Morgunblaðið - 20.06.1997, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 20.06.1997, Blaðsíða 18
18 FÖSTUDAGUR 20. JÚNÍ 1997 MORGUNBLAÐIÐ VIÐSKIPTI Tvísköttunarsamningur milli íslands og Kanada Kemur í veg fyrir undanskot frá skattí RÍKISSTJÓRNIR íslands og Kanada hafa gert með sér samn- ing til að komast hjá tvísköttun og koma í veg fyrir undanskot frá skattlagningu á tekjur og eignir. Samningurinn var undirritaður í utanríkisráðuneytinu í gær. Tvísköttunarsamningar milli ríkja hafa þau áhrif að lagðir eru sambærilegir eða svipaðir skattar á sama skattstofn skattaðila fyrir sama eða svipaðan tíma í umrædd- um ríkjum. Slíkir samningar fela í sér gagnkvæmar ívilnanir á tekju- og eignarskatti íslenskra og erlendra aðila, sem ættu sam- kvæmt gildandi skattalöggjöf ríkj- anna að greiða skatt af sömu tekj- um eða eignum, bæði á íslandi og erlendis. íslensk stjórnvöld hafa nú þegar gert slíka tvísköttunarsamninga við önnur ríki, t.d. Norðurlöndin, Bandaríkin, Bretland, Frakkland, Þýskaland og Sviss. Atak til að fjölga tvísköttunarsamningum Garðar Valdimarsson ríkis- skattstjóri segir að á síðustu árum hafi staðið yfir sérstakt átak til að fjölga tvísköttunarsamningum við önnur ríki. Þannig hafa nú þegar verið gerðir samningar við Kína, Eistland og Lettland og inn- an skamms verður gengið frá samningum við Belgíu, Lúxem- borg og Holland. Þá eru samning- ar við Víetnam og Lithaugaland í undirbúningi og einnig er stefnt að því að ná slíkum samningum við Rússa og Tékka síðar. Segir Garðar að stefnt sé að því að tvís- köttunarsamningar verði í gildi við 19 erlend ríki að þessu átaki loknu. Morgunblaðið/Arnaldur JÓN H. Bergs, ræðismaður Kanada á íslandi, Franeois A. Mathys sendiherra og Helgi Ágústsson ráðuneytissljóri undirrituðu samning- inn. Að baki þeim er Tómas Heiðar aðstoðarþjóðréttarfræðingur. Ef ekki er til samningur við kvæmt umsókn skattaðila eða annað ríki um að komast hjá tvís- ábendingu skattstjóra, lækkað köttun getur ríkisskattstjóri, sam- tekju- og eignarskatt aðila. Aðalfundur Islenska hlutabréfasjóðsins Eignir sjóðsins jukust um 106% á síðasta rekstrarári HLUTHÖFUN íslenska hlutabréfa- sjóðsins fjölgaði um 1.800 á síðasta ári, eða um 48% og voru í lok ársins 5.533 talsins. Heildareignir sjóðsins námu í lok ársins rúmum 2,2 millj- örðum króna og höfðu aukist á árinu um 106%. í ræðu Björns Líndal, stjómar- formanns íslenska hlutabréfasjóðs- ins, á aðalfundi sjóðsins sem haldinn var í gær kom meðal annars fram að samkvæmt rekstrarreikningi varð hagnaður sjóðsins rúmar 148 millj- ónir króna á reikningsárinu. „Vegna reglna um reikningsskil er þessi hagnaður ekki bein vísbending um ávöxtun eigna sjóðsins þar sem aukning á óinnleystum gengishagn- aði er færð meðal eiginfjárliða í efnahagsreikn- ingi. Þessi aukning nam rúmum 305 milljónum króna eftir að tekið hefur verið tillit til reiknaðr- ar tekjuskattsskuldbindingar sem nam rúmum 160 milljónum. Ávöxtun eigna sjóðsins var því vel viðunandi á reikningsárinu og hækkaði innra virði eigna, að teknu tilliti til útgreidds arðs sl. sumar, um 41% frá maíbyijun 1996 til loka apríl 1997.“ Hækkanir valda ýmsum heilabrotum „Segja má að niðurstaða starfsársins endur- spegli á sinn hátt efnahagsbatann í landinu og bætt rekstrarumhverfi fyrirtækja. í fyrra var hagvöxtur 5,7% og spáir Þjóðhagsstofnun að vöxtur landsframleiðslu verði 3,5%, sem er svip- aður vöxtur og gert er almennt ráð fyrir í iðn- ríkjunum á þessu ári. Jafnframt bendir ýmislegt til að hagsæld muni ríkja i íslensku efnahagslífi fram yfir næstu aldamót," segir Björn. Hann fjallaði einnig um þær breytingar sem átt hafa sér stað að undanfömu á íslenskum hluta- bréfamarkaði og þær hækkanir sem hafa orðið á þingvísitölu hluta- bréfa undanfarin tvö ár. „Þessar hækkanir hafa valdið ýmsum heila- brotum og sumir talið hlutabréfa- verð orðið of hátt og spáð lækkun- um. Slíkar vangaveltur eru eðlilegar og þótt gengi á bréfum einstakra fyrirtækja lækki nokkuð sýnir það ekki endilega veikleika heldur á vissan hátt styrk og aukna virkni markaðarins. Jafnframt er það holl áminning til okkar að falla ekki í þá gryfju að halda að hlutabréfaverð hækki stöð- ugt.“ Markaðsvirði hlutabréfa 1,4 milljarðar Finnur Stefánsson, forstöðumaður hjá Lands- bréfum, kynnti á aðalfundinum ársreikning ís- lenska hlutabréfasjóðsins. í máli hans kom m.a. fram að ef horft er til skiptingar á milli atvinnu- greina í hlutabréfaeign sjóðsins, sem var að markaðsvirði 30. apríl sl. tæplega 1,4 milljarðar króna, er vægi sjávarútvegsins mest, 37%, iðn- fyrirtækin; Hampiðjan, Skinnaiðnaður, Samein- aðir verktakar, Jarðboranir o.fl. vega 13%, fjár- málafyrirtækin; íslandsbanki, Tryggingamið- stöðin og Sjóvá-Almennar 13%, Olis og Olíufé- lagið 4%, sölufyrirtækin ÍS og SÍF 6% en auk þess var í gær gengið frá kaupum sjóðsins á hlutabréfum í SH fyrir tæpar 60 milljónir króna en ekki kemur í ljós fyrr en að nokkrum vikum liðnum hvort af kaupum verður vegna réttar forkaupsréttarhafa. Pharmaco og Lyfjaverslun íslands 5%, Tæknival og Nýherji 2% og Eimskip og Flugleiðir 20% af hlutabréfasafni íslenska hlutabréfasjóðsins. Hlutabréfaviðskipti fyrir 25-30 milljarða Bjarni Brynjólfsson, hjá Landsbréfum, flutti erindi um hlutabréfamarkaðinn á aðalfundinum, en að hans sögn áttu sér stað viðskipti á Verð- bréfaþingi íslands og Opna tilboðsmarkaðnum fyrir um 7,9 milljarða á síðasta ári. „í ár er þessi tala komin í 9,3 milljarða. Þar eru ekki talin hin fjöldamörgu útboð sem námu á síðasta ári um 9,7 milljörðum né utanþingsviðskipti sem voru allnokkur og samkvæmt skrám Verðbréfa- þings eru þau metin á um 7 milljarða. Einkum var þó um viðskipti að ræða sem ekki voru til- kynnt þannig að búast má við að heildarveltan á síðasta ári með hlutabréf hafi verið á bilinu 25-30 milljarðar. Sama á sér stað í dag nema hvað utanþingsviðskipti skila sér betur inn til skráningar. Þó má nefna að í ár hafa Landsbréf selt 22% af hlutafé SH fyrir um 1,6 milljarð en SH er lokað hlutafélag og því ekki á markaði." Að sögn Bjarna sjá stöðugt fleiri fyrirtæki sér hag í því að skrá hlutabréf sín á Verðbréfa- þingi Islands, en alls eru 39 fyrirtæki skráð þar, en að hans sögn má búast við því að þau verði orðin um fimmtíu talsins um næstu áramót. Á aðalfundinum var samþykkt að greiða hlut- höfum 7% arð með gjalddaga 19 júlí næstkom- andi. Stjóm sjóðsins var endurkjörinn á fund- inum, en hana skipa Björn Líndal, stjómarformað- ur, Jakob Bjamason og Júlíus Vífill Ingvarsson. Björn Líndal Flugleiðir ogfleiri panta Rolls-Royce París. ROLLS-ROYCE hefur skýrt frá því á flugsýningunni í París að fyrirtækið geri ráð fyrir að fá pantanir í hreyfla að verðmæti allt að 200 millj. dollara í kjölfar þess að Flug- leiðir hafa pantað fjórar Bo- eing 757 farþegaþotur og tryggt sér rétt til að kaupa átta í viðbót. Rolls-Royce kveðst eiga von á pöntunum upp á að minnsta kosti um 750 milljónir dollara frá Flugleiðum, British Airwa- ys og suður-afríska flugfélag- inu (SAA) að sögn Evrópuút- gáfu Wall Street Journal. British Airways hefur stað- fest að félagið hafi valið Rolls- Royce hreyfla í 14 nýjar Bo- eing 757-400 flugvélar. Heim- ildir hjá BA herma að verðið á hreyflunum verði nálægt 500 milljónum dollara, en Rolls- Royce nefnir engar tölur. Fleiri panta hreyfla frá Rolls Royce SAA hefur einnig valið nýja útgáfu RB211 hreyfla Rolls Royce til að knýja tvær nýjar Boeing 747-400 flugvélar, sem félagið pantaði í febrúar. SAA á fyrir fjórar 747 vélar búnar Rolls Royce hreyflum. Áður hefur Airbus Industrie valið Rolls Royce Trent-900 hreyfla í lengda útgáfu fjög- urra hreyfla A340-300 flug- véla sinna. Umhverfisverðlaun starfsfólks Sorpu veitt í fyrsta skipti ísbúðin í Álfheim- um verðlaunuð ÍSBÚÐIN í Álfheimum hlaut umhverfisverðlaun starfsfólks endurvinnslustöðva Sorpu sem veitt voru í fyrsta skiptið í gær. Með verðlaununum vill starfsfólk Sorpu sýna því fyrirtæki eða ein- staklingl sem hefur verið til fyr- irmyndar í allri umgengni þakk- læti sitt og um Ieið hvetja aðra til að fylgja fordæmi þess. Magnús Stephensen, deildar- stjóri þróunar- og tæknideildar Sorpu, segir bakgrunninn að verðlaunaveitingunni vera þann að fá fólk til þess að flokka sorp betur heima þar sem um 350 þúsund bílar koma árlega í end- urvinnslustöðvar Sorpu og ef ekki er nægjanlega vel gengið frá og ruslið flokkað, þá myndist biðraðir við stöðvarnar viðskipta- vinum og starfsfólki Sorpu til óþæginda. „Isbúðin i Álfheimum hefur Morgunblaðið/Amaldur STARFSFÓLK Sorpu fjölmennti í ísbúðina í Álfheimum í gær með viðurkenningarskjalið vakið athygli starfsfólks Sorpu allt frá upphafi fyrir óaðfinnan- leg vinnubrögð við frágang sorps og nákvæma flokkun alls úrgangs sem hægt er að flokka. Hilmir _ Sigurðsson, framkvæmdastjóri fyrirtækisins, hefur útbúið sér- stakan vagn eða kerru til að auð- velda flokkun úrgangs en vönduð flokkun er alger forsenda allrar endurvinnslu. Góð umgengni, flokkun úrgangs og endurvinnsla er undirstaða náttúruverndar og á því sviði stendur ísbúðin í Alf- heimum uppúr." Verðlaunin verði árleg hefð Starfsmenn endurvinnslu- stöðva Sorpu hugsa sér að veita umhverfisverðlaun endurvinnslu- stöðvanna árlega til viðskiptar- vinar, fyrirtækis eða einstaklings sem hefur skarað framúr á þessu sviði. I- I I: » » l, » » » » » t # » ( _L
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.