Morgunblaðið - 20.06.1997, Page 10
10 FÖSTUDAGUR 20. JÚNÍ 1997
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Tveir ungir
menná
gjörgæslu
PILTUR á sautjánda aldursári var
fluttur, alvarlega slasaður, með þyrlu
Landhelgisgæslunnar til Reykjavíkur
að morgni 17. júní, eftir að hafa orð-
ið fyrir fólksbíl á Garðagrund á Akra-
nesi. Hann hlaut mikið höfuðhögg
og einhver meiðsl á handleggjum.
Að sögn læknis á gjörgæsludeild
Sjúkrahúss Reykjavíkur er pilturinn
enn meðvitundarlaus en hann er kom-
inn úr öndunarvél.
Þá varð alvarlegt vélhjólaslys í
Njarðvík seinni part mánudags.
Slysið varð með þeim hætti að öku-
maður vélhjólsins missti vald á hjól-
inu þegar hann var að fara fram
úr bíl á Hafnarbraut. Við það skall
maðurinn á götuna og hentist í stein-
vegg skammt frá. Maðurinn var með
hjálm en getum hefur verið að því
leitt að hann hafi ekki verið nógu
vel festur.
Morgunblaðið/Þorkell
Forseti ASF
í heimsókn
NÝR forseti, Edward P. Gallagh-
er, tók í fyrra við forystu hjá
American-Scandinavian Found-
ation (ASF) í New York en ASF
eru óháð samtök sem stuðla að
samskiptum Bandaríkjanna og
Norðurlandanna á sviði mennta-
mála og menningar. Gallagher er
staddur hér á landi í heimsókn
ásamt Kristjáni T. Ragnarssyni,
lækni og prófessor í New York,
en hann er einn af varaforsetum
félagsins. Myndin er tekin er þeir
hittu nokkra af velunnurum Am-
erican-Scandinavian Foundation
á fundi á Hótel Holti. Frá vinstri
eru Sigurður Helgason, fyrrver-
andi stjórnarformaður Flugleiða,
Garðar Halldórsson, húsameistari
ríkisins, Kristján T. Ragnarsson,
Edward P. Gallagher, dr. Jóhann-
es Nordal, fyrrverandi seðla-
bankastjóri, og Þórður S. Óskars-
son, formaður Íslensk-ameríska
félagsins.
I \
1| ffjm \JLbbl
AUK hópsins sem lauk rekstrarnáminu eru í fremri röð fyrir miðju þau Sveinbjörn Björnsson
háskólarektor, Margrét S. Björnsdóttir endurmenntunarstjóri og Valdimar K. Jónsson sljórnarfor-
maður Endurmenntunarstofnunar.
Endurmenntunarstofnun Háskóla Islands
24 nemendur útskrifaðir úr
rekstrar- og viðskiptanámi
NEMENDUR í þriggja missera
námi Endurmenntunarstofnunar
Háskóla íslands í rekstrar- og við-
skiptagreinum voru brautskráðir
sl. föstudag í 13. sinn. Var um að
ræða 24 nemendur sem luku
þriggja missera námi.
Frá ársbytjun 1990 hefur
Endurmenntunarstofnun boðið upp
á hagnýtt og heildstætt nám í
helstu viðskiptagreinum fyrir fólk
með reynslu í rekstri og stjórnun.
AIls hafa um 350 manns lokið
náminu. Helstu þættir þess eru
rekstrarhagfræði, reikningshald
og skattaskil, fjármálastjórn,
stjómun og skipulag, starfsmanna-
stjórnun, upplýsingatækni í rekstri
og stjórnun, framleiðslustjórnun,
markaðs- og sölufræði, réttarregl-
ur og viðskiptaréttur, þjóðhag-
fræði og haglýsing og stefnumót-
un. Tveggja missera framhalds-
nám stendur til boða annað hvert
ár.
Bestum árangri að þessu sinni
náði Sigrún Guðmundsdóttir lög-
fræðingur hjá ríkislögmanni,
ágætiseinkunn 9,11. Aðrir sem
luku prófinu em Daníel Arason
Lífeyrissjóði Suðurnesja, Daníel
Lárusson Morgunblaðinu, Dögg
Káradóttir Stéttarfélagi félagsráð-
gjafa, Erna Guðmundsdóttir
Blindrafélaginu, Friðrik Halldórs-
son Söluturninum Óðinstorgi, Guð-
mundur Bjömsson Skátasambandi
Reykjavíkur, Guðrún Hildur Haf-
steinsdóttir Búnaðarbanka íslands,
Hulda Birna Guðmundsdóttir Nor-
diska Genbanken, Ingvar Ragnars-
son Myllunni-Brauði hf., Jóhanna
Engilbertsdóttir Ásgeiri Einarssyni
hf., Jóhanna Reynisdóttir Vatns-
leysustrandarhreppi, Kristín Ó.
Ragnarsdóttir Marel hf., Kristján
Geir Arnþórsson Reiknistofu bank-
anna, Margrét Óskarsdóttir Lands-
virkjun, Oddný Árnadóttir íslands-
banka, Ólafur Loftsson Bóksölu
kennaranema, Ólafur Þorsteinsson
íslenskum aðalverktökum, Sigríð-
ur Pálsdóttir Samvinnusjóði ís-
lands, Sigurður Þorleifsson Tækni-
þjónustu Sig. Þorl. ehf., Sig-uijón
Hansson SPRON, Steinunn
Bjarnadóttir SAS á íslandi, Þóra
Þórarinsdóttir Menntaskólanum
við Hamrahlíð og Þórunn Kristins-
dóttir Búnaðarbanka íslands.
Lús á höfuð-
borgarsvæðinu
„VIÐ HÖFUM orðið vör við fjórar
bylgjur af lúsafaraldri frá áramót-
um,“ segir Jón Ingvarsson, lyfsali
Hringbrautarapóteki.
„Vandamálið er raunar að þegar
lúsafaraldur kemur upp í barnaskóla
eða leikskóla þá virðast aðgerðir
ekki nógu markvissar í því að með-
höndla allar fjölskyldur samtímis og
þrífa skóla og Ieikfimisali á sama
tíma.“
Aukning virðist hafa verið síðari
árin, að sögn Jóns. „Ef til vill er
engin einhlít skýring á því,“ segir
hann. „En það virðist úr takti við
tímann að eftir því sem hreinlæti
er aukið komi svona faraldur upp í
síauknum mæli.“
Lúsin hefur myndað aukið þol
Ráðið við lús er fyrst og fremst
að bæta almennan þrifnað og með-
höndla hana þegar hún kemur upp
með tilætluðum lúsalyfjum, sem eru
bæði lausnir á húð og hársápa.
„Virkni þessara lyfja virðist þó ekki
vera sem skyldi,“ segir Jón.
„Vegna fjölda tilfella hefur lúsin
myndað sér aukið þol og virðast lúsa-
lyfin ekki duga nógu vel. Enda er
það alþekkt að það sem verður fyrir
áreiti aftur og aftur myndar mót-
stöðu gegn áreitinu."
Kostnaður fyrir fjölskyldur á
hvert höfuð er um 1.600 til 1.700
krónur ef miðað er við tvær skolan-
ir og algengasta lyfið, að sögn Jóns.
Þetta er ódýrasti möguleikinn, en
ef einhverjir erfiðleikar koma upp
verður kostnaðurinn meiri.
Að hans mati getur þessi mikli
kostnaður verið hluti af skýringunni
á því að fólk taki ekki þátt í fyrirskip-
uðum aðgerðum af hálfu stjórnenda
barna- og leikskóla. „Afleiðingin er
sú að það er aldrei verið að eyða
lúsinni í öllum höfðum á sama tíma,
heldur aðeins að hluta til. Sem þýð-
ir að lúsin getur alltaf tekið sig upp
aftur.“
Langbylgjan í loftið
Ólafsvík - Á Gufuskálum er unnið
af miklum krafti við að koma upp
sendum og tækjum sem senda út
langbylgju en þar voru áður lóran-
sendar. Að sögn þeirra sem vinna
við þetta er stefnt að því að lang-
bylgjan verði komin í loftið 26.
júní nk. og eiga þá allir landsmenn
vestan við mitt landið að heyra vel
og truflunarlaust í langbylgjunni.
Þegar fréttaritari var á ferð voru
rafvirkjarnir Siguijón, Reynir og
Sigurður að koma raflögnum fyrir
í sendunum.
Morgunblaðið/Guðlaugur Wium
TIL LEIGU VIÐ DUGGUVOG
914 fm atvinnuhúsnæði, innréttað fyrir matvælaframleiðslu að
kröfum EES. Getur samt hentað hvers konar annarri atvinnu-
starfsemi. Teikningar og allar nánari upplýsingar á skrifstofu.
Ársalir ehf - fasteignasala
Lágmúla 5, 108 Reykjavík sími 533 4200.
Kjalarnes og Reykjavík
Kosið um sameiningu á morgun
KOSIÐ verður um sameiningu
Kjalarneshrepps og Reykjavíkur á
morgun, laugardaginn 21. júní
nk., og verða kjörstaðir opnir milli
klukkan 10 og 22. Kosning utan-
kjörstaða er þegar hafi og fer hún
fram hjá sýslumönnum, fógetum
og í sendiráðum erlendis. Á kjör-
skrá í Reykjavík eru 77.527 og í
Kjalarneshreppi eru 343. Gert er
ráð fyrir að niðurstaða verði feng-
in um eða eftir miðnætti aðfara-
nótt sunnudags.
Engin lágmarks þátttaka er til-
tekin til að kosningin teljist lögleg
að sögn Gunnars Eydal, skrifstofu-
stjóra borgarstjórnar, og benti
hann á að þegar kosið var um
sameiningu Reykjavíkur, Mosfells-
bæjar, Kjalarness, Kjós og Sel-
tjarnarness árið 1994 hafi þátttak-
an verið 24,1% í Reykjavík.
Verði sameining samþykkt nú á
báðum stöðum, þ.e. í Reykjavík og
á Kjalarnesi, þarf að koma til laga-
setning samkvæmt sveitar-
stjórnarlögum, þar sem sameining
sveitarfélaganna nær yfir kjör-
dæmamörk.
í Kjalarneshreppi verður kosið
í félagsheimilinu Fólkvangi en í
Reykjavík verður kosið á fimm
kjörstöðum. I Feliaskóla fynr
Breiðholtshverfi, í Árbæjarskóla
fyrir Árbæjarhverfi, Seláshverfi og
Artúnsholt, í Foldaskóla fyrir
Grafarvogshverfí, í Laugardalshöll
fyrir borgarhverfin frá og með
Snorrabraut að Elliðaám og í Ráð-
húsinu fyrir borgarhverfin vestan
Snorrabrautar. Auk þess verða
kjördeildir opnar á Elliheimilinu
Grund frá kl. 10-12, á Hrafnistu
frá kl. 13-15 og í Hátúni 12 frá
kl. 16-22.
Kjósendum er skylt að gera kjör-
stjórn grein fyrir sér með því að
framvísa persónuskilríkjum.