og þar með sjálfum sér
sem „bragðarefum", sem gætu sagt
það, sem segja þyrfti, með því að
kinka kolli. Clinton neitar þessu og
segist ekki minnast neins samtals
við Hale um umrædda lánveitingu.
McDougal var spurður hvers
vegna hann hefði logið til um þenn-
an fund áður og svaraði því til, að
þá hefði hann viljað vernda vin sinn
forsetann og sjálfan sig. McDougal,
sem hefur nú gerst vitni saksóknar-
ans í Whitewater-málinu, Kenneth
Starrs, sagði, að hann hefði gert það
„til að bjarga sjálfum mér“ og vegna
þess, að Clinton hefði talið Susan
trú um, að hún yrði náðuð. Hún var
dæmd í tveggja ára fangelsi fyrir
að hafa fengið fyrrnefnt lán á fölsk-
um forsendum og situr auk þess
inni vegna þess, að hún neitaði að
bera vitni fyrir rétti.
Kannski í ástarsambandi
McDougal sagði það „vel geta
verið", að þau Clinton og Susan
hefðu átt í ástarsambandi enda
hefði koma hans á fundinn með
bankastjóranum komið á óvart þar
sem hann hefði ekki átt að vita af
honum. Þá kvaðst McDougal vera
undrandi á því, að Susan skyldi
hafa kosið að fara í fangelsi í stað
þess að svara spurningum dómar-
ans og bætti því við, að hugsanlega
væru einhver persónuleg og fjár-
hagsleg tengsl á milli hennar og
forsetans. Þá sakaði hann einnig
Hillary um að ljúga til um tildrög
þess, að hún annaðist hans mál á
tímabili og sagði, að hann hefði
farið fram á það við Bill Clinton
áður en hann hitti hana. Hillary
segist aftur á móti hafa fengið þetta
verkefni í gegnum samstarfsmann
sinn á Rose-lögfræðistofunni í Ark-
ansas.
HELMUT Kohl, kanzlari Þýzka-
lands, gaf í gær afdráttarlausa
yfirlýsingu um að ekki kæmi til
greina að fresta gildistöku Efna-
hags- og myntbandalags Evrópu
(EMU) og að
Þýzkaland
myndi uppfylla
þau skilyrði, sem
sett eru fyrir að-
ild að mynt-
bandalaginu.
„Þýzkaland
mun aldrei sam-
þykkja seinkun á áætluninni [um
upptöku evrósins],“ sagði Kohl á
fundi með forystumönnum iðn-
fyrirtækja í Diisseldorf. „Ekki und-
ir neinum kringumstæðum. “
Tveir helztu hagfræðingar
Þýzkalands sögðu hins vegar í gær
að ekki ætti að útiloka seinkun
EMU algerlega. Reimut Jochims-
AÐILD að Evrópusambandinu gæti
kostað Pólland upphæð sem nemur
hálfri árlegri landsframleiðslu
vegna gífurlegs kostnaðar við að
uppfylla umhverfísreglur ESB.
Þetta kemur fram í drögum að
skýrslu um stækkun ESB, sem
Alþjóðabankinn gefur út bráðlega.
Fram kemur í European Voice
að bankinn nefni tölur á bilinu 30
til 45 milljarða ECU, eða 2.400 til
3.600 milljarða króna. Þetta gæti
en, sem situr í bankaráði þýzka
seðlabankans, sagðist ekki hvetja
til seinkunar, en ekki mætti útiloka
möguleikann.
Jiirgen Donges, sem er einn
hinna svokölluðu
fimm vitringa,
efnahagsráð-
gjafa ríkisstjóm-
arinnar, sagði að
hann sæi ekki að
Þýzkaland ætti
raunverulega
möguleika á að
uppfylla skilyrði Maastricht-sátt-
málans um fjárlagahalla og skulda-
byrði hins opinbera. Betra væri að
seinka gildistöku EMU en að of fá
ríki tækju upp evróið.
í Maastricht-sáttmálanum er ekki
gert ráð fyrir seinkun gildistöku
EMU, samkvæmt mati sérfræðinga
framkvæmdastjómar ESB.
orðið kostnaðurinn við að tryggja
að pólskur iðnaður uppfylli skilyrði
umhverfislöggjafar ESB og að ná
mengun lofts og drykkjarvatns nið-
ur fyrir viðmiðunarmörk í tilskipun-
um sambandsins.
Alþjóðabankinn leggur hins veg-
ar líka áherzlu á að þessar upphæð-
ir þurfi ekki að hindra aðild Pól-
lands að ESB. Þær taki ekki mið
af þeim ávinningi, sem Pólverjar
hafi af nútímalegri iðnaði.
*★★★*
EVRÓPA**
Aðild Póllands að Evrópusambandinu
Dýrar umhverfísreglur
Va val á salernispappír hættir okkur um of til
að láta verðið ráða kaupunum. Það er oftast á
kostnað þægind-
anna því þegar
upp er staðið
Lotus rifnar
ekki
hvar sem er
snýst málið um gæði.
Lotus er þægilegur og endingargóður salernis-
pappír. Hann er mýkri og sterkari en aðrar
ódýrari tegundir og er því drýgri fyrir vikið.
Prófaðu Lotus -
^ a
fesafeálÍP
! iOUVMJL