Morgunblaðið - 26.04.1997, Síða 47
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 26. APRÍL 1997 47
FRÉTTIR
Samkeppni í
flu^uhnýtingnm
LOKAKEPPNI fluguhnýtingar-
keppni Landssambands stangaveiði-
félaga verður haldin í húsakynnum
Stangaveiðifélagsins Ármanna að
Dugguvogi 13 í dag, laugardag, og
hefjast leikar klukkan 12.30. Aætl-
að er að keppnin standi fram eftir
degi og búast mótshaldarar við
spennandi keppni. Þetta er í annað
sinn sem keppnin er haldin og þótti
hún heppnast með ágætum í fyrra.
Síðustu mánuði hefur undan-
keppni farið fram í aðildarfélögum
LS og er keppt í tveimur flokkum,
flokki byijenda og flokki þeirra sem
lengra eru komnir. Landsþekktur
hnýtingarmeistari verður á staðnum
með sýnikennslu fyrir gesti og
gangandi.
„Áhugi almennings fyrir flugu-
veiði hefur farið stigvaxandi á síð-
ustu árum og því var löngu tíma-
bært að halda sérstaka fluguhnýt-
ingarkeppni fyrir aðilarfélaga LS,“
sagði Valdór Bóasson, formaður LS.
Breytt fyrirkomulag í Kjósinni
Fulltrúi leigutaka Laxár í Kjós,
Ásgeir Heiðar, sagði í samtali við
Morgunblaðið að hann hefði fært
veiðitímann fram til 5. júní að þessu
sinni og frá þeim degi og allt til 15.
júní yrði veitt með átta stöngum,
þ.e.a.s. fækkað hefði verið um tvær.
Eftir 15. júní og allt til loka tíma-
bilsins verða stangirnar hins vegar
aftur tíu. í júní og september geta
menn keypt staka daga án aðstöðu
í veiðihúsi og fæðis og er það ný-
lunda.
Miðá aftur í sölu hjá SVFR
Félagsskapur undir forystu Lúð-
víks Gissurarsonar hefur tekið Miðá
í Dölum á leigu og hefur hópurinn
samið við Stangaveiðifélag Reykja-
víkur um að hafa veiðileyfi í ána í
umboðssölu. Gamla hússkriflið verð-
ur á sínum stað skammt neðan
Kvennabrekku, en leigutakar hafa
tekið tvö vel búin sumarhús í landi
Tungu í Haukadals á leigu, ef við-
skiptavinir kjósa huggulegri aðstöðu
gegn hóflegu aukagjaldi.
Fremur dræm laxveiði hefur verið
í Miðá síðustu sumur, en afar góð
sjóbleikjuveiði bætt þar nokkuð úr.
Lúðvík er öllum hnútum kunnugur
um sleppingar seiða á öllum aldri,
náði prýðilegum árangri á efsta
svæði Eystri-Rangár síðustu sumur
og sagði hann í samtali við Morgun-
blaðið að svipuðum meðölum yrði
beitt til að koma upp laxgengd í
Miðá á nýjan leik.
Veiðiskapur hér og þar
Sjóbirtingsveiði hefur gengið
skrykkjótt það sem af er og slæm
skilyrði oftar en ekki sett strik í
reikningin. Þannig hafa hlýindi skil-
að gruggi í ár víða á Suðurlandi
jafnvel dögum saman og er þá ill-
veiðandi. Reytingsveiði hefur verið
í Geirlandsá og góð skot í Vatnamót-
um. Varmá hefur einnig verið góð
á köflum, en slæm skilyrði valdið
því að veiði í Hörgsá hefur ekki
verið jafngóð og vonir stóðu til. Um
helgina voru aðeins komnir á annan
tug fiska á land.
Betur hafði gengið í Eldvatni í
Fljótshverfi, um 40 fiskar komnir á
land, þeir stærstu um 6 pund. Mest
sjóbirtingur, en einnig stöku bleikja.
Stærstu fiskar í Hörgsá voru um 8
pund, en 10 punda úr Vatnamótum
og Geirlandsá, fiskar sem veiddust
strax í opnun.
Vorveiði í Hítará á Mýrum hefur
brugðist og fiskur varla sést. Þarna
er um tilraunaveiðar að ræða þar
eð bleikjuveiði var tíðum góð þarna
á vorin fyrr á árum.
Þá hafa menn aðeins verið að
reyna bleikjuveiði í Soginu, t.d. fyr-
ir landi Þrastalundar. Veiði hefur
verið lítil, en menn þó orðið varir
og séð fisk. Vatnið er hins vegar
ægikalt og bleikjan að vanda dynt-
ótt. Stangaveiðifélagið Lax-á hefur
nú leigt Þrastalundarsvæðið.
:°4Étu
VIDALINSKIRKJA.
Vídalínshátíð á sunnudag
HIN árlega Vídalínshátíð fer
fram nk. sunnudag í Vídalíns-
kirkju. Guðsþjónusta verður
kl. 11 þar sem dr. Sigurður
Árni Þórðarson predikar og
nemendur Tónlistarskólans í
Garðabæ og kór kirkjunnar
annast flutning tónlistar.
Hátíðarsamkoma hefst kl.
17. Þar verður flutt fjölbreytt
tónlistardagskrá, ávörp flutt
og lesið úr verkum Jóns bisk-
ups Vídalíns. Ferenc Utassy
organisti kom sérstakleg hing-
að til lands til að sljórna Kór
Vídalínskirkju við þetta tæki-
færi. Aðgangur er ókeypis og
allir velkomnir.
Endurmenntunarstofnun Háskóla íslands
Námskeiðinu „Lærðu
að njóta góðrar tón-
listar“ að ljúka
UM EITT hundrað manns innrituðu
sig á námskeiðið Lærðu að njóta
góðrar tónlistar - hátinds barokks-
ins í ítalskri og þýskri tónlist undir
leiðsögn Ingólfs Guðbrandssonar og
lauk því sl. miðvikudag með afhend-
ingu viðurkenningar. Ástundun hef-
ur verið mjög góð, hjá mörgum
100% en meðaltal yfir 80%.
Á námskeiðinu hafa þátttakend-
ur kynnst ævi og tónlist ítölsku
tónskáldanna Corellis og Vivaldis
og í framhaldi var fjallað um Tele-
mann, Hándel og J.S. Bach, almenn
umfjöllun og um ævi þeirra og verk,
útskýringar á tónverkum og hlustað
á valin tóndæmi flutt af fremstu
listamönnum. Námskeiðið fór að
þessu sinni fram í hátíðarsal Há-
skóla íslands sem borist hafði góð
gjöf í ársbyrjun; hljómflutningstæki
af vönduðustu gerð, sem nokkur
þekkt fyrirtæki í Reykjavík lögðu
af mörkum og hafa reynst með
ágætum.
Greinilegt er að almenningur er
þyrstur í þekkingu af þessu tagi
og þakklátur fyrir tækifæri til að
fá innsýn í töfraheim góðrar tónlist-
ar, segir í fréttatilkynningu frá
Endurmenntunarstofnun. Þetta var
fimmta námskeið Ingólfs Guð-
brandssonar en ráðgert er að hann
taki fyrir tónjöfurinn Ludwig van
Beethoven á sérnámskeiði í byijun
næsta árs.
Morgunblaðið/Halldór
FRÁ afhendingu styrksins. F.v.: Eydís Valgarðsdóttir, Valgarð-
ur Einarsson, Alfreð Samúelsson, Valgerður Baldursdóttir,
Hrefna Ólafsdóttir, Björn Samúelsson og Þórhallur Ólafsson.
Merkjasala
Ingólfs um
helgina
ÁRLEG merkjasala Björgunar-
sveitar Ingólfs fer fram dagana
25. og 26. apríl nk. Þá ganga börn
úr Grunnskólum Reykjavíkur í hús
og bjóða merki sveitarinnar til sölu.
Merkið mun líkt og undanfarin ár
kosta 200 kr. Merkjasala þessi á
sér langa hefð að baki. í hartnær
30 ár hefur merkjasalan verið ein
af stærstu fjáröflunum björgunar-
sveitarinnar og hefur hún unnið
sér fastan sess í hugum margra
Reykvíkinga, segir í fréttatilkynn-
ingu.
Sinna útköllum
á sjó og landi
Björgunarsveit Ingólfs er eina
björgunarsveitin í Reykjavík sem
sinnir bæði sjó- og landútköllum.
Á síðasta ári sinnti björgunarsveit-
in u.þ.b. 40 útköllum, þar á meðal
voru stóru snjóflóðin á Vestfjörð-
um. Björgunarsveitin á og rekur í
dag 2 bifreiðar, 2 snjóbíla, 1 harð-
botnaslöngubát, 3 slöngubáta auk
þess sem hún mannar björgunar-
skip Slysavarnafélags Islands,
Henry A. Hálfdánsson.
Þó að starf sveitarinnar sé allt
unnið í sjálfboðavinnu kostar mikla
fjármuni að reka hana og er þessi
fjáröflun einn liður í því að tryggja
rekstrargrundvöll fyrir hana.
Ágóði til bama
geðdeildar
STYRKTARSÝNING á nýjustu
kvikmynd John Travolta, Mich-
ael, þar sem Travolta leikur
óvenjulegan engil, var haldin
miðvikudaginn 16. apríl sl.
Á undan sýningu myndarinnar
var skyggnilýsing og umsjónar-
menn hennar voru miðlarnir
Valgarður Einarsson og Þórhall-
ur Guðmundsson. Aðgangseyrir
á þessa sýningu var 1.000 kr. og
allur ágóði rann til Barna- og
unglingageðdeildar Landspítal-
ans. Ágóðinn mun fara til rann-
sóknar og fræðslu um kynferðis-
legt ofbeldi, segir í fréttatilkynn-
iíigu frá Sambíóunum.
Heyrnarhjálp
vinnur að af-
mælisriti
FÉLAGIÐ Heyrnarhjálp, sem er
hagsmunasamtök heyrnarskertra, á
60 ára afmæli á þessu ári. Félagið
vinnur nú að veglegu afmælistíma-
riti með fróðleik um málefni heyrn-
arskertra.
Eitt af helstu framtíðarverkefn-
um félagsins er að vinna að heyrn-
arvernd og því mun ágóði af tíma-
ritinu renna til kaupa á hljóðmæli.
Félagið mun nýta mælinn í baráttu
sinni til að varpa ljósi á skaðsemi
hávaðarmengunar á heyrn barna
jafnt sem fullorðinna í samfélagi
okkar. Á íslandi eru heyrnarskertir
um 10% af þjóðinni.
Tvær orlofs-
ferðir á vegum
Orlofsnefndar
húsmæðra í
Kópavogi
EINS og undanfarin ár skipulegg-
ur Orlofsnefnd húsmæðra í Kópa-
vogi orlof fyrir húsmæður, búsett-
ar í Kópavogi.
Að þessu sinni verður farin fjög-
urra daga ferð til Grímseyjar dag-
ana 26.-29. júní á vegum nefndar-
innar. Ekið verður til Sauðárkróks
og gist eina nótt á Hótel Áningu.
Þaðan verður haldið, föstudaginn
27. júní, til Akureyrar og siglt síð-
ari hluta dags frá Dalvík til Gríms-
eyjar. í Grímsey verður gist í
svefnplokaplássi tvær nætur.
Sunnudaginn 29. júní verður hald-
ið í land og ekið til Kópavogs og
komið ekki seinna en um miðnætti.
Þátttökugjald er 15.000 kr.,
innifalið í verði er akstur, sigling,
gisting, kvöldverður, morgunverð-
ur og einhveijar hressingar.
Ennfremur stendur húsmæðrum
í Kópavogi til boða orlofsdvöl á
vegum nefndarinnar á Flúðum í
Hrunamannahreppi dagana
10.-15. ágúst. Dvalið verður á
Hótel Eddu. Þátttökugjald er
15.000 kr. Innifalið í verði er akst-
ur, gisting, morgunverður, mið-
degiskaffi, kvöldverður, takmark-
aður aðgangur að sundlaug o.fl.
alla dagana.
Lífríki ís-
lenskra vatna
HIÐ íslenska náttúrufræðifélag
heldur fræðslufund mánudaginn 28.
apríl kl. 20.30 í stofu 101 í Lög-
bergi, lagadeildarhúsi Háskólans. Á
fundinum flytur Hilmar J. Malm-
quist, líffræðingur, Náttúrufræði-
stofu Kópavogs, erindi sem hann
nefnir: Lífríki íslenskra vatna.
I fyrirlestrinum verður greint frá
rannsóknaverkefninu: Yfirlitskönn-
un á lífríki íslenskra vatna, sam-
ræmdur gagnagrunnur sem er unn-
inn á vegum Bændaskólans að Hól-
um, Líffræðistofnunar Háskólans,
Náttúrufræðistofu Kópavogs og
Veiðimálastofnunar. Auk aðstand-
enda verkefnisins tengjast því ýmsir
innlendir og erlendir aðilar sem sjá
um afmörkuð rannsóknasvið.
Yfirlitskönnunin byggist á um-
fangsmikilli gagnasöfnun í vötnum
vítt og breitt um landið og hefur
verkefnið veirð í gangi sl. fimm ár.
Þegar hafa 46 vötn verið rannsökuð
en stefnt er að því að gagnagrunn-
urinn innihaldi upplýsingar um alls
100 vötn. Verkefnið takmarkast við
vötn stærri en 100 ha en um 200
slík eru á landinu. Gagnaöflunin nær
til ljölmargra þátta sem snerta líf-
fræði, vatnafræði og jarðfræði við-
komandi vatns og vatnasviðs.
í erindinu verður veitt innsýn í
aðferðafræði verkefnisins og greint
frá ýmsum niðurstöðum m.a. með
samanburði á lífríkisþáttum í völd-
um vötnum.
Fræðslufundir félagsins eru öllum
opnir og aðgangur ókeypis.
------------------
Gróður fyrir fólk
Sljórn skiptir
með sér verkum
INGVI Þorsteinsson, náttúrufræð-
ingur, var kosinn formaður samtak-
anna Gróður fyrir fólk í landnámi
Ingólfs á fyrsta fundi nýkjörinnar
stjórnar sl. þriðjudag. Þórður H.
Ólafsson, skrifstofustjóri umhverf-
ismálaráðuneytisins var kjörinn
varaformaður, Bryndís Brandsdótt-
ir, jarðfræðingur, gjaldkeri og Fríða
Björg Eðvarsdóttir, landslagsarki-
tekt, ritari.
Aðrir í stjórn eru EUert Eiríks-
son, bæjarstjóri í Reykjanesbæ,
Hólmfríður Finnbogadóttir, formað-
ur Skógræktarfélags Hafnarfjarðar
og Stefán Hermannsson, borgar-
verkfræðingur í Reykjavík. Með-
stjórnendur eru Gunnar G. Schram,
prófessor, Óttar Geirsson, ræktun-
arráðunautur Bændasamtaka ís-
lands og Þuríður Ingvadóttir, land-
fræðingur. Valdimar Jóhannesson
hefur verið ráðinn framkvæmda-
stjóri samtakanna sem hafa skrif-
stofu að Laugavegi 13.
Markmið samtakanna er að vinna
að stöðvun gróður- og jarðvegseyð-
ingar í landnámi Ingólfs, auka og
bæta gróður og styrkja vistkerfi
svæðisins, í þeim tilgangi að endur-
heimta glötuð landgæði og skapa
vistlegra umhverfi fyrir þann stóra
hluta þjóðarinnar sem þar býr. Sam-
tökin eru opin öllum; einstaklingum,
félögum, fyrirtækjum, stofnunum,
bæjarfélögum og ríkisstofnunum.
------» ♦ ♦------
Heimildarkvik-
mynd um Maju
Plísetskaju
KVIKMYNDIN Maja Plísestskaja
verður sýnd sunnudaginn 27. apríl
kl. 16 í bíósal MÍR, Vatnsstíg 10.
Þetta er heimildarkvikmynd um eina
frægustu ballerínu heims gerð á
árinu 1964 þegar hún stóð á há-
tindi frægðar sinnar.
Sýnd verða atriði úr ýmsum ball-
ettum þar sem fram koma auk Plí-
setskaju flestir kunnustu ballett-
dansarar Bolshoj-leikhússins í
Moskvu á sjöunda áratugnum. Skýr-
ingar á myndinni á ensku. Aðgang-
ur er ókeypis og öllum heimill.