Morgunblaðið - 26.04.1997, Síða 60

Morgunblaðið - 26.04.1997, Síða 60
60 LAUGARDAGUR 26. APRÍL 1997 MORGUNBLAÐIÐ MYNDBÖND/KVIKMYNDIR/ÚTVARP-SJÓNVARP LAUGARDAGSMYNDIR SJONVARPSSTOÐVANNA Sjónvarpið ►22.05 - Sjá umfjöllun í ramma. Sjónvarpið ►24.00 Ekki hef ég séð bandarísku spennumyndina Hug- leiðingar um glæp, öðru nafni (Reflections in the Dark, 1994), þar sem segir frá húsmóður sem er svo þjökuð af ást og umhyggju eigin- manns síns að hún kemur honum fyrir kattarnef. „Leiðinleg" segja Martin og Potter og gefa ★ ★ (af fímm mögulegum). Aðalhlutverk Mimi Rogers og Billy Zane. Leik- stjóri Jon Purdy. Stöð2 ►15.00 Myndirnar þijár um karatedrenginn sem sigrast á að- stæðum sínum með blöndu af aust- rænni heimpeki og bardagalist byij- uðu frekar þunnt og þynntust áfram út. Sú fjórða, Karatesteipan (The Next Karate Kid, J994)hefurekkert nýtt fram að færa annað en stelpuna Hilary Swank í stað drengsins Ralphs Macchio. Noriyki „Pat“ Moritaerenn sami góði, gamli leiðbeinandinn. Leikstjóri Christopher Cain. ★ 'h Stöð 2 ►21.10 Elizabeth Mont- gomery leikur glæpablaðamanninn Edna Buchanan sem fæst við þrefalt morð tengt mafíunni í Síðustu for- vöð (Deadline ForMurder: Frorn The Files Of Edna Buchanan, 1995). Þessi sjónvarpsmynd er úr syrpu um fyrrnefnda blaðakonu en ef dæma má af þeirri einu sem ég hef áður séð er um sæmilega afþreyingu að ræða. Og leikstjórinn Joyce Chopra á nokkur frambærileg verk að baki. Stöð 2 ►22.50 Framtíðarsýn vís- indaspennumyndarinnar Johnny Mnemonic (1995) lofar ekki góðu: Árið 2021 er mannkynið undirselt einni yfirstjórn gegnum tölvunet en samt er allt í volli. Og Keanu Reeves ertölvuvæddur sendiboði sem þarf að höggva á báðar hendur til að Elliheimilið SÉRTRÚARSÖFNUÐUR samsettur úr mörgum kynslóðum áhorfenda virðist hafa endalausan áhuga á endalausu flandri áhafnar geimskipsins Enterprise um víðáttur geimsins og glímu hennar við óvætti og illfygli af ýmsu sauðahúsi - svo endalausan áhuga að kynslóðaskipti hafa orðið í áhöfninni sjálfri. Síðasta myndin fyrir kynslóðaskipti er Geimstöðin VI: Óþekkt land (Star Trek VI: The Undiscovered Country, 1991, Sjónvarpið ►22.05). Þareru William Shatner, Leonard Nimoy og félagar að reyna að semja um vopna- hlé við Klingona en Christopher Plummer leikur - skemmtilega - við- sjárverðan andstæðing sem leiðir þá í gildru. Bindiefnið í báikinum - óstöðvandi gerviheimspeki og há- tæknibull - er auðvitað til staðar en þessi mynd er með þeim skárri í syrpunni, með nettu gríni að aldri söguhetjanna og tilvísunum í stór- viðburði í samtímanum. Leikstjóri koma verkefni sínu í heila höfn. Ekki vantar tæknilegar flugeldasýn- ingar í þessum kaldranalega hasar en myndin fuðrar upp þar fyrir utan. Sænska hormónatröllið Dolph Lund- gren er þó á réttri hillu sem erkibóf- inn. Leikstjóri Robert Longo. ★ 'h Stöð 2 ►O .30 Hrollvekjur eftir sög- um Stephens King eru yfirleitt - en ekki alltaf - hrollvekjandi slappar og það á sannarlega við um Kirkju- garðsvaktina (Graveyard Shift, 1990), þar sem verkalýðurinn í vefn- aðarverksmiðju einni hrúgast ofaní nærliggjandi kirkjugarð af einhveij- um og fáránlegum ástæðum. Aðal- hlutverk David Andrews, Kelly Wolf Enterprise WILLIAM Shatner sem Kirk geimskipstjóri Enterprise. Nicholas Meyer sem einnig stýrði mynd númer tvö. ★ ★ ★ og Stephen Macht. Leikstjóri Ralph S. Singleton. ★ Sýn ►21.00 Vísindahasarsyrpan um Vélmennið er við fátækramörk hvar sem á hana er litið en þriðja myndin, Vélmennið Cyborg 3 (Cy- borg 3, 1994) er sú skásta, þökk sé yfirgengilegum leik Malcolms McDowell í hlutverki illmennisins og örlitlum votti af húmor í handritinu. Aðrir leikarar eru m.a. Zach Galligan og Khrystyne Haje, sem leikur kven- kyns vélmenni sem verður bariishaf- andi og geri önnur vélmenni betur. Leikstjóri Michael Schroeder. ★ 'h Árni Þórarinsson ► SHANNON Doherty, fyrrver- andi leikkona í sjónvarpsþáttun- um vinsælu „Beverly Hills 90210“, mun brátt snúa aftur á sjónvarpsskjáinn í gamanmynda- flokknum „Faster Baby, Kill!“ sem sýndur verður á Fox sjón- varpsstöðinni í Bandaríkjunum. Doherty aftur á skjáinn Þættirnir eru gamansamir og spennandi í bland og fjalla um unga einkaspæjara í Los Angel- es. Meðleikarar hennar verða Orlando Jones og William Ragsd- ale. Doherty hætti í „Beverly Hills 90210“ árið 1994. Síðan þá hefur hún leikið í sjónvarpsmyndum og einni bíómynd, „Mallrats" sem gekk afar illa. TAKTU ÞATT IAÐ SKAPA SAMHENGI.. d milli menntunary starfsins, heimsins... Ieggðu stund á tæknifræði í Ingeniorhjoskole Syd í Sonderborg og lærðu að skapa samhengi á milli þinna hugmynda og þarfa . samfélagsins. Lærðu ao þróa kerfi vinsamlegt neytandanum og umhverfinu, í námsumhverfi þar sem náið samstarf og tengsl eru við samfélagið. Kennslan fer fram í miklum mæli í samvinnu við atvinnulífið og þú munt því kynnast „raunveruleikanum“ í náminu. Einnig munt þú kynnast fólki í málanámi og hagfræðinámi þar sem Ingeniorhojskole Syd og Handelshojskoke Syd eru í sama námssamfélaginu. Sem íslenskur tæknifræðinemi mun þér líða eins og heima hjá þér í Snderborg, sem er spennandi námsbær með marga áhugaverða menninga og tómstundamöguleika. Kollegietners Kontor hjálpar þér að finna húsnæði og þú munt hitta aðra lslendinga í skólanum, í bænum og í íslendingafélaginu. Þér er velkomið að hafa samband við formann íslendingafélagsins í Sonderborg, Einar Jón Pálsson, sem er við tæknifræðinám við skólann. Heimasími er 00 45 74 42 66 59. Fáðu nánari upplýsingar um Ingeniorhojskole Syd á íslensku heimasíounni okkar: http://is.hhs.dk Þú getur einnig nálgast Study Point-bæklinginn sem veitir nánari upplýsingar um námsmannabæinn Sonderborg. Hringið til okkar í síma 00 45 79 32 16 00 eða sendið svarseðilinn Framleiðslutæknifræðingur (hagfræði) Einstakt í Danmörku! Lærðu að leysa framleiðslutæknifræðileg verkefni út frá hagfræðilegu/tækni- fræðilegu sjónarmiði. Véltæknifræði Lærðu að þróa umhverfis- og orkuvænleg kerfi. Veikstraumstæknifræði Lærðu að þróa vélbúnað fyrir tölvustýrð rafkerfi. / / ^ " JÁTAKK Sendið mér nánari upplýsingar um menntunarmöguleika og námsumhverfi Ingeniprhöjskole Syd / INGENI0RH0JSKOLE SYD Grundtvigs Allé 150 • 6400 Sonderborg • Danmark Tlf. +45 79 32 16 00 • hhtp://is.hhs.dk J Nafn ^ Starf Heimilisfang I’óstnúmcr/bær Land Sími Sendið svarseðilinn á faxi 00 45 74 42 92 33 eða til Studv Point co/Sonderborg Erhverfsrád, box 332, DK-6400 Sonacrborg í VOLCANOer Los Angeles ógnað af eldgosi. Eldgos, eldgos alls staðar Eldfjallastórslysamyndir eru vinsælt viðfangsefni í Bandaríkj- unum um þessar mundir. Universal kvikmyndafyrirtækið er með Dant- e’s Peak, Fox með Volcano, og nú hefur sjónvarpsstöðin ABC gert Volcano: Fire on the Mountain. íslendingar sem þekkja eldgos af eigin raun geta bráðum séð Volcano og Dante’s Peak í bíó. Meðan beðið er getur maður stytt sér stundir við smá samanburðar- fræði sem bandaríska tímaritið Variety velti fyrir sér nýlega. Þeir tóku nokkur lykilatriði í myndun- um og báru saman hvað hetjurnar létu sér um munn fara. Aðdragandinn Dante’s Peak. „Paul, það er eitt- hvað að gerast. Við mælum skjálftavirkni." Volcano: „Er þér sama þó að ég skoði þetta sjálfur." Volcano: Fire on the Mountain: „Vá, maður. Það er stór byigja hérna á mælinum." Hvað er væntanlegt Dante’s Peak. „Fjallið er tifandi tímasprengja.“ Volcano: „Þetta á eftir að eyði- leggja allt sem á vegi þess verður." Volcano: Fire on the Mountain: „Það er eitthvað slæmt á leiðinni og Guð hjálpi okkur ef við komum okkur ekki undan því.“ Fyrstu fórnarlömbin Dante’s Peak. (elskendur í heitri lind) „Auhhhnnnn". Volcano: (skíðafólk á fljúgandi ferð) „Aiiieeee.“ Volcano: Fire on the Mountain: (lestarstarfsmenn) „Auggghhh!" Slappið af Dante’s Peak: „Dömur mínar og herrar, viljið þið gjöra svo vel og vera róleg.“ Volcano: „Verið svo væn og ver- ið róleg." Volcano: Fire on the Mountain: „Viljið þið öll vera róleg.“ Múrviðgerðir, múrverk og flísalagnir 0tt0UUN«5r% aV' __.-.-tzSNZFFFnPV ~ I 0 § HUSAKLÆÐNING HF 5!« 1977» GSBIM02I7 Byggjum á árangri Vont versnar Dante’s Peak: „Það er meiri hraunleðja að koma niður hlíðina." Volcano: „Pabbi, flýttu þér, fót- leggurinn á mér brennur.“ _ Volcano: Fire on the Mountain: „Ég finn reykjarlykt! Það mun allt brenna." Hetjudáð Dante’s Peak: „Hlustaðu á mig, Paul, komdu þér í burt núna, gerðu það!“ Volcano: „Svona nú, komdu þér burt héðan! Það tekst ef þú hleyp- ur!“ Volcano: Fire on the Mountain: „Ég skil þig ekki eftir hérna.“ Þörf viðbrögð Dante’s Peak: „Drífum okkur, drífum okkur, enn og aftur, drífum okkur!“ Volcano: „Áfram, áfram, áfram, áfram, áfram!“ ^ Volcano: Fire on the Mountain: „Áfram, áfram, áfram!“ Þjáning aukaleikara Dante’s Peak. „Við sökkvum! Við höfum þetta ekki af!“ Volcano: „Bjargið mér héðan!“ Vclcano: Fire on the Mountain: „Hjálpið mér, gerið það, hjálpið mér!“ Aætlun mótuð Dante’s Peak: „Ég verð að kom- ast til barnanna." Volcano: „Allir út! Við erum að yfirgefa Hard Rock!“ Volcano: Fire on the Mountain: „Þetta er of hættulegt, þetta tekst ekki!“ Boðskapur myndarinnar Dante’s Peak: „Maður á aldrei að geyma kaffibaunir í frystin- um.“ Volcano: „Sjáið andlitin á þeim! Þeir eru allir eins.“ (um skítuga björgunarstarfsmenn af ýmsum kynþáttum). Volcano: Fire on the Mountain: „Guð er til.“ Bestu atriðin Dante’s Peak: Vísindamaður um borð í báti úr málmi: „Gosið hefur breytt vatninu í sýru.“ Bæjarstjór- inn: „Sýra eyðir málmi.“ Volcano: Vísindamaður: „Borgin er loksins að borga fyrir hroka sinn.“ Volcano: Fire on the Mountain: Vísindamaðurinn: „Það er ný kvikuþró að skapast þarna og hún á eftir að gjósa! Ég finn það á mér.“ Yfirmaðurinn: „Jarðfræði eru vísindi, hr. Slater, ekki byggð á yfirskilvitlegum hugboðum.“

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.