Morgunblaðið - 20.06.1997, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 20.06.1997, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. JÚNÍ1997 23 Sýning á ljósmyndum SÝNING á ljósmyndum eftir Haf- dísi Bennett verður opnuð í Gall- eríi Sölva Helgasonar, Lónkoti, Sléttuhlíð, Skagafirði, laugardag- inn 28. júní nk. Myndirnar voru flestar teknar á sama kvöldinu í júlímánuði í fyrra og sýna náttúru sveitarinn- ar í miðnætursól. Sumarsýn- ing á verkum Sigurjóns í LISTA- SAFNI _ Sig- uijóns Olafs- sonar hefur verið opnuð sumarsýning á 27 völdum verkum eftir Siguijón. Eru þau öll úr fór- um safnsins og tengjast minni eða stefi úr náttúrunni. Heiti sýningarinnar er Gróandi og er bein skírskotun til nokkurra mynda með sama heiti. Verkin spanna rúmlega 40 ára Nýjar bækur • ÚT er komið ritið Keltaráís- landieftir Hermann Pálsson. í kynningu segir að bókinni sé ætlað að svala forvitni þeirra sem sætta sig ekki við þá einföldu hugmynd að íslensk fornmenning sé norræn að öllu leyti. í bókinni er fjallað um Papa, írska og suðureyska landnáms- menn, Kólumkilla, Kjarva! írakon- ung og niðja hans, vestrænar höfð- ingjadætur sem verða íslenskar húsfreyjur og keltnesk mannanöfn sem forfeður vorir báru og minnst er í fornum ritum. Háskólaútgáfan gefur bókina út og sérjafnframt um dreifingu. Hún er240 bls. ogkostarkr. 2.490. tímabil og hafa sum þeirra ekki kom- ið fyrir almenningssjónir í nokkra áratugi. Flest eru þau unnin í tré en einnig eru verk í stein og kopar. Til þess að gestir safnsins fái einn- ig að kynnast portrettlist Siguijóns eru til sýnis þijár þekktar portrett- myndir í brons og í safninu er að- staða til að skoða vandað myndband um þennan þátt í lífsverki lista- mannsins. Yfir sumartímann er safnið opið alla daga nema mánudaga milli kl. 14 og 17. Kaffistofa safnsins er opin á sama tíma. KVIKMYNPIR Regnboginn/ Iláskólabíó „LE CINQUIEME ÉLÉMENT" ★ ★ ★ Leiksjóri: Luc Besson. Handrit: Luc Besson og Robert Mark Kamen. Leikmyndahöfundur: Dan Weil. Bún- ingahönnuður: Jean-Paul Gaultier. Aðalhlutverk: Bruce Willis, Gary Oldman, Milla Jovovich, Ian Holm, og Chris Tucker. 127 min. Frönsk. Gaumont/Columbia Pictures Corpor- ation. 1997. „LE CINQUIEME élément" segir svo einfalda sögu að stundum virð- ist í raun engin saga vera í gangi og allt í upplausn. Einfaldleiki sög- unnar, gott berst við illt og hetjan bjargar heiminum, er undirstrikað- ur í því að ekkert er gert til að gefa persónum dýpt. Ein segir í barnslegri einlægni „Ég æðsta vera alheimsins. Ég fimmta höfuðefnið,“ og allar standa á öndinni yfír því hve hún er fullkomin. Annaðhvort gleypir maður svona framsetningu LISTIR TONLIST Kópvogskirkja KÓRTÓNLEIKAR Skólakór Kársness undir stjóm Þórunnar Bjömsdóttur flutti ís- lenska og erlenda söngva. Sunnu- dagminn 15. júní 1997. SKÓLI gegnir margþættu hlut- verki í uppeldi nemenda og það er ekki eingöngu námsefnið sem skiptir máli, heldur og sú þjálfun sem nemendur öðlast í átökum við margvísleg verkefni. Tónlistarnám er ekki aðeins fólgið í því að læra að leika á hljóðfæri og syngja. Sú sjálfsög- un og samvirkni sem tengja má tónlistariðkun er mikilvægt og birtist mjög skýrt í starfi kóra. Þá er og merkilegt, að starf kóra er ekki aðeins gefandi fyrir þátt- takendur, heldur og njóta áheyr- endur þess, sérstaklega ef vel hefur verið staðið að verki. Þar í er fólginn lykillinn að þeirri sérstöðu sem kórar hafa, að starf þeirra hefur í raun alþjóðlegt gildi, er boðlegt hvar sem er á heimsbyggðinni, fyrst og fremt vegna þess að tónmálið er alþjóð- legt. Lag býr yfir einni og sömu vikrni, hvar sem það heyrist og vel gert lag er ekki aðeins ti! ánægju fyrir þann sem hlýðir á það, heldur vekur það hlustand- anum oftlega löngun til að taka undir. Að þekkja eitthvert form fegurðarinnar er mikilvægt og líklega snertir fátt sterkar en Aðala upp sín böm blíður og fagurmótaður barna- söngur. Þórunni Björnsdóttur hefur tekist að samþætta sönggleðina og ögunina, í starfi Skólakórs Kársness og það sem gat að heyra á tónleikum kórsins sl. sunnudag, var að áheyrendur, væntanlega foreldrar og vinir kórfélaganna, eiga sér sín uppáhaldslög, sem þýðir að söngur barnanna hefur náð heim til þeirra, er ekki eitt- hvað sem aðeins gerist í skólan- um. Þórunn brá á það ráð að láta hlustendur velja viðfangsefnin úr viðamikilli efnisskrá og það sem var merkilegt við val áheyrenda, var að nútímalegustu verkin voru ekki síður valin en þau sem helst eru talin vinsæl, ómþýðust. Má þar nefna lög eins Dúfa, dúfa eftir Þorkel Sigurbjömsson, Synir Jakobs, eftir Kostiainen, sem bæði voru kostulega vel sungin. Þá var unun á að hlýða, er kórinn söng Ó, undur lífs, eftir Jakob Hallgrímsson og alýðulagið Dag- ur er risinn. Hvar eru fuglar, sungið við rússneskt þjóðag, sýn- ir hversu lítið fer fyrir landamær- um á sviði tónlistarinnar og af öðrum erlendum lögum, sem voru sérstaklega falleg, má nefgna Ave Maria, eftir Koldály og Lyftu þínum augum upp, eftir Mend- elssohn. Tónleikarnir hófust á Þótt þú langförull legðir, kvæði Stehans G. Stephanssonar er nam land í Kanada, og Sigvaldi Kaldalóns tónklæddi svo glæsilega. Þetta er því einkennislag kórsins, því þessa stundina er kórinn á tón- leikaferðalagi í Kanada. Það tók lengri tíma en á venjulegum tón- leikum, að fara eftir óskum hlust- enda og víst er að margir áttu sér óskir, sem ekki vannst tími til að sinna og segir það nokkuð um vinsældir kórsins. Nærri þrír tugir laga voru fluttir og það sem einkenndi allan flutning barnanna var, eins fyrr sagði, frábær ögun og sönggleði. Öll lögin eru þegar kunn sem verkefni kórsins á liðn- um árum, nema tvö kandadísk söngverk, Away from the Roll of the Sea, eftir A. MacGillivray og I’se the B’y, eftir J Covedas, vel gerð tónverk, sem voru, eins og allt sem kórinn söng, frábærlega vel flutt. Það er vel hægt að trúa á hið íslenska vor, þegar æskan syngur svo fagurlega sem Skólakór Kárs- ness og þakka má Þórunni fyrir hversu vel hún hefur alið upp sín börn, og er kórnum óskað góðrar ferðar til Kanada og heimkomu með allt heilt. Jón Ásgeirsson Framtíðinni bjargað með „stæl“ með bros á vör eða lýsir frati á myndina og gengur út. Þeir sem hafa gaman af verða ekki fyrir vonbrigðum því mynd Luc Besson er algjört bíó. Bruce Willis leikur Korben Dall- as, leigubílstjóra í New York, árið 2214. Hann er auðvitað einnig fyrr- verandi sérsveitarhermaður sem kann að meðhöndla öll möguleg morðtól og farartæki. Þekking sem kemur sér vel þegar hann fær skip- un frá fyrrverandi yfirmanni sínum um að bjarga heiminum frá gjöreyð- ingu. Willis er að vanda kaldhæðinn og kankvís en ívið rómantískari en maður á að venjast úr öðrum hasar- myndum með hetjunni. Korben Dallas verður yfir sig heillaður þegar hann kynnist hinni hundeltu Leeloo (Millu Jovovich). Hún er falleg, sakleysisleg, og varn- arlaus, en á samt í engum vandræð- um með að lúbeija heila hersveit af geimverum sem líta út eins og nashyrningar. Má segja að hún sé aðeins hlýlegri útgáfa af „Nikitu“. Jovovich smellur vel í rulluna, strákslega glæsileg, og með sjarm- erandi hreim. Gary Oldman er handbendi illra afla á jörðu niðri og einstaklega skemmtilegur skúrkur. Hans hlut- verk sýnir best að áherslan í „Le cinquieme élément" er meira á grín en hasar af því að Jean-Baptiste Emmanuel Zorg (Oldman) er langt frá því að vera skelfilegur fantur. Þeir sem fara á myndina og halda að þeir séu að fara að sjá franska „Die Hard“ verða þess vegna ör- ugglega fyrir vonbrigðum. Mynd Besson er nefnilega létt sumarfroða í geysilega flottum umbúðum. Dan Weil leikmyndahöf- undur, Nick Dudman brúðuhönnuð- ur, Jean-Paul Gaultier fatahönnuð- ur, og tölvutæknilið hjálpa Besson að skapa glannalega umgjörð um atburðarásina. Umferð í mörgum lögum, góðviljaðar geimverur sem líta út eins og björgunarhringir úr stáli, og Titanic slysið í geimnum. Allt má þetta finna í „Le cinquieme élément" enda myndin samsuða úr öllu mögulegu: „Star Wars“, „Star- gate“, James Bond-myndunum, „Blade Runner“, „Indiana Jones“, og að sjálfsögðu „Die Hard“. Anna Sveinbjarnardóttir GRLRNT
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.