Morgunblaðið - 26.04.1997, Qupperneq 51

Morgunblaðið - 26.04.1997, Qupperneq 51
MORGUNBLAÐIÐ BREF TIL BLAÐSINS LAUGARDAGUR 26. APRÍL 1997 51 Frá Lárusi Hermannssyni: EKKI þurfum við íslendingar að kvarta yfir því, að eiga ekki nægi- lega mörg hvatningarorð, sem hægt er að grípa til, til að minna okkur á og hagyrðingar góðra setninga ætluðust til að tiltæk væru, þegar eitt og annað skyldi athugast. Nefni hér aðeins fátt eitt: „Hamra skal járnið, meðan heitt er.“ „Brennt barn forðast eldinn." „Aldrei er góð vísa of oft kveð- in.“ „Gott er að hafa tungur tvær og tala sitt með hvorri." Nefni þetta vegna þess, að ekki virðist vanþörf á því, að stjórn- málamenn sérstakiega megi hug- fast hafa, a.m.k. fyrir hverjar kosningar, hvernig loforðalistinn er samansettur og hvernig þeim ber að vinna úr honum og reyna að efna, þó ekki væri nema eitt- hvað af því sem þá var lofað. Það verður því ætíð umhugsunarefni allra sem reyna að fylgjast með pólitíkinni gegnum tíðina hvernig efndir flokkanna verða, þegar til kastanna kemur. Nú vitum við og höfum lengi vitað, að Sjálfstæðisflokkurinn hefur aldrei verið félagshyggju- flokkur og fer ekki leynt með það. Heldur er hann flokkur ein- staklingshyggjunnar, fijálshyggj- unnar, þar sem helst fáir útvaldir skulu ráða ríkjum í valdi pening- anna. Og finnst mörgum ótrúlegt að hann skuli vera enn í dag stærsti stjórnmálaflokkurinn, miðað við málstaðinn. Athugum þá næst Framsóknar- flokkinn sem ætíð hefur þóst vera félagshyggjuflokkur og flutt mál sitt fyrir kosningar á þeim grunni. Gefum þessari ríkis- stjórn frí Og var harðsnúinn í stjórnarand- stöðunni, þegar kratar störfuðu með íhaldinu. En svo eftir síðustu kosningar söðla framsóknarmenn gjörsamlega um, eftir að þeir hafa höndlað ráðherrastólana í samkr- ulli við íhaldið. Svo að nú er svo komið að ekki er hægt að greina hvor flokkurinn er íhaldssamari. Og sannarlega mega framsóknar- menn muna sinn fífil fegri. Hver og hvar er stefna þeirra nú? Spyr sá sem ekki veit. Eitt er það einn- ig, sem vekur sérstaka undrun mína, hversu íhaldinu tekst ágæt- lega að beisla eða jafnvel dáleiða flesta þá sem eru með þeim í stjórnarsamstarfinu hverju sinni. Sem sést best á því núna, að kratar hafa svo sannarlega fengið sig fullsadda af „hjónabandssæl- unni“, sem þeir fengu að reyna með íhaldinu í síðustu ríkisstjórn. Og hvað er það þá í landsmála- pólitíkinni, sem ekki hefur verið reynt áður? Að allir, sem telja sig til vinstri, taki nú höndum saman og efli einn sterkan félagshyggju- flokk, sem gæti boðið birginn þessu upprísandi peningavaldi, sem íhaldsflokkarnir stefna óð- fluga á í dag. Og ef hinir svoköll- uðu vinstri menn vilja að þeir séu teknir alvarlega, ættu þeir að láta af allri hagsmunapólitík og smá- flokkastarfsemi, sem og síendur- teknum deilum um hverjir ráða skuli ferðinni og hveijir í stólunum sitja, ef svo skyldi til takast. Þá satt best að segja hefur það verið aðal áróðurs-tiltæki íhalds- ins, að sundrungin sé svo algjör hjá þessum v-flokkum, að ógjör- legt sé fyrir þá að sameinast um málin. En benda má á: Hvað heit- ir sá flokkur eða samtök, þar sem ekki rís upp ágreiningur og jafn- vel harðar deilur milli þegnanna þótt þeir eigi að heita í sama stjórnmálaflokknum? Þau samtök þekki ég ekki. Og þó að fijáls- hyggjumenn vilji hefja sig til flugs með tuggunni um eitthvert tæt- ingslið á vinstri arminum, þá mættu þeir gjarnan líta sér nær. Og nú vildi ég meina, að engin vanþörf væri á því að reyna eitt- hvað annað, en það sem nú er. Því aldrei getur svona vont orðið verra en vont. Og þar sem einn málshátturinn í upphafi greinarinnar hljóðaði uppá það, að aldrei væri góð vísa of oft kveðin, þá finnst mér tíma- bært að minna á, að óðum styttist þar til kosningar til Alþingis verða háðar. Og eftir venju munu núver- andi þingmenn koma skríðandi á maganum eða kijúpandi á hnján- um til ykkar kjósendur góðir og án efa bjóða gull og græna skóga, ef þið vilduð vera svo elskuleg að veita þeim brautargengi til setu í fínu og mjúku stólunum næstu fjögur árin. Og þá verða ekki frek- ar en endranær spöruð fögru orð- in og loforðin um betri tíð með blóm í haga. Eldri borgarar, látið ekki blekkjast oftar. Gefum þess- ari ríkisstjórn frí. LÁRUS HERMANNSSON, Hringbraut 99, Reykjavík. /er& frá 330 kr. 50% afsláttur D AFMÆ Parket á mjög góðu verði. Dæmi: Eik kr. 2.388 m2 Góð greiðslukjöri Raðgreiðslur tII allt að 36mónaða Grensásvegi 18 Sími 581 2444 Stofnað 1965 KARLAR KRUNKA! Ráðstefna um máiefni karla í Borgarleikhúsinu 2.maí 1997. Á vegum Sólstöðuhóps í samvinnu við Karlanefnd Jafnréttisráðs 09.00-09.15 Setning. 09.15-09.30 TEGUNDIN KARL. Tilraun til skilgreiningar. Sigurður Svavarsson, formaður karlanefndar jafnréttisráðs. 09.30-10.00 MEÐ LÍFIÐ í LÚKUNUM. Staða karla í nútímasamfélagi. Asþór Ragnarsson, sálfræðingur. 10.00-10.20 Kaffihlé. 10.20-10.40 KARLMENN OG VÍMUEFNANEYSLA. Þórarinn Tyrfingsson, yfirlæknir. 10.40.-11.00 „LIGGJA MENN ENNÞÁ VEL VIÐ HÖGGI?" Umfjöllun um ofbeldishneigð karla. Karl Steinar Valsson, afbrotafræðingur og lögreglumaður. 11.00-11.20 KARLMENN OG SJÁLFSVÍG. Wilhelm Norðfjörð.sálfræðingur. 11.20-11.35 Tónlist 11.35.-12.00 GLERVEGGIR HEIMILISINS. Ingólfur Gíslason, starfsmaður karlanefndar 12.00-13.00 Hádegishlé. 13.00-13.25 HVERS VEGNA ÆTTU FYRIRTÆKIN AÐ STYÐJA FOÐURHLUTVERKIÐ? Árni Sigfússon, framkvæmdarstjóri. 13.25-13.50 ER SKÓLINN FYRIR STRÁKA? Hafsteinn Karlsson, skólastjóri. 13.50-14.15 KARLAR OG KYNLÍF. Bragi Skúiason, sjúkrahúsprestur. 14.15-14.35 Kaffihlé. 14.35-14.55 HVERNIG VERÐA NÝJU ALDAMÓTAMENNIRNIR? Svavar Gestsson, alþingismaður. 14.55-15.15 FRAMTÍÐARSÝN. Steingrímur Hermannsson. 15.15-15.25 Egill Ólafsson og 15.25-15.55 Pallborðsumræður. trió Björns Thoroddsen 15.55-16.00 Ráðstefnuslit. sJá um tónlistarflutning. Þátttökugjald fyrir 29.04: 4.500.- Þátttökugjald eftir 29.04: 6.000,- Innifalið í þátttökugjaldi er ráðstefnan, ráðstefnugögn og kaffiveitingar. Skráning fer fram hjá Ferðaskrifstofu íslands, ráðstefnudeild, með faxi eða síma. Sími 552 5447, faxnúmer 562 3345. Konur Jafnt sem karlar velkomin. Þátttaka tilkynnist fyrir 1. maí. Tekið er við Vísa og Eurocard kreditkortum. Wk - - Hún valdi skartgripi frá Silfurbúöinni SILFURBÚÐIN Kringlunni 8-12 • Sími 568 9066 - Þarfœrdu gjöfina -
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.